Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 10
1« SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 9. febrúar 1973 Tíu lið mótmu Umsóknarfrestur til þátt- töku í Islandsmótinu i blaki er nú útrunninn og hafa 10 lið til- kynnt þátttöku, sem er mun meira en búizt var við fyrir- fram. Eins og áöur scgir verður tslandsmótið i fyrstu lotu skipt niður i svæðismót. A vestur- landi munu keppa IS, íslands- meistararnir 1970 og 1971, UMF isiendingur, en það lið skipa nemendur á bænda- skólanum á Hvanneyri, og UMSK, en það lið munu skipa kennarar viö skólana í Kópa- vogi og Garðaltreppi. i Norðurtandsriöli kcppa ÍMA , nemendur Mennta- skóians á Akureyri, en þéir uröu islandsmeistarar i fyrra, UMSE og HSÞ. Aðeins eitt lið kemur frá Austurlandi, li A, og munu nemendur Eiðaskóla fylla þaö lið. Frá Suðurlandi koma þessi liö: UMF Laugdæla. en það lið skipa kennarar frá Laugar- vatni, UMF Biskupstungna, skipað nemendum iþrótta- kennaraskóla islands, og UMF Hvöt Grtinsnesi, en það munu vera nemendur Menntaskólans á Laugar- vatni. Fyrst fer fram svæðiskeppni eins og áður scgir og á hún aö hefjast t inarz. Úr hverjum riðli koma svo 2 liö til úrstita- keppninnar, sem fer fram i Revkjavlk og á Akureyri. Þar sem aðcins eitt iiö kemur úr Auslurlandsriðli mun það lcika við þau tvÖ lið sem veröa cfst í Norðurlands- ríölinum. Úrslitakcppnin fer fram tvær fyrstu helgarnar i april. r * l iþróttafélag Menntaskólans á Akureyri, IMA, hefur ákveðið að gangast fyrir blak- móti f iþróttaskemmunni á Akureyri á sunnudaginn og munu 3 lið keppa, ÍMA, ÍS og UMSE. Aðgangur að móti þessu er ókeypis. Skólamót í blaki á vegum Blakasamband islands hefur ákveöið að gangast fyrir skólamótí Í biakl milli fram- haldsskólanna ( Reykjavik og nágrenni. Aætlað er að mótinu ljúki fyrir 1. april en frestur til að skila þátttökutilkynningum rennur út 15. febrúar nk. Skai senda tilkynningar til BLi i pósthólf 864 sem allra fyrst og má senda eitt lið pilta og eitt lið stúlkna frá hverjum skóla. Tilgreina þarf nafn þjálfara eða fyrirliða f umsókninni. Unglingameistaramót Íslands í lyftingum háð á sunnudaginn A sunnudaginn kemur fer fram fyrsta lyftingamót þessa árs, en það er unglinga- meistaramótið. Keppt verður i lyftingasalnum að Brautarholti 22 og hefst keppni kl. 14. Hinn stór efnilegi lyftinga- maður Gústaf Agnarsson verður meðal keppenda i þungavigt og er hætt við að hann fái litla sem enga keppni i sjálfu mótinu, en hinsvegar mun Guðmundur Sigurðsson keppa sem gestur i þungavigt og verður eflaust um keppni milli hans og Gústafs aö ræða. Þá mun Óskar Sigurpálsson einnig kcppa sem gestur á mótinu. Það má þvf búast viö all skemmtilegri keppni á þessu móti. Þess má svo að iokum geta, að sjálft islandsmeistaramótið fer fram dagana 17. og 18. marz nk. Tveir af beztu lyftingamönnum okkar, þeir Guömundur Sigurðsson tv. og Gústaf Agnarsson th., verða meöal keppenda á lyftingamótinu á sunnudaginn. En þar sem þetta er u-meistaramót keppir Guömundur sem gestur. Keino gerist atvinnu maður Kipchoge Keino frá Kenya hefur undirritað samning við Frjálsiþróttasamband at- vinnumanna. Keino, sem hlaut gullverð- laun i 1500 m hlaupi á ÓL i Mexikó og gullverðiaun i hindrunarhlaupi á ÓL i Múnchen, mun þvf hinn 23. marz nk. mæta heimsmet- hafanum i 1500 m hlaupi Jim Ryan og einnig hinum fræga hlaupara Tom van Ruden, en þeir hafa báðir gerzt atvinnu- menn og fyrsta mót atvinnu- mannasainbandsins verður haldið i Alpuqucrque í Nýja Mexikó 23. marz. Það gerist nú æ tíðar að frægir iþróttamenn, bæði i frjálsiþróttum og skauta- hlaupi, gerist atvinnumenn hvað sem þvi veldur. Ef til vill búast menn við að hinar úreltu áhugamannareglur verði af- numdar á Ólympiuleikunum i framtiðinni. Júgóslavneska liðið Zagreb til Islands Nú er skammt stórra högga í milli í íslenzkum handknattleik. Sovézka landsliðið lék hér fyrri leikinn við hið íslenzka í gærkvöld og liðin leika síðari leikinn á morgun, og strax eftir helgina kemur júgoslavneska liðið Zagreb hingað til lands í boði KR, sem á vetrarheimsóknina að þessu sinni. Zagreb mun leika hér f jóra leiki, og þann fyrsta á þriðjudaginn. Það mun leika við Fram, Val, FH og úrvalslið HS(. Um það þarf ekki að fara mörgum orðum hve sterkir Júgóslavar eru í handknattleik, það vita allir. Þeir urðu Olympíu- meistarar í Múnchen og lið frá Júgóslavíu varð Evrópumeistari félags- liða á síðasta ári. Sem dæmi um styrk- leika j úgósla vneska landsliðsins á ÖL má nefna að það sigraði hið japanska 20:14, banda- ríska 25:15 og hið ung- verska 18:16. ( milliriðli sigruðu Júgóslavar V- Þjóðverja 24:15 og Rúmena 14:13. Síðan sigruðu þeir Tékka í úr- slitum 21:16. Þetta er enginn smá árangur, og þegar þess er gætt að Zagreb-liðið er eitt allra bezta lið Júgóslavíu í dag. þá verður ekki við neina smá karla að etja fyrir íslenzku liðin þegar þau mæta því. Við munum skýra nánar frá Júgóslavneska liðinu í blaðinu á þriðjudaginn kemur. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.