Þjóðviljinn - 18.07.1973, Síða 12
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Mióvikudagur 18. júli 1973.
Nætur- kvöld- og helgidaga-
varzla lyfjabúðanna vikuna
13. til 19. júli er i Háaleitisapó-
teki og Vesturbæjarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhringinn.
Kvöld- nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Y erður
breytt um
stefnu í
Afganistan?
Nýju Dehli 17/7 — 1 dag var lýst
yfir i Afganistan, aö rikið væri
ekki lengur konungsriki, heldur
yrði það héðan i frá iýðveldi.
Fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, Mohammed Daud, til-
kynnti þetta i útvarpið I Kabul, en
hann hefur tekið sér vald æðsta
manns landsins til bráðabirgða.
Sagði hann að fyrrverandi stjórn
hefði verið hættuleg efnahag
landsins, og þvi hefðu hann og
fleiri neyðzt til þess að gripa i
taumana.
Daud fullyrti að hann og
stuðningsmenn hans ætluöu að
koma á raunverulegu lýðræði i
landinu og þyrftu þvl að gera
ýmsar breytingar á stjórninni, þó
ætluðu þeir að sjá til þess að
Afganistan yrði áfram hlutlaust
land, sem ekki væri með i neinu
hernaðarbandalagi. Það er ef til
vegna þess að Afganistan á
landamæri aö Is'na, Pakistan,
Ráðstjórnarrikjunum og tran.
Það er álit manna i Nýju Dehli
að hinn nýi leiðtogi Afganistan
verði mjög harður i horn að taka i
afstöðu sinni til Pabistan og hefur
hann stutt herskáa þjóðflokka á
landamærum rikjanna.
Konungurinn i Afganistan var
Mohammed Zahir Shah, en Oaud,
sem nú fer með völdin er giftur
systur konungsins, hvaða áhrif
sem það getur nú haft á stjórn-
málin.
Daud varð forsa>tisráðherra
landsins 1953. Afganistan liggur
hátt uppi i fjöllum á milli allra
þessara stórvelda, og nær hvergi
að sjó, er rúmlega helmingi
stærra en Island, hefur 13,6
.miljón ibúa, og þar hefur verið
þingbundin konungsstjórn frá
1964.
Þrátt íyrir yfirlýsingar um
hlutleysi, og ef til vill einmitt þess
vegna, hefur landið þegið aðstoð
ýmissa rikja, bæði austan tjalds
og vestan. Landið liggur þannig
að hættulegt er t.d. fyrir Kina, svo
eitthvað sé nefnt, ef Rússar
næðu tangarhaldi á landinu,
þannig að þvi virðist vis fjárhags-
aöstoð margra rikja áfram. En
þrátt fyrir þessa aðstoð, er landið
enn mjög aftur úr i framleiðslu-
háttum og kjör almennings bág-
borin.
Flestir lifa á landbúnaði, og er
landið frjósamt, á mörgum
stöðum, aðallega vegna ánna sem
eru straumharðar, og flytja með
sér áburð. Aðferðir við land-
búnaðarstörfin eru þó mjög
gamaldags. Sumar árnar hafa
verið virkjaðar, og þá aðallega
með aðstoð frá erlendum
bönkum, bæði bandariskum og
öðrum.
Mikill hitamismunur er i
Framhald á bls. 11.
Waldheim
til Austur-
landa nær
New York 17/7 — Samkvæmt
upplýsingum frá aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna fer Kurt
Waldheim aðalritari þeirra i
heimsókn til Israel, Egyptalands,
og Jórdaniu seint í næsta mánuði.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
Waldheim fer i opinbera
heimsókn til þessara landa.
Þetta var tilkynnt i gær og
jafnframt var þess látið getið, að
væntanlega kæmi öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna saman á
mánudag i næstu viku til þess að
ræða vandamál þessara landa,
sem Waldheim ætlar að
heimsækja.
Meiri uppljóstranir
Trúnaðarsamtöl fest á
segulband í Hvíta húsinu
Washington, London, Bonn
17/7 — Nú virðist sem vafa-
samar aðfarir Nixons og
stjórnar hans séu farnar að
koma niður á æðstu stjórn-
málamönnum heimsins, eða
öllu heldur aö nú hafi komizt
upp, hvernig Nixon og sam-
starfsmenn hans hegða sér viö
þá menn, sem eru að koma i
kurteisisheimsóknir og Nixon
brosir við og faömar.
Það er nú ljóst, að frá árinu
1971 hefur allt sem sagt hefur
verið i fundarherbergjum
Nixons i Hvita húsinu verið
hlerað og tekið upp á segul-
bönd.
Þaö var vitni i Watergate-
málinu, Alexander Butter-
field, fyrrverandi starfsmaður
I Hvita húsinu, sem skýrði frá
þessu er hann var yfirheyrður.
Hann benti þannig nefndinni,
sem rannsakar Watergate-
málið á það, að á þessum
spólum væri vafalaust að
finna svar við þvi hversu
mikið Nixon vissi um það
mál. Nefndin hefur þegar
farið fram á að fá spólurnar,
en óvist er hvernig þvi verður
svarað i Hvita húsinu.
Butterfield sagðist vita, að
þessar upplýsingar gætu
komið sér illa fyrir utanrfkis-
þjónustuna, þar sem viðbúið
væri að einhverjir hinna
mörgu þjóðhöfðingja sem
nýlega hafa þegið heimboð
Nixons yröu alvarlega móðg-
aöir, en þeirra á meðal eru
forsætisráðherra Israels,
Golda Meir, Haile Selassie,
keisari Eþiopiu, kanslari
Vestur-Þýzkalands, Willy
Brandt, Hussein konungur i
Jórdaniu, forsætisráðherra
Englands, Edward Heath,
leiötogi sovézka kommúnista-
flokksins, Leonid Brézjnéf,
forsætisráðherra Indlands,
Indira Ghandi, og fyrverandi
forsætisráðherra Italiu, Giulio
Andreotti.
Trúlega er Pompidou, forseti
Frakklands ánægður með að
hafa rætt við Nixon á Islandi I
stað þess að hafa heimsótt
hann I Hvita húsið.
Butterfield hélt þvi fram, að
þessi viðtöl hefðu verið tekin
upp til þess að notast seinna
við ritun mannkynssögunnar
eða annarra álika merkra
hluta.
Nýlega komst upp um
glæpamenn sem höföu tekiö
upp á segulband samtöl
furstahjónanna i Mónakó, en
sem betur fór tókst fljótlega
að hafa hendur i hári gangster
anna, sem höfðu ætlað sér að
kúga peninga út úr hjúunum,
en að sjálfsögðu dytti starfs-
mönnum Hvfta hússins ekki i
hug að nota slikar spólur með
tali æðstu manna heims til
annars en vlsindalegrar sögu-
ritunar.
Annar starfsmaður I Hvita
húsinu, Fred Buzhardt,
staðfesti framburð Butter-
fields og segist hafa heyrt um
það getiö, að i stjórnartið
Lyndons B. Johnsons. hefðu
þeir verið jafn visindalega
þenkjandi, og notað sams
konar hleranir og upptökur á
bönd, en Nixonstjórnin hefði
ekki kunnað á þetta fyrr en
eftir tveggja ára stjórn
Nixons.
I Bonn og I London vildu
talsmenn rikisstjórnanna
heldur litið segja um málið,
nema að það væri ekki vani
hjá þeim að taka leynifundi
háttsettra embættismanna
upp á segulbönd. í London
vildu talsmenn rikisstjórnar-
innar ekki gefa neitt út á þann
möguleika að upptaka leyni-
funda Heaths i Banda-
rikjunum með Nixon gæti
yerið skaðleg fyrir England,
og f Bonn var sagt aö ekkert
væri hægt að segja að svo
stöddu, þvi Brandt væri I frii i
Noregi.
Vafalaust eiga margir þjóð-
höfðingjanna, sem hlut eiga að
máli, eftir að mótmæla
þessari framkomu Banda-
rikjastjórnar, og ékki er t.d.
vfst að Brézjnéf faðmi Nixon
eins mikið næst þegar þeir
hittast, þótt hann hafi áður
látið hafa eftir sér að honum
kæmi Watergatemálið ekkert
við, þvi þetta hlerunarmál I
Hvíta húsinu er kannski
óþægilegt i fyrir hann sem og
aðra i sömu aðstöðu.
Fréttirnar af morðum
Portúgala staðfestar
London 17/7 — Neðri málstofa
enska þingsins ræddi heimsókn
Caetanos, forsætisráðherra
Portúgals I dag. Það var Harold
Wilson, leiðtogi verkamanna-
flokksins, sem þvingaði forsætis-
ráðherrann, Edward Heath, til
þess. Það er mjög óvanalegt að
rætt sé þannig um opinberan gest,
á meðan hann er staddur i
landinu, en ástæðurnar til þess að
svo er gert nú eru ekki heldur
neitt vanalegar. Wilson vildi að
heimsókn Caetanos væri aflýst.
I ræðu sinni i þinginu sagði
Wilson, að þótt almenningur væri
orðinn ýmsu vanur i striði og
skæruhernaði, væri hegðun
Portúgala slik, að ekkert sam-
bærilegt hefði áður gerzt. Flokkur
Wilsons, Verkamannaflokkurinn,
og sömuleiðis Frjálslyndi
flokkurinn, komu sér hjá þvi að
mæta i veizlur þær sem haldnar
voru til heiðurs Caetano.
Alec Douglas Home sagði i
þinginu, að ekki hefði verið hægt
að afturkalla heimsókn
portúgalska forsætisráðherrans,
þar sem ekki væri vitað enn,
hvort fjöldamorðin i Mosambik
hefðu raunverulega átt sér stað.
Með þvi að aflýsa heimsókninni
heföi enska rikisstjórnin þá verið
að fella dóm yfir dyggum sam-
starfsmanni og bandamanni.
Mótmæli gegn dvöl Caetanos,
halda áfram i London, og eru
aðgerðir i mótmælaskyni hvert
sem hann fer.
„Portúgalskir hermenn drepa
stundum börn I þorpum i Mosam-
bik, með þvi að sparka i þau og
traðka á þeim og þvinga jafn-
framt alla þorpsbúa til þess að
horfa upp á aðgerðirnar. Er þetta
gert til þess að sýna þorpsbúum
Chile
Santiago 17/7 —. Hægri öfga-
flokkur I Chile, sem kallar sig
„Föðurland og frelsi” hótaði I
gær að gera vopnaða aðför að for-
seta landsins Salvador Allende,
Sagði aðalritari flokksins að þeir
hefðu tekið þátt i uppreisnartil-
rauninni, sem gerð var i Chile 29.
júni siðastliðinn. Hann sagði að sú
tilraun hefði þrátt fyrir allt orðið
flokknum til góðs, þvi þar hefði
verið stigið fyrsta skrefið I þá átt
að reyna að ná völdunum af
Allende, með ólöglegum aðferð-
um. Aðalritarinn bætti þvi við að
næsta skrefið yrði að reyna að
steypa Allende af stóli með
vopnavaldi.
Allende hefur gefið út þá yfir-
fram á að betra er áð hlýðnast
fyrirskipunum portúgalska
hersins”.
Þessi frétt birtist i dagblaði i
Hollandi i dag. og er haft eftir
hollenskum hjónum sem dvöldu I
Framhald á bls. 11.
lýsingu að allir vopnaðir öfga-
sinnar yrðu teknir og leiddir fyrir
herrétt, ef þeir reyndu að gera
eitthvað slikt.
Litil von virðist til þess að öfga-
flokknum takist aö vinna nokkur
spjöll, þvi herinn, eins og reyndar
allur almenningur, er hlynntur
stefnu Allendes.
Fram að siðustu kosningum
reyndi þessi öfgaflokkur, ásamt
öðrum öfgaflokkum til hægri, að
koma Allende og stjórn hans á
kné eftir hefðbundnum lýðræðis-
leiðum, þar sem þeir tóku m.a.
sálfræðina i sina þjónustu. Að
loknum kosningum sáu for-
sprakkar þessara flokka að leik-
urinn var tapaður, fylgi Allendes
hafði aukizt þrátt fyrir allan
áróður þeirra og ólæti, og þá er
þetta eina ráðið, að. gripa til
vopna.
Uppreisnartilraunin sem gerð
var I júnilok sýndi þó enn frekar
að það er litil von til þess að koma
Allende fyrir kattanef, þvi i
ólátunum sýndi það sig að herinn
var orðinn hlynntur Allenda-
Stjórn Allendes er traust i sessi.
stjórninni, en það hafði hann ekki
verið til skamms tima.
Þetta brölt „Föðurlands og
frelsis” verður þvi væntanlega til
litils fyrir flokkinn, og aðra hægri
öfgamenn.
Norrœna
fimleika -
sýningin
endurtekin
Norræna fimleikasýningin
verður endurtekin i Laugar-
dalshöllinni i kvöld. Nær 1000
fimleikamenn taka þátt i
sýningunni og eru þeir frá öll-
um Norðurlöndunum, nema
Færeyjum. Danir eru fjöl-
mennastir.
Það er Fimleikasamband
Islands, sem gengizt hefur
fyrir þessari heimsókn.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisþing á Norðurlandi vestra.
Alþýðubandalagið I Norðurlandskjördæmi vestra heldur kjördæmis-
þing á Sauðárkróki næstkomandi laugardag, þann 21. júli og hefst
fundur klukkan 3 siðdegis, en lýkur um kvöldið.
Kjördæmisþingið verður haldið i Villa Nova. Þingmaður kjördæmis-
ins Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins og Hannes
Baldvinsson, varaþingmaður Alþýðubandalagsins i kjördæminu mæta
á kjördæmisþinginu.
Hœgri flokkar í
vonsviknir