Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 5
Föstudagur 9. febrúar 1973 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5
Klakahöllin
Nágustur kalda striðsins berst
okkur úr Klakahöllinni við Aðal-
stræti. Sjaldan er ástæða til að
svara örvæntingarfullum skrifum
manna sem hafa orðið andlega úti
á timabili þvi er kennt er við kalt
strið. En- þegar kaldastriðs-
áróðurinn er borinn uppi af jafn
siðlausu persónuniði og i grein
Kristjáns Albertssonar um
Kristin E. Andrésson i Mbl. þ.l.
febrúar s.l., er ástæðulaust að
þegja, enda kristallast óvenju-
glöggt i skrifum Kristjáns þeir
þættir kaldastriðsáróðursmanna,
sem nauðsynlegt er að vara við,
hvar og hvenær sem þeir birtast.
Það má minna á það hér, að skrif
af svipuðum toga birtust i
Reykjavikurbréfi Mbl. fyrir
rúmu ári.
Þrautalending slikra skriffinna
er að stimpla andstæðinginn
landráðamann. Af fullkomnu
blygðunarleysi og siðleysi full-
yrðir Kristján Albertsson, að
Kristinn E. Andrésson sé lendur
maður Moskvuvaldsins, sem reki
erindi þess hér á landi, og nægir
Kristjáni ekki minna en leita hlið-
stæðu aftur til stjórnartiðar
Hákonar gamla, til þess að finna
Kristni Andréssyni stað i islenzku
stjórnmálalifi. Nú skyldu menn
ætla, að þeir sem telja sig bera
lýðræði og mannréttindi fyrir
brjósti, fyndu hjá sér þörf til að
finna slikum grófyrðum stað. En
hér er aldeilis engu sliku til að
dreifa. Þvi er einmitt öfugt farið.
Það eina, sem virðist eiga að
renna stoðum undir svo alvarleg-
ar ásakanir, er það, að Kristján
Albertsson segist hafa fyrir satt
(en er þó ekki alveg viss) að
Kristni Andréssyni hafi hlotnazt
orða i Rússlandi. Nú er mér ekki
kunnugt um það fremur en
Kristjáni Albertssyni, hvort
Kristinn E. Andrésson hefur verið
sæmdur orðu, en sé orðuveiting
erlends rikis nægileg ástæða til
landráðabrigzla á hendur þeim er
þiggur, þá mega vist ýmsir fara
að vara sig.
En Kristján Albertsson telur
enga skyldu hvila á sér til að
sanna svo rætið nið um Kristin
Andrésson. Svo siðblindir eru
skriffinnar af þessu tagi, og
brengluð réttlætiskenndin, að
þeir gripa til aðferða, sem for-
dæmanlegastar eru i einræðis-
rikjum: Einstaklingurinn á að
sanna sakleysi -sitt. Ella skal
hann teljast sekur.
1 samræmi við þetta segir
Kristján Albertsson orðrétt:
,,Hann getur leiðrétt, ef hér er
skakt farið með eða ofmælt, og
mun honum að sjálfsögðu heimilt
rúm til þess i Morgunblaðinu.”
Hofmannlega er boðið af hálfu
Kristjáns og Morgunblaðsrit-
stjóranna!
Areiðanlegt er, að allur þorri
Islendinga, hvar i flokki sem þeir
standa, fordæmir það siðleysi
sem birtist i niðskrifum Kristjáns
Albertssonar um Kristin
Andrésson. Kristinn E.
Andrésson hefur lokið merku ævi-
Eftir
Svövu
Jakobsdóttur,
alþingis-
mann
starfi. Hér er ekki tóm til að rekja
hin fjölþættu störf hans i þágu
islenzkra bókmennta og
menningarmála, en svo mikið er
vist að gróska islenzkra bók-
mennta á 4. og 5. tug þessarar
aldar verður ekki greind frá ævi-
starfi Kristins og seint gerð
tæmandi úttekt á áhrifum hans.
Þar stóð hann i fararbroddi, eld-
heitur og markviss hvatningar-
og forustumaður. Af persónuleg-
um kynnum við Kristin og lestri
bóka hans hrifst maður af hug-
sjónum hans um reisn islenzkrar
alþýðu og metnaði hans fyrir
hönd islenzkrar menningar.
1 sömu grein ræðir Kristján
Albertsson um skáldsögu mina
„Leigjandann”. Ekki hirði ég um
að eiga langar orðræður við hann
um söguna, en læt mér nægja að
lýsa undrun minni á þeim fárán-
lega skilningi sem Kristján
Albertsson leggur i söguna. Ég
fullyrði, að enginn geti lagt
þennan skilning i hana nema lesa
i hana annað en þar er að finna.
Það er leitt ef furður sögunnar
hafa ært Kristján Albertsson svo
að hann sjái ekki frá sér. Þó hygg
ég að kalda striðið eigi þar meiri
sök en ég.
Svava Jakobsdóttir
og Kristján Albertsson
Alltaf uppselt til tunglsins
Barnaleikurinn Ferðin til tunglsins verður sýndur i 10,skipti n.k. sunnu-
dag og eru nú aðeins liðnar tæpar þrjár vikur frá frumsýningu leiksins.
Mjög mikil aðsókn hefur verið að leiknum og uppselt á allar sýningar.
Um næstu helgi verða þrjár sýningar á leiknum, ein á laugardag og
tvær á sunnudag kl. 14 og kl. 17. Myndin er af börnunum Onnu Lisu og
Pétri, en þau eru leikin af Hrafnhildi Guðmundsdóttur og Einari
Þórðarsyni.
SU KltF D§M[pOÐQQOuÐ OK
Danska
drottningin,
móðir
og eiginmaður
senda gjafir
Danski sendiherrann afhenti
nýlega forseta Islands 50 þúsund
danskar krónur frá Margréti
Danadrottningu og Prins Henrik
og 25 þúsund frá Ingiriði drottn-
ingu, segir i fréttatilkynningu frá
skrifstofu forseta Islands.
I bréfum taka báðar drottn-
ingarnar fram að það sé ósk
þeirra að fjárupphæðir þessar
verði notaðar til hjálpar þeim
sem misst hafa hús sin og heimili
i eldgosinu i Vestmannaeyjum.
Forsetinn hefur afhent bæjar-
stjóranum i Vestmannaeyjum
Magnúsi H. Magnússyni og for-
seta bæjarstjórnar Sigurgeiri
Kristjánssyni þessar gjafir og
falið þeim að verja þeim i sam-
ræmi við óskir gefandanna.
Iðjublaðið
komið út
Ot er komið „Iðjublaðið” blað
Iðju, félags verksmiðjufólks á
Akureyri. I ritinu eru greinar
eftir Jón Ingimarsson, formann
Iðju, Katrinu Jðsefsdóttur,
Hrefnu Svanlaugsdóttur auk
margs konar efnis sem snertir
réttarstöðu og starfsaðstöðu iðn-
verkafólks.
Blaðiðer 38siður. I ritnefnd eru
Jón Ingimarsson, Margrét
Emilsdóttir og Páll Ölafsson.
Blaðið er prentað i Prentsmiðju
Björns Jónssonar.
Nýr appelsínu-
safi á
markaðinn hér
Fyrirtækið Sól h.f. er nú að
hefja áfyllingu og sölu á
appelsinusafa undir merkinu
„Tropicana”. Appelsinusafi þessi
verður seldur i tæplega eins liters
fernum og i 2ja litra fernum.
Fernur þessar eru framieiddar af
bandarisku fyrirtæki, en útlit
þeirra hannaði auglýsingastofan
Argus.
Safinn kemur frá Flórida. Hér
er um að ræða hreinan appelsinu-
safa; hann er fluttur inn djúp-
frystur i 200 kg tunnum.
Verð á litra er 85 kr. Myndin er
af fernunum.
Menningar- og fræðslusamband alþýou
F ræðsluhópar
Fræðsluhópar MFA taka til starfa 20. febrúar n.k. Hver hópur kemur
saman einu sinni i viku — sex sinnum alls. Starfið fer fram i fræðslusal
MFA, Laugavegi 18, III. hæð — og hefst kl. 20.30 hvert kvöld.
HÓPUR I. Fjármál og bókhald verkalýðsfélaga.
Leiðbeinandi Þórir Danielsson, framkv.stj. Verkamannasambands íslands. Hefst þriðjudaginn
20. febrúar.
HÓPUIt II. Bókmenntir siðustu ára.
Leiðbeinandi Heimir Pálsson, menntaskólakennari. Hefst miövikudaginn 21. febrúar.
HÓPUR III. Ræðuflutningur og fundastörf:
Leiðbeinandi Baldur Öskarsson, fræðslustjóri MFA. Hefst fimmtudaginn 22. febrúar.
IIÓPUR IV. Hlutverk og starf verkalýðshreyfingarinnar.
Eftirtaldir fyrirlesarar koma fram: Björn Jónsson, forseti ASt, Einar Olgcirsson, fyrrv. alþm.,
Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ, Ólafur Hannibalsson, skrifstofustj. ASt, og Helgi Guðmundsson,
trésmiður. Hefst mánudaginn 26. fcbrúar.
MFA
Auglýsingasíminn er 17500
VOÐVIIJINN
HÓPUR V. Myndlist. Leiðbeinandi Hjörleifur Sigurðsson, forstöðum.
Listasafns ASÍ. Hefst fimmtudaginn 1. marz.
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu MFA, Laugavegi 18, simi 26425, fyrir
mánudagskvöld 19. febrúar. — Þátttökugjald kr. 300.