Þjóðviljinn - 20.03.1974, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 20. marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Kostur og löstur
á tónlistarhnupli
rramfarir i gero segul-
bandstækja hafa m.a. haft i
för með sér tónlistarhnupl i
mjög rikulegum mæli.
Um allar trissur er verið aö
lauma litlum segulbandstækj-
um inn i hljómleikasali og
siðan gert afþrykk af upptök-
unum og þær seldar. Þessi
framleiðsla er að sjálfsögðu
ódýr þvi ekki þarf að greiða
neitt til hinna dýru hljóm-
sveita eða til heimsfrægra
söngvara.
Listafólkið og framleið-
endur hljómplatna eru tiltölu-
lega varnarlaus gagnvart
þessum ..sjóránum”. En á hitt
má benda, að hnuplararnir
hafa að ýmsu leyti jákvæöu
menningarhluthverki aö
Slæmt ár fyrir
Frá Hongkong berast þær
fróttir, að siðastliöiö ár hafi
verið slæmt ár fyrir
eiturlyfjasmyglara i Sauð-
austur-Asiu.
Alls tókst yfirvöldum að
komast yfir um 25 tonn af ópi-
um. Barátta gegn eiturlyfja-
verslun á þessu svæöi hefur
oröið að miklum mun auö-
veldari eftir aö Thailand féllst
gegna. Jafnvel heimstrægir
söngvarar og pianistar flytja
ekki nema hluta af þvi, sem
þeir túlka, á plötur. Og þó
ekkert sé til sparað aö gera
hljómplötur sem best úr garöi
þá er liklegt, aö best frammi-
staöa listamanna verði ekki til
i hinum kaldranalega tækni-
heimi upptökustúdiós heldur i
hita bardagans — m.ö.o. and-
spænis áheyrendaskara sem
hefur sin mannlegu ,,móttöku-
skilyrði” i besta lagi. Hér
koma hnuplararnir til sögu
sem skrá feril listamannanna
á góðum stundum og vondum,
bjarga yfir til framtiðarinnar
miklu meira og fjölbreyttara
tónlistarefni en hinn dýrseldi
plötuiðnaður.
eiturlyfjasmygl
á að taka þátt i alþjóðlegu
samstarfi um þetta mál. En i
Thailandi var ópiumrækt
mikil i höndum leyfa hers
Sjang Kæsjeks, sem haföi
hörfað til Burma og Thailands
■ eftir ósigurinn fyrir Maó.
t Honkong sjálfri geröi lög-
regian upptæk um 600 kg af
ópium i fyrra.
Leiöast börnum
leikföng?
þeirra sem
sérstakar
Leiðinlegt: talandi brúðan kann sex setningar. örfandi: best er
að búa eitthvað til úr tilfallandi hráefni.
Það er ekki að efa að leik-
fangaframleiðendur leita ráða
hjá sérfræðingum, til að
mynda sálfræðingum. En svo
virðist scm þessi þekking sé
fyrst og fremst notuð til að
koinast að þvf, hvað það er
sem foreldrar halda að börnin
vilji. Kæstum dettur i hug að
spyrja börnin sjálf.
Eða sú varð niðurstaðan
þegar um tveir tugir barna
fengu að skoða og prófa 30
nýjar tegundir leikfanga sem
fram komu á leikfangavöru-
sýningu i Miínchen. Þau töldu
aöeins eitt leikfang ,,gott” —
og var það kubbakerfi. Meö
þeim fyrirvara þó, aö þaö væri
bara fyrir einn, byði ekki upp
á að mörg börn léku sér
saman.
Nálægur þessa prófun var
dr. Georg Schottmeyer, sem
er sérfræðingur i leikföngum.
Hann var ekkert hissa á út-
komunni. Leikfangaiðnaður-
inn hagar sér eftir þörfum og
smekk foreldranna, ekki
barnanna. Og þau vilja i
fyrsta lagi að börnin hafi allt i
röö og reglu og i öðru lagi aö
leikföngið hjálpi þeim til að
„verða eitthvaö” hvort sem er
„litil húsmóðir” eða „litill
visindamaður ” .
Og barnaherbergin lita oftar
en ekki út eins og litil leik-
fangaverslun, þar sem dýr en
af mörgum ástæðum
óskemmtilegur varningur
hleðst upp. Glæsigripirnir frá
siðustu jólum eru ónýtir orðnir
eða þá það er varla snert á
þeim. Flest leikföng endast
illa. Þau koma i stórfeng-
legum umbúðum sem vekja
vonbrigði þegar innihaldið
kemur i ljós. Þrátt fyrir
margra ára umtal og áróður
uppeldisfræðinga, rauðsokka
og fleiri, er haldið áfram
skiptingu i stráka- og stelpu-
leikföng. Þar fyrir utan er
hugmyndaflugiö ótrúlega litið
hjá leikfangaframleiðendum.
Helstu afrek þeirra eru fólgin i
þvi að tæknibrellum er
fjölgað: talandi dúkkan segir i
ár sex setningar, en fjórar i
fyrra.
Athugun sú, sem áður var
nefnd og allmargir stúdentar
tóku þátt i, beindist einnig að
þvi, að hverju börn vildu helst
leika sér. Niðurstaöan var
bæði gömul og ný: helst aö
hlutum sem ekki eru tilbúin
leikföng; allra best gengur,
þegar heill hópur getur ráðist i
að búa eitthvað til i sam-
einingu úr pappakössum,
spýtum, virum og þar fram
eftir götum.
19.
SÍÐAN
UMSJÓN: ÁB
Fríður
utanríkis-
ráðherra
Elisabet af Toro heitir þessi
friða kona og hefur það sér til
frægðar að vera i senn prins-
essa og utanrikisráðherra
hjá Idi Amin i Uganda. Hún er
lögfræðingur og hefur verið
bæði leikkona og sýningar-
dama og fulltrúi lands sins hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Idi Amin, sem ekki hefur
neitt framúrskarandi orð á
,sér, að ekki sé meira sagt,
skipaði Elisabet ráðherra eftir
að Ondoga, fyrrum utanrikis-
ráðherra, fannst dauöur i Nil.
Auglýsing
um notkun heimildar i 60. tl. 3. gr.
laga nr. 6/1974 um tollskrá o.fl.
lláðuneytið tilkynnir hér með þeim aðilum.sem hlut eiga
að máli, að það hefur ákveðið, skv. heimild i 60. tl. 3 gr.
laga nr. 6/1974 um tollskrá o.fl., að af vélum og hráefnum
til iðnaðar, tollafgreiddum á timabilinu 1. janúar til 5.
mars 1974, skuli endurgreiða eða fella niður gjaldamun
eins og hann reiknast vera af vörum þessum annars vegar
skv. eldri tollskrárlögum nr. 1/1970 og hins vegar skv. ný-
settum tollskrárlögum nr. 6/1974.
Endurgreiðslubeiðnir skulu sendar ráðuneytinu i skrif-
legu erindi óg hafa borist eigi siðar en 15. april 1974. Að-
eins verðurum niðurfellingu eða endurgreiðslu gjaldmun-
ar að ræða til fyrirtækja, sem leggja stund á framleiðslu
iðnaðarvara.
Endurgreiðslubeiðnir iðnfyrirtækis skulu studdar eftir-
farandi gögnum:
1. Frumriti tollreiknings (ekki ljósriti), ásamt vörureikn-
ingi (faktúru).
2. Utreikningi aðflutningsgjalda á viðkomandi vörum,
samkvæmt lögum um toilskrá o.fl. nr. 6/1974, er gerður
sé á venjulegri aðflutningsskýrslu. Sal skýrslan fyllt út
eins og fyrri skýrsla, að öðru leyti en þvi, að reikna skal
út gjöld með hinum breytta tolli.
1 erindinu skal tilgreina sérstaklega útreiknaðan gjalda-
mun skv. lögum nr. 6/1974 og lögum nr. 1/1970 um tollskrá
o.fl. Jafnframt skal i erindinu vera yfirlýsing endur-
greiðslubeiðanda um, að hann stundi iðnrekstur og að við-
komandi vörur séu eingöngu ætlaðar til framleiðslu
iðnaðarvara.
Nú hefur innflytjandi iðnaðarhráefni eða iðnaðarvél I
birgðum hinn 15. april 1974, sem tollafgreidd hafa verið á
timabilinu 1. janúar til 5. mars 1974, og skal þá heimilt að
endurgreiða gjaldamun af fyrrgreindum vörum, enda hafi
sala þeirra innanlands til nota við framleiðslu iðnaðar-
varaáttsér stað fyrir 15. maink. Iðnfyrirtæki eða iðnrek-
andi, sem keypt hefur vöruna, skal þó sækja um endur-
greiðsluna, sbr. framanritað.
Endurgreiðslubeiðnir, sem berast ráðuneytinu eftir 1. júni
1974, verða ekki teknar til greina.
Fjármálaráðherra skipar 3 menn, þar af einn eftir til-
nefningu Félags isl. iðnrekenda,til að fjalla um endur-
greiðsluhæfi endurgreiðslubeiðna. Úrskurður þeirra er
fullnaðarúrskurður i hverju þvi máli, sem fjallað verður
um skv. ákvæðum auglýsingar þessarar.
Fjármálaráðuneytið
19. mars 1974.
Orðsending frá
Hótel Húsavík
Getum enn tekið að okkur fundi og ráð-
stefnur. Nokkrir dagar lausir fyrri partinn
i júni, einnig i april og mai.
Kynnið ykkur okkar glæsilegu aðstöðu.
Hringið i sima 96-41220.
Hótel Húsavik býður ykkur velkomin.
Hótel Húsavik
Fyrirlestur um
Norðurlandamenntun
á sviði leikhúss og fjölmiðia
i Norræna húsinu fimmtudaginn 21. mars
kl. 20:30.
líertil Lauritzen forstjóri frá Dramatiska institutet i
Stokkhólmi flytur fyrirlestur um þá menntun, sem hægt er
að fá á Norðurlöndunum til að starfa við leikhús, útvarp,
kvikmyndir og sjónvarp.
Verið velkomin. Norræna húsið.
NORRÆNA
HÚSIÐ