Þjóðviljinn - 19.03.1974, Page 1
DJÚÐVIUINN
Þriðjudagur 19. mars 1974 — 39. árg. —65. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Stöðvi stjórnarandstaðan samkomulagið
verður tekjuskattur helmingi hœrri en ella
Beinir skattar þó
lægri en samkvæmt
viðreisnarlögum
Það skal aldrei verða, segja stjórnarandstæðingar á alþingi, að
rikisstjórnin komi fram samkomulagi þvi, scm hún gerði við verka-
lýðshreyfinguna um nær helmings lækkun tekjuskatts. Og þeir bæta
við að frekar skulu núverandi skattalög gilda, og tekjuskattur
manna i ár þá hækka um nær helming frá þvf sem samkomulagið
gerði ráð fyrir.
Ætlið þið, þingmenn stjórnarandstöðunnar, að taka ábyrgð á
þessu, er spurt?
Við, segja þeir, — nei við tökum ekki ábyrgð á neinu. Það er nú-
verandi ríkisstjórn, sem setti núgildandi skattalög, og þótt við teij-
um betra að þau gildi, heldur en ákveðin verði nær helmings lækkun
tekjuskatts, — þá eru þetta mestu skattpiningarlög, sem hér hafa
nokkru sinni þekkst og við höfum ekkert með þau að gera, þótt við
getum hugsað okkur að nota atkvæði okkar á alþingi til að koma i
veg fyrir að þcim verði breytt.
Þessi málflutningur gefur okkur tilefni til þeirrar upprifjunar,
sem hér fcr á eftir.
Þegar Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra flutti fjárlaga-
ræðu sina á alþingi i október i haust, rakti hann nokkur dæmi um
það hver yrði upphæð beinna skatta i ár hjá einstaklingum og fjöl-
skyldum með mismunandi tekjur, i fyrsta lagi samkvæmt skatta-
lögunum, sem vinstri stjórnin setti skömmu eftir að hún tók við
völdum og nú eru i gildi, i öðru lagi samkvæmt skattalögunum, sem
giltu á valdaárum viðreisnarstjórnarinnar og i þriðja lagi sam-
kvæmt skattalögunum, sem viðreisnarstjórnin setti við lok ferils
sins, en aldrei komust i framkvæmd, þar sem hún missti völdin.
Þessi dæmi, sem fjármálaráðherra rakti, hafa ekki verið vé-
fengd, þrátt fyrir allan þann moðreyk, sem stjórnarandstæðingar
hafa reynt að þyrla upp i ræðu og riti um skattpiningarstefnu núver-
andi rikisstjórnar.
Að gefnu tilefni i umræðum siðustu daga rifjar Þjóðviljinn nú upp
þessi dæmi fjármálaráðherra sem stjórnarandstæðingar hafa ekki
getað hróflað við, en þau vitna skýrar en flest annað um tómahljóðið
og sýndarmennskuna i áróðri Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokks-
ins um skattamál.
I öllum dæmunum er um að ræða beina skatta bæði til rikis og
sveitarfélaga, þar með taldir nefskattarnir, sem vinstri stjórnin af-
nam.
(Dálkar I sömu röð og i upptalningunni hér að ofan) Hjón með 2 börn Brúttótekjur 581 þús. Nettótekjur 446 þús 71.000 133.000 141.000
Hjón með 3 börn Brúttótekjur 654 þús. Nettótekjur 563 þús 207.000 215.000
Hjón með 3 börn Brúttótckjur 885 þús. Nettótekjur 605 þús 162.000 231.000 239.000
Iijón með 3 börn Brúttótekjur 926 þús. Nettótckjur 804 þús, 245.000 351.000 359.000
Hjón með 5 börn Brúttótekjur 934 þús. Nettótekjur 776 þús 193.000 282.000 291.000
Barnlaus hjón Brúttótekjur 2063 þús. Nettótekjur 1657 þús 795.000 864.000 861.000
Einstaklingur Brúttótckjur 453 þús. Ncttótckjur 373 þús 102.000 116.000 124.000
Stjórnarandstæðingar segjast hafa næga dirfsku til að stöðva
samkomulag rlkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinnar um
nær helmings lækkun tekjuskatts og láta svo núverandi lög gilda.
En hafa þeir dirfsku til að leggja til, að þeirra eigin lög verði tekin
upp á ný?
Loðnuþrær við Faxaflóa eru allar fullar eftir aflahrotuna fyrir Vesturlandi undanfarna viku. A
myndinnisést yfir klakkfulla loðnuþró við Fiskimjölsverksiniðjuna i örfiriscy i gærdag. (Ljósm. A.K.)
FU.LLAR LOÐNUÞRÆR
EKKERT LAT A
LOÐIN LJ VEIÐINNI
Heildaraflinn er kominn yfir 420 þúsund tonn
Ekkert lát viröist vera á loðnu-
veiðinni útaf Jökli. Um kl. 18 i gær
höfðu 25 skip tilkynnt um afla
þann sólarhringinn, samtals 7
þúsund lestir, en sólarhringinn á
undan veiddust 12 þúsund lestir
og var heildaraflinn i gær kominn
yfir 420 þúsund lestir, en var á
sama tima I fyrra um 350 þúsund
lestir.
Flestir bátanna fara nú með
afla sinn til Vestmannaeyja, en
þangað er styst að fara af þeim
stöðum sem hafa laust þróar-
rými. Allar þrær við Faxaflóa-
hafnir eru orðnar fullar.
Aflahæsta skipið sl. laugar-
dagskvöld var Guðmundur RE
með 11.584 lestir en Börkur NK
var þá kominn með 11.297 lestir,
Gisli Arni i þriðja sæti með 8.953
lestir og Eldborg GK með 8.676
lestir.
Lang-mestur afli hefur borist á
land i Vestmannaeyjum eða
62.814 lestir. Reykjavik 39.123
lestir, Seyðisfjörður 34.068 lestir
og Neskaupstaður 30.486 lestir.
Nú stunda um 70 skip loðnuveiðar
en voru yfir 130 þegar mest var i
vetur. Allir minni bátarnir eru nú
hættir loðnuveiðum og komnir á
netin. Það eru aðeins stærstu og
sterkustu skipin sem eftir eru.
A laugardagskvöldið siðasta
höfðu 100 skip fengið yfir 1000 les-
ir og er skrá yfir þau á bls. 14 i
Þjóðviljanum i dag.
—S.dór.
Margir um Viðlagasjóðshúsin
Tilboðin helmingi fleiri en húsin sem i boði eru
Skilafrestur á tilboðum i þau
viðlagasjóðshús sem selja á nú i
fyrstu lotu, en þau eru 42, rann út
sl. föstudagskvöld. Hallgrimur
Sigurðsson hjá viðlagasjóði sagði
i viðlali við Þjóðviljann i gær, að
enn væri ckki hægt að segja hve
mörg tilboðin yrðu, þar sem þau
tilboð scm póstlögð voru fyrir há-
dcgi sl. föstudags eru tekin gild en
þau hafa cnn ekki borist skrif-
stofu viðlagasjóðs sem cðlilegt er.
o
Eins og áður segir eru húsin
sem selja á nú i fyrstu lotu 42 og
sagði Hallgrimur að tilboðin sem
þegar eru komin væru um helm-
ingi fleiri en húsin, þannig að á-
hugi fólks fyrir að eignast þessi
hús virðist mikill.
Tilboðin verða sennilega opnuð
á sérstökum fundi stjórnar við-
lagasjóðs siðast i þessari viku.
Sagði Hallgrimur að tilboðin
væru alls ekki bindandi fyrir
stjórn viðlagasjóðs. Stjórnin hefði
rétt til að taka eða hafna hvaða
tilboði sem er. Verð húsanna hef-
ur enn ekki verið ákveðið en
stjórnin taldi rétt að leita eftir til-
boðum i húsin til að kanna áhuga
fólks fyrir húsakaupunum og sjá
til hvað i þau væri boðið.'
Hallgrimur taldi að mörg hús
myndu losna i vor, en þá er búist
við að fólksflutningar til Eyja
aukist mjög mikið. —S.dór
Mikill innbrotafaraldur var
norður á Akureyri um siöustu
helgi. Alls var brotist inn á 8
stöðum i bænum. Flest inn-
brotana voru smávægileg,
litlu stolið. En eitt þeirra var
þó i stærra lagi, einkum vegna
þess hve mikið var eyðilegt
við innbrotið. Það innbrot var
framið á ferðaskrifstofu á
Akureyri.
Ekki taldi lögreglan að
sömu menn hefðu verið að
verki á öllum stöðunum, en
enn þá hafa innbrotsþjófarnir
ekki náðst.