Þjóðviljinn - 25.03.1973, Blaðsíða 11
Sunnudagur 25. marz. 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11'
Fjölmargir höfðu
samband við okkur
hér á Þjóðviljanum
útaf gömlu myndun-
um, sem birtust i
blaðinu á sunnudag-
inn var, og hjá Hall-
dóri safnverði
stöðvaðist siminn
varla á mánudaginn.
Kunnum við lesend-
um beztu þakkir fyrir
skjót og góð vinnu-
brögð og hjálpsemi.
Flestir þeirra, sem hringdu,
þekktu Norðurpólinn, gamaH-
timburhús, sem enn stendur
við Hlemmtorg, tilheyrir
Hverfisgögu og er nr. 125, eins
og sjást mun á myndinni af þvi
á baksiðu blaðsins i dag.
Þarna var um tima rekin
veitingasala og benti einn les-
enda á, að myndin hlyti að
vera tekin eftir 1907, þvi hann
hafði séð mynd af húsinu frá
konungskomunni og þá var
skilti á þakinu, sem á stóð
Norðurpóllinn. Mótar á mynd-
inni fyrir þvi, hvar þetta skilti
hefur vetið. Fólkið hefur eng-
inn þekkt og ekki hefur fengizt
útskýring á þvi til hvers þessi
undarlega viðbygging vinstra
megin við húsið hefur verið
notuð.
Hvaöan eru myndirnar?
Ver ætlaði að ganga með
bæinn til að byrja með, en svo
kom hingað á föstudegi mað-
ur, sem fæddur er á þessum
bæ og uppalinn til tiu ára ald-
urs, Sigurður Einarsson bif-
reiðastjóri á Hreyfli, og kvað
uppúr með, að þetta væru
Kárastaðir i Þingvallasveit.
Kunni hann mas. nöfn á ein-
stökum hlutum hússins, stig-
um og fleiru i umhverfinu.
Það er faðir Sigurðar, Einar
Halldórsson bóndi, sem stend-
ur i bæjardyrunum og myndin
mun fekin 1907. Margir hafa
þekkt myndarlega manninn i
slagkápunni sem Ólaf ólafs-
son prest i Arnarbæli, siðar
frikirkjuprest og með saman-
burði við aðrar myndir, sem
til eru af honum i safninu, var
hægtaðstaðfesta það. Þá mun
maðurinn, sem situr i grasinu
fyrir miðju, vera Hannes Þor-
steinsson, þjóðskjalavörður.
Og hver þekkir þess-
ar?
Mynd nr. 3 er greinilega úr
einhverri verslun, en hvaða §
verzlun? Og hvar er hún?
Hvenær gæti myndin verið
tekin? Það yrði áreiðanlega
slegizt um lampana þá arna
væru þeir boðnir til sölu i
einhverri verzluninni nú. Og
takið eftir leikföngunum i hill-
unum hægra megin og hráka-
dallinum á gólfinu við enda
jk *' | ' | |
búðarborðsins. Um þessa
mynd er ekkert vitað nema að
Pétur Brynjólfsson tók hana.
Gizkað er á, að hin myndin,
nr. 4, sé frá Austfjörðum. Þó
er það ekki vitað. Bryggjan er
sérkennileg og fremsta húsið
lika. Þeir sem hafa séð þetta
hús, hljóta að muna eftir þvi.
Þá ætti landslagið að geta
gefið yngra fólkinu visbend-
ingu. Spurt er: Hvar er þetta?
Og hvaða hús? Og hvaða eyri
út i fjörðinn?
Enn treystum við lesendum
að koma okkur til liðveizlu og
hringja þá annað hvort i
Halldór Jónsson safnvörð á
Þjóðminjasafninu, simi 13264,
eða i Vilborgu Harðardóttur
blaðamann, Þjóðviljanum,
simi 17500. Bréf eru lika vel
þegin.
— vh
Miðstöðvarofnar
Reyndir með 12 kg/cm2 þrýstingi.
Leitið verðtilboða.
ÍSLEIFUR JÓNSSON HF.,
byggingavöruverzlun,
Bolholti 4, sími 36920 - 36921.