Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 16
Föstudagur 9. febrúar 1973 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18880. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, næíur og helgidaga- vakt a heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Loðnuflotinn fyllti sig á sólarhring 25 loðnubátar streymdu af miðunum hingað suður Mótmælendur óðir á Irlandi BELFAST 7/2 — öl! atvinnu- starfsemi I Bclfast og I öðrum borgum I Norður-lrlandi féil niður f dag af völdum verkfalls sem mótmælendatrúar verka- menn heyja gegn þeirri ákvörðun yfirvalda að varpa tveim öfga- sinnuðum mótmælendum I fangelsi án þess að draga þá fyrir dóm. Þetta sólarhrings verkfall átti aö hefjast klukkan sjö að morgni, en næturvaktin við orkuverin hafðiekki komiö til vinnu, og var yfirleitt ljóslaust frá miðnætti. Mikil ólæti voru viða i Belfast i dag og mikiö um skothriö. Hópar unglinga gerðu aðsúg að brezkum öryggissveitum, og sitthvað fleira var gert af sama tagi. Ognarstjórn i Úganda Kampala/Genf — 12 menn, sem dæmdir hafa verið ti! dauða fyrir skæruliðastarfsemi I Úganda, verða teknir af lifi opinberlega á laugardag. Samkvæmt fréttum útvarpsins f Kampala voru allir mennirnir dæmdir af herdóm- stóli. Fjórir þeirra voru foringjar I hernum og einn lögreglumaður. ógnarstjórn virðist rikja i Úganda. Alþjóðlega lögfræðinga- nefndin f Genf hefur sakað Úgandastjórn um „lögleysu og hrottaskap” gegn íbúum lands- ins. I siöasta hefti af timariti nefndarinnar er Úganda sagt lagalaust land. Þar er greint frá þvi, að æðsti dómari landsins, Kiwanuka, hafi verið handtekinn I sjálfri hæstaréttarbyggingunni og tekinn af lífi tveim stundum eftir hina ólöglegu handtöku. Sfðdegis f gær var vitað um 25 loönubáta á leiðinni af mið- unum til verstööva hér á Suð- vesturlandi og voru flestir með fullfermi. Þá voru um 15 bátar með fullfermi að dreifa sér á Aust- fjarðarhafnir til losunar. Er gert ráð fyrir að þeir bátar þurfi að biða allt að sólarhring á höfnunum eystra eftir losun. Mörg frystihús á Suðurnesj- um og I Reykjavik ætla að frysta loðnu úr þessum bátum. Er kveöloðnan stór og væn, — 3ja til 4ra ára loðna full af hrognum. A nær sólarhring fyllti loðnuflotinn sig á miðunum út af Eystra - Horni. Fylltu bátarnir sig jafnóðum og þeir komu út á miðin. Sprengdu margir næturnar vegna stórra kasta. Fyrstu bátarnir fengu veiði kl. 8 á miðvikudagsmorgun og voru að fram á nótt. Fengu þannig um 40 skip 10 til 12 þús- und tonn af loðnu á nær sólar- hring, sagði Andrés Finnboga- son siödegis i gær. Andrés vissi dæmi til þess að bátur hefði sprengt nótina tvisvar um nóttina. 1 gær var vitað um 25 skip á leið vestur með loðnufarma af miöunum. Hafa þessi skip verið að landa loðnu frá há- degi i gær þar til i dag frá Þor- lákshöfn vestur um til Reykja- víkur. Jöfnum höndum landa þess- ir bátar loðnunni til vinnslu i frystihúsum og til bræðslu i loðnubræðslum. Hefur þetta skapað mikla vinnu i frystihúsum hér Suö- vestanlands. Heldur lftill afli hefur horizt á land undanfarið af vertlðarbátum og stóreykur þetta vinnu i frystihúsunum. Andrés taldi aö skipin væru með um 6 þúsund tonn af loðnu á leið hingað. Þróarpláss hjá loðnubræðslum hér syöra er fyrir um 35 þúsund tonn af loðnu. Hvaða bátar koma suður? Vitað var um eftirtalin skip á leið vestur af miöunum sið- degis i gær: Eldborg með 570 tonn, landar annað hvort i Þorlákshöfn eða i Hafnarfirði, Pétur Jónsson ÞH með 360 tonn, landar i Sandgerði, Reykjaborg 320 tonn, Héðinn 420 tonn, Hilmir KE 180 tonn til Grindavikur, Albert 300 tonn til Grindavikur, Óskar Halldórsson 330 tonn, Þor- steinn 330 tonn til Þorláks- hafnar, Grimseyingur 220 tonn, óskar Magnússon 460 tonn, Guðmundur RE 700 tonn til Þorlákshafnar, Loftur Baldvinsson 400 tonn, Jón Garðar 300 tonn, Bjarni ólafs- son 300 tonn, Gisli Arni 330 tonn, Asgeir RE 300 tonn og Náttfari með 240 tonn. Við spurðum Andrés um þróarpláss hjá loðnubræðslum hér á Suðvesturlandi. Hann kvað Þorlákshöfn geta tekið á móti 3700 tonnum og ynni bræðslan þar 300 tonn á sólar- hring. Enginn vafi er á þvi að þar fyllist fyrst þróarpláss hér á Suðurlandi. Yfirleitt er ekki reiknað með Eyjum til mót- töku á loðnu. Þar er hins vegar þróarpláss fyrir um 25 þúsund tonn. Þróarpláss á Suöurnesjum Þá getur Grindavik tekið á móti 2 þúsund tonnum af loðnu i þrær. Afkastageta verk- smiðjunnar þar er 250 tonn á sólarhring. Þróarpláss I Sand- gerði er fyrir 3 þúsund tonn, afkastageta verksmiðjunnar 200 tonn á sólarhring, pláss fyrir 8 þúsund tonn i Keflavík, afkastageta 550 tonn á dag, 7 þúsund tonna pláss i Hafnar- firði, afkastageta bræðslunnar þar 500 tonn, 11 þúsund tonna pláss i Reykjavik með 800 tonna afköst á dag, á Akranesi er þróarpláss fyrir 3 þúsund tonn af loðnu, en verksmiðjan afkastar þar 380 tonn á sólar- hring. Sildar- og fiskimjölsverk- smiðjan að Kletti var þegar farin að undirbúa móttöku loðnu i gær. Þá er unniö að gangsetningu verksmiðjanna úti á Granda og inn á Kletti. í fyrravetur tóku loðnubræðsl- urnar hér i Reykjavik á móti 16 þúsund tonnum af loðnu á nokkrum dögum. Gekk heldur illa að bræða þessa loðnu i fyrra. Þær ætla ekki að brenna sig á þessu aftur og hafa nú gefið upp þróarpláss fyrir 11 þúsund tonn. Bezt er að bræða loðnuna sjö daga gamla og gengur vinnslan þá greiðleg- ast. g.m. Dóminikanska lýðveldið Skæruliðar þjarma að her Balaguers Santo Domingo 8/2 Miklu herliði ásamt herbilum og bryn- vögnum var I dag stefnt til höfuð- borgar Dominikanska lýðveldis- ins samkvæmt skipun Joaquin Balaguer forseta, en hann er sagður óttast uppreisn I höfuð- borginni. Striðsvögnunum var raðað fyrir framan háskólann og við brúna sem tengir borgarhlutana. Brynvagnar með herlið og lögreglumenn brunuðu um göturnar. Balaguer forseti er sagður óttast vaxandi starfsemi skæru- liða i landinu, og nú kveðst hann hafa fengið fréttir um að skæru- liðasveitir, þjálfaðar á Kúbu, hafi komið til landsins nýlega. Blaöið E1 sol i höfuðborginni fullyrðir, að harðir bardagar hafi geisað undanfarið á suðurströnd- inni milli skæruliða og hers stjórnarinnar. A.m.k. fjórir her- menn og einn lögreglumaður hafi iallið i átökum þeim. Balaguer óttast uppreisn ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagsfólk Árnessýslu. | ’jaíyK Þriðji fræðslufundur Alþýðu- bandalagsins i Arnessýslu verður f JHjHK haldinn i Hveragerði i kvöld Ragnar Arnalds ræðir um upp- byggingu þjóðfélagsins og stjórn- 'ÆL Einnig mætir Garðar Sigurðs- Hk 'MðHw son alþingismaöur á fundinum. Stjórnin. Loðnubátar sólarhring a leioinni llm hádegi I dag kom fyrsti loðnubáturinn hingað til Grinda- víkur og hafði þá verið sólarhring á leiðinni af miðunum við Eystra- Horn. Var þetta Jón Garðar með fullfermi. Þegar er farið að aka loðnunni á bilum I frystihúsin hér i Grindavlk til frystingar. Þá fer hiuti af aflanum i þrær loðnu- bræðslunnar hérna. Taka þær um tvöþúsund tonn af loðnu, en verk- smiðjan afkastar 250 tonnum á sólarhring. Von er á fleiri bátum i kvöld og nótt. Þannig er von á Alberti og Grindvíkingi og fleirum. Ef mikið verður af vænni kven- loðnu I þessum afla verður loðn- unni ekið á bilum i frystihús i Garðinn, Keflavik, Vogana og Hafnarfjörð, — jafnvel til Reykjavikur. Hvað á fellið að heita? Örnefnanefndin enn ekki komin í málið Mjög er á reiki, hvað menn kalla i ræðu og riti hiö nýja fell, sem myndazt hefur af gosinu I Vestmannaeyjum, og virðist timi til kominn fyrir ör- nefndanefnd að gera ákveöna tillögu um nafn ef einhver smekkleysan á ekki að festast við fjalliö. Þegar Surtseyjar- nafnið var valið fjallaði nefndin um það mál sam- kvæmt tilmælum mennta- málaráðuneytisins, en engum slikum tilmælum hefur verið beint til hennar að þessu sinni. Þjóðviljinn hefur áöur getið ýmissa heita á fellinu, sem gengið hafa manna á milli, eins og Bessi, Gámur, Pisla- fell, Urðarfell, Kirkjufell og fleiri, og nú siðast heyrðum við, að stungið hefði verið upp á nafninu Þrymur og sú tillaga studd þeim rökum, að það væri hávaðanafn, sbr. þruma, Nýjasta tillagan auk þess sem það lýsti hinu óvænta, eins og gosið hefði sannarlega verið, sbr. að vera sem þrumulostinn, þruma úr heiðskiru lofti. Þá þýðir sögn- in að þruma að vera kyrr, gnæfa yfir, og að lokum væri þetta nafn hliðstæða Surts á Surtsey, en hvor tveggja orðin er Þrymur væru persónugervingar i goðafræðinni. Enn hefur ekki verið leitað til örnefnanefndar varðandi nafn á fellið, að þvi er prófess- or Þórhallur Vilmundarson formaður hennar sagði Þjóð- viljanum. Þegar Surti var gef- ið nafn á sinum tima leitaði menntamálaráðuneytið eftir áliti nefndarinnar, og voru þá þegar ýmis nöfn i gangi, en nefndin mælti endanlega með nöfnunum Surtur og Surtsey, sem siðan festust. Prófessor Þórhallur benti á, að algengt væri hér á landi, að fjöll drægju heiti af lögun sinni og þá lika eldfjöll eins og t.d. Katla, Askja, Keilir, Skjald- breiður og fleiri, en þau hefðu reyndar hlotið nöfn sln mörg- um öldum eftir að þau hefðu gosið. Öðru máli gegndi um fjöll mynduð i gosi, sem gerðist mitt á meðal manna, fannst honum, þá væri ekki siður eðlilegt, að upplifunin speglaðist i nafninu, eins og verið hefði um Surt, sem m.a. dregur nafn sitt af svörtum lit hraunsins. Hann benti á að Kirkjufell væri oftast lögunar- nafn samanber Kirkjufell við Grundarfjörð, og Bessi væri nánast útilokað, þar sem það væri þegar nafn á nálægu skeri, og ekki væri vert að flytja nafn þannig til og brengla. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.