Þjóðviljinn - 25.03.1973, Side 2

Þjóðviljinn - 25.03.1973, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. marz. 1973 SPJALL UM NYTTISLENZKT LEIKRIT Rúna (Hrönn Steingrfmsdóttir) — Ijósm. Þjv. AK. Kittý (Margrét Helga Jóhannsdóttir) og Rúna (Hrönn Steingrlmsdóttir) — Leiöir skiljast með vinkon- um. Nú á þriöjudag verður frumsýnd í Iðnó frumraun Birgis Sigurðssonar í leik- húsi, Pétur og Rúna, verð- launaverk úr afmælissam- keppni LR i fyrra. Á æfingu á dögunum mátti sjá, að leikritið fjallar um ungt fólk sem þarf að kjósa sér hlut. Spurt er til dæmis að því, hvort þau Pétur og Rúna hafi þrek til að snúa baki við því sem aðrir gera, halda trúnað við annað mat á verðmætum? Til dæmis neita að sogast inn í þá maskinu, sem heimtar af þeim allan þeirra tíma, endalaust strit og býður ekki í aðra hönd annað en hæpna velferð? Eða verða þau eins og allir hinir? — Þú ert ekkert smeykur við að láta persónurnar fara með ljóörænar setningar? Svofelld spurning kemur fyrir höfund að lokinni æfingu. — Nei, hreint ekki. Ég er á móti þeirri tilhneigingu að allt eigi að vera svo klárt og rétt i tali fólks, að það kannist ekki lengur við manneskjuna i sjálfum sér. — Og þú ert ekki hræddur við farsælan endi heldur? — Það er kannski glæfralegt að ' gera eitthvað sem minnir á happy end, en mér finnst það nauðsyn- legt, þótt ekki væri nema til til- breytingar. „Palli var einn i heiminum” mætti kalla heimspeki, sem mér finnst að alltof mikill og langur trúnaður hafi verið sýndur. Það var strax skárra þegar pólitisk- um leikritum fór að fjölga, án þess þó ég vilji hrósa þeim sér- staklega. Þar hefur oft verið um furðulega sterkar einfaldanir að ræða, einskonar kennslustund i tossabekk. Og útkoman hefur kannski ekki orðið önnur en sú, að höfundurinn og hans nánir sam- herjar hafa hresst sig dálitið i andanum. Það hefur stundum sýnzt sem höfundarnir væru smeykir við flækjur veruleikans, við að leyfa sinu fólki að vera fólk. Að þvi er þetta leikrit mitt varðar, þá munu sumir sjálfsagt kalla það pólitiskt og kennsku- stund og hvaðeina. En eins liklegt er að aðrir telji, að i þvi sitji sál- fræðileg atriði i öndvegi og trufli allar pólitiskar linur. Sjálfur kann ég ekki við að setja leikritið i hólf — ég get vel kann- azt við notkun tákna i þvi, ljóð- rænu, raunsæisaðferðar. Ég velti litið fyrir mér i aðferðum eða fyrirmyndum — ég vona að þaö sem kemst til skila sé fyrst af öllu min lifsskynjun. Hvers vegna leikrit? — Fer kennsla vel saman við að skrifa? — Nei, það er hjátrú. Það fer ekkert vel saman við að skrifa, nema að skrifa. Hitt er svo annað mál, að kennsla hefur gefið betri tima til þess en ýmis störf önnur. — Þú ortir áður, hvað kom til að þú byrjaðir að skrifa leikrit? — Ég var kominn i hálfgert strand með yrkingar. Og það hafði leitað lengi á mig sú spurn- ing, hvort ég gæti skrifað leikrit. Ég var langt kominn þegar ég frétti um þessa samkeppni hjá Leikfélaginu. Annars hafði ég i mörg ár andúð á leikhúsi, leið illa þar, og veit eiginlega ekki af hverju. Mér Birgir Sigurðsson: Aöur leið méi ílla i leikhúsi. fannst andrúmsloftið svo tilbúið, þetta fór út i fordóma hjá mér. En ég læknaðist þegar ég sá Fangana i Altona. Liklega hefi ég hrifizt fyrst og fremst af skáldskapnum eins og leikhús fær iðkað hann. — Og hvað hefur breytzt núna eftir að þú fórst að fylgjast með æfingum? — Ég trúði þvi áður en æfingar byrjuðu, að ég yrði að skrifa verk mitt einn. Sú sannfæring hefur ekki breytzt. Ég er liklega óhæfur til þess að skrifa i leikhúsinu. Það er nauösynlegt fyrir mig að sjá hvernig leikstjóri og leikhúsfólk vinnur, sjá hvernig áhorfendur horfa á, en ekki heldur meir. Ég kann ekki hópvinnu — en þar meö er auðvitað ekkert sagt um gildi hennar til eða frá. En min mesta reynsla á æfing- um hefur verið að sjá og finna þennan mikla heiðarleika sem leikhúsfólkið sýnir verkinu. Betra getur enginn höfundur óskað sér. Hvernig og hvað? Ég hefi oft rekizt á það hjá leik- húsáhugafólki og fólki, sem er leikhúsfrótt, að þaö heillast af þvi, hvernig hlutur er gerður — gott og vel, en það spyr kannski alls ekki að þvi hvaðvar verið að segja i raun og veru. Af ýmislegu umtali fær maður hugmynd um mikla þörf fyrir stiliseringar, um að það leikrit sé talið bezt leik- húsverk, sem leyfir aö komið sé að sem flestum brögðum leik- húss. Þetta viðhorf og fram- kvæmdir eftir þvi minna mig stundum á ungan mann sem ég sá i handbolta. Hann hafði mjög fallegar hreyfingar, hljóp glæsi- lega, sveif i loftinu. En það voru hinir sem skoruðu mörkin. Það má ekki gleyma að til þess var leikurinn gerður . . . Leikstjóri er Eyvindur Er- lendsson, sem um hriö hefur stundað búskap austur við Þjórsá og stjórnað einnig mörgum sýn- ingum hjá áhugaflokkum. — Þýðir þetta verkefni núna, að þú sért á leið i bæinn? — Nei, landbúnaður er svo bindandi. Það er ekki hægt að hlaupa úr honum og i. Hvergi smeykur — Hvernig vildir þú lýsa þessu verki? — Æ, eru ekki öll heiti orðin brengluð? Það er vont að láta flækja sig i vörumerkjum. Ég skal þó taka það fram að það ber meira á sjálfri orðsins list i þessu leikriti en mörgum nýrri verk- um. En þar með er ég aftur kom- inn i hættu. Er það þá svona bók- menntalegt? spyrja menn, og meina að það leikist illa. En það er öðru nær; það leikst mjög vel. — Nú er þetta írumsmið. Fannst þér þurfa að gera á henni miklar breytingar? — Nei, nokkrar tilfærslur, skilulagsbreytingar, Nokkuð var tekið upp úr eldri gerð leiksins.og skrifuð var ein ný sena. Leikritið var merkilega fullbúið frá fyrstu hendi. — Ég sagði áðan við höfundinn, að hann væri hvorki hræddur við lýrisk eintöl né happy end. — Já, sagði Eyvindur, það er einmitt styrkur Birgis, að hann er ekki smeykur við neitt. Hann er ekki eiliflega að forðast þetta eða forðast hitt, búa sér til bannhelgi. Þvert á móti .... AB. Manni (Jón Sigurbjörnsson) og Pétur (Arnar Jónsson). Roskinn vinnufélagi setur traust sitt á skötuhjú.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.