Þjóðviljinn - 06.11.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.11.1973, Blaðsíða 16
UODVIUINN Þriðjudagur 6. nóvember 1973. Almennár upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vfkur, sfmi 18888. Rvöldsfmi blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Kvöld-, nætur- og helgarþjón- usta lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 2. til 8. nóvember verður i Garðs Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Slysavaröstofa Borgarspitalans ,er opin allan sólarhringinn. 'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Vegur Nixons hefur aldrei verið minni Palme tekur upp hanskann fyrir IB STOKKHÓLMI 5/111 viðtali viö blaöiö Dagens Nyheter kemur Palme, forsætis- ráöherra Sviþjóðar, fram með upplýsingar um sænsku njósnastofnunina IB, sem hann segir m.a. hafa fengið um 7 miljónir króna fjár- veitingu frá hinu opinbera. Palme tekur upp vörn fyrir þá ákvörðun aö handtaka og höföa mál gegn þeim blaða- mönnum við timaritið Folk och Bild Kulturfront sem hafa afhjúpaö starf þessarar stofnunar. Blaðamennirnir höfðu fært fram rök fyrir sam- starfi IB við bandarisku leyni- þjónustuna CIA, leyniþjónustu Israels um njósnir gegn sam- tökum Paléstinuaraba og fleiri aðilum. Mál þetta er nú i rannsókn hjá varnarmála- nefnd sænska þingsins, en fulltrúi Vinstriflokksins, kommúnista,hefur neitað að taka þátt i þeirri málsskoðun. 1 rikinu Michigan i Banda- rikjunum var áfengiskaupaaldur lækkaður úr 21 ári i 18 ár i fyrra. Fyrsta misserið eftir laga- breytinguna varð 1251 umferðar- slys, þar sem drukknir unglingar komu við sögu. Og sovésk blöð taka undir WASHINGTON 5/ll.Stjarna Nixons hefur aldrei staðið lægra en nú. Aðeins 27% bandarisku þjóðar- innar telur að hann standi sig vel i embætti, og hvert blaðið á fætur öðru lýsir þvi yfir, að best væri fyrir þjóðina að forsetinn segi af sér. Það blað sem nú siðast bættist við er vikuritið Time, sem skrifar i þessu tilefni fyrsta leiðaranna sem blaðið hefur birt i 50 ára sögu sinni. Enginn forseti hefur orðiö óvin- sælli i skoöanakönnunum siðan Truman komst niöur I 23% fyrir rúmum aldarfjóröungi. Time segir, að Nixon hafi glataö trausti meö þeim hætti að ekki verði aftur snúið, og það sé útilokað aö hann gæti stjórnað landinu með virkum hætti jafnvel þótt hann slyppi sýknaður frá málaferlum. Blaöið slæst i hóp þeirra;' sem leggja til að þingið flýti sér aö samþykkja Ford i embætti vara- forseta. Viðbrögö blaöa i Moskvu eru og talin allgóður mælikvaröi á það hve staða Nixons er veik. Sovésk blöö hafa sáralitið fjallað um Watergatemálið og önnur hneykslismái bandariska forseta- embættisins. En nú um helgina bregður svo við aö einn sovéski fréttaskýrandinn af öörum tekur undir við þær hugmyndir, sem hafa veriö bornar fram i banda- riskum blööum, að Nixon hafi reynt aö nota sér striðiö i Austur- löndum nær til að beina athygl- inni frá vandræðum sinum heima fyrir. Er þá fyrst og fremst átt við þá ákvörðun Nixons að lýsa yfir hættuástandi i bandariskum her- stöðvum um heim allan. Stjórnarerindrekar á ferð og flugi Vopnahléð er í hættu KAIRO TEL AVIV BEIRUT 5/11. — Klögumál hafa gengiö á vixl milli Egypta og israela um brot á vopnahléssamkomulaginu og samkomulagi um skipti á særðum striðsföngum. Dajan, hermála- ráðherra israels, héit þvi fram i gær að Kgyptar ætluðu að gripa aftur til vopna ef israelsmenn færu ekki aftur til stöðva þeirra sem þeir héldu fyrir 22. október. Blaðið Awar i Beirut segir, að Sadat Egyptaforseti hafi þegar tilkynnt sovéskum leiðtogum, að hann muni aftur byrja að berjast ef Israelsmenn hlýði ekki sam- þykkt öryggisráösins um vopna- hlé. Frá London berast þær fregnir að eftir að Sovétmenn um Herforingjastjórnin í Chile Vingast við banda- ríska koparhringi LIMA 5/11 Herforingjastjórnin i Chile hefur lýst þvi yfir að hún sé reiðubúin til að taka upp viðræður um samstarf við bandariska auð- hringinn Kennecott, en kopar- námur i eigu hans voru þjóð- nýttar meðan alþýðufylkingar- stjórn Allendes var við völd i Chile. Mun hér um að ræða tilboð um auknar skaðabætur til fyrirtækis- ins og samstarf á sviði tækni og markaösmála. Allende haföi lýst þvi yfir, að Chile skuldaði auð- hringunum ekkert, svo mjög sem þeir hefðu mergsogiö landið, en nú ætla herforingjarnir að hverfa frá þeirri afstöðu. Þeir munu samt ekki skila hinum þjóðnýttu koparnámum aftur, enda þótt boðaö hafi verið að ýmis smærri fyrirtæki i Chile, sem þjóðnýtt höfðu verið, verði afhent aftur fyrri eigendum. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Miðstjórnarfundur Miðstjórnarfundur ikvöld, þriðjudag 6. nóv., kl. 20.30 á Grettisgötu 3. Á dagskrá: Landheigissamningarnir og stjórnarsamstarfið. Ragnar Arnalds tima drógu úr vopnasendingum til Egyptalands og Sýrlands, hafi þeir nú aftur byrjað að senda þangað mjög fullkomin vopn, ekki sist loftvarnaeldflaugar. Israelska herstjórnin hefur borið til baka oröróm um að nokkrir sovéskir hernaðarráöu- nautar hafi verið teknir til fanga er sótt var fram á Golanhæðum á dögunum. Ferðalög Stjórnarerindrekar hafa haft ærinn starfa vegna ástandsins I Austurlöndum nær um helgina. Kissinger hélt i dag af stað i ferð sina til Marokkó, Túnis, Egypta- lands og Jórdaniu. Hann hafði áður setið á fundum með Goldu Meir i Washington en þaðan kom hún til Tel Aviv i dag. Eru þau sögð hafa komið sér saman um ýmsi atriöi, en allverulegur ágreiningur er samt milli ísraels og Bandarikjanna. Báðir munu sammála um að skipta beri á striðsföngum þegar i stað, en þaö mun aðeins vegna þrýstings frá Bandarikjamönnum að Israelar leyfa að flutt sé vatn og vistir til innikróaðs liðs Egypta. Abba Eban, utanrikisráðherra Israels, er kominn til Rúmeniu, og ræðir þar við starfsbróðir sinn, Macovescu. Rúmenia er eina Varsjárbandalagsrikið sem hefur stjórnmálasamband við Israel. Flogið hefur fyrir að Ceaucescu, forseti Rúmeniu.hafi boðist til að miðla málum milli ísraela og Araba. Abba Eban hefur sjálfur neitað orðrómi um að hann muni nota sér heimsóknina til að hafa samband við sovéksa fulltrúa. Egyptar hafa byrjað diplómat- iska sókn i Evrópu. Sérlegur ráð- gjafi Sadats, dr. Zayat, er farinn til London og Parisar til að út- skýra fyrir þarlendum stjórn- völdum málstað Egypta. Boumedienne, forseti Alsir, hefur verið á ferð og flugi. Hann ræddi við Assad, forseta Sýr- lands, á laugardag, og hélt þaðan til Irak. Hann ræddi og við Arafat, einn af foringjum palestinskra skæruliða. Alsir hefur sent skæruliðum vopn og munu þeir mjög hlusta á ráð Boumedienne um það, hvort þeir eigi að taka boði Egypta og Sovét- Framhald á bls. 14 Úrrœði dómsmálaráðuneytisins Skýrslur í stað landhelgisvarna Dómsmáiaráðuneytið sem er y firstjórnandi landhelgis- gæslunnar, virðist nú ekki lengur ætia að skella algerlega skolla- eyrum við framburði sjómanna um slaka gæslu undanfarið. Eins og kunnugt er af fréttum frá skip- stjórum fslenskra fiskiskipa, hefur erlendum veiðiþjófum haldist uppi hverskonar veiðirán i meira en mánuð, en formælendur landhelgisgæslunnar segjast jafnan ekkert um það vita. I gær sendi dómsmálaráðu- neytið frá sér yfirlýsingu i þessu máli. Ekki eru þar samt boðaöar neinar auknar aðgerðir land- helgisgæslunnar, heldur skýrslu- gerðir embættismanna. Orðsending dómsmálaráðu- neytisins er svohljóðandi: „Dómsmálaráðuneytið telur rétt að aflað verði skýrslna frá skipstjórum á Vestfjarðamiðum um óþægindi sem þeim hafi stafaö af hátterni erlendra veiði- skipa á Vestfjaröamið á undan- förnum vikum, sérstaklega að þvi leyti sem ekki hefur verið um það tilkynnt til varöskipa eða land- helgisgæslunnar, svo og um veiðar erlendra veiðiskipa á friðuöum svæðum. Þykir æskilegt að fá sem gleggsta mynd af aðstæðum á miðunum, og hefur þæjarfógeta- embættinu á Isafirði, svo og öðr- um embættum ef.til kæmi, verið faliö að taka skýrslur um þetta efni. Hafa útvegsmenn á Vest- fjörðum verið hvattir til að stuðla að þvi að umræddar skýrslur verði gefnar.” Vísna- og Ijóðakvöld I kvöld gengst æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins fyrir visna- og ljóðakvöldi að Grettisgötu 3. Þar munu ólafur Haukur Simonarson, Einar Olafsson, Megas, Orn Bjarnason og trió það sem athygli vakti fyrir góöan pólitiskan söng á 1. desember i Háskólabiói i fyrra og reyndar er orðið kvartett fremja sina list. Einnig verður leikin pólitisk hljómlist af plötum. Einhverjar veitingar ættu að vera til á staðnum og ekki er loku fyrir það skotið að umræður skapist. Samkoman hefst klukkan 20.30og er hún öllum opin. Æskulýðsnefndin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.