Þjóðviljinn - 02.06.1973, Page 17
Laugardagur 2. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Ströndin. . . Svo hvarf hann úr
glugganum.
Andy studdi sig við handriöið á
veröndinni. Ónýti fóturinn dingl-
aði undir honum, en hann gat
hoppað. Hann dró upp byssuna og
hoppaði með hana að eldhúsdyr-
unum. Hann varð að binda endi á
leit Hubs áður en hún hófst.
Dyrnar opnuðust um leið og
hann kom að þeim og Jói Pyle
kom æðandi út með vasaljós i
hendinni. Þegar hann kom út i
myrkrið, tók hann ekki sam-
stundis eftir Andy. Andy rak
byssuna i kviðinn á honum.
Pyle brá ónotalega og hann gaf
frá sér eins konar væl. — Haltu
kjafti og hreyfðu þig ekki, eða ég
knúsmala þig, aðvaraði Andy.
Pyle var ekki baráttumaður.
Vasaljósið féll úr höndum hans
þegar hann rétti þær upp yfir höf-
uð. — Guð minn góður, stundi
hann. — Ekki drepa fnig.
— Snúðu þér við. Gakktu eðli-
lega og rólega. Andy stuggaði
Pyle inn i eldhúsið aftur, meöan
hann otaði byssunni i bakiðáhon-
um. Með hendinni hélt hann um
hálsinn á Pyle og notaði hann sem
hækju.
— Hefurðu séð nokkuð, Jói?
hrópaði Hub frá barnum. — Ég
fer á bilnum og reyni að loka leið-
inni. . .
— Það borgar sig ekki, Hub, ég
er hér enn, sagði Andy upphátt.
Það varð dauðaþögn, svo hló
Hub. — Það er naumast, kanari-
fuglinn sjálfur.
Andy ýtti Jóa Pyle gegnum
dyrnar að barnum. Hann notaði
hann sem skjöld. Það var óþörf
varúðarraðstöfun. Andlit hans
var afmyndað i skældri grettu.
Rene Pyle stóð hjá stiganum. Hún
hélt á barnapela.
— Hub, varaðu þig — hann er
með byssu, sagði Pyle skjálf-
raddaður.
— Það veit ég, sagði Hub draf-
andi röddu. — Ég lánaði honum
hana sjálfur. Það er kominn timi
til að hann skili mér henni.
— Reyndu ekki neitt, sagði
Andy aövarandi. — Ég skýt ykkur
öll.
— Og hvernig hefurðu hugsað
þér að gera það með ónothæfri
byssu? Hub hló. — Taktu hana af
honum Jói.
— Ég er búinn að gera við
byssuna, sagði Andy við Pyle. —
Hún er i ágætu standi.
— Hann er að ljúga, sagði Hub
öruggur. — Og hann er ekki sér-
lega laginn við það. Sjáið þið bara
hvað hann svitnar. Hann er skit-
hræddur. Taktu byssuna, Jói.
Pyle skalf á beinunum og vissi
ekki hvorum hann átti að treysta.
En kalt stálið i bakið var meira
50
sannfærandi en Hub. — Það er
ekki vist að hann sé að ljúga.
Hann leit spyrjandi á konu sina.
— Rene, hvað heldur þú?
Hún tók til máls i fyrsta sinn. —
Gerðu það ekki, Jói. Það bitnar á
þér, ef Hub skjátlast.
Hub starði fyrirlitlega á félaga
sina. — Fjandinn hafi það sem ég
skil, hvers vegna ég tók ykkur i
slagtog með mér. Þið hafið verið
treg alveg frá upphafi. Ef þið
hefðuð komið krakkanum fyrir
kattarmef strax, eins og ég vildi,
þá hefðum við ekki lent i þessu
klúðri.
— Þú hefur ástæðu til að þakka
Hub, Jói, sagði Andy lágri
röddu. — Hann var rétt i þessu að
bjarga lifi þinu. Nú þarf ég ekki
að drepa þig. Farðu til konunnar
þinnar. Hann ýtti Jóa frá sér sér
og starði á Hub yfir barborðið. —
Eiginlega er þetta einkamál okk-
ar tveggja. Það hefur verið það
allan timann.
— Eftir andartak tek ég byss-
una af þér og keyri hana niður i
gullkverkarnar á þér, sagði Hub
hranalega. — Lánið var rétt i
þessu að snúa við þér bakinu,
kanarifugl. Það hefur elt þig
lengi, en nú er það úr sögunni.
Hér og nú.
— Það er engin heppni sem
leiddi mig hingað út, Hub. Það
voru þin eigin mistök allar þessar
kæruleysisskyssur þinar.
Hub roðnaði þegar nartaö var i
sjálfstraust hans. — Þú lýgur. Þú
hefur ekki hundsvit á sliku.
— Það var sandur i skónum
þinum. Og fjarlægðartölur i biln-
um þinum. Og ótal margt annað.
Andy beindi oröum sinum að
Pylehjónunum, án þess að hafa
augun af Hub. — Það er synd og
skömm fyrir ykkur að hafa haft
samvinnu við annan eins aula.
Þið heföuð átt að sjá hvað þið
höfðuð flækt ykkur i, þegar hann
drap Doree Ruick. Það var ekki
liöur i áætluninni, eöa hvað?
— Það er rétt hjá yður. . . sagöi
Rene Pyle hörkulega.
Hub þaggaði niöur i henni með
ofsafenginni hreyfingu. — Þeg-
iðu, Rene. Hann er bara að reyna
að etja okkur saman. Það er eina
vonin fyrir hann. Það hefur ekk-
ert breytzt. Hann hefur falið
krakkann hérna einhvers staöar i
nágrenninu. Það er ailt i lagi.
þegar viö finnum hann. Hann
brosti. — Þá gerum við nýjan
samning — við ekkjuna.
— Hub, við Rene tökum ekki
þátt i þessu lengur, sagði Pyle.
Hub hlustaði ekki á hann, hann
var vanur aö hafa sitt fram. —
Jamm, tautaði hann. — Þaö verð-
ur i finu lagi. Lissu er fjandans
sama hvaö um hann veröur. Hún
hugsar um það eitt að fá krakk-
ann aftur. Ég er viss um aö hún
gerir hvaö sem er til aö fá hann
aftur.
— Drew er farinn, sagði Andy,
— og þú nærð honum aldrei fram-
ar.
— Þú þarft bara að segja mér
hvar hann er. Hub stakk hendinni
i vasann og tók upp kylfuna. —
Siðasti söngurinn, kanarifugl.
Hefur þér nokkurn tima dottiö i
hug hver fann upp á þvi og hvers
vegna? Vegna þess að kanari-
fuglar eru gulir, og gult er litur
hinna huglausu.
Andy haföi dregið þetta á lang-
inn til að gefa Lissu það forskot
sem hún þurfti. Hann vissi að
fresturinn yrði ekki lengri. Hann
miðaði á efsta hnappinn á jakka
Hubs. — Fleygðu þessu leikfangi
frá þér.
Hub svaraði ekki. Hann gekk
framhjá barborðinu i átt að Andy,
hann var ekkert að flýta sér og
kylfan hékk kæruleysislega i
hendi hans eins og risastór
þumalfingur. Fóturinn á Andy
hindraði hann i að flýja. Enda
hafði hann enga löngun til þess.
Þetta andartak — reikningsskilin
augliti til auglitis, — var það sem
hann hafði beðiÖ eftir.
Samt aðvaraði hann óvin sinn i
siöasta sinn. — Eitt skref enn og
ég drep þig.
Hub hló. — Já, tra, la, la, sagði
hann háðslega. Hann lyfti kylf-
unni til að berja.
Andy skaut hann þrisvar sinn-
um i brjóstið, eins ört og hann gat
þrýst á gikkinn. Hub sentist aftur
á bak undan kúlunum. Hann sett-
ist þunglamalega eins og teppi
hefði veriðkippt undan fótunum á
honum. Andartak var engu likara
en hann væri ósærður. t svip hans
var ekkert að sjá nema undrun.
Hann einbiindi á Andy, ringlaður
og dálitið gramur.
— Þessi helvitis heppni þin,
hvislaði hann og blóðið streymdi
fram i munninn. — Ég hefði átt að
athuga...Hann féll á hliðina.
Höfuðið skall i gólfið.en Hub vissi
ekkert af þvi.
Reiðiofsinn i Andy varð til þess
að hann beindi byssunni að Pyle-
hjónunum. Ef þau hefðu hreyft
legg eða lið, hefði hann skotið þau
án þess að hika. En það gerðu þau
ekki. Þau þrýstu sér upp að
veggnum skelfingu lostin. Rene
kjökraði.og smám saman rénaði
hefndarþorsti hans.
— Þið leyfðuð syni minum að
lifa, sagði hann. — Ég ætla að
gera slikt hið sama. Annað ykkar
á að fara að simanum og hringja i
lögregluna.
Það var óþarfi. Aður en Pyle
var farinn að velja númerið,
heyrði Andy vælur i fjarlægð.
Hann lagði frá sér byssuna, hall-
aði sér upp að barborðinu og beið.
Vælurnar uröu háværari og
hljóðnuðu siðan — og siðan var
salurinn fullur af einkennis-
klæddum mönnum. Yfirmaöur
þeirra leit i kringum sig — sá
Andy halla sér upp að barboröinu,
sá Pyle með hendurnar fyrir ofan
höfuð og likiö i stækkandi blóð-
polli. Hann stakk á sig byssunni.
— Við komum vist of seint, sagði
hann. — Eruð þér Paxton?
— Já.
— Við komum eins fljótt og við
gátum. Konan yðar sagði i sifellu
aö þér mynduð bjarga yöur. Hún
er fyrir utan i lögreglubilnum og
barnið ykkar lika. Hann leit á
Andy með áhyggjusvip. — Eruð
þér særöur? Komið, styðjið yður
við mig.
Það var kvöl að nota fótinn, en
Andy bandaði honum frá sér. —
Nei, þakk fyrir, ég kemst þetta
sjálfur.
Loks stóð hann á eigin fótum og
hægt og þyngslalega hoppaði
hann út til að sameinast fjöl-
skyldu sinni á ný.
Laugardagur 2. júni.
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Helga Hjörvar heldur
áfram að lesa söguna ,,Það
er fill undir rúminu minu"
eftir Jörn Birkeholm (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli liða Morgun-
kaffiðkl. 10.25: Páll Heiðar
Jónsson og gestir hans ræða
útvarpsdagskrána, og
greint er frá veðri og
vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 A iþróttávellinum. Jón
Asgeirsson segir frá keppni
um helgina.
15.00 A listabrautinni,Jón B.
Gunnlaugsson kynnir ungt
listafólk.
15.30 Stan/.. Arni Þór
Eymundsson og Pétur
Sveinbjarnarson sjá um
þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. TIu á
toppnum.örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 Siðdogistónleikar. a.
Atriði úr óperettunni
„Leðurblökunni" eftir Jo-
hann Strauss. Karl Terkel,
Hilde Gueden, Anneliese
Rothenberger flytja ásamt
Filharmóniusveitinni i
Vinarborg. Heinrich Holl-
reiser stjórnar. b. Holly-
wood Bowl sinfóniuhljóm-
sveitin leikur tónlist eftir
Addinsell, Strauss, Proko-
fjeff og Brahms. Carmen
Dragon og Alfred Newmann
stjórna. Einleikari :
Leonard Pennario.
18.00 Kyjapistill. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 l.jóð eftir Ilalldór
Laxness.Agúst Guðmunds-
son les.
19.25 Sómi Islands suður i
Genf.Gisli J. Astþórsson les
þriðju og siðustu sögu sina
um Albert A. Bogesen.
20.00 llljómplölurabb.
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
20.55 Vestfir/.kur bóndi i
Kljóliim. Höskuldur Skag-
fjörð ræðir við Hermann
Jónsson á Yztamói.
21.20 Gömlu dansarnir.
Ameriskar hljómsveitir
leika dansa i gömlum stil.
21.45 Ljóðaþýðingar eftir
Kristin Björnsson lækni.
Elin Guðjónsdóttir les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir, Danslög,
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok. f
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Brellin blaðakona, Verk-
fræðingurinn. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
20.50 Að bjarga Feneyjum.
Kvikmynd, gerð aö tilhlutan
Evrópuráðsins, um fyrir-
hugaðar ráðstafanir til
bjargar menningarverð-
mætum i Feneyjum. Þýð-
andi og þulur Þórður örn
Sigurðsson.
21.10 Æskuævintýri (Ad-
ventures of a Young Man)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1962, byggð á smásögum
eftir Ernest Hemingway og
að hluta á skáldsögunni
„Vopnin kvödd". Leikstjóri
Martin Ritt. Aðalhlutverk
Richard Beymer, Dán
Dailey og Susan Strasberg.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.i
Aðalsöguhetjan er
bandariskur piltur, Nick
Adams að nafni, sem ákveð-
ur aö yfirgefa fjölskyldu
sina og heimkynni i Wiscon-
sin og fara út i heim i ævin-
týraleit. Hann flakkar fyrst
um Bandarikin og dvelur
meðal annars um skeið i
New York, en gengur illa að
fá góða vinnu. Loks gerist
hann sjálfboðaliði i her
ítala, sem um þessar mund-
ir, 1918, eiga i höggi við
Þjóðverja og Austurrikis-
menn, og lendir þar i mikl-
um mannraunum.
23.30 Dakskrárlok
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta meS
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavik — Sími 30688
Auglýsingasíminn er 17500
MOÐVIUm
ENDIR