Þjóðviljinn - 20.03.1974, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. marz 1974.
STÁLVÍK Og
spænska veikin
Stálvík er stærsti vinnu-
staður í Garðahreppi fyrir
utan skólana. Nú vinna þar
um 70 manns að smíði
skuttogara fyrir Guðmund
Runólfsson og syni hans
sjö í Grundarfirði. Togari
þessi er systurskip Stál-
víkur Sl-l, sem Þormóður
rammi fékk afhentan síð-
astliðið haust.
Að undanförnu hefur það
stundum heyrst, að skut-
togarinn Stálvik hafi tekið
„spænsku veikina". Við
höfðum samband við Jón
Sveinsson forstjóra Stál-
víkurog inntum hann eftir,
hvað hæft væri í þessum
orðrómi og eins hvernig
smíði nýja togarans gengi.
Jón sagði, að smiði nýja togar-
ans gengi i stórum dráttum sam-
kvæmt áætlun, ailt væri innan
ramma samninganna. Hér væri
um að ræða systurskip Stálvikur
SI-1, breytingar væru ekki veru-
legar frá smiði hennar, nema
hvað slægingarvél yrði á þilfari
og aðalvinda enn sterkari.
Við spurðum Jón, hvort rétt
væri, að Stálvik hefði smitast af
spænsku veikinni.
Hann sagði að þvi færi fjarri og
kvaðst furða sig á þeim fréttum,
sem sum blöð hefðu birt þar að
lútandi. Engin kvörtun hefði bor-
ist frá eigendum né tryggingarfé-
lagi varðandi smiðina eða tækja-
val, sem er reyndar útgerðar-
mannanna að mestu. Jón sagðist
gjarnan vilja rekja sögu skipsins i
stórum dráttum. Þá gætu menn
best séð, af hverju bilanir hefðu
stafað og að enginn samanburður
við spænsku togarana kæmi til
greina.
Togarinn var afhentur eigend-
um 15. september 1973. Þann 17.
sept. eru vistir og búnaður settur
um borð á Siglufirði og daginn
eftir heldur togarinn beint á veið-
ar. Siðan má segja að hann sé lát-
laust á veiðum fram til 17. nóv-
ember.
Þá gerist það, að Stálvik setur
vörpuna i gamalt skipsflak á
sjávarbotni, og þegar hift er,
fylgir henni drasl úr flakinu. Það
veldur þvi, að varpan fer i skrúf-
una, og er þá skipið dregið til ísa-
fjarðar. Þar var fenginn kafari til
að losa um skrúfuna, en hann
varð að hætta störfum vegna
veikinda. Samkvæmt frásögn
hans voru pokinn, járn og tré-
stykki reyrð i einn hnút um skrúf-
una. Átti þá að fara með togar-
ann i slipp til Akureyrar, en
slæmt veður kom i veg fyrir þá
ætlan. Var þá björgunarskipið
Goðinn fengið frá Reykjavik til
ísafjarðar og tók fjóra daga að ná
ágæt-
Stálvik SI-1 sjósett siðastliðið haust. Skipið reyndist I alla staði ;
lega þar til það fékk trollið og drasl úr gömlu skipsflaki i skrúfuna.
rð-
panar-&
togara
kemur til
greina,
segir
forstjóri
Stálvíkur
h.f.
svarfi út i smuroliukerfi vélarinn-
ar innan við allar siur. Svarfið
skemmir smátt og smatt út frá
sér tennur, legur o.fl.
3. Skipið verður hvað eftir ann-
að stopp vegna þessara
skemmda, sem allar hafa verið
raktar til slyssins 17. nóvember.
4. Engin kvörtun né ásökun
varðandi þessár bilanir hefir bor-
istStálvik hf. frá eigendum skips-
ins, tryggingarfélagi né vélar-
framleiðanda.
5. Staðfesting liggur fyrir frá
vélarframleiðanda og Norska
Veritas um að vel hafi verið geng-
ið frá vélinni i skipið af hendi
Stálvikur hf.
Þegar Jón var spurður, hvort
ekki hefði komið i ljós bilun eða
litið notagildi einangrunar, likt og
i Spánartogurunum, sagði hann:
Misvisandi frásagnir um frost-
sprungin rör og lélega einangrun
skipsins er annað atriði.
Ekkert rör i skipinu hefur
Framhald á bls. 18
ELEKTRA
NETASPIL FÆRAVINDUR
Útihurðir — gluggar — innréttingar
Öndvegi h.f.
Trésmiðjan Lyngási 8, Garðahreppi,
sími 51690.
trollinu og draslinu úr skrúfunni.
Jón sagðist vilja geta þess,að
hvorki útgerðin né tryggingarfé-
lagið höfðu samband við hann, er
þessir atburðir gerðust.
Nú gerist það næst, að veiði-
túrnum er haldið áfram i eina niu
daga og siðan landað i heimahöfn.
og virðist það hald manna, að
allt sé I lagi með skipið.
En eftir þanntúr géngur ekki á
öðru en látlausum bilunum i vél
og skrúfu. Sérfræðingar frá véla-
framleiðanda fullyrða, að þær
bilanir hafi stafað af svarfi, sem
barst frá skiptibúnaði i skrúfu og
barst inn i smurgang sjálfrar vél-
arinnar vegna yfirálags á skrúfu-
blöð.
Eftirfarandi aðalatriði i þessu
máli vildi Jón að kæmu fram:
1. Skrúfubúnaður varð fyrir
slysi, og skemmist án þess að
menn geri sér grein fyrir þvi.
2. Litil skemmd,i fyrstu kemur
SÁPU6ÍH8IN
FRI60
Sápugerðin Frigg I Garðahreppi
er stærsti innlendi framleiðandi
þvottaefnis. Margar konur I
hreppnum starfa hjá Frigg ýmist
hálfan eða allan daginn.
Hefi hafið framleiðslu á vökvadrifnum
netaspilum og færavindum. Hringið.
ELLIÐI NORÐDAHL GUÐJÓNSSON
Pósthólf 124, GarðahreRpi.
Simar 4 27 96 og 4 28 33
Hér er unnið að smiði systurskips skuttogarans Stálvlkur SI-1. Verkið
gengur samkvæmt áætlun.