Þjóðviljinn - 18.07.1973, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 18. júll 1973.
GÁTA
Hvort heldurðu að sé kaldara á Norðurpólnum eða
Suðurpólnum?
mnu{odjnQns ? njnpie^ jo qucj
:juas
Hjálpið þjófinum, heitir þessi skólasýning
Fiolleikhússins. Þið þekkið auðvitað öll hann Svarta
Pétur, sem Mikki mús er alltaf að elta.
Markalinan heitir þetta japanska leikrit, sem
Team-leikhúsið hefur leikið i skólum fyrir 13 ára
og eldri. Það fjallar um það góð og það illa sem
blundar i hverjum manni- og mörkin þar á milli.
Skólasýn ingar
eru orðnar fastur liður i skóla-
starfseminni hér i Danmörku. öll
börnin fá að sjá að minnsta kosti
tvær sýningar á hverju ári, og það
er úr mörgu að velja eins og þið
sjáið af meðfylgjandi myndum;
þó er þetta aðeins brot af þvi sem
er á boðstólum.
Siðast liðið haust var haldin
barnaleikhúshátið i borginni
Nyköbing, og þar voru sýndar 70
sýningar. Það voru útbúin 12
leikhús i tjöldum,
fundaherbergjum og samkomu-
húsinu. Þarna voru lika
upplýsingaskrifstofur, vagnar
þar sem seldar voru pylsur og
gosdrykkir, veitingahús og litið
Tivoli.
Til þess að börnin gætu skemmt
sér enn betur var útbúið svæði
þar sem þau máttu leika sér. Þar
var vinnuaðstaða, þar sem hægt
var að búa til alls kyns brúður og
kynstur af fötum til að leika i.
Pönnukökur Ping Pong prinsins eru plága, heitir þetta leikrit. Það
fjallar um prins, sem alltaf er að borða pönnukökur og kúgar alla ibúa
landsins. Þeir verða að strita frá morgni til kvölds, svo að hann geti
borðað pönnukökurnar sinar. En fólkið gerir loks uppreisn, prinsinn
ákveður að verða garðyrkjumaður og fólkið stjórnar landinu sjálft.
Hvor er
stœrri?
Hvor kúlan er stærri,
sú svarta eða sú hvita.
Skoðaðu þær vel. —
Þær eru jafnstórar.
bodil lindorffs
borneteater
Ftluren
Þetta er leikritið um hann Orla,
fallbyssukónginn, töframann-
inn, frú Olsen og höfuðverkinn
hennar og nokkra skemmtilega
flakkara.
1
feiw
DAG /
KICKKEN
TLf.W J9J940 0
m
Regnhlifarleikhúsið sýnir
Regnhlifarleik nr. 1, nr. 2, nr.
3, og nr. 4. Auk þess Regn-leik-
hús-hlifina, sem fjallar um
tvær stórar regnhlifar sem
eignast sólhlif.
$W WIBERBtRC’S