Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 11
Föstudagur 9. febrúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 LOKS KOM SIGURINN YFIR SOVÉTMÖNNUM Frábær markvarzla Olafs Benediktssonar í síöari hálfleik tryggði sigurinn Loks í 5. landsleik islendinga og Sovétmanna i handknattleik bar islenzka liðið sigur úr býtum og það svo að um munaði eða 23:19. Þessi sigur var fyllilega verðskuldaður og hefði getað orðið mun stærri ef óvarlega hefði ekki verið farið i sókninni undir lokin þegar séð var að íslenzkur sigur var i höfn. Það má fullyrða að frábær markvarzla Ólafs Benediktssonar, sem var tekinn inn i liðið fyrir Birgi Finnbogason einhverra hluta vegna, hafi ráð- ið úrslitum. Hjalti Einarsson varði markið i fyrri hálfleik og hefur oft staðið sig betur, en eftir að Ólafur kom i markið i síðari hálfleik tók hann til við að verja hvert skotið á fætur öðru,og siðari hluta hálfleiksins hreinlega lokaði hann markinu. Það var þó allt annað en að byrjun leiksins væri glæsileg hjá báðum liðum. Fyrstu 3 sóknir beggja liða runnu út i sandinn. Það var ekki fyrr en 4 mfnútur voru liðnar af leik að Sovétmenn skoruðu fyrsta markið. Geir jafnaði strax i næstu sókn isl. liðs- ins og voru þá um það bii 6 minútur liðnar. 1 næstu sókn hitti Einar Magnússon stöngina og þar næst hitti Geir ekki markið en úr báðum sinum sóknum skoruðu Sovétmenn og staðan þvi orðin 3:1. Guðjón Magnússon nýliðinn i islcnzka liðinu skoraði 2. mark islenzka liðsins og Geir jafnaði úr viti þegar 10 minútur voru liðnar. Siðan var jafnt 4:4, 5:5 6:6 og 7:7. Þá tóku Sovétmenn góðan kipp og skoruðu 3 mörk i röð án þess að landanum tækist að skora og staðan varð 10:7. Þá var einum sovézku leikmanninum visað af ieikvelli og á meðan skoruðu fslendingarnir 2 mörk og þannig var staðan 10:9 i leikhléi. í siðari hálfleik byrjaði Geir á því að jafna 10:10. Það var svo ekki fyrr en eftir 6 minútur af leik að fslendingarnir komust i fyrsta sinn yfir 13:12 en þá hafði Ólafur varið af snilld. Siðan kom 14:12 en Sovétmenn jöfnuðu 14:14 og komust yfir 15:14. En jafnt varð 16:16 og þá voru um það bil 14 minútur liðnar og þá fyrst fór Ólafur að sýna sinar beztu hliðar i markinu. Hann varði nú hvert skotið á fætur öðru og félagi hans Ólafur H. Jónsson sýndi einhvern bezta leik sem maður hefur séð til hans og skoraði hvert markið á fætur öðru, eða gaf á linuna svo mörkin komu. Staðan var svo orðin 19:16 fyrir tsland þegar 19 min. voru liðnar og 21:16 þegar liðnar voru 23 minútur og má segja að þar með hafi sigurinn verið i höfn. tslenzka liðið slakaði mjög undir lokin, þannig að loka- tölurnar urðu 23:19 sigur fyrir tsland. Það verður að scgjast eins og er, að íslenzka liðið lék mjög misvel þennan leik. Nokkrir leik- menn voru langt frá sinu bezta, menn eins og til að mynda Axel Axelsson og Einar Magnússon voru ekki svipur hjá sjón á móti þvi sem þeir hafa beztir verifk Guðjóni Magnússyni fyrirgefst meira en öðrum þar eð hann var að leika sinn fyrsta landsleik og taugarnar ef til vill ekki i sem beztu lagi. En mennirnir sem báru af á vellinum voru þeir Ólafur H. Jónsson og Ólafur Benediktsson. Ólafur Jónsson var bezti maður- inn bæði i vörn og sókn og greini- lega sá er rak aðra áfram með krafti sinum og hörku. Geir Hallsteinsson átti ágætan leik i sókninni en gerði margar skyssur i vörninni, sem Sovétmenn not- færðu sér til hins ýtrasta. Gunn- steinn, Auðunn og Agúst- ögmundsson áttu allir góðan leik lengst af, svo og þeir Sigurbergur og Björgvin Björgvinsson. Það er auðvitað af og frá að þetta sovézka lið sé bezta lið Sovétríkjanna i handknattleik, langt þvi frá. Enda mun þetta vcra Grúsiu-úrval sem Sovét- menn senda hingað að þessu sinni. Allir leikmennirnir eru mjög lágvaxnir, en snöggir og leiknir með boltann. Liðið hefur enga langskyttu en skemmtilega linumenn og góða markverði. Beztu menn Iiðsins fundust mér Bunadze (5), Beriashvili (6) og Chkonija (15) Mörk islcnzka liðs- ins: Geir 8 (4 viti) Ólafur 5, Einar 3, Gunnsteinn 2, Auðunn 2, Björgvin Guðjón og Agúst 1 mark hver. — S.dór. 181* Ólafur H. Jónsson, bezti maður islenzka liðsins ógnar hér, en sovézka liðið er vel á verði eins og ailtaf þegar hann fékk boltann og aö siðustu var hann eltur hvert fótmál. (Ljósm. Gunnar Steinn) Einar Magnusson stekkur upp og ognar. (Ljósm. Gunnar Steinn)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.