Þjóðviljinn - 19.03.1974, Síða 5
Þriðjudagur 19. marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Vestfirskir bœndur i uppreisn
gegn þrifaböðum
Baða ekki
fé sitt
framvegis
Gagnrýna harðlega
yfirvöld þessara mála
Átta bændur á Vestfjörðum
liafa scnt frá sér álitsgerð vegna
sauöfjárbaðana. Yfirlýsingu sina
senda bændurnir til yfirbaðstjóra
islands (yfirdýralæknis), yfir-
baðstjóra Vestur-Barðastrandar-
sýslu, lándbúnaðarnefndar neðri
deildar Alþingis, Búnaðarfélags
islands og þriggja dagblaða.
Yfirlýsing bændanna fer hér á
eftir:
Á þessum vetri á enn á ný að
lögskylda bændur til • að fram-
kvæma svokallaöar þrifabaöanir
á sauðfé sinu.
Misjöfn
málalok
eystra
Alþýðusamband Austurlands
gerði samkomulag fyrir hönd
Austfjarðafélaganna fyrir helg-
ina siðustu, og hafa félögin ýmist
gert að samþykkja samningana
eða að hafna þeim.
Samkomulagið, sem gert var.
mun i meginatriðum vera svipaðs
eðlis og þaö sem ASl gerði við
Vinnuveitendasambandiö, en þó
frábrugðið i smáatriðum.
Eins og áður segir var ýmist að
samningarnir voru samþykktir
eða felldir i félögu.num eystra.
Seyðfirðingar felldu samkomu-
lagið, en vegna lélegrar mæting-
ar á fundinn mun hafa verið á-
formað að halda annan fund þar i
kvöld og greiöa þá á ný atkvæði
um samningana. Eskfirðingar
samþykktu hins vegar samkomu-
lagið, en fréttir höfðum viö ekki
fengið i gær um örlög þeirra i öðr-
um félögum. en almennt var búist
við að þar yrðu samningarnir
yfirleitt samþykktir.
Norðfirðingar voru ekki með i
þessari samkomulagsgerð.
—úþ
Þar sem við undirritaðir bænd-
ur i Suðurfjarða- og Ketildala-
hreppum teljum okkur hafa náð
þvi takmarki. sem lög um sauð-
fjárbaðanir gera ráð fyrir, það er
að útrýma óþrifum — lús og kláða
— úr sauðfé okkar, viljum við hér
með tilkynna hlutaðeigendum, að
meðan ekki ásannast annaö við
rannsóknjnunum við ekki baða fé
okkar framvegis.
Um leið viljum viö átelja harð-
lega hvernig framkvæmdavaldið
vinnur að framgangi þessara
mála, þ.e. útrýmingu óþrifa i
sauðfé.og virðast aðgerðir frekar
miðast að viðhaldi þeirra.
t fyrsta lagi má þar nefna til
leyfðan hömlulausan flutning
sauðfjár milli héraða án allra
varúðarráðstafana, sem er hið á-
kjósanlegasta dreifingarfyrir-
komulag á óþrifum sem hugsast
getur.
Annað atriði: Nú mun kláðan-
um ekki nægja minna til aldurtila
en tvöföld böðun. Þaö gefur þvi
auga leið, að þrifabööun sem er
einföld böðun og er til höfuðs lús-
inni vinnur ekki til íulls á kláðan-
um, þar sem hann er til staðar,
heldur slær aðeins á hann og leyn-
ir honum og kemur þannig i veg
fyrir að á honum verði unnið með
viðeigandi aðgerðum. Stuðla þvi
þrifabaðanir hvað dyggilegast að
viðhaldi kláðans.
Eitt er enn sem vinnur með
kláðanum i baráttu hans fyrir til-
veru sinni. Þaö er vanþekking
böðunarstjóra, sem virðast ekki
þekkja þær reglur, sem fara ber
eftir við kláðabaðanir, t.d. um
það hvað halda skal kind lengi
niðri i baði og um sótthreinsun
húsa, sem er nauðsynlegur ör-
yggisþáttur, en alltaf vanræktur.
Eins og mál standa nú, virðist
allt benda til þess, að fram-
kvæmdavald baðana hafi ekki
það takmark i huga að útrýma ó-
þrifum i sauöfé, eins og lög þar
um þó bjóða, heldur aðeins það að
etja mönnum út i Kleppsvinnu
annað hvert ár, eða svo. Það
hefur margsinnis verið bent á úr-
ræði til þessaðárangurnáisti bar-
áttunni við óþrifin og til þess að
Framhald á 14. siöu.
"""gisgai
fiskinn i færanlegum kerjum.
Hefur mjög batnað geymslu-
aðstaða fyrir fisk með tilkomu
þessarar geymslu.
Af nótaskipinu Berki er það
að frétta að i gær landaði hann
850 tonnum af loðnu á Bol-
ungarvik sem hann hafði feng-
ið við Snæfellsnes. Er afli
Barkar þá orðinn 12.043 tonn á
þessari loðnuvertið.
Norðfirðingar bera veður-
stofunni ekki góða sögu þessa
dagana. Að hennar sögn hefur
verið slydda á staðnum að
undanförnu, en Norðfirðingar
vilja kalla það snjókomu eða
hrið með austanroki og hefur
kyngt niður allmiklum snjó
þar upp á siðkastið.
NESKAUPSTAÐUR:
MIKILL AFLI
SKUTTOGARA
— en veðurfregnir stangast á við raunveruleikann
Fréttaritari blaðsins á Nes-
kaupstað hringdi i okkur i gær
og sagði að báðir skuttogarar
bæjarins, Barði og Bjartur,
liefðu verið að koma að landi
með feiknmikinn afla. Bjartur
kom i fyrradag með 180 tonn
af þorski og grálúðu.og hefur
togarinn aldrei landað jafn-
miklu úr einni veiðiferð.
Barði lagði svo upp 160 tonn
i gær og var það góður þorskur
og nokkuð af ýsu. Hefur skipið
aðeins einu sinni aflað jafn-
mikið i einni ferð. Er þetta
mesti fiskur sem komið hefur
á land i Neskaupstað i einu
siðan á gullöld nýsköpunar-
togaranna austur þar.
Aflinn fer bæði i frystingu og
salt og er mikil vinna fyrirsjá-
anleg næstu vikuna. Frá ára-
mótum hefur Bjartur landað
736 tonnum og Barði 630.
I fyrradag var tekið i notkun
i Neskaupstað nýtt saltfisk-
verkunarhús og er þvi að
mestu lokið, aðeins eftir að
ganga frá einangrun og fleiru
smálegu. Er þetta stálgrindar-
hús mikið að vöxtum og eitt
hið stærsta sinnar tegundar
á landinu. Af öðrum fram-
kvæmdum má nefná að nýlega
var tekin i notkun ný kæli-
geymsla fyrir fisk i frystihús-
inu. Er hún einkum ætluð fyrir
kassafisk.en einnig má geyma
Oddskarðið var rutt á
fimmtudagskvöldið,en sú dýrð
stóð ekki nema i tæpa tvo sól-
arhringa þvi skarðið lokaðist
aftur á laugardaginn. Til
marks um ófærðina nefndi
fréttaritarinn að snjóbill sem
lagði af stað frá Eskifirði
klukkan hálftiu i gærmorgun
var ekki kominn til Neskaup-
staðar þegar hann talaði við
okkur klukkan hálffjögur.
Hafði hann þá verið sex tima á
þessari leið sem hann fer
venjulega á hálfum öðrum
tima. Veldur einkum þessari
þungu færð hve snjórinn er
blautur og laus i sér.
ÞH
Kosningar til SHÍ
Dreifiritastríð er
í fullum gangi
Mikið fjör er nú að fær-
ast í kosningabaráttuna i
Háskólanum, en eins og
kunnugt er verður kosið til
Stúdentaráðs á morgun,
miðvikudag. Mikið dreifi-
rita- blaða- og plakatastrið
geisar þessa dagana í ö11-
um byggingum skólans,og i
kvöld verður haldinn
framboðsfundur þar sem
vinstri menn og vökustaur-
ar leiða saman hesta sína.
Það fer ekki milli mála hverjir
hafa peningana á bak við sig i
þessum kosningum. Hvarvetna i
byggingum skólans má sjá fagur-
lega prentuð plaköt hægri manna
sem hljóta að kosta drjúgan
skilding. Þá gáfu þeir út blað sem
hefur kostað sitt, en að visu nutu
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Þrír umræðufundir
Alþýðubanda lagið í
Reykjavík heldur á næst-
unni þrjá umræðufundi um
verkalýðsmál. Fundirnir
verða allir haldnir að
Grettisgötu 3, og hefjast
jafnan klukkan hálf níu að
kvöldi.
1. fundurinn
verður nú á fimmtudaginn,
þann 21. mars. Þar mun Gunn-
ar Guttormsson, hagræðingar-
ráðunautur. fjalla um lýðrétt-
indi verkafólks i atvinnulifinu.
Á fundinum mætir einnig Guð-
jón Jónsson, formaður Máim-
og skipasmiðasambands Is-
lands.
2. fundurinn
verður haldinn fimmtudaginn
28. mars nk. Þar mun Snorri
Jónsson, forseti Alþýðusam-
bands Islands fjalla um störf
trúnaðarmanna verkalýðsfé-
laganna á vinnustöðum.
3. fundurinn
verður fimmtudaginn 4. april
nk. Þar mun Helgi Guðmunds-
son, starfsmaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar á Akureyri
fjalla um stöðu verkalýðs-
hreyfingarinnar og þjóðfélags-
leg markmiþ hennar.
P'undirnir eru opnir öllum
sósialistum og öðru áhugafólki
um verkalýðs- og þjóðfélagsmál.
Stjórn Alþýðubandalagsins
i Rcykjavik
Snorri
Helgi
þeir stuðnings fjármálavaldsins i
landinu i formi auglýsinga.
Hægri menn gerðu mikið mál
úr þvi að fellt var úr greinum
þeirra i siðasta Stúdentablaði
sem helgað var kosningunum.
Ekki var þö sá hamagangur reist-
ur á sterkum rökum, þvi þeim
hafði fyrirfram verið skammtað
pláss i blaðinu sem var jafnmikið
og það sem vinstri menn fengu.
Þegar allt blaðið er tilbúið til
prentunar utan opnu þeirrar sem
Vöku var ætluð, koma þeir með
efni sem gerði meira en að fylla
út i siöurnar. Tjáði ritstjóri þeim
þá að þeir yrðu að stytta mál sitt
en þeir þvertóku fyrir það, og
kvaðst ritstjóri þá gera það sjálf-
ur sem hann og gerði. Einnig varð
hann að skera aftan af efni vinstri
manna þar sem það fór fram úr
tveim siðum. En úr þessu ætluðu
hægri menn að gera sér mikinn
mat.
Sýnir þetta mál ásamt fleiru að
hægri menn hafa ekki of sterkan
málstað fram að færa, heldur
hyggjast vinna kosningarnar á
alls kyns óhróðri um vinstri
meirihiutann i Stúdentaráði.
—ÞH
Tölusett og árituð eintök af nýrri
ijóðabók eftir Pétur Hafstein
Lárusson eru seld á myndlistar-
sýningu Jónasar Svafár og
Hrafns Helga i Breiðfirðingabúð.
Jónas Svafár sagði i viðtali við
blaðið i gær að sýningin hefði ver-
ið vel sótt, en hún er opin alla
daga frá kl. 16—18 næstu tvær
vikurnar.