Þjóðviljinn - 12.12.1973, Qupperneq 11
Miðvikudagur 12. desember 1973. þjöÐVILJINN — SÍÐA il
!»
hi
llér sést Ray Kennedy, hinn ágæti framherji Arsenal, i baráttu við
Peter Bonnetti, markvörð Chelsea.
Getraunaspá
GSP
GSP státar nú i fyrsta
sinn af því, að hafa verið
hæstur íslenskra ,,fjöl-
miðlatippara". I síðustu
viku náðust 8 réttir og var
það vissulega kærkomin
tilbreyting frá þessum
venjulegu 4 leikjum, sem
ég hef hingað til náð rétt-
um.
Það er þvi með hækkandi
sól og von um betri tima,
að ég ræðst til atlögu við 17.
getraunaseðilinn, — stað-
ráðinn í að gera enn betur
en siðast.
Birmingh.— West Ham l
Botnbaráttan er nú orðin afar
hörð og stendur á milli Birming-
ham, West Ham og Norwich, en
öll eru liðin með 11 stig. Leikurinn
verður vafalaust mjög harður;
hvert stig er þessum liðum afar
dýrmætt. Það er þvi erfitt að spá
um úrslitin, en einhvern veginn
grunar mig að heimavöllurinn
gefi af sér bæði stigin úr þessari
viðureign.
Orslit: -, -, -, -, 0-0.
Burnley — Arsenal X
Arsenal nær sér ekki verulega á
strik og mátti svo sannarlega
þakka fyrir jafntefliö gegn Derby
sl. laugardag. En það hlýtur að
koma að þvi að liðið fari að herða
sig. Brunley er hins vegar eitt-
hvað að slaka á og á laugardaginn
átti það i miklum erfiðleikum
með botnliðið Norwich. Mér þykir
jafntefli þvi ekki óeðlileg úrslit,
jafnvel þótt 4 stig skilji liðin að og
Burnley sé á heimavelli.
Orslit: 1-0. 0-1, 0-1, 1-2, -, -.
Chelsea — Leeds 2
Með sigri i þessum leik mundi
Leeds slá út hiö frábæra met
Liverpool, að leika 20 fyrstu 1.
deildarleikina án þess að tapa
einum einasta leik. Frábær
árangur það,og ég sé enga ástæðu
til að spá öðru en útisigri. Leeds
er gjörsamlega óstöðvandi á leið
sinni til meistaratitilsins.
Orslit: 0-0, 1-1, 2-5, 3-1, 0-0, 4-0.
Everton —
Sheffield United 1
Everton hefur nú undanfarið
verið að þoka sér nær toppnum og
er nú i 5. sæti með 22 stig. United
nær hins vegar ekki að rifa sig
upp úr meðalmennskunni, liðið
nær að visu þokkalegum leikjum
við og við,en i heildina er árang-
urinn fremur slakur. Heimasigur
ætti að vera nokkuð öruggur.
Orslit: 1-0, -, -, -, 0-1, 2-1.
Leicester — Q. P.R. 1
Ef til vill nokkuð furðuleg spá
en þó engan veginn óeðlileg að þyi
er mér finnst. Q.P.R. hangir i 6.
sæti með 21 stig, en Leicester er
töluvert neðar með 19. Leicester
tapaði 2-3 fyrir Chelsea á meðan
Q.P.R. náði jafntefli gegn Shef-
fieid United og þótti það engum
frábær árangur. En ég hef trú á
Leicester eftir sem áður og er þvi
miður hræddur um að Q.P.R. fari
frekar að dala á næstunni.
Orslit: -, 2-0, 2-1, 0-0, -, -.
Manchester United —
Coventry 1
United er e.t.v. aðeins að koma
til núna, a.m.k. náði liðið mark-
lausu jafntefli við Southampton
nú siðast. Aðeins 14 stig eru kom-
in i Utd.-sarpinn.og fullvist er að
það stendur til aö bæta einhverju
þar við. Sigur i þessum leik væri
mikilvægur áfangi að bættum
timum og betri högum fyrir
George Best og félaga hans.
Orslit: 4-0, 1-0, 1-1, 2-0, 2-2, 0-1.
Newcastle — Derby 1
Birmingham, botnliðið, gerði
sér litið fyrir sl. laugardag og
Newcastle, sem er i 4. sæti. Ef
Newcastle ætlar að vera áfram i
toppbaráttunni verður liðið að
sigra núna, og heimavöllurinn
hefur hingað til reynst liðinu vel.
Urslit: -, -, 0-1, 3-1, 0-1, 2-0.
Norwich — Liverpool 2
Það er að minu viti ástæðulaust
að rökstyðja þessa spá. Liverpool
er i 2. sæti, Norwich i þvi neðsta.
Ekkert annaö en kraftaverk getur
komið i veg fyrir stóran og örugg-
an útisigur.
Orslit: -, -, -, -, -, 1-1.
Southampton — Ipswish X
Bæði liðin eru með 21 stig og þvi
íremur ofarlega. Ipswich tapaði
stórt fyrir Leeds, 3-0, en South-
ampton náði aðeins jafntefli gegn
Manch.Utd. sl. laugardag. Sá
dagur var þvi fremur slæmur
fyrir bæði liðin, og vaíalitið ætla
þau bæði aö.bæta úr þvi núna.
Leikurinn verður sennilega nokk-
uð harður, en jafn, og þvi þykir
mér jafntefli ekki ólikleg úrslit.
Orslit: -, 2-2, 4-2, 1-0, 0-0, 1-2.
Stoke — Wolfes 2
Liðin eru bæði neðarlega, með
14 og 13 stig, en nú grunar mig að
hefjist betri timar hjá hinum síó-
heppnu Olfum, og sigur i þessum
ieik væri kærkomið spor i þá átt.
Orslit: 0-2, 4-1, 1-1, 1-0, 0-1, 2-0.
Tottenham —
Manchester City 1
Einnig hér er aðeins 1 stig sem
skilur liðin að, heimaliðið er með
17 stig, en gestirnir 10. Martin-
arnir i Tottenham-liðinu ná ekki
árangri ennþá, en með alla sina
ágætu einstaklinga ætti Totten-
ham vissulega að taka inn fleiri
stig en raun er á. Það hlýtur að
koma að þvi, að gæfuhjólið snúist
öllum þessum köppum i hag.
Úrslit: 1:3, 1-1, 0-3, 2-0, 1-1, 2-3.
Sheffield Wed. —
Fulham 1
Það er dapurlegt ástandið hjá
Sheffield þessa dagana. Liðið er i
3. neðsta sæti meö aðeins 13 stig.
Fulham hefur gengið öllu betur
en engu að siöur spái ég heima-
sigri.
Orslit: 4-2,,-, -, -, 4-0, 3-0.
Teljum okkur hafa
verið mjög heppna
sagði Haraldur Sturlaugsson
formaður knattspyrnudeildar ÍA um
ráðningu enska þjálfarans
— Viö teljum okkur hafa veriö
mjög heppna að fá þennan
enska þjálfara sem við réðuin
til okkar á föstudaginn var,
sagði Haraldur Sturlaugsson
formaður knattspyrnudeildar
1A, en Skagamemr réðu til sin
enska þjálfarann George Kirby
sl. föstudag eins og áður hefur
verið sagt frá hér i Þjóðviljan-
um. Við náðum tali af Haraldi
þegar hann koin heim frá Eng-
landijen þangað fór hann ásamt
Rikharði Jónssyni formanni ÍA
til að ganga frá þessum þjálf-
aramálum.
— bessi þjálfari cr nii fram-
kvæmdastjóri 4. deildarliðsins
Watford og hefur alveg sérstak-
lega góð meðmæli frá enska
þjálfara-sambandinu, en ráðn-
ingin fór fram i gegnum það og
hinn kunna knattspyrnufrömuð
i Englandi Alan Wade, sagði
Haraldur.
Kirby var atvinnumaöur með
Southampton og Coventry áður
cn hann gerðist þjálfari, en sem
slikur hefur hann náð einstökum
árangri. Hann byrjar hjá okkur
1. mars,en fram að þeim tima
munum við æfa eftir pró-
grammi sem hann semur, sagði
Haraldur.
— Er ekki mikill áhugi hjá
knattspyrnumönnum ykkar
vegna þessa máls?
— Jú, hann er mikill, meiri en
um langan tima. Það verða allir
með næsta ár sem léku með i
fyrra og raunar meira cn það,
þvi að Eyleifur ætlar að byrja
aftur af fullum krafti. Svo eig-
um við mikið af efnilegum' leik-
mönnum eins og Þó veist. 2. fl.
1A varð tslandsmeistari sl.
sumar, þannig að okkur skortir
ekki efniviðinn. Við bindum
vissulega miklar vonir viö
þennan þjálfara og stefnum aö
sigri i 1. deild næsta sumár.
—S.dór
Erlendir
þjálfarar
hjá 6
félögum
af 8 í
1. deild
Þegar hafa <i félög af X i 1. deild
i knattspyrnu ráðið til sín erlenda
þjálfara fyrir næsta ár. Þetta eru
ÍA, KR, IBK, ÍBV, Valur og Vik-
ingur scm réð til sin enskan á-
hugamannaþjálfara um siðustu
helgi. Þá cru eftir Fram, sem
hefur ráðið Jóhannes Atlason sem
þjálfara, og ÍBA sem enn hefur
engan ráðið, en falast eftir Einari
Helgasyni, en ekkert hefur verið
ákveðið i þvi máli enn. Þess má
cinnig geta að ÍBA mun eitthvað
liafa þrcifað fyrir sér með erlend-
an þjálfara og mun ráðning er-
lends þjálfara til Akureyrar allt
eins koma til greina.
ráðið til
Víkingur hefur
sín enskan þjálfara
Vfkingar réðu til sfn enskan
áhugamannaþjálfara í knatt-
spyrnu um siðustu helgi. Þeir
reyndu að fá þjálfara þann sem
1A fékk,en hann fékk að velja á
milli IA og Vfkings og valdi IA
vegna betri aðstöðu á Akranesi,
en eins og allir vita hafa Vikingar
enn ekki fengið grasvöll. Mun það
öðru fremur hafa ráðið úrslitum
að sögn.
Þessi þjálfari sem Vikingar
réðu heitir Sanders,og hefur hann
náð mjög góðum árangri með
áhugamannalið i Englandi, og
kæmi það ekki á óvart að hann
skildi best þeirra ensku þjálfara
sem hingað koma á næsta ári
aðstöðu þá sem áhugamennirnir
okkar verða að búa við.