Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 8. janúar 1974 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 15
39 ára
gömul
flug-
vél
SIÐAN
UMSJON: SJ
Flugvélin hér á myndinni var
upphaflega byggð i Þýskalandi
árið 1935 og er af gerðinni
Junker. Þjóðverjar notuðu hana
i Noregi á striðsárunum en eftir
stríð komst hún i eigu SAS og
var notuð á innanlandsleiðum i
Noregi til ársins 1956. Arið eftir
var hún seld til Ecuador, en nú
er hún auglýst til sölu i Banda-
rikjunum. Eigandi vélarinnar,
sem býr i Illinois, segir að vélin
sé sú eina af þessari gerð i
Ameriku og hún sé i mjög góðú
ásigkomulagi og tilbúinn til far-
þegaflugs hvenær sem er.
Úr þvi við erum farnir að
ræða um SAS, þá skilaði félagið
84 miljónum sænskra króna i
nettóhagnað á sl. ári, en
reikningsári SAS lýkur um
mánaðamótin september, októ-
ber. Hvað verður á næsta ári er
erfitt að segja fyrir um, en SAS
taldi nú um áramótin að félagið
yrði að draga úr eldneytisorku
um fjórðung þegar i byrjun árs.
Hagfræði?
Þeir hækka vinið svo að
þeir geti greitt hærra
kaup til að fólk geti haldið
áfram að kaupa sama
magn af vini.
Caldwell vinsæll eystra
Rithöfundurinn Erskine Cald-
well, sem nýlega varð sjötugur,
brá sér til Sovétrikjanna fyrir
nokkrum mánuðum til að eyða
rúblum sem safnast höfðu þar
saman sem höfundarlaun.
Bækur Caldwells hafa verið
gefnar út i yfir 1,5 miljónum
eintaka i Sovétrikjunum siðan
árið 1938. I tilefni sjötugs-
afmælisins héldu sovéskir
starfsbræður Caldwells veislu
mikla skáldinu til heiðurs, en
það gat ekki verið viðstatt
fagnaðinn.
Bíll lokaöur inni í 57 ár
Margt er skrýtið i
kýrhausnum. Arið 1916 dó i
Bournemouth á Englandi faðir
þriggja kvenna, sem hétu Amy,
Katie og Ada Jones. Gamli
SALON GAHLIN
— Þau urðu að fresta
brúðkaupsferðinni — fengu
enga barnapiu.
maðurinn hafði keypt sér bil
árið 1910 og við andlát hans
ákváðu systurnar að læsa bilinn
inni i bilskúr.Þegar svo Amy dó
siðust systranna siðastliðið
sumar, þá orðin 95 ára gömul,
var billinn enn óhreyfður i
bilskurnum og auðvitað orðinn
afar verðmætur sem safn-
gripur. Billinn, sem er af
gerðinni Argyll, verður seldur á
uppboði.
En þá vaknaöi
'vaktmaöurinn
Bankaræningjar i borginni
Townsend i Bandarikjunum
voru búnir að búa sig vel undir
að ræna verslunarbanka staðar-
ins og lögðu sérstaka vinnu i að
kynna sér viðvörunarútbúnað-
inn. Þeir komust inn i bankann,
tóku viðvörunarkerfið úr sam-
bandi og hófu siðan starf sitt.
Ekki leið á löngu þar til þeir
stóðu upp við vegg i upp-
graftarstellingu. Ástæðan var
sú, að um leið og þeir rufu raf-
magnið fór það lika af rafhitaðri
ábreiðu vaktmannsins, sem
vaknaði skjálfandi af kulda, og
grunaði um leið að ekki væri allt
með felldu.
Dagblað eitt í New York
brá sér á leik um daginn
og auglýsti i kaup- og
söludálki, að til sölu væri
útvarp, sem hefði ein-
stakt gildi sem söfnunar-
gripur, þar sem það hefði
verið í eigu Kristófers
Kólumbus. 28 manns gáf u
fram næsta dag fullir á-
huga á að kaupa þetta
merkis útvarp.
Mikill áhugi er nú meðal
skólafólks í Bandríkjun-
um á hagfræði og er aðal-
ástæðan talin vaxandi
verðbólga og hækkun á
matvöru. Bandarískir
skólafrömuðir eru nú að
undirbúa hagfræði-
kennslu í gagnfræðaskól-
um og einn prófessor hef-
ur boðist til að hef ja hag-
fræðikennslu á barna-
heimilum!
A
Kópavogsbúar
Tilkynning um sorphauga
Athygli skal vakin á þvi að frá og með 1. janúar 1974 eru
sorphaugar Kópavogs á sama stað og sorphaugar Reykja-
víkur — viö Gufunes.
Það skal tekið fram að frá sama tíma er Kópavogsbúum
óheimilt að fara með hverskonar sorp eða úrgang á sorp-
haugana sunnan Hafnarfjarðar.
Ibúum Kópavogs, sem þurfa að koma frá sér úrgangi, er
þvi bent á að fara með allt slikt á sorphaugana viö Gufu-
nes.
Sorphaugarnir við Gufunes eru opnir sem
hér segir:
Mánudaga — laugardaga,
kl. 8.00-23.00
sunnudaga, kl. 10.00-18.00
Rekstrarstjóri Heilbrigðisfulltrúi
Kópavogs Kópavogs
UNDRALAND
Ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst skoppar, tistir og
brunar.
Fjölbreytt úrval.
Komiö, sjáiö, undrist í UNDRALANDI
Framlciði SÖLó-eldavélar af mörgum stærðum og gerð-.
um, —einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaðii
og báta.
— Varahlutaþjónusta —
Viljum sérstaklega bcnda á nýja gerð einhólfa eldavéla
fyrir smærri báta og litla sumarbústaði.
ELDAVÉLAVERKSTÆÐI
JÓHANNS FR. KRISTJÁNSSONAR H.F.
KLEPPSVEGI 62. — SIMI 33069.
RAFLAGNIR
SAMVIRKI
annast allar almennar raflagnir. Ný-
lagnir, viðgerðir, dyrasima og kallkerfa-
uppsetningar.
Teikniþjónusta.
Skiptið við samtök sveinanna.
Verkstæði Barmahlið 4
SÍMI 15460 milli 5 og 7.