Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN IÞriöjudagur 8. janúar 1974 Nú horfir alvarlega fyrir ÍR eftir tapiö gegn Ármanni, sem hefur nú þokað sér af botninum Þaö var ekkert fum á Vilbergi Sigtryggssyni, hinum snjalla línumanni Ármanns/ er hann framkvæmdi vitakast 10 sekúndum fyrir leikslok. Hann skoraði af öryggi og færöi liði sínu þar með bæöi stigin i viðureigninni við IR sl. sunnudagskvöld. Sigur Ármanns 15:14 var sanngjarn og byggðist öðru fremur á hinum frábæra varnarleik liðsins en það leikur nú einhvern besta varnarleik allra l.-deildar- liðanna. Eftir þetta tap er staða ÍR i deildinni vægt sagt slæm. Liðið er aðeins með 3 stig eftir 6 leiki en Ármann hefur 5 stig og er loks komið af botninum og er það ekki vonum fvrr, miðað við framfarir liðs- ins i vetur. Þessi leikur var, eins og gefur að skilja, afar þýðingarmikill fyrir bæöi liðin og taugar leik- manna ekki uppá það besta til að byrja meö. fR-ingarnir voru fyrri til að jafna sig og náðu 3ja marka forystu, 5:2, enda var leikur Ar- manns þá i molum og skyssurnar sem liðið gerði nær óteljandi. F nýt sun 1 iS æfi 17: hai i iðrik Guðniundsson setti tslandsmet i 1500 m skriö- i fyrir skömmu á móti úti iþjóð en þar stundar hann gar i vetur. F'riörik synti á 6,7 min. Eldra mctiö átti sjálfur. En þetta lagðist um leið og leik- mennirnir gátu slakað á tauga- spennunni og rétt fyrir leikhlé höfðu Armenningar náð foryst- unni 9:8 en IR-ingar jöfnuðu á siðustu stundu þannig að jafnt var i leikhléi 9:9. Allan siðari hálfleikinn var leikurinn mjög jafn og spennandi. Liöin skiptust á um forystuna. Ármann hafði yfir 10:9 og 11:10 en 1R 12:11 og 13:12. Siðan komst Armann yfir 14:13 en 1R jafnaði 14:14. Þá var ekki nema ein mínúta eftir af leiktimanum. Armann var með boltann en missti hann og IR- Staöan I l.'deildarkeppninni I I indknattleik er nú þessi: I H V ilur aukar \ ikingur l rmann I ram I i>r staðan Björn Jóhannsson átti góöan leik gegn ÍR og skoraöi 3 þýöingar mikil eitt þeirra. (Ljósm. GSP.) mörk i röö í s.h. Hér skorar hann ingar brunuðu upp en misstu boltann einnig. Þegar svo 20 sek. voru til leiksloka var dæmt vita- kast á IR og 10 sekúndum fyrir leikslok skoraði Vilberg sigur- markið fyrir Ármann úr vita- kastinu. tR-ingar fengu örfáar sekúndur til að reyna að jafna en tókst ekki. Ég hef þá trú að Armenningar eigi eftir að fá mörg stig i viðbót við þessi 5, enda er leikur liðsins orðinn ágætur, einkum varnar- leikurinn sem er til fyrirmyndar, en sóknarleikurinn mætti vera beittari. Að þessu sinni bar mest á Þorsteini, Vilbergi og Ragnari Gunnarssyni markverði, en þeir Höröur og Ragnar Jónsson áttu einnig ágætan leik. Hjá 1R var það gamla kempan Gunnlaugur Hjálmarsson sem aldrei lét undan og barðist af krafti. Einnig átti Asgeir Eliasson góðan leik, einkum i fyrri hálfleik. Mörk Armanns: Vilberg 4, Björn 4, Ragnar 3, Þorsteinn 2, Olfert og Jón 1 mark hvor. Mörk IR: Ágúst 6, Hörður Hákonarson 2, Ásgeir 2, Gunn- laugur 2, Jóhannes og Hörður Hafsteinsson 1 mark hvor. Leik Vals og Þórs frestað Leik Vals og Þórs frá Akureyri i l.-deildarkeppninni i handknatt- leik sem fram átti aö fara á sunnudagskvöldið var frestað þar eö Þórs-liöiö fékk ekki far frá Akureyri, en undanfarna daga hafa verið truflanir á feröim Fí þaðan. Þá áttu kvennaliö Þórs og Vals cinnig aö leika á sunnudag en þeim leik varö einnig að fresta af sömu ástæöu. Að sögn Stefáns Ágústssonar formanns mótanefndar HSÍ fara þessir leikir sennilega fram i kvöld, þriðjudagskvöid, en ef ekki tekst aö koma þeim á nú verö- ur reynt á föstudagskvöldib og cins mun leikur KR og Fylkis I 2. deild, sem einnig varö aö fresta á sunnudaginn, veröa settur á sama kvöldið og Vals-Þórs- leikirnir. Þróttur er enn tap- laus í 2. deildinni Þróttur lieldur sinu striki I 2,- deildarkeppni i handknattleik og er enn eina liöiö þar sem ekki hefur tapað leik. Á sunnudaginn sigraöi Þróttur ÍBK meö nokkr- um yfirburðum eða 24:16. Það fer ekki milli mála aö sem stendur er Þróttur sigurstrang- legasta liðið i 2. dcild, þótt keppnin við KR og Gróttu vcrði eflaust mjög hörð i vetur. Flinn annar leikur átti að fara fram i 2. deild, leikur KR og Fylkis, en honum var frestað á sunnudaginn þar sem alit var komiö i timaþröng undir kvöldið þegar keppnin i 1. deild átti að hefjast en svo komu Þórsarar ekk til leiks þannig að meira en klukkustundar hlé varö i Laugardalshöllinni. Ekki liefur enn veriö ákveðið hvenær þessi leikur fer fram. firlýsing 1 g undirritaöur, Haukur Cla ísen tannlæknir, hef aldrei ski fað undir opið bréf til rit- stji ra Visis og leyfi mér að vanþóknun minni á bréfi sem birtist i Timanum stliðinn laugardag. kjavik 6. janúar. kur Clausen tanhlæknir. Nafna- fölsun t laugardaginn var geröist sá einstæði atburður i isl nskri blaðantennsku aö Tit inn birti opið bréf til rit- stji ra Visis þar sem skrif Ha Is Simonarsonar iþrótta- fré tamanns Visis eru for- dæ id og skoraö á ritstjórann að ikipta um mann i þessu sta fi. Undir þetta skrifa 100 ma ins. Og það furöulega er aö rit! jóri Visis hefur aldrei fen ’ið bréfið i hendur, heldur sót i Timinn um að fá aö birta þet a sorpplagg, eða réttara- sa{ . Alfreð Þorsteinsson sem sa| ður er forsvarsmaöur iþr ttasiðu þess blaðs. Þessi vin lubrögð Alfreðs eru ein- hv r auvirðulegustu vinnu- bri ;ð sem sést hafa i islenskri bla iamcnnsku og voru menn þó rðnir ýmsu vanir frá hans hei Ji. I n eftir aðTiminn liefur birt þei tian nafnalista, þar sem ski if Visis eru fordæmd, kei lur í Ijós að nafn Hauks Cla ísens er falsað á listanum. P ú verður manni spurn, hvi rt fleiri nöfn á iistanum séi kannski fölsuð. F'yrst citt þei ra er það geta þau allt ein verið fleiri. En þegar þcss er ;ætt að meiri hlutinn sem skr far þarna uiulir eru ung- linj ar, sem gerðu það i einu vei ingahúsanna hér I borg- inn , er auövitaö ekki annað hæ t en að vorkenna þessu Framhald á 14. siðu Nýtt íslands- inet

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.