Þjóðviljinn - 20.03.1974, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 20. marz 1974.
GAG N FRÆÐASKÓLIN N
Húsnæöi af
skornum
skammti
Krakkarnir I Gaggó eru brosmildir þar sem þeir snæöa nesti sitt I samkomusalnum. Salurinn er reynd-
ar einnig eknnslustofa. Óneitanlega er nokkuö þröngt um hálft fimmta hundrað nemenda á matartima.
Gagnfræðaskóli Garða-
hrepps er örtvaxandi skóli.
Nú eru nemendur i skólan-
um um það bil 450, en árleg
fjölgun er i kringum 50
nemendur. Skólinn hefur
alla tíð verið í leiguhús-
næði, en teikningar af nýju
skólahúsi eru tilbúnar og
er vonast til að fram-
kvæmdir við það hefjist
sem fyrst.
Gunnlaugur Sigurðsson
hefur verið skólastjóri
gagnfræðaskólans allt frá
upphafi. í hópi skóla-
manna er hann þekktur
fyrir að hafa bryddað upp
á ýmsum nýjungum í
skólastarfi í Garðahreppi.
Við höfum því fullan hug á
að kynna okkur starf skól-
ans nú, og höfðum tal af
Gunnlaugi.
— bað er nokkuð þröngt um ykk-
ur hérna, Gunnlaugur.
— Já, en vonandi stendur það til
bóta. I Garðahreppi er án efa
hæsta hlutfall skólaskyldra barna
og unglinga miðað við ibúatölu.
Arleg fjölgun i skólanum er
einnig gifurlega mikil miðuð við
stærð skólans, um það bil 40 til 60
nemendur á ári. Húsnæði hefur
engan veginn aukist i takt við
fjölgun nemenda, og þrengslin
eru þvi orðin geigvænleg. En fjöl-
mennir skólar krefjast ekki ein-
vörðungu mikils húsnæðis.
Stjórnunarþáttur skólastarfsins
þarf að vaxa i réttu hlutfalli við
nemendafjöldann og jafnvel örar.
— Er skólinn hjá ykkur ein-
setinn?
— Ja, það er nú það. Hér er
kennt i öllum stofum frá þvi
snemma á morgnana fram til
klukkan fjögur eða fimm á dag-
inn, svo að um raunverulega ein-
setningu er að ræða.
Stundatafla nemenda vill verða
nokkuð götótt, þó að mikið hafi
breyst i þeim efnum nú frá þvi
sem var i haust. Hreppurinn hef-
STALVIK hf.
GARÐAHREPPI. — SÍMI: 51900
BRAUTRYÐJENDUR
í SMÍÐI SKUTTOGARA
Á ÍSLANDI.
ur gert leigusamning við eig-
endur hússins að Lyngási 12, og
þar áttu þrjár kennslustofur að
vera tilbúnar i haust er leið. En
húsnæðið var ekki tilbúið fyrr en
eftir áramót. Þessi dráttur hafði
þau áhrif á skólastarfið, að fram
til jóla voru að jafnaði þrir bekkir
i frii hverja kennslustund.
— En nú hafið þið nóg húsnæði
eða hvað?
— Við fullnýtum það húsnæði,
sem fyrir hendi er. Við kennum i
samkomusal skólans um það bil
20tima á viku, en þennan sal not-
um við lika sem matstofu nem-
enda. Lesstofa, sem er hér i
tengslum við hreppsbókasafnið,
er einnig nýtt til kennslu. A göng-
um höfum við komið fyrir skáp-
um og geymslum, svo að hér er
starfað i hverri rá.
— Þið hafið löngum haldið uppi
starfi utan við þrengsta ramma
fræðslulaganna, hvað viðkemur
bæði kennslu og félagslifi. Verðið
þið ekki að lækka seglin nú vegna
þrengsla?
— Rúmt húsnæði er auðvitað
skilyrði fyrir almennri flokka-
kennslu og hópvinnu, en einnig er
nauðsyntegt að hafa nóg af sér-
menntuðu starfsliði. Það er mikill
skortur á sérmenntuðum hjálpar-
og stuðningskennurum. Eg er
mjög ánægður með starfsemi
bókasafnsins hér, þvi að það
ásamt með lesstofu gerir okkur
kleift að beita mjög æskilegum
vinnubrögðum . En sem sagt, okk-
ur skortir sérþjálfað fólk, og
vissulega kreppir nú að með hús-
næðið. Við reynum að miða
starf okkar nokkuð við að flytja i
nýja byggingu innan tiðar, t.d.
með þvi að hafa sérstaka mat-
stofu, sem reyndar er einnig
kennslustofa og samkomusalur.
Samkvæmt áætlun verður fyrsti
áfangi nýja skólans tekinn i not-
kun haustið 1976, og við bindum
allar vonir okkar við að sú áætlun
standist.
Verslunin
Garðaborg
Snyrtivörur, ilmvötn, steinkvötn,
hreinlætisvörur, gjafavörur, barnafatnað-
ur, gallabuxur, sokkar og sokkabuxur,
sundföt, garn og lopi, leikföng o.fl.
Verslunin Garðaborg
Garðaflöt 16-18 Garðahreppi
— Verður nýi skólinn þá nógu
stór?
— Byggingin er hönnuð sem 600
Framhald á bls. 13
Þorgeir Sigurðsson trésmiður er
formaður Alþýðubandaiagsins I
Garðahreppi. Hann vinnur ásamt
sonum sinum á litlu vcrkstæði að
heimili sinu Goðatúni 14. Þorgeir
sagði, að vissir örðugleikar væru
á kröftugu félagsstarfi i hreppn-
um. Straumur aðkomufólks væri
mikill og félagsleg tengsl kæmust
ekki á fyrr en fólk hefði búið
nokkurn tirna saman i sveitarfé-
lagi. Hann var bjartsýnn á úrslit
væntanlegra s veitarstjórnar-
kosninga. Alþýðubandaiagið á nú
cinn af fimm mönnum i sveitar-
stjórn.