Þjóðviljinn - 06.11.1973, Page 14
, 14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. nóvember 1973.
Ragnar
Framhald af bls. 9.;
tekjur Reykjavikur á hvern Ibúa
um 29% hærri en tekjur Kópavogs
á hvern ibúa og um þriðjungi
hærri en tekjur Sauðárkróks og
Akraness. Ég tel aö ekki komi
annaö til greina viö næstu
breytingu skattalaga, en'að þessi
munur verði nú enn minnkaöur.
Og ég minni um leið á, aö þjóð-
félagið á mikla skuld ógoldna við
þá staði, sem dregist hafa aftur
úr á liðnum árum vegna órétt-
látra skattalaga. Mér er kunnugt
um, að á Norðurlöndum eru tekj-
ur sveitarfélaga mikiu jafnari en
hér á landi, og þar þykir jafnvel
eðlilegt og sjálfsagt að sveitar-
félag, sem á við mikil byggða-
vandamál að glima eða atvinnu-
leysi, fái meiri tekjur á ibúa i sinn
hlut en stóru staðirnir. Það fái
sem sagt tækifæri til að rétta sig
úr kútnum. Hér á landi hefur hins
vegar viðgengist það glórulausa
afturhaldssjónarmiðað refsa beri
þeim sveitarfélögum, sem verst
eru sett atvinnulega, meö óhag-
stæðum tekjustofnalögum.
Látum ekki byggða-
málin drukkna i
pappirsflóði
A þeim tveimur árum, sem lið-
in eru, sfðan núverendi rikis-
stjórn kom til valda hefur orðið
mikil breyting til batnaðar i at-
vinnumálum allra landshluta.
Kaup á 50 skuttogurum, sem
flestir leggja upp afla sinn utan
höfuðborgarsvæðisins, og stór-
felldar framkvæmdir i frysti-
iðnaði, veita mörgum stöðum,
sem áður stóöu tæpt, þá kjölfestu,
sem hverju sjávarplássi er nauð-
synleg.
En meira þarf til. Byggðasjóð
þarf enn að efla verulega, og
einkum þarf starfsemi hans að
verða fjölbreyttari en nú er. Nú
er unnið af margfalt meiri krafti
en nokkru sinni fyrr að gerð
byggðaáætlana, bæði hjá lands-
hlutasamtökunum og á vegum
Framkvæmdastofnunarinnar.
Við skulum þó varast að láta
byggðamálin drukkna i pappirs-
flóði og áætlanagerð. Það sem
mest er um vert er, að byggða-
stefna rikisvaldsins sé ekki
einangruð við fjármálalegar
björgunarráðstafanir gagnvart
einu og einu fyrirtæki út um land,
heldur sé markvisst stefnt að þvi
að uppræta aðstöðumunin á öllum
sviðum samtimis, eftir þvi sem
hægt er, bæði i atvinnumálum,
samgöngumálum og hvers konar
þjónustustarfsemi hins opinbera.
Byggðamálin get ég ekki skilist
við, án þess að vikja hér að þeim
þætti, sem nú er hvað mest rætt
um, en það er dreifing valdsins.
Fólkið, sem býr utan höfuð-
borgarsvæðisins kvartaryfir þvi i
vaxandi mæli, að það sé viðsfjarri
þeim vettvangi, þar sem allar
helstu ákvarðanir séu teknar, og
möguleikar þess til áhrifa jafnvel
á smæstu mál séu of litlir vegna
fjarlægðar. Auk þess sé átakan-
legt skilningsleysi rikjandi á
vandamálum landsbyggöarinnar
meðal embættismanna, sem
varla koma út á land, nema rétt
til að sóla sig I sumarfrii.
Af þessum ástæðum hafa lengi
verið uppi hugmyndir um, að
settar yrðu upp sérstakar
þjónustumiðstöðvar úti um land,
sem önnuðust tiltekin verkefni og
að þvi vill Alþýðubandalagið ein-
dregið stuðla.
Svavar
Framhald af bls. 4
sama að ræða. Enginn kallar
þetta vörusvik.
Efnaverkfræðingarnir Jóhann
Jakobsson og dr. Guðmundur
Guðmundsson sömdu um þetta
efni skýrslu til stjórnar verk-
smiöjunnar i ársbyrjun 1972, er
Jóhannes Bjarnason fór að dylgja
um vörusvik viö einstaka
stjórnarmenn, og ýmsa aðra utan
verksmiðjunnar. Iðnaðarráðu-
neytið fékk afrit af þeirri skýrslu.
Verkfræöingarnir töldu iblöndun
vera fremur hagnýta nauðsyn en
æskilegan verknað, en kom aldrei
til hugar nein vörusvik.
Hér eru aðeins rakin nokkur
meginatriöi þessa máls. Mikil
vinna er nú i það lögð af hálfu
Sakadóms Reykjavikur og starfs-
manna Sementsverksmiðjunnar
aö gera skýrslur um þessi efni, til
þess að kanna allt þetta mál til
hlftar. Sérfræðinga verður að
sjálfsögðu að kveðja til.
Fyrir mörgum árum hafði Jó-
hannes i frammi margs konar
ásakanir á stjórn og fram-
kvæmdastjórn Aburöarverk-
smiðjunnar. Það varö til þess,
að skipuð var sérstök rann-
! sóknarnefnd til þess að rannsaka
ákæruatriðin. Þá nefnd skipuðu
Theódór Lindal, hrl., Hákon Guð-
mundsson, nú yfirborgardómar
og Arni Snævarr, nú ráðuneytis-
stjóri. Að lokinni itarlegri könnun
skiluðu þeir skýrslu, og visuðu á
bugöllum ásökunum Jóhannesar.
Og enn hefur Jóhannesi tekist
aðsetja af stað mikla rannsókn, i
þetta sinn hjá Sakadómi Reykja-
víkur út af Sementsverksmiðju
rikisins. Langur timi getur liðið,
‘ þangað til þeirri rannsókn lýkur.
Þess vegna þykir mér rétt, aö
iáta þetta koma fram nú þegar.
Að sjálfsögðu eru hér ekki rakin
öil atriði þessa máls. Ekki er það
á færi nema sérfræðinga að gera
grein fyrir öllum atriðum hinnar
tæknilegu hliðar málsins. Mun
það kosta bæði mikið fé og fyrir-
höfn margra aðila.
Rétt er að almenningur viti, að
Jóhannes Bjarnason hefur um
margra ára skeið verið á launum
bæði hjá Sementsverksmiðjunni
og Aburðarverksmiðjunni.
Eftir að honum var sagt upp
starfi hjá Sementsverksmiðjunni,
hóf hann árásir á fyrirtækið og
forráðamenn þess.
Ég tel, með visan til ofanritaðs,
að blaðamenn Þjóöviljans ættu
ekki að ásaka Sementsverk-
smiðju rikisins og starfsmenn
hennar um svindi á meðan þeir
byggja ekki á betri heimildum en
þeim, sem fyrir liggja i órök-
studdum ásökunum Jóhannesar
Bjarnasonar.
Svavar Pálsson
Kraftaverk
Framhald af bls. 10.
hjá islenska liðinu allan þennan
tima ekki upp? Hvers vegna
verður aö kasta þeim fyrir róða
til aö vinna leik? Þetta er spurn-
ing sem margir vilja fá svar viö.
Snúum okkur þá aö leiknum
sjálfum. Hann var sannarlega
ekki rismikill leikurinn hjá is-
lenska liðinu til að byrja með.
Geiri greinilega þrúgaður af
taugaspennu og ætlaði sér um of.
Ölafur Jónsson ekki kominn inná
linuna og enginn þar til að valda
fyrir skytturnar. Það var aðeins
Axel Axelsson sem var við sitt
besta og skoraði. Eins var sam-
vinna hans og Björgvins til fyrir-
myndar. Axel átti margar lagleg-
ar sendingar inná linu til hans
sem gáfu mörk eða vitaköst sem
skoraö var úr. Þó misnotuöu þeir
Geir og Axel sitt vitakastiö hvor.
Jafnt var 1:1, 2:2, 3:3, 4:4, en
eftir það seig Islenska liöið fram-
úr og komst i 8:5, en Frakkarnir
náðu að minnka muninn, og i leik-
hléi var staðan 10:9 og það var
bros á andliti Frakkanna þegar
þeir gengu af leikvelli. Það var
hinsvegar ekkert bros á andliti
landans, hvorki leikmanna né á-
horfenda. En þetta átti eftir að
breytast. Skelfingarsvipurinn átti
eftir að færast af andliti landans
yfir á andlit Frakkanna.
Byrjun siöari hálfleiks varð til
þess að allt snerist við. Islenska
liöiö skoraði 4 mörk gegn engu á
fyrstu mlnútum siðari hálfleiks
og staðan orðið 14:9, eöa 5 marka
munur og vonin vöknuð. Nú færð-
ist islenska liðiö allt I aukana.
Inná voru Gunnar I markinu,
Geir, Ólafur, Björgvin, Axel,
Gunnsteinn og Auðunn og liðið
sýndi frábæran leik bæði I vörn og
sókn, og sem betur fer var þvi
ekki breytt meðan vel gekk. Um
tima voru samt 2 islenskir leik-
menn útaf samtimis, höfðu fengið
kælingu hjá dómurunum, en samt
gekk allt I haginn. Franska liöiö
brotnaöi niður hægt og hægt uns
ekki stóð steinn yfir steini hjá þvi.
Þeir Geir og Axel röðuðu mörk-
unum og ólafur valdaði fyrir þá,
þannig að þeir gátu klifrað upp á
bakið á honum eða stungið sér inn
I glufur sem hann myndaði handa
þeim. Þá fiskaði Björgvin hvert
vitið á fætur ööru.
Markamunurinn jókst stööugt.
15:10, 17:11, 19:12, og siðari hálf-
leikur hálfnaður. 21:12, 23:13,
25:14 og loks 28:15 þegar flautan
gall til merkis um leikslok. Mörk
Islands höföu skoraö: Axel 13: (6
vlti) Geir 10(2 viti) Björgvin 4 og.
Gunnsteinn 1 mark. Og einmitt
þessir menn ásamt Ólafi H. Jóns-
syni voru bestu menn liðsins.
Markahæstir Frakkanna voru
Donnet (11) meö 3 mörk og Buck-
heit (8) með 3 mörk.
Dómarar leiksins voru a-þýskir
og dæmdu vel. Mér fannst þeir
fullstrangir i sambandi við brott-
rekstur af leikvelli, en eitt gátu
Islenskir dómarar af þeim lært og
þá kannski frekast þeir sem
dæmdu leik Fram og Vals á dög-
unum. Gunguhandbolti eða
hverskonar tafir eru ekki leyfðar.
Þrisvar sinnum dæmdu þeir töf á
tslenska liöið vegna þess aö það
ógnaði litið og tvivegis á það
franska.Hér gildir það að leikur-
inn haldi áfram, en ekki að öðru
liðinu liðist að leika sér með bolt-
ann ógnunarlaust.
—S.dór
Jón
Framhald af bls. 10.
Karl verfti áfram tveir meft
liftift. Allir þessir möguleikar
koma til gréina aft minu áliti.
— Nú hefur landsliðið undir
ykkar stjórn verift aft æfa upp
ákveftin leikkerfi i sumar og
haust, er það ekki þungur
dómur um það sem gert hefur
verift aö hætta nú viö þau og
leika „frjálsan handknatt-
leik” meft þessum gófta
árangri gegn Frökkum?
— Þaft má kannski segja
þaft, cn ég vil minna á, aft fyrri
leikurinn viö Frakka var þess
eðlis aft þar var ekki um að
ræöa aö leikkerfin gengju ekki
upp, heldur var um þaft aft
ræöa aö allt brást hjá liftinu,
frá þvi smæsta til hins
stærsta. Auk þess var mikill
styrkur aft fá þá Geir og
Björgvin nú inni liftift, þvi
þrátt fyrir öll leikkerfi er þaft
auðvitaft einstaklingurinn
fyrst og fremst sem sker úr
um árangurinn. Aft lokum vil
ég taka fram aft ég er mjög
ánægður með leikinn á sunnu-
daginn, hann var vissulega
skemmtileg og kærkominn
uppreisn fyrir íslenska liftift
eftir ófarirnar ytra.
—S.dór
Yopnahlé
Framhald af bls. 16.
manna um að taka þátt i friðar-
viðræðum við Israel um lausn
sinna mála. Endanleg ákvöðrun
hefurekki verið tekin af A1 Fatah,
sem Arafat stjórnar, en fern
samtök Palestinumanna, sem til
vinstri eru við A1 Fatah, hafa
þegar hafnað þessari hugmynd.
Samkomulag náðist fyrir helgi
um að lið frá Kanada og Póllandi
yrði I friðargæslusveitum SÞ.
Golda Meir er sögð hafa lagt það
til við Nixon og Kissinger að herir
beggja drægju sig frá Súesskurði
beggja vegna og tæki gæsluliðið
sér stöðu á báöum bökkunum, á
milli þeirra. Egyptar eru mjög
andvigir slikum hugmyndum.
Fjárreiður
Framhald af bls. 1
ann. Er hér lýst vinnubrögðum
þeim sem Sjálfstæðisflokkurinn
vill viðhafa i þessu sambandi.
Mbl. hefur allt á hornum sér i
sambandi við þessa þingmanna-
tillögu Alþýðubandalagsins og
leggur til að þingmenn eyði ekki
tima i að karpa um hana. Hins
vegar flytur Mbl. þá greindar-
legu tillögu aö framlög til stjórn-
málaflokkanna verði skattfrjáls.
Má nærri geta hverjum það kæmi
best!
Fróðlégt verður að sjá hvort
Gunnar Thoroddsen formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
lætur Eykon enn einu sinni teyma
sig á asnaeyrunum.
Votmúli
Framhald af bls. 1
Þegar G. Helgason greiddi
atkvæði gegn tillögu minni-
hlutans, bað Bergþór Finnboga-
son um að fá að sjá umboð hans,
og dró hann þá upp skeyti það er
G. Daníelsson hafði sent frá
Noregi fyrir hreppsnefndar-
fundinn i Selfossbíói og aldrei
hefur fengist staðfest.
— Við höfum véfengt þetta
umboð, sagði Bergþór. — Þetta er
óstaðfest skeyti og hefði átt að
eyðileggjast strax i upphafi, en
það er notaö enn, og talið alveg
furðurlegt að maður skuli ekki
taka það gott og gilt. Ég lét bóka
það að öll atkvæðagreiðsla þarna
væri i raun og veru ógild vegna
þessa.
Þetta er liklega siðasti anginn
af Votmúlanum, en hvað svo
geristveitmaðurekkienn. -úþ
Nú reynir
Framhald af bls. 1
hefði hann skipað formannssæti
flokksins i sex ár, og fyndist sér
það nóg.
„Við eigum að skiptast á um að
gegna vandasömustu verkefnun-
um og mun ég þvi ekki gefa kost á
mér sem formaður flokksins frá
næsta landsfundi”, sagði Ragnar
Arnalds.
Fundurinn hófst á föstudags-
dagskvöld og stóð fram yfir mið-
nætti. Þá hófst fundur að nýju kl.
10 á laugardagsmorgun og stóð
allan þann dag til kvölds, bæði al-
mennur fundur og siðan fundir
umræöuhópa. Fundir hófust svo
að nýju snemma á sunnudags-
morgun.
Þjóðviljinn mun næstu daga
segja frá samþykktum fundarins,
en i dag er sem fyrr segir birt
stjórnmálayfirlýsingin sjálf auk
úrslita miöstjórnarkjörs. Næstu
daga mun blaðiö einnig birta frá-
sagnir af framsöguræöum ráð-
herra flokksins.
Listasafn
Einars Jónssonar
eropið sunnudaga frá klukkar.
13:30 til klukkan 16:00.
Aðra daga fyrir ferðamenn
og skóla. — Simi 16406.
Síldarsölur
K tfmabilinu fra 29. okt. tll 3. nóv. s.l. bafa eftir-
talin síldveiðiskip selt afla sinn í Danraörku:
29.
29.
29.
29.
30.
3o.
30.
31.
31.
31.
31.
31.
31.
31.
1.
1.
1.
2.
2.
2.
2.
2.
2.
3.
3.
3.
3.
3.
okt.
Vörður ÞH.
ísleifur VE.
n
Súlan EA.
Heimir SU.
Rauðsey AK.
" Jon Flnnss. GK.
" Svanur RE.
” Hagnús NK.
" Þorstelnn RE.
" ísleifur IV. VE.
" Keflvíkingur KE.
" Albert GK.
nóv. tílafur Sigurðss. AK,
Höfrungur III. AK.
Faxi GK.
Hilrair SU.
Loftur Baldvlnss. EA
Heðinn ÞH.
örn SK.
Bjarnl tílafss. AK.
Sæberg SU.
Talknfirðingur BA.
Sfld
Bræðslusfld
Makrill----
Saait&ía
Magn Verðm. Verðra,
lestlr •: ísl.kr.: Pr- kB
48.5 1.529.664.- 31.54
61.4 1.868.886.- 3o.44
0.4 19.2o5,- 48.ol
57.4 2.o25.86o.- 35.29
72.5 2.5o8.429.- 34.6o
89.6 3.25o.64o.- 36.28
6.6 48.466.- 7.34
77.2 2.585.o39.- 33.48
4o. 5 1.367.255.- 33,76
32.3 1.21o.7ö6.- 37.48
41.6 1.420.853,- 34.16
25.2 831.886,- 33. ol
46.8 1.590.134.- 33.98
23.7 8o4.64o.- 33.95
3o.o 1.024.873.- 34.16
36.4 25o.o56#-> 6.87
29.8 742.659.- 24.92
43.5 1.435.472.- 33.00
31.0 1.066.594.- 34.41
56.4 1.894.462.- 33.59
. 94.5 3.183.912.- 33.69
37.8 1.265.464.- 33.48
34.0 1.185.945.- 34.88
22.5 774.699.- 34.43
2.2 65.816.- 29.92
15.5 96.717.- 6.24
65.8 2.181.6o5,- 33.16
47.6 1.572.979.- 33.o5
1.079.8 36.579.997,- 33.88
58.5 395.239,- 6.76
32.4 827.680.- 25.55
1*122*2—2Z»ScS*21S*; 2J*I5
2)
1)
1)
2)
2)
1)
Samanburður a sfldarsölum erlendls a' bessu og a' siðasta ari:
1972:
1973:
Tonn:
32.677.6
41.4o7.o
Kr. 469.037.428.-
1.038.683.540.-
14.35 pr. kg.
25.o8 " »
fijú aíiatoetu sildveiðisklpin í ar eru sera he'r segir,
fra pvi slldveiðar hofusttil 3.nóvember s.1.:
Lestir:
Kr.:
Pr.
Loftur Baldvlnss. EA.
Guðmundur RE.
Súlan EA.
2.362.8 63.223.917.-
1.885.0 47.960.571.-
1.811.8 45.383.549,-
26.76
25.44
25.o5
Hljómplötusafn
10 plötur á 3500 kr
Sigild tónlist, þjóólög,
dægurlög
Urval úr þekktum verkum eftir:
Chopin, Brahms, Bizet, Strauss, Gershwin, Foster og fl.
Flutt af Filharmoniuhljómsveitinni i London,
hljómsveit rikisóperunnar i Hamborg og fleirum.
10 hljómplötur með tónlist í 8 klukkustundir.
Tónlist, sem allir þekkja.
KLAPPARSTlG 26. SlMI 19800, RVK. OG
BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SlMI
Eiginmaður minn
GÍSLI GUÐMUNDSSON
alþingismaður
Hóli á Langanesi
andaöist á Landspítalanum i Reykjavik, að kvöldi 4.
nóvember.
Margrét Arnadóttir