Þjóðviljinn - 12.12.1973, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. desember 1973.
ÞAÐ NÝJASTA AF NIXON:
Amerískur
Öxnalœkur
Óhjákvœmilegt að Nixon
fari frá, segir N. Y. Times
„Sú besta þjónusta, sem
herra Nixon gæti veitt þjóð
sinni, væri að segja af
sér," stendur íleiðaraþess
valinkunna bandaríska
stórblaðs New York Times
siðastliðinn sunnudag. „En
haldi hann uppteknum
hætti við að þverskast við
að koma þvi í verk, er
óhjákvæmilegt að honum
verði stefnt fyrir rétt."
Blaðið gerir sérstaklega harða
hrið að forsetanum þennan dag og
leggur áherslu á að Nixon hafi
þegar hrapað of djúpt i áliti þjóð-
arinnar til að hugsanlegt sé að
honum sé viöbjargandi. Sam-
kvæmtstjórnarskránni.segir blað-
ið, væri eðlilegast aö honum væri
stefnt, en það hefði i för með sér
1 að framkvæmdavald rikisins yrði
lamað mánuðum saman, og hefði
það þó ekki verið of björgulegt
undanfarið, þar eö allt þvargið
kringum Watergate hefði nánast
gert forsetann óvirkan. bað væri
allt annaö en glæsilegt á timum,
þegar Bandarikin standa mjög i
ströngu út af þrætunni i Austur-
iöndum nær, orkukreppunni og
verðbólgunni, sem nú er allt að
kæfa þar vestra. En ef Nixon
segði af sér kæmi til valda forseti,
sem þjóðin gæti fest traust á og
það gæti haft ómetanleg áhrif I þá
átt að rétta við álit og sjálfstraust
Bandarikjanna á alþjóðavett-
vangi.
Amerískt
Öxnalækjar-
mál
Alit Nixons meðal þegnanna
Nixon-hjónin fyrir framan hús sitt
grunaöur um skattsvik og fleira
hefur aldrei verið minna en um
þessar mundir, og myndin, sem
bandarisk blöð gefa af honum er
af heldur kauðskum og klaufa-
legum skúrk, sem gerir hverja
tilraunina annarri aulalegri til
að klórayfir skitinn sinn. Eyðan
á segulbandinu, sem aumingja
Rose Mary Woods, einkaritari
forsetans i áratugi, segist hafa
valdið af slysni, er mjög á milli
tannanna hjá fjölmiðlunum
þessa dagana og er fullyrt að
meiriháttar akróbat hefði þurft
tii þess að valda útstrikuninni á
þann hátt, sem fröken Woods
segist hafa gert.
NÝ AUGU
eftir Kristinn E. Andrésson
Þessa athyglisverðu og sér-
stæðu bók, ritaði höfundur i
kapphlaupi við dauðann.
Það mun vera erfitt að gera
sér ljóst hvaða birtu slik vissa
og ástand varpar á hugsjónir
manna, bæði hvað varðar
liðna tið og ókominn tima.
I bókinni kemur þetta fram á
hinn óvæntasta hátt og virðist
sem höfundur tali enga tæpi-
tungu til samtiðarinnar.
Samanburður höfundar á
timabili P'jölnismanna og þess
tima sem hann hefur lifað
með, samherjum og andstæð-
BÓKAÚTGÁFAN
ÞJÓÐSAGA
Lækjargötu 10 a. Simi 13510.
ingum mun koma flestum al-
gerlega á óvart, i þeirri birtu
sem Fjölnismenn mynduðu og
er við skoðum verkið i þvi
ljósi, verður ekki annað merkt
en höfundur hafi lifað helsærð-
ur um áraraðir.
Hvað sem öllu þvi iiður er
bókin stórkostlega skemmti-
leg og 'samanþjappaður fróð-
leikur.
Missiö ekki af þessari ósam-
bærilegu bók viö flest ritverk,
sem út hafa komiö. Upplagið
er mjög litið.
KRISTINN EANDRÉSSON
TÍMAR
FJOLNISMANNA
i San Clemente, en nú er forsetinn
brask i sambandi viö þá eign.
Til þess að bæta gráu ofan á
svart eru fjármál Nixons og
skattamál nú komin i hámæli,
og er hann nú undir þungum
grun um að hafa svikið undan
skatti með tvennu móti: i fyrsta
lagi með þvi að gefa stjórninni
skjöl sin frá varaforsetatima-
bilinu ekki fyrr en of seint (séu
slik skjöl færð stjórninni að gjöf
innan ákveðins tima frá þvi
varaforseti' lætur af embætti,
eru þau frádráttarbær til
skatts) og i öðru lagi með þvi að
hafa dregið undan i framtali
hagnað, sem hann hafi haft af
sölu jarðarparts i San Clemente
i Kaliforniu. Þessa dagana hef-
ur heitið San Clemente álika
þýðingu i bandariskum eyrum
og öxnalækur og Votmúli i
islenskum.
OPIÐ MOT
í BORÐ-
TENNIS
Opið mót i borðtennis fer fram i
Laugardalshöllinni í kvöld 12. des. og
hefst ki. 20.30. Meðal þátttakenda eru
kínversku borðtennisleikararnir sem
staddir eru hér á iandi,auk allra bestu
borðtennisleikara íslands
BSÍ
Jafnvel Ford
þykir hátið
hjá Nixon
Það tiltæki Nixons nú nýverið
að birta ,,fullkomna” skýrslu um
fjárreiður sinar mætir ekki nema
háði og spotti af hálfu New York
TimeS. Eða, spyr blaðið, hvers-
vegna kemur forsetinn fyrst nú
fram með þessa skýrslu, þegar
orðrómurinn um fjármálaspill-
ingu hans — ofan á allt annað —
hefur verið á kreiki svo mánuðum
skiptir?
Blaðið litur á birtingu skýrsl-
unnar um fjárreiðurnar sem sið-
ustu örvæntingartilraun Nixons
til þess að endurheimta eitthvað
að trausti þjóðarinnar. Skýrslan
er svo sem nógu skuggaleg út af
fyrir sig, til dæmis kemur fram i
henni að forsetinn auðgaðist um
150.000 dollara árlega fyrra kjör-
timabil sitt sem forseti og að einn
helsti ráðunautur hans i fjármál-
um var Charles G. Rebozo, sem
jafnvel á mælikvarða banda-
riskra f jármálamanna hefur
vægast sagt misjafnt orð á sér.
New York Times segir að með
tilkomu Fords i embætt’i varáfor-
seta hafi likurnar i'yir afsögn Nix-
ons aukist. Aður en Ford sór sig
inn i embættið, hefði forseti að
Nixon frágengnum orðið forseti
þingsins, Carl Albert, sem er
demókrati og þvi ófýsilegur i aug-
um repúblikana. Að visu fer -þvi
fjarri, að miklar vonir séu bundn-
ar við hinn nýja varaforseta.
Hann er samkvæmt almennu
mati treggefinn ihaldsþurs og
hefur sem slíkur illt orð á sér eft-
irafskiptisin af kynþáttamálum,
mannréttindamálum.efnahagsleg-
um réttlætismálum og félagsmál-
um. Johnson forseti komst ein-
hverju sinni svo að orði um Ford,
að hann hefði ,,leikið fótbolta ein-
um of mikið.” En i ameriskum
fótbolta er mönnum nokkuð
gjarnt að fá slæm höfuðhögg, sem
kunnugt er. Liklega er ekkert
dæmigerðara fyrir ástandið i
bandariskum stjórnmálum um
þessar mundir en að áhrifamenn
þjóðarinnar skuli nú helst binda
vonir sinar um skánandi ástand’
viö slikan mann. dþ.
Hljóðin á
heiðinni
Tvær nýjar bækur hafa bæst á
markaðinn frá Bókaforlagi Odds
Björnssonar, Hljóöin á heiöinni
eftir Guðjón Sveinsson og Niöur
uni strompinn eftir Armann
Kr. Einarsson.
Töfrabrosið
Út er komin bókin Töfrabrosið
eftir Guðnýju Sigurðardóttur. Er
þetta skáldsaga útgefin af Bóka-
forlagi Odds Björnssonar á Akur-
eyri. Saga þessi hefur áður birst,
og i það sinnið i timaritinu Heima
er best og þá undir nafninu Bókin.
Sagan er i litlu broti og er 114
blaösiður.
Öldruðum,
sem vilja
og geta,
tryggð vinna
SVAVA JAKOBSDÓTTIR,
EÐVARÐ SIGURDSSON og
IiELGI F. SEI.JAN flytja á ai-
þingi tillögu til þingsályktunar
um atvinnumál aldraöra. Til-
lagan er svohljóöandi:
Alþingi ályktar aö fela rikis-
sljórninni að undirbúa i sam-
ráöi viö launþegasa m tök
landsins frumvarp til laga
um atvinnuinál aldraðra, og
verði að þvi stefnt, að allir, 67
ára og eldri, sem til þess hafa
þrek og vilja, gæti átt kost á
alvinnu viö sitt hæfi.
Framlenging
reglna um
launaskatt
Stjórnarfrumvarp um launa-
skattkom til umræðu i efri deild
alþingis i gærdag. Er um að ræða
framlengingu gildandi reglna um
launaskatt. Mælti Halldór E.
Sigurðsson f jármálaráðherra
fyrir frumvarpinu. Gylfi Þ. Gisla-
son átaldi vihnubrögð rikis-
stjórnarinnar i þessu máli og að
það skvldí ekki fyrr tekið fyrir á
alþingi, þar sem mikið væri enr)
óafgreitt til jóla, svo setn frv. um
tollabreytingar og fjáiTagafrum-
varpið.
Rannsókn nái til
rierra
. Pétur Sigurðsson (S) flytur
breytingarliilögu við tillögu
Karvels . F’álmaáonar og Hanni-
bals Valdimarssonar um rann-
sóknarnefnd v/landhelgisgæsl-
unnar.
Gerir breyting.Péturs ráð fyrir,
að rannsóknin nái til embættis-
manna og ráðherra dómsmála,
auk starfsmanna landhelgisgaisl-
unnar.
Veiðarfœraeftirlit
hert að undanförnu
Veiðarfæraeftirlit hefur verið
hert mjög að undanförnu. sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráö-
herra i fyrirspurnatima á alþingi
i gær. Sagði hann að landhelgis-
gæslunní hefði verið skrifað sér-
staklega vegna þessa máls og
hefði verið skoðað talsvert af
veiöarfærum að undanförnu.
Niðurstöður þessara athugana
benda tilþess, að veiðarfæri hafa
verið i sæmilegu lagi.