Þjóðviljinn - 06.11.1973, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. nóvember 1973.
jfislif íifiniiii Tiur i=iin;in a #
mrm,
þingsjá þjóðviljans
Gísli Guðmundsson
alþingismaður látinn
Gisli Guðmundsson, alþingis-
maður lést i gærmorgun tæplega
70 ára að aldri.
A fundi Sameinaðs alþingis i
gær minntist Eysteinn Jónsson,
forseti sameinaös þings hins
látna alþingismanns og mælti á
þessa leið:
í morgun barst sú harmafregn,
að Gisli Guðmundsson alþingis-
maður væri látinn, tæplega
sjötugur að aldri. Hann hafði að
undanförnu átt við mikla van-
heilsu að striða, kom af þeim
ástæðum ekki til þings i haust og
andaðist siðastliðna nótt.
Gisli Guðmundsson var fæddur
2. desember 1903 á Hóli á
Langanesi. Foreldrar hans voru
Guðmundur bóndi þar
Gunnarsson bónda á Djúpalæk
Péturssonar og kona hans Kristin
Gisladóttir bónda i Kverkártungu
I Skeggjastaðahreppi Arnasonar.
Hann hóf nám i Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri
haustið 1919 og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi vorið 1921. Veturinn
1923—1924 var hann i mennta-
skólanum i Reykjavik og lauk
þaðan stúdentsprófi utanskóia
1926. Nám i islenzkum fræðum við
Háskóla Islands stundaði hann á
árunum 1926—1929 og fór siðan
hálfs árs námsferð um Norður-
lönd, Þýskaland, Sviss og Italiu
1929. Jafnlramt námi var hann
barna- og unglingakennari á
Langanesi öðru hverju 1921—1925.
Þingskrifari var hann á Alþingi
1928 og 1929, stundakennari við
Samvinnuskólann 1928-1929 og
1930-1934, skólastjóri i forföllum
1930-31. Hann var ritstj. Ingólfs
1930-1940 og jafnframt rit-
stjóri Nýja dagblaösins 1934-1936.
Alþingismaður Norður-Þing-
eyinga var hann 1934-1945 og
1949-1959, siðan alþingismaöur
Norðurlandskjördæmis eystra,
sat á 41 þingi alls.
Gisli Guðmundsson var kjörinn
til ýmissa annarra trúnaðar-
starfa en hér hafa verið talin.
Hann var i miðstjórn Fram-
sóknarflokksins 1933-1946 og frá
1950 i fulltrúaráði Útvegsbanka
tslands 1936-1957 og i bankaráði
Útvegsbankans frá 1957. Hann
átti sæti 1936-1938 i stjórnskipaðri
nefnd, er samdi frumvarp til laga
um stéttarfélög og vinnudeilur og
var kosinn 1937 i milliþinganefnd
til að gera tillögur um hlut-
deildar-og arðskiptifyrirkomulag
I atvinnurekstri. 1 stjórn Skulda-
skilasjóðs útvegsmanna var hann
1949-1951, i bankamálanefnd 1951-
1954, i fjárhagsráði 1952-1953, i
endurskoðunarnefnd almanna-
trveeinealaea 1954-1956. i
GIsli Guðmundsson
byggðajafnvægisnefnd 1954-1956,
var formaður atvinnutækja-
nefndar 1956-1961 og formaður
staðsetningarnefndar rikis-
stofnana 1958-1960. Hann var
forseti Rimnafélagsins 1961-1965
og i stjórn Hins islenska þjóðvina-
félagsins frá 1962.
Gisli Guðmundsson ólst upp viö
sveitastörf og hélt alla ævi nánum
tengslum við æskustöðvar sinar,
átti siðustu árin heimili á föður-
leyfð sinni og dvaldist þar löngum
þegar færi gafst vegna starfa
þeirra, sem hann hlaut að vinna
annarsstaðar. Hann var vel að
sér um sögu þjóðarinnar og
atvinnuhætti til lands og sjávar,
ritfær og málhagur. Auk fjöl-
margra greina i blöðum og tima-
ritum liggja eftir hann
frumsamin rit og þýðingar
erlendra bóka. Gisli
Guðmundsson var hæglátur og
hlédrægur, en áhuginn var mikill,
Hann átti um nokkurt skeið við
heilsuleysi að striða, en viðtæk
þekking hans á landshögum,
glöggskyggni og gjörhygli leiddu
til þess, aö til hans var leitað til
ráöuneytis og forustu um marga
mikilvæga þætti þjóðmála. Gisli
Guðmundsson var samvinnu-
þýður og tillögugóður i samstarfi
innan þings og utan, fastur fyrir
og fylginn sér i baráttu fyrir
hugðarmálum sinum, þraut-
seigur og úrræðagóður i hverri
raun. Gisli Guðmundsson var
langa hrið einn af áhrifamestu
stjórnmálamönnum landsins.
Störf hans á sviði löggjafar og
þjóðmála marka viða spor.
Lengst mun þó Gisla
Guðmur.dssonar verða minnst
fyrir þrautseiga og hetjulega
baráttu hans og forustu innan
þings og utan fyrir ráðstöfunum
til þess að vinna að jafnvægi I
byggð landsins, sem nú orðið á
sterkan hljómgrunn með þjóð-
inni. Hiklaust má fullyröa, eð
enginn einstaklingur á jafnnýtan
þátt og hann i þeim heillavænlegu
breytingum, sem nú eru að verða
almennt á viöhorfi til þeirra
mála.
Ég vil biðja háttvirta
alþingismenn að minnast Gisla
Guömundssonar með þvi að risa
úr sætum.
„Hver sem með háði, rógi,
smánun, ógnun eða ...”
Lagt hefur verið fram á alþingi
stjórnarfrumvarp um breytingu á
aimennum hegningarlögum á
þessa leið:
1. gr.
„Nýgrein, 233.gr. a,orðistsvo:
Hver sem með háði, rógi,
smánum, ógnum eða á annan hátt
ræðst opinberlega á hóp manna
vegna þjóðernis þeirra, litar-
háttar, kynþáttar eða
trúarbragða sæti sektum,
varðhaldi eða fangelsi allt að 2
árum.
2. gr.
Lög þessi taka þegar gildi.”
I athugasemdum við laga-
frumvarpið segir, að Sameinuðu
þjóðirnar hafi beitt sér fyrir
samningi um þessi efni, sem
gerður var 21. desember 1965 —
United Nations Convention on the
Elemination of all forms of
Racial Discrimination.—
Samningur þessi var undir-
ritaður af tslands hálfu 14. nóv.
1966, en fullgiltur hinn 13. mars
1967.
Um þörfina á nýjum laga-
ákvæðum hér vegna samnings
þessa segir i athugasemdum
frumvarpsins:
„Könnun sú, sem hegningar-
laganefnd hefur framkvæmt á
Islenskri löggjöf og lagareglum
andspænis samningnum frá 21.
desember 1965 og þeim skuld-
bindingum, sem islenska rikið
hefur tekist á hendur með full-
gildingu hans, leiðir þetta i ljós:
1. Vegna ákvæða 4. gr.
samningsins þarf að lögfesta
ákvæði, er lýsi refsiverða hátt-
semi, sem felur i sér atlögur að
hópi manna vegna litarháttar,
kynþáttar, þjóðernis og
trúarbragða, og verður inntakinu
I hinni refsiverður háttsemi siðar
lýst. Við orðun þessa ákvæðis,
sem gert er ráð fyrir, að verði ný
grein, 233. gr. a, verður að hafa i
huga bæði stjórnarskrárákvæði
hér á landi og svo mannréttinda-
yfirlýsingar, sem Island hefur
fullgilt eða bundið sig til að hlita
með öörum hætti.
2. Sýnt er, að ákvæði 5. gr.
samningsins fela i sér mjög
viðtækar skuldbindingar. í
ýmsum tilvikum eru brýn ákvæði
I Islenzkum lögum, sem fuilnægja
samningnum. I öörum tilvikum
kemur hin almenna jafnréttis-
regla, sem hvergi er almennt lög-
skráð hér á landi, að haldi.
Samkv. henni verður þó vitaskuld
ekki neinum manni dæmd
refsing, en skilja verður 5. gr.
samnings þannig, að hún leggi
ekki beinlinis skyldu á riki til að
lögfesta refsiákvæði andstætt þvi
sem er i nokkrum tilvikum
samkv. 4. gr.
3. Vegna ákvæða 6. gr.
samningsins telur hegningar-
laganefnd ekki ástæðu til lög-
gjafarstarfsemi á þessu stigi.”
Svavar Pálsson:
Um kærumál á hendur
Sementsv erksmið j unni
t tilefni af birtingu tveggja
greina i blaði yðar i dag um mál-
efni Sementsverksmiðju rikisins
vil ég biðja yður um að birta
þessar athugasemdir.
í fyrri grein er sagt frá, að yfir-
heyrslur hafi farið fram i Saka-
dómi Reykjavikur vegqa kæru
Þorvaldar Þórarinssonar hrl. og
Jóhannesar Bjarnasonar verk-
fræðings um meint vörusvik og
verðlagsbrot hjá Sementsverk-
smiðju rikisins. 1 þessari grein er
ekkert rangt hermt, enda aðeins
sagt, að þessar yfirheyrslur hafi
farið fram. Um efni sjálfra yfir-
heyrslanna er ekkert sagt.
1 siðari greininni, sem er undir-
rituð úþ, er talað um yfirheyrslur
um svindl hjá Sementsverksmiðj-
unni og um nefndarmenn, sem
sannanlega eigi þátt i einhvers
konar svindli, sem viðgangist i
fyrirtækjum, sem þeir stjórna.
Hérerþvislegiðföstu, að um eitt-
hvert svindl sé að ræða, og engino
fyrirvari gerður þar um.
Mér þykir rétt að láta koma nú
þegar fram opinberlega, hvernig
þessum málum er háttað.
Asakanir um verðlagsbrot eru
byggðar á misskilningi. Verð á
portlandsementi á árinu 1968 var
kr.1660 pr. tonn, en verð á faxa-
sementi kr. 1540, — .Nú var
blandað allt að 10% af faxa-
sementi saman við portland-
sementið. Jóhannes Bjarnason
telur að skylt hafi verið, að lækka
þá verð á Portlandsementi um
10% af verðmismuninum, þ.e. um
kr. 12, — pr. tonn, eða 60 aura á
poka. Þetta var ekki gert m.a.
vegna þess, að verð á hverjum
poka hefur jafnan verið látið
standa á heilum krónum. At-
vinnumálaráðuneytið (nú
Iðnaðarráðuneytið) ákveður verð
á Portlandsementi, en felur siðan
stjórn verksmiðjunnar að ákveða
önnur verð til samræmis við það.
Með þessu er stjórn verksmiðj-
unnar falið allviðtækt vald til að
ákveða verð á hraðsementi, faxa-
sementi, áburðarkalki og enn-
fremur c.i.f. verð til allra hafna á
landinu, en verðjöfnun hefur
alltaf verið gerö á undanförnum
árum, sem miðar að þvi, að verð
á sementi sé sem næst hið sama,
hvar sem er á landinu.
Verðlagsnefnd og verðlags-
stjóri fjalla ekkert um þessar
verðákvaröanir. Það gerir
iðnaðarráðuneytiö, aö fenginni
umsögn Framkvæmdastofnunar.
Það leiöir þvi af þessari skipan
mála, aö stjórn Sementsverk-
smiðju rikisins getur ekki framið
neitt verðlagsbrot, þar sem hún
hefur með heimild ráðuneytisins
allviðtækt vald til aö ákveða verð
á sementi.
Þegar Jóhannes Bjarnason var
i Sakadómi Reykjavikur beðinn
um að skýra ásakanir sinar i
þessu efni svaraöi hann þvi til, að
hann hefði ekki kynnt sér,
hvernig verðlagning á sementi
færi fram. Sakadómari Haraldur
Henrýsson varð orðlaus af
undrun, er hann fékk þetta svar,
og spurði ekki frekar um þetta at-
riði.
Til 'blaða hefur Jóhannes látið
berast, að hann hafi kært
Sementsverksmiðjuna fyrir verð-
lagsbrot, en þegar hann er leidd-
ur sem vitni i Sakadómi Reykja-
vikur verður hann, að segja, sem
Stúdentar
ráði
meiru við
rektors-
kjör
Magnús Torfi ólafsson,
Menntamálaráðherra mælti i gær
I Neöri deild Aiþingis fyrir laga-
frumvarpi, er rlkisstjórnin flytur
um breytingu á lögum um
rektorskjör við Háskóla tslands.
Svo sem kunnugt er, sagði
Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor af sér störfum fyrir stuttu
siðan og þarf þvi að kjósa nýjan i
hans stað. Þegar stúdentar fengu
aðild að rektorskjöri árið 1969
varð hlutur þeirra um 16%
heildaratkvæða, en háskóla-
kennarar réðu yfir 84% atkvæða.
Vegna fjölgunar háskólakennara
i kjölfar fjölgunar stúdenta siðan
er hlutfallslegt atkvæðamagn
stúdenta nú komið úr 16% niður i
10% heildaratkvæðamagns við
rektorskjör, og er lagafrum-
varpið, sem kom til 1. umræðu á
alþingi i gær, flutt i þvi skyni að
fjölga fulltrúum stúdenta við
rektorskjör, svo að þeir hafi yfir
að ráða álika miklum hluta
atkvæða og gert var ráð fyrir
1969.
Lagt er til að lagagreinin orðist
svo:
„Rektor er kjörinn til þriggja
ára i senn og eru prófessorar einir
kjörgengir. Atkvæðisrétt eiga
prófessorar og aðrir þeir, sem
fastráðnir eru til fulls kennslu-
starfs. Þá eiga atkvæðisrétt full-
trúar stúdenta i háskólaráöi og
tveir fulltrúar stúdenta á fundum
háskóladeilda og námsbrautar i
almennum þjóðfélagsfræðum,
svo og formaður og varafor-
maður Stúdentaráðs Háskóla
Islands.”
I athugasemdum segir:
„Frumvarp þetta er flutt að
beiöni háskólaráðs i samræmi við
samþykkt þess á fundi 18. október
1973. Frumvarpinu fylgdi frá
háskólanum svofelld greinar-
gerð:
„Þegar stúdentar fengu aðild
að rektorskjöri 1969, varð hlutur
þeirra um 16% atkvæða við
rektorskjör. Fjölgun fastra
kennara siðan veldur þvi, að
samkvæmt núgildandi reglum
hefur hlutdeild stúdenta lækkað i
tæp 10%. Ofangreind tillaga um
breytingu á 1. mgr. 3. gr. laga nr.
84/1970 veldur þvi, að stúdentar
fá aö nýju sama hlutfall atkvæða
við rektorskjör sem í upphafi.”
Verði frumvarpið samþykkt, er
að þvi stefnt, að sú tilhögun, sem
það gerir ráð fyrir, geti komið til
framkvæmda við það rektors-
kjör, sem nú stendur fyrir dyrum
i Háskóla Islands.”
vafalaust er rétt, að hann hafi
ekki kynnt sér, hvernig verð-
lagning á sementi fari fram.
Fyrir sakadómara lá skýrsla frá
verksmiðjunni um verðlagsmálin
og ljósrit af bréfum ráðu-
neytisins, er skýrðu öll þessi mál
og er hún nú i málsskjölum hjá
Sakadómi Reykjavikur.
Asakanir Jóhannesar Bjarna-
sonar um vörusvik eru einnig á
misskilningi byggðar. Faxa-
sementiö er, eigi minna en að 7/10
hlutum Portlandsement. Að 7/10
hlutum er þvi verið að blanda
Portlandsementi I Portland-
sement, þegar litið magn af
Faxasementi er látið saman við
Portlandsement. Eigi meira og
venjulega minna en 3/10 hlutar
Faxasementsins eru pozzolan
efni (liparit o.fl.L Með þvi að
blanda 10% af Faxasementi
saman við Portlandsementið
verða þessi efni um 3% af blönd-
unni.
Nú um nokkurt skeið hefur
Portlandsementið verið blandað
með um 5% af lipariti og það aug-
lýst i Lögbirtingarblaðinu. Sú
iblöndun fer að visu öðruvisi fram
nú, en efnislega er hér um það
Framhald á bls, 14