Þjóðviljinn - 21.05.1974, Síða 2
2 stÐA ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. mai 1974.
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
KENJAR
Mál: Guðbergur Bergsson
44.
Fint tvinna þœr
„Þær spinna svo fina þræði, að sjálf-
ur fjandinn gæti ekki fellt vef þeirra,”
er skýring P-handritsins á kopar-
stungunni.
Að baki blindu nornarinnar hangir
kippa útburðanna, en smábörn og fóst-
ur þeirra ógæfusömu kvenna, sem við
höfum fylgst með á fyrri myndum,
voru oft notuð við galdur. Besta rit um
iðkun galdra á Spáni, eða galdurs yfir-
leitt, er bók Caro Baroja, og visa ég til
hennar, Las brujas y su mundo.
Þegar hingað er komið verða kopar-
stungurnar ófreskari en áður. Goya
hverfur dýpra og lengra inn á svæsin
svið martraðarinnar. Hugarburður
hans verður hreinni. Ofsinn færist i
aukana. Afskræmingin verður stór-
kostlegri og óbundnari af kennisetn-
ingum. A eftir þessari mynd birtist
maðurinn varla lengur sem vera með
mennsku yfirbragði. Skynsemi hans
hefur sofnað og vakið ófreskjurnar.
Það er einróma álit og tóm tugga
fræðimanna, sem hafa fjallað um
Kenjar Goya, að i myndaflokki hans sé
hvergi að finna neina stigandi. Sú at-
hugun er einungis rétt, þegar verkið er
rannsakað frá sjónarmiði rikjandi'
skoðunar og skilnings á, hvað sé rétt
eðli sigildrar mögnunar. Sé litið á
myndaflokkinn einungis frá sjónarhóli
hans sjálfs, og engum öðrum, finnst i
honum vaxandi áhersla, sem hófst
með mynd númer 43, og endar á háu
öskri i lokin: .
„Stundin er upp runnin!”
Ópið minnir óneitanlega á spurning-
una: „Vituð ér enn — eða hvat?”
011 list og galdur eiga eitthvað sam-
eiginlegt.
STERK ÓLYMPÍUSVEIT
Næstu ólympiuleikar i skák
fara fram i Nice, Frakklandi,
dagana 6r30. júni næstkomandi.
Astæðan fyrir þvi að leikarnir
fara fram i Frakklandi að þessu
sinni er sú að Alþjóðaskáksam-
bandið F.I.D.E. var stofnaö fyrir
50 árum i Paris og er þvi verið að
heiðra Frakka með þvi að halda
mótið i Frakklandi að þessu sinni.
Þegar hafa yfir 70 þjóðir tilkynnt
þátttöku, sem er nýtt met. íslend-
ingar senda að sjálfsögðu sveit i
keppnina og er mikið gleðiefni að
sú sveit sem við sendum getur
varla orðið mikið sterkari. Þeir
sem skipa sveitina eru eftirtald-
ir: Friðrik Ólafsson stórmeistari,
Guðmundur Sigurjónsson alþjóð-
legur meistari, Ingi R. Jóhanns-
son alþjóðlegur meistari, Jón
Kristinsson, sem náði hálfum
alþjóðl. titli á síðasta ólympíu-
móti, Ingvar Asmundsson, gömul
kempa sem alltaf er hægt að
treysta á, og Björgvin Viglunds-
son sem hefur náð eftirtektar-
verðum árangri að undanförnu.
Eins og gefur að skilja er til mik-
illa afreka vænst af þessari friðu
sveit. Þessa dagana fer fram
sveitakeppni í húsakynnum T.R.
til þess að ólympiufararnir geti
sem best undirbúið sig fyrir átök-
in. I þeirri keppni tefldi Ingi R.
þessa skemmtilegu skák:
Hvítt: Siguröur Herlufsen
Svart: Ingi R. Jóhannsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Rf3 e6
3. g3
(Venjulega er leikið hér d4 eöa
d3> Rc6
4. Bg2 g6
Sævar
Bjarnason
skrifar
um skák
Friðrik ólafsson Guðmundur Sigurjónsson
5.0-0 Bg7 (þessi leikur er of hægfara; betri
6. c3 e5 áætlun virðist a3 vera með það i
(Ingi vill ekki leyfa d4) huga að ráðast að svörtu peðun-
7. Hel Rge7 um með b4)
8.d3 0-0 Befi
9. BeS d6 12. C4 Dd7
10. Rbd2 h6 13. Kh2 f5
11. H3 (nú sést glögglega hversu hvitur
hefur veikt stöðu sina, nú hótar
svartur að vinna mann með f4.)
14. exf5 gxf5
15. Rfl Rg6
16. Dcl f4
17. Bd2 Bf5
( hvita staðan versnar og versnar
og allt morar i veikleikum.)
18. Dc2 Hf6
(undirbýr tvöföldun og lokkar
hvitan til að leika g4)
19. g4 Bxg4!
(þessi fórn grundvallast á hversu
hvitu mennirnir vinna illa sam-
an)
20. hxg4 Dxg4
21. Bc3 Rh4!
(týnir af hvitu varnarmennina)
22. Rxh4 Dxh4+
23. Bh3 hg6
24. De2 f3!
25. Dxf3 Hf8
26. Dd5+ Kh8
27. He2 Rd4!
(rothöggið; nú standa öll spjót á
hvitum)
. Bxd4
. f4
. Khl
. Hh2
. De4
ótar máti með Hgl)
exd4!
Dxf4+
Dh4
Be5
Hfg8!
Hg4!
. Rd2
. Dxe5+
vitur gripur nú til örþrifaráða)
dxe5
Dxg4
Bxg4
.Hxh6+
• Hgl
. Hxg4
Re4
, dxe4
Kg7
Kxh6
Hxg4
Hxe4!
d3
gefið.
Snaggaralega teflt hjá Inga.
Sævar Bjarnason.
Mikill
sigur
Þjóð-
frelsis”
fylkingar
S-Víetn.
SAIGON 17/5 — Hersveitir Þjóð-
frelsisfylkingar Suður-Vietnams
hafa hertekið Dak Pek-herstöðina
i hálendi Suður-Vietnams, en sú
herstöð var ein hin mikilvægasta,
sem Saigon-stjórnin hélt á þeim
slóðum. Um sex hundruð her-
menn Saigon-stjórnarinnar voru i
herstöðinni, og er talið að flestir
þeirra hafi veriö felldir eða teknir
til fanga.
Missir Dak Pek er mikill ósigur
fyrir Saigonstjórn, þvi að með
töku stöðvarinnar hefur Þjóð-
frelsisfylkingin nú full yfirráð yf-
ir mikilvægum vegi frá miðhá-
lendinu til þeirra svæða, sem
Þjóðfrelsisfylkingin ræður yfir i
suðurhluta landsins. Svo er að
heyra að átök færist nú i aukana i
Suður-Vietnam og að Þjóðfrelsis-
fylkingunni veiti yfirleitt betur.
CARACAS 17/5. — Carlos Andres
Perez, forseti Venesúelu, lýsti þvi
yfir i dag að stjórn landsins
hyggðist þjóðnýta eignir erlendra
oliuhringa þar. Þykja þetta mikil
tiðindi, þar eð Venesúela er þriðja
mesta oliuútflutningsland heims.
Ekki tiltók forsetinn hvenær
þjóðnýtingaráformunum yrði
hrundið i framkvæmd, en sam-
kvæmt ábyggilegum heimildum
er hugsanlegt að rikið yfirtaki
eignir hringanna Exxon (Esso),
Shell og Mobil þegar fyrir næstu
áramót. Perez sagði að nefnd
skipuð fulltrúum allra pólitiskra
flokka undirbyggi nú löggjöf um
þjóðnýtinguna.
Ingi R. Jóhannsson.
Jón Kristinsson