Þjóðviljinn - 20.03.1974, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. marz 1974.
Margar breytingartillögur menntamálanefndar við grunnskólafrumvarpið:
Hverfanefndir í Reykjavík
þingsjá
Komnar eru fram á alþingi
breytingartillögur og álit
menntamálanefndar neðri dcild-
ar við grunnskólafrumvarpið.
Mun nefndarálitið verða tekið
íyrir i lok vikunnar að því er
Þjóðviijinn fregnaði i sölum al-
þingis í gær.
Breytingartillögur mennta-
rnálanefndar eru alls 44 talsins,
margar að visu smávægilegar.
Nefndarmenn hafa óbundnar
hendur um að flytja eða fylgja
öðrum breytingartillögum og
nafa einnig óbundnar hendur
og stærri bæjum
gagnvart þeim tillögum sem frá
nefndinni sjálfri koma.
Formaður og framsögumaður
menntamálanefndar neðri deild-
ar er Hannibal Valdimarsson, en
fundarskrifari er fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins i nefndinni Svava
Jakobsdóttir.
Hér verður sagt frá nokkrum
breytingartillagnanna.
Gert er ráð fyrir að i fræðslu-
ráðum verði sjö menn, fimm
skipaðir af viðkomandi lands-
hlutasamtökum en einn frá sam-
tökum skólastjóra og einn frá
samtökum kennara. Áður var
gert ráð fyrir að landshlutasam-
tökin kysu alla fulltrúana i
fræðsluráð.
Gert er ráð fyrir að borgar-
stjórn fari með hlutverk lands-
hlutasamtaka fyrir Reykjavik
samkvæmt grunnskólalögunum.
Annars er að finna i breytingar-
tillögum nefndarinnar tillögu sem
snertir Reykjavik sérstaklega. í
henni segir að i kaupstöðum með
fleiri en 10000 ibúa fari fræðsluráð
og hverfisnefndir með hlutverk
skólanefndar. Viðkomandi bæjar-
eða borgarstjórn skipti kaup-
staðnum i hverfi i samráði við
fræðsluráð. I hverju hverfi verði
hverfisnefnd skipuð 5 mönnum.
Hverfisnefnd verði kosin til fjög-
urra ára i senn af viðkomandi
bæjar-eða borgarstjórn. Verkefni
hverfisnefnda verði þau sömu og
verkefni skólanefnda. ■
Þá felst merkilegt nýmæli i 17.
breytingartillögu nefndarinnar b-
lið. Þar segir að við gerð skóla-
húsnæðis skuli séð fyrir aðstöðu
fyrir nemendur til náms utan
kennslustunda og til að neyta
VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS 1974
VtgatJÓO* og w g«IIO út Mmkvamt htimlld i IjérlOgum fyrlr érlO 1974,
»br. lOg um (kattalaga maOtarO varObréla o. II.. aam rlkl»a|60ur ^alur Innanlanda, Iré mara
1974, um IjérOllun tll vaga- og brúaoarOa é SkalOarérMndl, ar opnl hrlngvag um landlO.
RlklaajOOur ar akuldugur handhafa ' .. ..............
Riklaal&Our andurgralðtr akuldlna maO
varObótum I hlutlalll vlO þé h*kkun, ar
kann aO varOa é lénatlmanum é þalrrl vlal-
101 u IramlaaralukoatnaOar, ar ralknuO ar
' 20. mara 1974 Ul gjalddaga bréfa þaaaa 20.
mara 1994. MlflaO ar vlO akrénlngu Hagatohi
lalanda é vlaltfllu hamlaaralukoalnaOar.
las.
I.... VERÐTRYGGT Éfc--:..: "
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS 1974
Skuldabrét þatta ar hiuU tvfl hundruO og flmmtlu h.......
VagaajóOa og ar gallO út Mmkvaml halrrv
abr. lOg um akattalaga maOlarO varObréla o. II.. aam riklaa|60ur aalur Innanlanda, hé r
" * "arérMndl, ar opnl hrlngvag ur ‘
1974, um IjérOllun Ul vaga- og brúagarSa é SÍialOarérMndl,
RlklaajOOur ar akuldugur handhata þaaM akuldabréfa
VERÐTKYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS 1974
Skuldabrél þatta ar hluU tvO hundruO og Hmmtlu mllljOn króna akuldabrélaléna rlklaajófla vagna
VagaajóOa og ar gallfl út Mmkvamt halmlld I Ijérlógum fyrlr érlO 1974,
SmaOtarfl varObréla o. II., aam rlklaa|ÓOur aalur Innanlanda, fré mara
vaga- og brúagarOa é SkalOarérMndl, ar opnl hrlngvag um landlO.
la þaaM akuldabréla um tvO þúaund krónur.
Okuldabréf þatta tymlat é 10 érum Iré
gjalddaga og varOur akkl Innlayat afl
SKULDABREF,
RklaajóOur andurgralOtr akuldlna mafl
varObótum I hlutfalll vtO þé haakkun, ar
kann aO varfla é lénatlmanum é þalrrl vlal-
tölu IramfaaralukoatnaOar, ar ralknuO ar
a 1974 tll gjalddaga bréfa þaaM 20.
. _ra1994. MlOaOarvlO akrénlngu Hagatofu
falanda é vlaltOlu framfaralukoal
Bréfin
brúa
® H ®
DIIIO
Framkvæmdir við vega- og brúagerð
á Skeiðarársandi vegna hringveg-
arins hafa gengið samkværrit áætl-
un. Þessar framkvæmdír eru fjár-
magnaðar með fé, sem inn kemur
fyrir happdrættisskuldabréf ríkis-
sjóðs.
Nú er unnið að gerð varnargarða og
brúar yfir Skeiðará, sem imun verða
lengsta brú landsins, 900 metra
löng.
Beggja vegna Skeiðarár hefur lengi
verið beðið eftir þeirri brú, sem nú
er að verða að veruleika.
Enn vantar nokkuð á, að bilið sé
brúað, þess vegna eru nú til sölu
hjá bönkum og sparisjóðum um land
allt verðtryggð happdrættisskulda-
bréf ríkissjóðs, þau kosta 2000
krónur.
Brúum bilið.
) SEÐLABANKI ISLANDS
málsverðar. t frumvarpinu sjálfu
er aðeins um það talað að „stefnt
skuli að” þvi að þessi aðstaða sé
fyrir hendi.
Nokkrar breytingartillögur
snerta námstima á ári hverju. Þá
er breytingartillaga frá nefndinni
þarsem sérstaklega er fjallað um
þátttöku nemenda i atvinnulifinu.
Þar segir:
„Þar sem nemendur eru þátttak-
endur i atvinnulifinu um tak-
markaðan tima á skólaárinu, skal
heimilt að meta það að nokkru til
jafns við verklegt nám. Fræðslu-
ráð skal i samráði við launþega
og atvinnurekendasamtök og
hlutaðeigandi skólastjórn skipu-
leggja atvinnuþátttöku nemenda,
þar sem slikrar skipulagningar er
þörf, og skal það metið að nokkru
sem verklegt nám”.
Þá er um að ræða athyglisverða
breytingartillögu frá nefndinni
um starfstima nemenda. Þar er
kveðið á um að námstimi i heild,
— samanlagt skólanám og sjálfs-
nám — skuli ekki fara yfir 40
stundir á viku og að kennurum
verði lögð sú skylda á herðar að
samræma kennslu sina þannig að
ekki geti allir kennarar krafist
itrasta vinnuálags af nemendum
á sama tima.
í breytingartillögum nefndar-
innar er og lagt til að yfirleitt
verði miðað við möguleika til
hópakennslu, en ekki verði bundið
við bekki eins eindregið og gert er
i frumvarpinu.
I frumvarpinu var meðal ann-
ars gert ráð fyrir þvi að i spjald-
skrá um skólaferil nemandans
væri bókað um viðhorf hans til
skólans! Nefndin leggur til að
þetta verði fellt niður.
Nefndin gerir það að tillögu
sinni að ekki verði gert ráð fyrir
svokölluðum „skólaráðgjöfum”
heldur aðeins félagsráögjöfum og
sálfræðingum. Þá flytur nefndin
aðrar breytingartillögur er varða
verkaskipan sérfræðinga skól-
anna.
Nefndin leggur til að nánar
verði kveðið á um það hvaða gögn
verði tiltæk á skólasöfnum.
Þess skal loks getið að nefndin
leggur til að svonefnt „grunn-
skólaráð” verði fellt niður, en i
frumvarpinu var gert ráð fyrir að
til væri fjölmenn stofnun með þvi
nafni, sem kæmi saman einu sinni
til tvisvar á ári.
Þá skal þess að siðustu getið að
i tillögum nefndarinnar er gert
ráð fyrir þvi að auk umburðar-
lyndis og fleiri grundvallar-
dyggða skuli grunnskólinn byggj-
ast á kritilegu siðferði.
Njósnum
ekki i
Finnlandi5
segir
Palme
STOKKHÓLMI 18/3 — Olof
Palme forsætisráðherra Sviþjóð-
ar hefur neitað þvi, að sænska
flugfélagið Crownair, sem er i
rikiseign, hafi stundað njósnir
með ólöglegum myndatökum úr
lofti yfir Finnlandi.
Kekkonen Finnlandsforseti
mun hafa skýrt frá grunsemdum
Finna i þessu máli á fundi með
Palme i gær. Palme neitaði þvi
einnig, að njósnastofnunin
sænska, IB, hafi grafið niður
senditæki i Salla. Hann sagði að
IB, sem hefur verið mjög á dag-
skrá i Sviþjóð vegna uppljóstrana
róttækra blaðamanna um
misferli hennar, hafi ekki komið
nálægt Finnlandi, nema hvað bát-
ur frá IB, sem lagði stund á út-
varpshleranir á Finnskaflóa, leit-
aði einu sinni hafnar i Finnlandi.