Þjóðviljinn - 20.10.1973, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 20.10.1973, Qupperneq 16
 Laugardagur 20. október 1973. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vlkur, simi 18888. Kvöldsími blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Nætur-, kvöld- og helgarþjón- usta apótekanna i Reykjavík vikuna 19.-25. október er i Borgarapóteki og Reykjavikur- apóteki. Slysavaröstofa Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Hálfur mánuður í dag síðan striðið braust út Tvennar vígstöðvar eru Israelsmönnum erfiðar KAÍRO BEIRUT 19/10 — Bardagar skriðdrekasvcita halda áfram af jafn mikilli hörku og fyrr, báöum megin Súez-skuröar. Samtimis ráðast sveitir frá mörgum Arabalöndum á stöövar israelsmanna I Gólanhæöum. Egyptar segjast hafa útrymt afgangingum haldi þeir i herkvi. hluta af þvi liði lsraelsmanna Heimildir i Damaskus segja að sem komast vestur fyrir skurð, en sókn Araba á norðurvigstöðvun- Sovéskar Sam-2-eldflaugar i Kairó. Blaða- vagninn sprakk í loft upp 1 fyrrakvöld varð mikil sprenging i blaðavagninum á Akureyri sem stendur á Ráð- hústorginu, með þeim af- leiðingum að eigandi hans meiddist nokkuð og var fluttur á sjúkrahúsiðá Akureyri, þar sem hann varð að vera um nóttina til meðferðar. Við sprenginguna kom upp eldur i vagninum og brann hann alveg. Orsök sprengingarinnar mun hafa verið sú, að eig- andinn notar kósangs til upp- hitunar og var hann að kveikja á tækinu sem sprakk i loft upp. -S. dór 1. des.-kosningar TVÆR DEILDIR STYÐJA VERÐANDI i dag verður kosið í 1. des.-nefnd stúdenta. Fara kosningarnar fram í and- dyri Háskólabíós að aflokn- um almennum stúdenta- fundi og hefjast klukkan 14. Mikið dreifiritastrið hefur verið háð milli Verðandi og Vökupilta. 1 gær dreiföi Vaka fagurprentuð- um fjórblöðungi með myndum af frambjóðendum og ræðu- mönnum, en eins og kunnugt er tefla þeir „lýðsræðissinnar” fram hinu skýrt afmarkaða viðfangs- efni: Maðurinn og báknið. 1 fjórblöðungi þessum tekst semjendum á snilldarlegan hátt að troða umhverfisvernd undir vigorð sitt. Er þar m.a. rætt af einlægri fyrirlitningu um „mal- bikað borgarlif” og af jafn einlægri aðdáun á hinu frjálsa framtaki einstaklingsins. Náttúrfræðinemar brugðu við hart er þeir sáu pésann og svöruðu þvi i öðru dreifiriti. Benda þeir réttilega á að um- hverfisvernd hér á landi hefur verið fólgin i baráttu félagslegra sjónarmiða við einkaframtakið, svo afstaða Vökupilta til þessara mála er ansi loðin. Náttúrufræðinemar ljúka dreifiriti sinu með þvi að lýsa fullum stuðningi sinum við fram- boð Verðandi. Sama hafa félags- Aftökur og landflótti SANTIAGO 19/10 — Fimmtán vinstri sinnar voru teknir af lifi i Chile á þriðiudaginn var, seg- ir í opinberri tilkynningu herforingjanna i Santi- ago. Voru þeir kallaðir hættulegir öfgamenn Utanrfkisráðherra stjórnarinn- ar, kontraaðmiráll að nafnbót, segir að nærri þvi 5 þúsund manns hafi leitað hælis i erlend- um sendiráðum sem pólitiskir flóttamenn að undanförnu. 3.100 manns hafi þegar komist úr landi, en 1.780 dveljist enn i sendiráðun- um. 119 hafi ekki enn fengið tryggingu fyrir þvi að fá að fara úr landi. ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ MANNLÍF OG SAMFÉLAG Starfshópur borgarmálaráðs um mannlif og samfélagshætti i borg- inni heldur umræðufund á mánudagskvöld 22. okt. kl. 20.30 að Grettis- götu 3. Borgarmálaráð Alþýöubandaiagiö I Reykjavik Alþýðubandalagið á Akranesi Félagsfundur verður haldinn i Rein laugardaginn 20. október kl. 2 e.h Kosning fulltrúa á flokksráðsfund og fleiri mál. — Stjórnin. Fundur um Palestinu Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins efnir á mánudag til fundar um Palestinu. Frummælendur þar verða þeir Rögnvaldur Finnbogason og Dagur Þorleifsson en á eftir verða umræður. Fundurinn verður haldinn að Grettisgötu 3 og hefst klukkan 21. Nánar auglýst I helgarblöðunum. fræðinemar samþykkt á fundi i félagi sinu. Hafa þvi tvær heilar námsbrautir lýst stuðningi við baráttumál vinstri manna: Is- land ur Nató — herinn burt! -ÞH. um sé viðtækustu árásir vélaher- deilda á israelskar stöðvar siðan Egyptar héldu yfir Súezskurð fyrir 13 dögum. Litur út fyripað Arabar vilji kreppa verulega að Israelsmönnum á norðurvig- stöðvunum þegar stór hluti hers þeirra er bundinn á . suðurvig- stöðvunum. Bandariskir ráðgjafar Það litur út fyrir að USA ætli sé að hlutast æ meira til um striðið i Austurlöndum nær. Nixon Bandarikjaforseti hefur ákveðið að biðja þingið um marga miljarða dollara i fjár- veitingu til hernaðaraðstoðar við ísrael. Vitnast hefur að „tak- markaður fjöldi” bandariskra hermanna hefur verið sendur til Israels til þess að aðstoða við móttöku á öllum þeim hergögn- um og öðrum dtbúnaði, sem Bandarikjastjórn sendir nú Israelsmönnum. Tekið er skýrt fram, að „ekki komi til mála að þessir Banda- rikjamenn taki þátt i bardögum við hlið Israelsmanna.” En svipuðum yfirlýsingum muna menn eftir frá Vietnam. Staðfest er i Moskvu að Kosigin hafi verið nokkra daga á fundum með Sadat i Kairó. Sovésk blöð skrifa á þá lund um alþjóðamál nú, að fréttaskýrendur telja að Sovétmenn vilji friðsamlega lausn á deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Bandarikjamenn hafa nú „upp götvað” vietnamska sjálfboða- liða með herjum Araba, en áður höfðu þeir fundið nokkra Norð- ur-Kórverja i þvi liði. Segja þeir að það sé ekki einleikið, hvað Sýrlendingum gangi vel að skjóta niður flugvélar og þar hljóti Viet- namar að hafa komið til hjálpar. Þeir hafa nefnilega reynsluna af þvi að glima við bandariskar vél- ar. Systkini hætt komin í eldsvoða á Akureyri t fyrrinótt kom upp eldur i húsinu númer 16 viö Noröurgötu á Akureyri. t ibúöinni, þar sem eld- urinn kom upp sváfu tvö systkini, maöur 27 ára og kona 23ja ára. Varö að senda reykkafara inn til þeirra. Tókst meö naumindum aö bjarga þeim út, og voru þau mjög hætt komin. Þau voru flutt á sjúkrahúsiö á Akureyri, en siöan um hádegisbiiiö I gær meö sjúkraflugvél á Landspitalann i Reykjavik. Húsið Norðurgata 16 er kjallari, tvær hæðir og ris. Eldurinn kom upp i ibúð á 2. hæð i vesturenda hússins. Eftir að tekist hafði að bjarga systkinunum gekk nokkuð greiðlega að slökkva eldinn, en húsið er með steyptum útveggj- um. Ibúðin, sem systkinin voru i skemmdist mikið af eldi, reyk og vatni, en aðrar ibúðir I húsinu skemmdust nokkuð af vatni og reyk og munu óibúðarhæfar fyrst um sinn. Eru um 20 manns hús- næðislaus á meðan. Siðla dags i gær fengum við þær upplýsingar á Landspitalan- um að systkinin væru bæði i lifs- hættu enn. —S. dór Frá setningu iönnemaþings i gær. Rúnar Bachmann formaöur INSl i ræöustól. (Ljósm. A.K.) 31. þing INSl sett í gser 31. þing lönnemasambands ls- lands var sett i gær kl. 14 á Hótel Esju, en þaö mun starfa fram á sunnudagskvöld. Rúnar Bach- man förmaöur INSÍ setti þingið og aö setningu lokípni ávarpaöi þingiö Magnús Torfi óiafsson. Þingið sækja um 80 fulltrúar frá flestum félögum iðnnema á landinu. Er fjöldi þingfulltrúa meiri en verið hefur þar sem fimm ný iðnnemafélög hafa verið stofnuð á þessu ári. Helstu málaflokkar þingsins eru iðnfræðslumál, kjaramál og skipuíagsmái INSl en fyrir þing- inu liggur tillaga um breytingu á uppbyggingu sambandsins. A vegum INSI hefur að undan- förnu starfað nefnd til að gera til- lögur um skipan iðnfræðslu i framtiðinni én þau mál eru ofar- lega á dagskrá núna og m.a. starfar nefnd á vegum mennta- málaráðuneytisins að endur- skipulagningu hennar. Mennta- málaráðherra lét i ræðu sinni i ljós þá ósk sina, að nefndin lyki störfum sem fyrst svo unnt reyndist að leggja frumvarp um iðrifræðslu fram áður en alþingi lýkur störfum i vor. Rúnar Bachman drap á það i setningarávarpi sinu að INSl bærist i bökkum fjárhagslega. Stafar það helst af þvi að lög sem sett voru i mai 1972 og kváðu svo á að sambandið fengi ákveðið gjald af hverjum námssamningi i landinu til starfsemi sinnar eru ekki enn komin til framkvæmda. Mun framkvæmd þeirra hafa dagað uppi einhvers staðar i skriffinnskubákninu. Blaðamaður ræddi stuttlega við tvo þingfulltrúa af lands- byggðinni og birtast þau i blaðinu á morgun. Nánar verður svo greint frá störfum þingsins eftir helgina. -ÞH.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.