Þjóðviljinn - 08.01.1974, Blaðsíða 11
Þriðjudagur S. janúar 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
FH vildi
ekki nota
Geir
Þaft vakti niikla athygli að
Geir Hallsteinsson var aðeins
áhorfandi þegar FH mætti Ár-
manni sl. föstudag. Astæðan
fyrir þvi að Geir var ekki með
FH mun vera sú að forráða-
nienn liðsins telja að Fll-liðinu
hafi gengið það vel i mótinu til
þessa að óþarfi sé að breyta
þvi. Mann grunar að FH-liöiö
sc hið eina i heiminum sem
ekki hefur not fyrir mann eins
og Geir Hallsteinsson, eða
hvað?
eftir tapið fyrir Víkingi
CJ
LJ
o
D
CJ
CJ
o
D
□LP
Þá eru Framarar endan-
lega fallnir úr toppbar-
áttunni í 1. deildarkeppn-
inni í handknattleik eftir
tapið fyrir Víkingi á föstu-
daginn var. Þar með er
Fram búið að tapa 7 stig-
um sem er meira en
nokkurt lið þolir. Vikingar
sem þarna hlutu 2 stig í
heldur fátæklegt stigasafn
sitt eiga einnig litla sem
enga möguleika á sigri,
haf a tapað 6 stigum. Því er
það að verða Ijóst að ein-
ungis FFI og Valur munu
berjast um sigurinn í vetur
og gerir það mótið leiðin-
legra en ef 3 til 5 lið hefðu
barist um toppinn.
t þessum leik gerðist alveg þaö
sama og i öllum leikjum Fram i
mótinu.Axel var tekinn úr umferð
og þar með verður Fram-liðið að
engu. Björgvin verður óvirkur
um leið og Axels nýtur ekki við og
þá er ekkert eftir hjá Fram. Að
þessu sinni lék Ingólfur Óskars-
son aftur með Fram og stóð sig
vel, en hann getur ekki bætt upp
skarð Axels. Þá furðar mann si-
• fellt á þvi að Axel skuli ekki reyna
eitthvað þótt hann sé tekinn úr
umferð. Myndi það skapa hættu,
og eins er mikill möguleiki fyrir
hann að „fiska” þann útaf, sem
gætir hans, en Axel reynir ekkert
slikt, og á meðan gengur allt á
afturfótunum hjá Fram.
Vikingar voru svipaðir og þeir
hafa verið i undanförnum leikj-
um, nema hvað minna bar á
Einari Magnússyni nú en oftast
áður. Þvi meira bar á hinum unga
og skemmtilega leikmanni Stefáni
Halldórssyni, sem var besti mað-
ur liðsins i þessum leik. Hann
skoraði 3 fyrstu mörk Vikings i
leiknum.
Vikingar komust fljótlega i 5:2
og eftir það misstu þeir aldrei
forustuna utan tvivegis i siðari
hálfleik að Fram tókst að jafna,en
komst aldrei yfir. í leikhléi var
staðan 9:7 Vikingi i vil.
Vikingur hélt forystunni þar til
18 minútur voru liðnar af siðari
hálfleik að Axel jafnaði fyrir
Fram 14:14 úr vitakasti. Aftur
varð jafnt 15:15. Lokakaflinn
varð mjög tvisýnn. Vikingur hafði
yfir 18:17, 19:18 og 20:19 en Einar
Magnússon innsiglaði sigur
Vikings með marki úr vitakasti
og lokastaðan var þvi 21:19, sann-
gjarn sigur Vikings miðað við
gang leiksins.
Mörk Vikings: Einar 6 (3 viti),
Stefán 5, Guðjón 3, Páll 2, Jón 2,
Skarphéðinn, Ólafur og Viggó 1
mark hver.
Mörk Fram: Axel 11 (5 viti),
Björgvin 4, Ingólfur 3. Pálmi 1.
Þess má að lokum geta að Axel
skoraði mark úr vitakasti sem
ekki var dæmt gilt. Boltinn fór i
þverslá, i gólfið og þaðan uppi
netþakið,en dómararnir tóku ekki
eftir þvi að boltinn fór i netið og
dæmdu markið ógilt. Þegar þetta
gerðist var staðan 19:17 Vikingi i
vil og gæti það hafa breytt allri
framvindu leiksins ef eftirtektar-
leysi dómaranna hefði ekki
komið til. -S.dór
Viðar Sfmonarson átti góðan leik gegn Armanni. Hér skorar hann eitt marka sinna (Ljósm. GSP.)
Meistaraheppni
yfir FH-liðinu
kom þetta vel fram. Nærri
miðjum siðari hálfleik
hafði Ármann náð að jafna
8:8 en þá gerðist það, að
hörmulega lélegir
dómarar þessa leiks,
Haukur Hallsson og Þor-
varður Björnsson, visuðu
Herði Kristinssyni, besta
manni Ármanns, af leik-
velli fyrir litlar sem engar
sakir og dæmdu tvö vita-
köst i röð á Ármann.
Staðan varö 10:8 og við það
brotnaði Ármanns-liðið
niður og eftirleikurinn
varð FH auðveldur.
Það var eins og dómarana
skorti kjark til að áminna eða
visa FH-ingum af leikvelli fyrir
sömu brot og Armenningarnir
voru áminntir fyrir eða reknir af
leikvelli. 1 FH-liðinu eru mörg
fræg nöfn og virtust hinir reynslu-
litlu og slöku dómarar ekki þora
að beita sér gegn þeim, en i
Ármanns-liðinu er minna um
landsliðsmenn og fræg nöfn skorti
ekki kjarkinn hjá dómurunum
þegar dæma þurfti á Armann.
Þetta kom út sem alger hlut-
drægni og var það i raun. Þetta
fremur öðru gerði útum leikinn.
Hann var allan timann mjög
jafn, þar til ósköpin dundu yfir
um miöjan siðari hálfleik. FH
náði aldrei meira en 3ja marka
forystu i fyrri hálfleik og i leikhléi
var staðan 8:6 FH i vil.
Byrjun siðari hálfleiks var
mjög góð hjá Armenningum og
þeim tókst að jafna 8:8 þegar um
það bil 10 minútur voru liðnar af
siðari hálfleik og þannig var
staðan nokkurn tima. En þá var
það að Herði var visað af leikvelli
og tvö vitaköst i röð d^erhd á
Framhald á 14. siðu.
Hversu sterk sem lið eru
þurfa þau alltaf dálítla
heppni til að vinna mót.
Þetta er gömul og ný saga.
FH-liðið hefur ekki verið
eins sterkt og nú i mörg ár
en það hefur lika haft
þessa meistaraheppni yfir
sér. Siðast i leiknum við
Ármann á föstudaginn var
" 1,111 »1 i MlllKlll i ii ll i ...
Pálmi Pálmason kominn Igegn og skorar (Ljósm. GSP).
Guðjón
Erlendss.
hættur?
Það vakti athygli i leik
Fraqk og Vikings sl. föstudag
og Guðjón Erlendsson mark-
vörður Fram var ekki með liði
sinu,en hann hefur m.a. verið
valinn i landsliðið i vetur.
Þegar spurt var um hvers-
vegna Guðjón væri ekki mcð
Fram var þvi svarað til að
hann hcfði ekkert æft undan-
farið og væri þess vegna ekki
valinn i liðið.
CJ
CJ
A
O
D
V.
Fram fallið
úr topp-
baráttunni