Þjóðviljinn - 06.11.1973, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 06.11.1973, Qupperneq 15
Þriöjudagur 6. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Gestur sýningarinnar er Gunnar Hannesson og lýsir hann yfir að hann hafi aldrei tekið svart-hvita mynd og að Kodachrome sé einasta filman aö hans viti. Gunnar sem er 58 ára, á ferðalög og ljósmyndun i náttúru Islands að aðal- áhugamáli. Skúli Þór Magnússon er 26 ára liffræðingur og hann myndar „það sem fyrir augu ber i umhverfinu”, eins og segir i skránni. Karl G. Jeppesener 29 ára, kennari að atvinnu. Nátt- úruform og fólk er hans aðalviðfangsefni. Nú er sýningin Ljós ’73 hafin i Kjarvalsstöð- um og hafa ummæli gesta verið lofsamleg. í sýningarskrá eru birtar myndir af öllum þátttak- endum og færum við þær myndir yfir á siðuna til að kynna hópinn. Um helgina sóttu um þúsund manns- sýning- una, en .hún verður opin i dag frá 4-10 og áfram fram að helginni, en helgardagana verður hún opin 2-10. Sýningunni lýk- ur á þriðjudagskvöld i næstu viku. Jón Óhifsson er 24 ára lyfjafræðinemi og hann hefur einnig þjóðlif sem sitt kjörsvið. Gunnar S. Guöimindsson er 24 ára og offsetljósmyndari aö atviiinu. Hans aðal- myndaefni er náttúruform, fólk og fuglar. Kjartan H. Kristjánsson er þeirra yngstur, 20 ára, og Optiker að atvinnu. Hann hefur mestan áhuga á þjóð- lifi. Pjetur Þ. Maacker 23 ára guðfræðistúdent og hefur stundað ljósmyndun i ein 11 ár. Uppáhaldsmyndaefni hans er fólk og náttúru- form. 15. SÍÐAN UMSJÓN: SJ o o c> — Mikiö vcröur liann Kalli afbrýðisamur núna! Kciinarinn: Kf pabbi þinn fær 5000 krónur og gcfur mömmu þinni iiclmiiiginn, livaö fær hún |.á? Óli: Slag! LISTAVERK ÚR ELDSPÝTUM Englendingurinn Ray Cook, sem er 42 ára, hef- ur þá undarlegu tóm- stundaiðju að skera út listaverk i eldspýtur. Ray Cook hefur alltaf verið góður handverksmaður, en á þessari þolinmæöisiðju byrjaði hann þegar hann lá i lengri tima á spitala. Hann notar rakvélablað til að skera með og er 2-4 klst að koma sköpulagi á verkið. Hann vinnur ekki nema 20 minútur i senn, enda kostar þetta gifurlega einbeitningu, og hann fær oft mik- inn höfuðverk ef hann ofreynir sig. Hann segir að það séu aðeins 5- 10 prósent af eldspýtum sem hægt er að nota, og það er útaf fyrir sig nægilegt verkefni að finna eldspýtur sem henta. — Og Guömundur er hættur i skósmiðinni? — Já, hringsóliö fór alveg með hann. Hér er eitt verkið eftir Roy — aö sjálfsögðu mikið stækkaö i Ijósmynduninni. SALON GAHLIN Samkeppni Viö höfum fengið bréf frá danska gullsmiðafélaginu þar sem greinir frá þvi að gullsmiöum á Norðurlöndum, og öðrum þeim sem áhuga hafa, sé boðið að taka þátt i samkeppni um þrennskonar smiðagripi. 1 fyrsta lagi demantshringi, i ööru lagi hverskonar skrautgripi og i þriðja lagi könnur, skálar, kertastkjaka o.s.frv. Myndin sýnir þá gripi sem fengu verðlaun i fyrra og eru þeir gerðir af sænska gullsmiðnum Theresiu Hvorslev, en hún mun sitja i dómarasæti i ár ásamt tveim- ur öðrum Dönum. Teikningar eða gripið þurfa að hafa borist i hendur dómnefndar fyrir 28. janúar n.k. og er heimilisfangiö: Guldsmedefaget, Ryvangs Allé 26, DK-2100, Köbenhavn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.