Þjóðviljinn - 20.10.1973, Side 1

Þjóðviljinn - 20.10.1973, Side 1
UOmiUINN Laugardagur 20. október 1973. —38. árg. —241. tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON RAGNAR ARNALDS: Afgerandi breytingar frá tillögum Breta verða að fást fram Málmiðnaðarmenn afhentu kröfur sinar í gœrdag t gær gengu fulltrúar Málm- og skipasmi&asambandsins á fund atvinnurekenda i húsi Vinnu- veitendasambands ns (Vinnu- þiggjendasambandsins?) i Garðastræti og afhentu þeim kröfur sinar i væntanlegum kjarasamningum. Guðjón Jónsson formaöur Málm- og skipasmiðasam- bandsins sagði að þar sem atvinnurekendur hefðu ekki enn haft tima til að yfirfara kröfurnar væri ekki hægt að birta þær fyrr en eftir helgina. Myndin hér að ofan er af fuiltrúum málm- og skipasmiða Að sögn Hafsteins Hafsteins- sonar hjá landhelgisgæslunni var hreint ekkert að frétta af veiðum landhelgisbrjóta i islensku fisk- veiðilandhelginni i gær. Hafsteinn var að þvi spurður hvort landhelgisgæslunni væri kunnugt um það hvar bresku her- hægra mcgin við borðiö, en fulltrúar atvinnurekenda til vinstri. S. dór. skipin héldu sig núna, og hvort vera kynni að þau biöu við 50 milna mörkinalbúalbúin þess að ráðast inn fyrir, ef ekki semdist i landhelgisdeilunni. Hann kvað gæslunni ekkert um það kunnugt. Herskipin væru ekki lengur á áhrifasvæði hennar. Ekkert að frétta Olafur Jóhannesson á blaðamannafundi: „Ekki hægt að kalla þetta úrslitakosti, — en að visu sá grundvöllur sem Bretar telja að þurfi að vera fyrir hendi til þess að nokkrar likur séu á samkomulagi", „Ég tel nú að vísu ekki rétt að kalla þetta úrslita- kosti, en þetta er að visu sá grundvöllur sem Bretar telja að þurfi að vera fyrir hendi til þess að nokkrar likur séu á þvi að sam- komulag fáist." Þannig komst Olafur Jóhannes- son forsætisráðherra að orði á blaðamannafundi, sem hann efndi til i stjórnarráðinu siðdegis i gær. Hafði fundarins verið beðið með mikilli eftirvæntingu, en þar voru birtar skýrslur frá um- ræðunum i London. A 3. siðu blaðsins er nákvæm frásögn af fréttamannafundi forsætisráð- herra, en á 4. siðu er skýrslan frá Lundúnaviðræðunum birt i heild. Niðurstöður af samningaviðræðum ólafs Jóhannessonar, forsætisráðherra við mr. Heath forsætisraðherra Breta hafa nú verið birtar opin- berlega. Eins og fram hefur komið i Þjóðvilianum hefur þingflokkur Alþýðubandalagsins gert samþykkt, þar sem lýst er yfir, að flokkurinn telji samningstil- boð Breta ekki aðgengilegt óbreytt. Þjóðviljinn hafði i gær tal af Ragnari Arnalds, formanni Alþýðubandalagsins, og innti hann frétta varðandi ákvörðun og afstöðu þingflokksins. Ragnar sagði: Tilboð Breta er i allmörgum at- riðum óhagstæðara Islendingum en þær lokatillögur, sem íslenska rikisstjórnin lagði fram i samningaviðræðunum i mai i vor, bæði hvað snertir lengd samningstimabils og fjölda stórra togara, en þó sérstaklega i sambandi við veiðihólfin og fram- kvæmd samkomulagsins. Sam- kvæmt fyrirliggjandi tillögum Breta er ekki að sjá að ís- lendingar hafi óskorað vald til að svipta brotlega togara veiði- heimild. Alþýðubandalagið hefur ávallt veriðþeirrar skoðunar, og er enn, að réttur Islendinga i þessum efn- um verði að vera ótviræður, ef samningar eigi að koma til greina. Þingflokkur Alþýðu- bandalagsins gerði samþykkt siðastliðinn miðvikudag, þar sem þessi sjónarmið koma skýrt fram og var samstarfsflokkunum i rikisstjórn um leið tilkynnt að Alþýðubandalagið gæti ekki fallist á tilboð Breta, eins og það liggur fyrir. Ég vil hins vegar taka skýrt fram, að nokkur munur er á þeim tillögum, sem Ölafur Jóhannes- son lagði fram i London og nú hafa verið birtar, og svo hins veg- ar þessu siðasta tilboði Breta. Má þar nefna, að Bretar halda uppi þeirri kröfu að mega á hverjum tima veiða i 5 hólfum af 6, en á það vildi Ólafur Jóhannesson ekki fallast i London, en hélt fast við, að 2 hólf væru lokuð á hverjum tima. Enda lýsti Ólafur Jóhannesson þvi yfir við heimkomuna, að hann væri algerlega óbundinn af þvi tilboði er Bretar settu fram á lokastigi viðræðnanna i London. Það hefur nú einnig komið fram, að forsætisráðherra telur, að ekki sé um úrslitakosti að ræða af Breta hálfu. Málið er þvi nú til meðferðar hjá stjórnarflokkun- um, og er þess að vænta, að sam- staða náist um að knýja fram þær breytingar á tilboði Breta aö við verði unað. Dean játar Washington 19/10 — John Dean, fyrrum lögfræðilegur ráðunautur Nixons forseta játaði það i dag, að hann væri sekur um aðild að inn- brotinu i Watergate-bygginguna. Mesta refsing sem hann getur fengið er 5 ára fangelsi og 10 þúsund dollara sekt. Dean heldur þvi fram að Nixon hafi hylmt yfir með sökudólgum Watergate-- málsins frá upphafi. í DAG Sjóminjasafn og farskólar á dagskrá i opnu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.