Þjóðviljinn - 21.05.1974, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 21. mal 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Isl. dýra-
safnið og
Isa-
fjarðar-
bœr vilja
isbjarnar-
hrœið
Tveir aðilar keppa nú um að fá
hræið af isbirninum sem skotinn
var á Hornströndum upi siðustu
helgi. Það er Islenska dýrasafnið
og tsafjarðarbær, sem sýnt hafa
áhuga á að kaupa hræið og þá að
láta stoppa það upp.
Bolli Kjartansson bæjarstjóri á
Isafirði sagði að það væri áhugi á
að byggðasafnið fengi björnin, en
þar sem siðasti fundur þessarar
bæjarstjórnar hefði þegar farið
fram og fleiri yrðu ekki fyrir
kosningar yrði engin samþykkt!
um þetta mál gerð fyrr en þá eftir
kosningar. Bolli sagði að bæjar-
fulltrúar hefðu kannski rætt þetta
mál sin á milli i gær og fyrradag,
enda hefðu menn þar vestra
áhuga á að fá björninn eins og
áður sagði.
Ennþá hefur engin ákvörðun
verið tekin um það hver verður
eigandi þessa bangsa.
—S.dór
Nýkeyptskip:
Grundarfoss
S.l. laugardag var Eimskipa-
félagi fslands afhent nýkeypt skip
i Fredrikshavn. Þetta er 499 lesta
skip, smiðað árið 1971, og er af
sömu gerð og úðafoss og Álafoss
sem Eimskipafélagið keypti
nýlega.
Hið nýja skip hlaut nafnið
Grundarfoss. Kemur það hingað
til lands i fyrsta sinn i byrjun júni.
Viggó Maack og Margeir Sigurðs-
son tóku við skipinu fyrir hönd
Eimskipafélagsins, en Margeir
verður skipstjóri á Grundarfossi.
Bensínbirgðir
Saigonhers
brenndar
SAIGON 20/5 — Þjóðfrelsisher
menn lögðu eld i bensinbirgðir
skammt frá Saigon i dag, og
brann um miljón litra.
Saigonherinn kvartar um að
Þjóðfrelsisherinn hafi sig óvenju
mikið i frammi, hafi tekið af sér
ýmsar varðstöðvar og m.a. ráðist
á keisaraborgina gömlu, Hue,með
eldflaugum.
KAMRABORGIN RÍS
bað þóttu tiðindi á sinum
tima er það vitnaðist að reisa
ætti 2000 náðhús til notkunar á
þjóðhátið á Þingvöllum i sum
ar. Nú er byrjað að reisa
kamraborgina á bökkum
öxarár, og var þessi mynd
tekin af byggingunum fyrir
nokkrum dögum. Að baki ris
hamraborgin há og fögur.
Benedikt frá Hofteigi finnst
kamraborgin of nýtiskulegt
nafn. Orti hann eftirfarandi
visu þvi til staðfestingar:
Þingvallahátfð höldum nú,
herralegir og prúðir.
Þar reisum við i trausti og trú
tvöþúsund rassabúðir.
„Góður árangur
-góðir kennarar
— segir Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans,
að loknu fyrsta starfsári Söngskóla Islands
Söngskóla Islands var
slitið á sunnudaginn. I
vetur starfaði Söngskólinn
i fyrsta sinn og að sögn
skólast jórans, Garðars
Cortes, náðu margir
nemendanna mjög góðum
árangri, „enda höfum við
frábæra kennara", sagði
Garðar Cortes.
1 vetur stunduöu 93 nemendur
nám i Söngskólanum, ýmist i
fullri kennslu eða hálfri, en eftir-
leiðis verður aðeins hægt að
stunda fullt nám við skólann.
Námsgreinarnar eru söngur,
ÁFENGI OG TÓBAK HÆKKAÐI UM 15% :
Og 350 miljónir
fást í ríkissjóð
Afengi og tóbak hækkaði i
veröi um 15 prósent um helg-
ina.
Flaska af islensku brenni-
vini kostar nú 1210 krónur, en
kostaði fyrir hækkun 1050.
Flaska af ísl. ákaviti kostar
nú 1250 , en fyrir hækkun
kostaði hún 1090.
Algengasta verð á viskii er
nú 1850 krónur, en var áður
1610 krónur.
Pólskt vodka kostar nú 1700
krónur, kostaði áður 1480.
íslenskt Tindavodka kostar
nú 1520, en kostaði 1320
Algengasta verð á sigarett-
um er nú 115 krónur, en fyrir
hækkun kostaði pakkinn 100
krónur.
Annað tóbak hækkaði sam-
svarandi,t.d. kostar nú pakki
af algengasta piputóbaki 98
krónur.
Þessi hækkun á áfenginu og
tóbakinu mun skila rikissjóði
300 til 350 miljónum króna á
þessu ári, að þvi er fjármála-
ráðuneytið upplýsti i gær.
—GG.
HLAUPIÐ I KOLGRIMU:
Næstmesta hlaup sem
menn muna eftir
Og hlaupið var enn að vaxa i gœrkveldi
— Þetta er næstmesta
hlaup sem menn muna
eftir í Kolgrimu og mér
sýnist allt útlit fyrir að það
verði það mesta áður en
yf ir lýkur, því að áin er enn
að vaxa, sagði Jón bóndi
Gislason á Skálafelli er við
höfðum samband við hann
seint i gær.
Jón sagðist ekki muna hvaða ár
það var sem mesta hlaup i manna
minnum hljóp i Kolgrimu, en það
eru komin nokkuð mörg ár siðan.
Sagði hann að i stærri hlaupun-
um, en hlaup kemur i ána árlega,
yrðu alltaf meiri eða minni
skemmdir á landi þar eystra. Ain
tekur alltaf einhverja sneið af bit-
högum i stærri hlaupunum, sagði
Jón, og ég er ansi hræddur um að
hún verði æði stórtæk að þessu
sinni.
Þá hefur hún rofið 40 m
skarð i veginn vestan við brúna
og er þvi bringvegurinn ófær
sem stendur. Brúin yfir Kolgrimu
er oröin gömul, hún 'yar byggð
árið 1935 og verður S^nnilega
endurbyggð fljótlega. \
\
Jón sagði, að menn hefðu haldið
að hlaupið hefði náð hámarki i
gærkveldi en svo i morgun hefði
það verið orðið mun meira og
væri enn að vaxa.
Hlaupið kemur úr Vatnsdal,
þar sem jökullinn myndar loku
fyrir vatnið, en þegar hann svo
lyftir sér, sem gerist einu sinni á
ári, þá hleypur vatnið fram. 1
fyrra kom hlaup i Kolgrimu en
var þá með allra minnsta móti.
—S.dór
tónfræði, nótnalestur og tónheyrn
og ljúka nemendur prófi i hverri
grein, safna stigum.
Af þeim 93, sem námu við skól-
ann 1 vetur, tóku 38 próf, þ.e.
kræktu sér i þrjú eða fjögur stig i
söng, nokkur stig i tónfræði
o.s.frv.
Væntanlega getur skóiinn út-
skrifað þessa nýju söngvara eftir
þriggja ára nám.
Mikil aðsókn var i vetur að
Söngskólanum, og sagði skóla-
stjórinn, að i allan vetur hefðu 30
manns verið á biðlista, enda gafst
enginn nemendanna upp.
Söngskólinn er dagskóli,
kennslustundir standa frá þvi
klukkan 13 á daginn og fram á
kvöld.
,,Þeir sem nema við skólann
eru yfirleitt á aldrinum 20 til 25
ára”, sagði Garðar Cortes, ” en
vitanlega eru undantekningar frá
reglunni. Yngsti nemandinn var
t.d. 16 ára stúlka — óvenju
þroskuð.”
— Byrjuðu nokkrir laglausir i
haust?
„Já, — það byrjuðu amk. menn
sem héldu að þeir væru laglausir,
eða gætu ekki sungið. Þeir hafa
hins vegar spjarað sig vel, einn
þeirra söng t.d. á nemendatón-
leikunum á sunnudaginn.
Fólk tók miklum framförum i
vetur — enda aðeins úrvals-
kennarar.”
Og það var greinilegt að skóla-
stjóri Söngskólans var ekki siður
montinn af kennaraliði sinu en
nemendum, og þvi rétt að láta
kennaralistann fylgja:
Garðar Cortes, skólastjóri,
Guðrún A. Simonar, Guðmundur
Jónsson, Jón Kristinn Cortes,
Kristinn Hallsson, Nanna
Björnsson, Njáll Sigurðsson, Rut
Magnússon, Sigriður E. Magnús-
dóttir, Sigurður Markússon, Þor-
steinn Hannesson og Þuriöur
Pálsdóttir.
1 vetur voru skólagjöld 15.000
krónur fyrir fulla kennslu og
hækka væntanlega fyrir næsta ár,
þvi Garðar sagði að kostnaður
hefði verið nokkuð vanreiknaður.
Riki og borg greiða kostnað við
Söngskóla Islands að einum
þriðja hluta.
—GG