Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓDVII..IINN Föstudagur 9. febrúar 1973 LÍF OG FJÖR Á FÖSTUDÖGUM Þvegnar Denimbuxur Smekkbuxur úr rifluðu flaueli Duffle Coat úlpur í nýjum litum Bundnir alullarjakkar MUNIÐ VIÐSKIPTAKOIITIN OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD Sex stofncndur Félags isl. iðnrekenda. Afmæli Félags isl. iðnrekenda: Fimmtíu starfsmenn Framleiöi Sól.ó-eldavélar af inörgum stæröum og gerft- um.—einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaði og báta. — Varalilutaþjónusta — Viijuin sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa eldavéla fyrir smærri háta og litla sumarbústaði. K U ) A V É UAVK KKSIÆÐI .IÓIIANNS FK. KKISTJANSSONAK Il.F. KLEPPSVEGI 62. — SÍMI33069. LAUS UNDAN REYKINGARVENJUNNI Á FIMM DÖGUM ÍSLENZKA BINDIND- ISFÉLAGIÐ O G KRABBAMEINSFÉ- LAG ÍSLANDS BJÓÐA ÖLLU IiEYKINGA- FÓLKI AÐ TAKA ÞATT í NAMSKEIÐI U N I) I R H A N D - LEIÐSLU SÉR- FRÓÐRA MANNA: Fimm kvöld við kvikmyndir, erindi og rökræður með Dr. J.D. Henriksen frá London. Fyrsta kvöldið verður sunnudaginn 11. febrúar kl. 20:30 I Norræna húsinu. Þá verður handbók námskeiðisins afhent — kostar kr. 200. Annars allt aðkostnaðar- lausu. Hringið i sima 13899 og 36655 til að tryggja aðgang. Svarað verður i simana frá kl. 9:00—22:00. heiðraðir eftir fjörutíu ára starf Félag fslenzkra iðn- rekenda átti 40 ára afmæli á þriðjudaginn, og var af því tilefni efnt til margs- konar fagnaðar. Heiðraðir voru menn er starfað höfðu í iðnaði 40 ár eða lengur. Fyrstu stjórn Félags isl. iðn- rekenda skipuðu Eggert Kristjánsson, Sigurjón Pétursson og H.J. Hólmjárn. Stofnendur félagsins voru 14 talsins og eru 7 þeirra á lifi. Mættu 6 eftirlifandi stofnenda til afmælisfagnaðarins. Vantaði aðeins Ragnar Jónsson i Smára. Þeir stofnendur félagsins sem mættu til afmælishófsins eru hér á myndinni sem fylgir þessum linum. Þeir eru þessir: Gunnlaugur Stefánsson, sem rak um árabil kaffibætisverksmiðju G.S. er áður hét Kaffibrennsla Reykjavikur. Gunnlaugur er átt- ræður. Konráð Gislason var stofnandi fyrir hönd fyrirtækisins Fiski- mjöls h.f. Hann rekur nú verzlunina Hellas. Sigurður Waage var stofnandi á vegum fyrirtækisins Sanitas h.f. Hann hefur verið forstjóri þess fyrirtækis siðan 1924. Stefán Thorarensen rak til skamms tima Efnagerð Reykja- vikur. Hann rekur nú Laugavegs- apótek. Sveinn Valfells stofnaði Vinnu- fatagerð Islands. Hann varð þriðji formaður Félags isl. iðn- rekenda. Og þá er komið að Ragnari Jónssyni. Hann gerðist stofnandi fyrir Smjörlikisgerðina h.f. A afmæli Félags iðnrekenda voru heiðraðir starfsmenn sem unnið hafa 40 ár eða lengur við iðnað. Þeir sem heiðraðir voru eru sem hér segir: Óli M. Isaksson (starfaði siðan 1916), Anna Kristin Þorkelsdóttir, Kristin Kristjánsdóttir, Sig- tryggur Jónsson og Sigurður P. Gestsson frá Vinnufatagerð Islands, Einar Waage (frá 1907 við bólstrun), Jakob Einarsson, Þorsteinn Þórðarson, Þórir Þor- leifsson, Max Jeppesen og Ólafur ögmundsson hjá Viði, Guðrún Sigurðardóttir hjá Faco, Ingi- björg Guðjónsdóttir hjá Svan, Þórdis Guðjónsdóttir og Kristin Jónsdóttir hjá Sjóklæðagerðinni, Karl Einarsson hjá Hreini, Anna Sveinsdóttir hjá Vikingi, Sigurður Waage (54 ár) og Matthias Waage (47 ár) hjá Sanitas. Sigurþór Þórðarson (52 ár) hjá J.B. Péturssyni, Jón Hjörtur Jónsson hjá Rafha, Jóhann Kr. Þor- • steinsson hjá Hörpu, Þorsteinn Frh. á bls. 15 Sildarsaltendur halda aðalfund: Vel sé fylgzt með að síld- veiðibann sé ekki brotið Aðalfundur Félags sildarsalt- enda á Suðvesturlandi var hald- inn að Hótel Sögu fimmtudaginn 1. febrúar s.l. Formaður félagsins, Jón Arna- son alþm. Akranesi stjórnaði fundinum og minntist i upphafi á hina válegu atburði, sem undan- farna daga hefðu verið að gerast i Vestmannaeyjum. Formaður upplýsti að i þessu sambandi hefði stjórn félagsins samþykkt að leggja fram eftirfarandi til- lögu: ,,Aðalfundur Félags sildarsalt- enda á Suðvesturlandi samþykkir að afhenda Rauða krossi Islands kr. 250.000,00 vegna atburðanna i Vestmannaeyjum. Framlaginu fylgja einlægar óskir fundarmanna um að brátt muni blómlegt athafnalif aftur risa i Eyjum”. Var framangreind tillaga sam- þykkt einróma. Siðan minntist formaður Guð- steins Einarssonar, framkv.stj. frá Grindavik, sem nýlega er lát- inn, en Guðsteinn var einn af stjórnarmönnum félagsins um árabil. Formaður flutti skýrslu félags- stjórnar. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar einróma: „Aðalfundur Félags sildarsalt- enda á Suðvesturlandi samþykkir að beina þeim eindregnu tilmæl- um til sjávarútvegsráðuneytisins og Hafrannsóknastofnunarinnar, að m jög vel verði fylgzt með þvi á yfirstandandi loðnuvertið, að nú- verandi sildveiðibann verði ekki brotið á þann hátt, að sild verði veidd með loðnunni, þar sem vit- að er að mikið magn af uppvax- andi sild er nú fyrir Suðurlandi á þeim slóðum, sem liklegt er að loðnan fari um”. „Aðalfundur Félags sildarsalt- enda á Suðvesturlandi samþykkir að skora á sjávarútvegsráðuneyt- ið og Hafrannsóknastofnunina að hlutast til um, að sildarstofninn suðvestanlands verði rannsakað- ur vandlega áður en veiðifyrir- komulag sildarinnar verður ákveðið að nýju, svo hægt verði að skipuleggja veiðarnar á grundvelli þeirra upplýsinga, sem fást”. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa þeir: Jón Arnason, aiþm., Akranesi, formaður, Ólafur Jónsson, framkv.stj. frá Sandgerði, varaformaður, Margeir Jónsson, framkv.stj., Keflavik, Tómas Þorvaldsson, fram- kv.stj. Grindavik, og Hörður Vilhjálmsson, fram- kv.stj., Hafnarfirði. (Frá Félagi sildarsaltenda )

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.