Þjóðviljinn - 19.03.1974, Page 15
■8BB9BS
Þriðjudagur 19. marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
KOMDUIYIAMMA!
■BRENNDU
BRJÓSTA-
HALDAR-
ANUM!
eftr MÓSES DAVÍÐ
QCHJLPte/S OÆ U>D /f73
J*e+B CMITOOH
Tveir enskir bræður hafa sérhæft sig í smiði eftirlikinga af gömlum
bilum. Billinn hér að ofan er árgerð 1908 en vélin er af árgerð 1974 og
aðrir hlutir i drifi og hjólabúnaði nýir af inálinni. Bræðurnir hafa
seit þessa bíla fyrir meir en miljón doliara til viðskiptavina i
Bandarikjunum.
Umferðarlögreglan I Moskvu fær aukin verkefni með auknum bila-
fjölda i borginni. Nýlega fékk lögreglan þennan bil, sem hefur tæki
til skjótra og nákvæmra mælinga á stöðum þar sem óhöpp eiga sér
stað. (APN)
SÍÐAN
UMSJON: SJ
Trú
og
kynlíf
Komdu mamma, brenndu
brjóstahaldaranum, er fyrir-
sögn á bæklingi sem ,,Börn
Guðs” dreifa hér á strætum.
Þessi boðskapur kemur frá
aðalstöðvum félagsins i
London. Þarna kennir ýmissa
grasa, en boðskapurinn er ein-
faldur: Það er ekkert óguðlegt
við kynlif. Lok bæklingsins
hljóða svo:
30. Ekki er að furða þótt
hórurnar á dögum Jesú hafi
fljótar tekið á móti honum en
hinar stoltu, eigingjörnu,
kerfissinnuðu konur þessa
heims. Megi Guð leysa okkur
undan slikri gervi-hræsni.
Krakkarnir þurfa og vilja vita
um kynlifið og kynfærin sem
Guð hefur skapað og nytsemi
þeirra, sem Guð hefur gefið
þeim, en kerfið reynir að fela
þau og afneita þeim.
31. Ef þú heldur að eitthvað
sé rangt við kynlif og að þú
þurfir að skammast þin fyrir
likama þinn, þá hlýtur eitt-
hvað að vera rangt við Guð og
þú ættir að skammast þin fyrir
hann og okkur lika.
32. Við eigum kyntöfrandi
Guð og kyntöfrandi trúar-
brögð með mjög kyntöfrandi
leiðtoga og sérstaklega kyn-
töfrandi fylgjendum. Ef þér
geðjast ekki að kynlifi, væri
betra að þú færir i burtu
meðan þú getur enn haldið i
brjóstahaldarann. Hjálpræðið
frelsar okkur frá bölvun
klæðnaðarins og smán nektar-
innar. Við erum frjáls eins og
Adam og Eva i Garðinum,
áður en þau syndguðu. Ef þú
ert það ekki, þá ertu ekki
alveg frelsuð.
33. Megi Guð dæma hvern
einasta sjálfselskufullan
hræsnara, sem breiðir yfir
sannleika og fegurð sköpunar-
verks Guðs frá heilögum,
hreinlyndum börnum hans.
Þeim óflekkuðu eru allir hlutir
hreinir. En sá sem er saur-
ugur verði áfram saurugur.
Megi Guð leysa þig úr hræði-
legum fjötrum sem þessum.
34. Komdu mamma —
brenndu brjóstahaldaranum.
öðlastu frelsi i kvöld. Hale-
lúja. Með ástarkveðju MO
(stendur fyrir Móses Davið).
■bmi
r u -
— Nú er frúin hans Jóns byrjuð vorhreingerningar.
Atvinna
V eðurathugunarmenn
á Hveravöllum
Veöurstofa íslands óskar að ráða tvo ein-
staklinga, hjón eða einhleypinga, til veð-
urathugana á Hveravöllum á Kili. Starfs-
mennirnir verða ráðnir til ársdvalar, sem
væntanlega hefst snemma i ágústmánuði
1974. Umsækjendur þurfa að vera heilsu-
hraustir, og æskilegt er, að a.m.k. annar
þeirra kunni nokkur skil á meðferð diesel-
véla. Tekið skal fram, að starfið krefst
góðrar athyglisgáfu, nákvæmni og sam-
viskusemi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
heilsufar, menntun, fyrri störf og með-
mælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa bor-
ist Veðurstofunni fyrir 8. april n.k.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar í
áhaldadeild Veðurstofunnar, Bústaðavegi
!), Reykjavik.
Laus staða
i bæjarfógetaskrifstofunni i Kópavogi
Skrifstofustarf (bókhald) i bæjarfógeta-
skrifstofunni i Kópavogi er laust.
Upplýsingar veitir Helgi Guðmundsson
skrifstofustjóri. D 4. . ,
J Bæjarfogetinn 1 Kopavogi.
Seðlabanki íslands
Óskum að ráða vant skrifstofufólk til eft-
irtalinna starfa sem fyrst. Áskilin er
a.m.k. verslunarskólamenntun:
a. Endurskoðun, þ.m.t. yfirfcrð og útmerking á færslum,
reikningur á vélurn o.fl.
b. Gjaldeyriseftirlit. Aðstoð við bókhaid, skýrslugerð og
færslur ásamt vélritun og vinnu við reiknivélar.
e. Hagfræðideild. Vélritun, krafa um eitt erlent tungu-
mál, aðsloð við skýrslugerð, alntenn skrifstofustörf.
Talið við starfsmannastjóra, Björn
Tryggvason, III. hæð Landsbankahúsinu
við Austurstræti 11, kl. 9-10 f.h. (ekki i
síma).
Seðlabanki íslands
H0SNÆÐISMALASTOFNUN
rikisins mmm
Staða forstöðumanns
fyrir tæknideild
Húsnæðismálastofnunarinnar
Húsnæðismálastofnun ríkisins auglýsir lausa til
umsóknar stöðu forstöðumanns fyrir tæknideild
stofnunarinnar, sem stofnuð verður á næstunni.
Mun teiknistofa stof nunarinnar starfa innan
ramma deildarinnar, sem vinna mun m.a. alhliða
að gerð hústeikninga, einnig að gerð burðarþols-
hitalagna- vatns- og skolplagnateikninga svo og
raflagnateikninga. Auk þess fer fram á vegum
deildarinnar áætlunargerð vegna íbúðabygginga,
eftirlit með byggingaframkvæmdum og leiðbein-
ingastarfsemi. Þá er einnig gert ráð fyrir því, að
þróunar- könnunar- og fræðslustarfsemi fari að
nokkru fram á hennar vegum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur fram-
kvæmdastjóri stofnunarinnar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist stofnuninni í ábyrgðarpósti fyrir 16. apríl
nk.
Reykjavík, 18. marz 1974,
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SIMI22453