Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN ÞriOjudagur 8. janúar 1974 Jón Pálsson Jón Kristinsson Ólafur Magnússon Ingvar Asmundsson Björn Sigurjónsson TJNNLENDU R ANNÁLL 1973 Fyrsti merkisviöburöurinn á árinu var skákþing Reykjavfkur. I meistaraflokki tefldu 30 manns. Fyrst voru tefldar 9 umferðir eftir Monradkerfi. Mótiö var aö mörgu leyti mjög skemmtilegt. Það var þó aldrei neinn vafi á hver mundi sigra. Jón Pálsson byrjaði á þvi aö vinna 5 fyrstu skákirnar og varð efstur með 7,5 v. Næstur varö Jón Kristinsson meö 6,5 v. I 3.-6. sæti urðu Július Friðjónsson, Björn Halldórsson, Jón borsteinsson og Benóný Benediktsson meö 6 v. Þessir 6 menn tefldu siöan innbyröis og aftur varð Jón Pálsson efstur en að þessu sinni varð nafni hans Kristinsson jafn honum, báðir hlutu 4 v. úr 5 skákum. Jón Pálsson er búsettur i Kópavogi og þvi varð Jón Kristinsson Skákmeistari Reykjavikur 1973, enda sigraði hann i einvigi milli þeirra kapp- anna. Menntaskólinn við Hamrahlið sigraði i skákkeppni framhalds- skólanna 1973. Sveitin hlaut 50,5v. i 56 skákum. Hver sveit var skipuð 8 skákmönnum. 5 efstu menn sveitarinnar tóku siðan þátt i Norrænni skákkeppni fram- haldsskóla, þarsem sigurvegarar hver lands tóku þátt, og sigruðu þar einnig örugglega. Skákþing tslands var aö venju háð um páskana. Mótið var nú i fyrsta sinn haldiö i húsakynnum skákhreyfingarinnar að Grensás- vegi 46 R. Nokkra af bestu skák- mönnum landsins vantaði, en engu að siður var landsliðs- flokkur vel skipaður, og sjaldan hefur keppnin verið skemmti- legri. Kom þar tvennt til. Bar- áttan um efsta sætið var mjög. hörð og að lokum urðu tveir efstir og jafnir. Þá var það einnig að nýliðarnir'i landsliðsflokki stóðu sig mun betur en oft áöur og einn þeirra náði 3ja sæti i mótinu. Orslitin urðu þau að Ingvar Asmundsson og Ólafur Magnússon uröu efstir með 8 v. úr 11 skákum. Þeir tefldu siðan ein- vigi um titilinn og gekk þar á ýmsu en Ólafur sigraði með 4 v. gegn 2. Hann varð þvi skák- meistari Islands 1973. 1 3ja sæti varð Július Friðjónsson með 7,5 v., og kom hann mest á óvart allra keppenda. Magnús Sól- mundarson varö fjórði með 6,5 og halda þessir fjórir þvi landsliðs- réttindum sinum. I meistara- Umsjón Jón Briem flokki sigraði Þórir Ólafsson með 7.5 v. úr 9 skákum. Næstir urðu Leifur Jósteinsson og Sævar Bjarnason með 7 v., og munu þeir tefla einvigi um hvor þeirra fái að tefla i landsliði 1974. t I. flokki sigraði Askell Kárason með 11 v. i 11 skákum. t II. flokki hlutu Ólafur Asgrimsson og Hannes Ólafsson 7 v. i 9 skákum. t ung- lingaflokki tefldu 36 og sigur- vegari varð Þór örn Jónsson með 8.5 v. i 9 skákum. Útvegsbankinn sigraði i skák- keppni stofnana 1973 með 21 v. úr 28 skákum. Búnaðarbankinn hiaut 20,5 v. og Stjórnarráðið 18 v. 1 B-flokki sigraði Tryggingamið- stöðin með 19,5 v. Þátttökusveitir voru alls 54, 22 i A og 32 i B-flokki. Hver sveit mátti senda 4 aðal- menn og tvo varamenn og er þá auðreiknað hver fjöldi þátttak- enda hefur verið. Skákþing Kópavogs var háð i febrúar. Keppnin i meistaraflokki var afar jöfn og að lokum úrðu þeir Ingvar Asmundsson og Björn Sigurjónsson efstir með 6 v. i 8 skákum. Freysteinnn Þorbergs- son og Jóhann Þórir Jónsson komu næstir með 5 v. Björn er Kópavogsbúi en Ingvar ekki og varð hann þvi skákmeistari Kópavogs 1973. Þeir Ingvar og Björn tefldu þó 4 skáka einvigi um landsliðsréttindi og sigraði Ingvar með 2,5 v. gegn 1,5 v. Hann vann sér þvi þátttökurétt- indi i landsliðsflokki 1973 og eins og fyrr er getið varð hann þar i 1.- 2. sæti. Um mánaðamótin ágúst-sept- ember fékk Taflfélag Reykja- vikur heimsókn frá tékkneska skákklúbbnum Slavoj Vysehrad. 1 þeim hópi voru 8 skákmenn. Tékkarnir kepptu við Taflfélagiö tvöfalda umferð og sigraði TR i báðum, i þeirri fyrri með 6 v. gegn 2 og þeirri siðari með 5,5 v. gegn 2,5 v. Þeir Taflfélagsmenn munu margir hafa talið þennan glæsta sigur enn eina sönnun þess að TR hafi á að skipa einhverju sterkasta félagsliði i heimi. Haustmót Taflfélags Reykja- vikur hófst i september. Meistara- og I. flokkur tefldu saman, alls 60 manns. Tefldar voru 11 umferðir eftir Monrad kerfi. Meðal margra góðra skák- manna var Ingi R. Jóhannsson og sigraði hann glæsilega i mótinu með 9 v. i 11 skákum. Þó að hann yrði ekki nema hálfum v. fyrir ofan næstu menn var sigur hans ekki i neinni hættu enda tefldi hann langbest allra keppenda. 1 2.-3. sæti urðu Jón Kristinsson og. Kristján Guðmundsson með 8,5 v. Jón tefldi traustlega eins og hann er vanur en Kristján náði þessum árangri með hörku sinni og bar- áttuvilja. Skákfélag Akureyrar fór i skákferðalag til Færeyja á s.l. ári. Þeir tefldu á nokkrum stöðum i Færeyjum og i aðal- keppninni, sem fór fram i Þórshöfn, sigruðu þeir Havnar Tevlingarfélag með 7v. gegn 6. Sævar Bjarnason varö efstur á Boðsmóti TR 1973, hlaut 6 v. úr 7 skákum. Næstir komu Guð- mundur Sigurjónsson og Jóhannes Lúðviksson meö 5,5 v. Ekki má svo gleyma skákþingi Noröurlands. Þar kepptu 12 skák- menn um titilinn skákmeistari TILKYNNING til rafverktaka á Suðurlandi Rafveitur á Suðurlandi, Rafmagnsveitur rikisins, Rafveita Selfoss, Rafveita Hveragerðis, Rafveita Stokkseyrar og Rafveita Eyrarbakka tilkynna: Frá og með 15. janúar 1974 taka gildi regl- ur um rafverktakaleyfi. Starfandi rafverktökum á Suðurlandi er bent á að kynna sér skilyrði og skilmála, til að öðlast rafverktakaleyfi við rafveitur á Suðurlandi. Upplýsingar varðandi rafverktakaleyfin eru veittar hjá Rafmagnsveitum rikisins, eftir 15.01.1974, er óheimilt að taka að sér raflagnavinnu á framanskráðu orkuveitu- svæði, nema samkvæmt rafverktakaleyfi. Norðurlands 1973. Sigurvegari varð Freysteinn Þorbergsson sem hlaut 10 v. i 11 skákum. Næstir urðu Jónas Halldórsson og Hjörleifur Halldórsson með 7 v. Þá er komið að þátttöku tslendinga i skákmótum erlendis. Norðurlandamótið var haldið i Grenaa á Jótlandi að þessu sinni. Keppendur i meistaraflokki voru 111 og 87 i almenna flokknum. Tefldar vou 11 umferðir og sigraöi Bent Larsen örugglega með 9 v.Siðan komu 7 menn með 8 v. Bestur tslendinga var Halldór Jónsson með 7,5 v. Siðan komu Þórir Ólafsson með 7 v. og Magnús Sólmundarson með 6,5. tslendingarnir i þessum flokki voru 14 og i almenna flokknum tefldu 3. Á siðasta ári tóku tslendingar i fyrsta sinn þátt i sexlandakeppn- inni, sem haidin var i Ribe á Jótlandi. Auk islensku sveitar- innar voru sveitir frá Danmörku, Sviþjóð, V-Þýskalandi, Finnlandi Ingi R. Jóhannsson og Noregi i keppninni. Hver sveit var skipuð 6 keppendum, 4 meist- urum, einum unglingi og einum kvenmanni. tslenska sveitin var þannig skipuð: Friðrik Ólafsson, Jón Kristinsson, Ingi R. Jóhanns- son, Ingvar Ásmundsson, Július Friðjónsson og Guðlaug Þor- steinsdóttir. Danirsigruðu örugg- lega i keppninni, hlutu 20,5 v. i 30 skákum. Sviar hlutu 17 v., Norð- menn 16 v., V-bjóðverjar 15, tslendingar 11,5 v. og Finnar 10. Arangurinn varð þvi ekki glæsi- legur en auðveltá að vera að bæta hann. Ingi stóð sig best og fékk 4 v. i 5 skákum. Þá er að lokum komið að Guð- mundar þætti Sigurjónssonar. 14. okt. hófst skákmót i Randers i Danmörku. Keppendur voru 30 frá 6 löndum. Guðmundur varð efstur ásamt Jakob öst með 5,5 v. i 7 skákum. Sömmu siðar fréttist af honum i Bandarikjunum i keppni við 11 meistara, þar af var einn stórmeistari. Sigurvegari varð R. Weinstein með 8 v. en Guö- Freysteinn Þorbergsson mundur varð i öðru sæti með 7,5 v. Hann vann 5 skákir, gerði 5 jafntefli og tapaði einni skák. Hér lýkur þessari upprifjun innlendra skákviðburða siðasta árs. Hún er að sjálfsögðu ekki tæmandi, heldur aðeins stiklað á þvi sem markverðast er talið. Eins og sjá má gerast flestir merkustu skákviðburðirnir i Reykjavik, en þó ekki nærri þvi allir. Til dæmis má nefna skák- þing Akureyrar og fleiri kaup- staða sem oft eru vel skipuð. En hógværð forráðamanna skák- félaganna kemur i veg fyrir að fréttir berist af þessum mótum. Ég vil þvi enn einu sinni hvetja þá til að senda fréttir af helstu við- burðum.þvi að það er fjöldi fólks sem hefur áhuga á að fylgjast með skák, þótt ekki sé það beinir þátttakendur. Ég þakka þeim er sent hafa fréttir á liðnu ári og vona að fleiri bætist i þann hóp á nýbyrjuðu ári. JónG.Briem Guömundur Sigurjónsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.