Þjóðviljinn - 21.05.1974, Page 7
Þriðjudagur 21. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Giscard sigraði naumlega
PARIS 20/5.Þegar 98% atkvæða höfðu verið talin i
frönsku forsetakosningunum hafði Giscard
d’Estaing, frambjóðandi hægrisinna, hlotið 13,2
miljónir atkvæða eða 50,7%, en Mitterand, fram-
bjóðandi vinstri aflanna, 12,84 miljónir eða 49,3%.
Þá voru ótalin um 700 þúsund atkvæði frá nýlendum
Frakka, sem ekki geta breytt úrslitunum. Giscard
hóf i dag viðræður um stjórnarmyndun. Hann má
búast við harðri stjórnarandstöðu verklýshreyf-
ingarinnar. Kommúnistaleiðtoginn Georges
Marchais sagði í gærkvöld , að vinstriöflin, sem nú
væru sterkari en nokkru sinni fyrr, mundu halda
uppi einbeittri baráttu fyrir því að Giscard héldi
kosningaloforð sin, en á þau hefur hann verið óspar.
Búist við hajrðri
stjójjigjgjidstöðu
Búist er við þvi að Giscard ljúki
stjórnarmyndun eftir um það bil
viku, og þá mun hann taka opin-
berlega við embætti. Hann mun
leita fyrir sér hjá sömu flokkum
og áður studdu stjórn Pompidous.
Kosningaþátttaka var mjög
mikil, eða um 87%. Ljóst var
mjög snemma i kosningunni hvor
mundi sigra, en alloft var mjótt á
munum: munaði stundum ekki
nema o,6% atkvæða. Kosninga-
baráttan haföi farið skikkanlega
fram, nema hvað siðustu daga
hafði boriö á þvl, að til harka-
legra áfloga kæmi milli út-
sendara frambjóðendanna þegar
þeir voru að koma upp kosninga-
spjöldum.
Stefna Giscards
Giscard mun vafalaust byrja á
að reyna að styrkja stöðu sina
heima fyrir, sem er ekki slst erfið
vegna þess að mikil verðbólga
geisar I landinu og að hann hefur
verklýðshreyfinguna á móti sér.
En hún ætlar, sem fyrr segir,að
herma upp á forsetann mörg
kosningaloforð.
Borgaralegir flokkar I Evrópu
ætlast bersýnilega til þess, að
Indverjar
sprengt
kjarnorku-
sprengju
NÝJU DEHLI 20/5 — Fyrir
helgi sprengdu Indverjar sina
fyrstu kjarnorkusprengju og
eru þar með orðnir sjötta
kjarnorkuveldið. Sprengjan
var sprengd neðanjarðar,
undir eyðimörkinni Rajastan.
Indverjar segjast ekki hyggja
á að koma sér upp kjarna-
vopnum, heldur muni þeir að-
eins nota kjarnorku til frið-
samlegra nota. Pakistanir,
sem átt hafa I þrem styrjöld-
um við Indverja, munu þó
mjög áhyggjufullir út af þess-
ari þróun. Kjarnorku-
sprengjuáætlun hefur verið á
döfinni hjá Indverjum siðan
Kina gerðist kjarnorkuveldi.
Giscard hressi bæði upp á Eína-
hagsbandalagið og Nató. Búist er
við þvi að hann muni fara varlega
I sakir fyrst I stað: Hann hefur
bæði stuðst við Gaullista, sem
leggja mikið kapp á sjálfstæða
franska stefnu I utanrikismálum
og hermálum, og svo miðflokka-
menn, sem eru allmiklir vinir
Atlantshafsbandalagsins. Liklegt
má telja, að þegar til lengdar
lætur muni Giscard verða miklu
hliðhollari Bandarikjunum en
Pompidou var, hvað þá de Gaulle.
Giscard hefur lýst yfir þvi, að
haldið verði áfram kjarnorku-
sprengjutilraunum Frakka á
Kyrrahafi, en Mitterand hafði
aftur á móti heitið þvi að hætta
þeim. Frakkar munu að likindum
láta meira að sér kveða I Nato en
áður, en vart er við þvi búist að
þeir setji her sinn aftur undir
sameiginlega yfirstjórn Nato.
Vinstri armur
Úrslitin eru að sjálfsögðu mikil
vonbrigði fyrir vinstrisinna, sem
ekki hafa komist jafn nálægt þvi
siðan 1936 að koma á alþýöu-
fylkingarstjórn. Augljóst er, að
það er hin mikla hræðsluhgjséd'ð
gegn væntanlegri aðild
kommúnista að rikisstjórn sem
hefur tryggt Giscard atkvæði ráð-
villtra og litt pólitiskra smá-
borgara I miðju og þar með hinn
knappa sigur. Annað mál er hvort
ósigurinn verður til þess að það
fari að molna úr vinstri fylking-
unni sem hefur staðið sig mjög
vel að undanförnu. Eða þá hvort
þróunin heldur áfram til vinstri:
Margir minna I þvi sambandi á
það, að Mitterand átti yfirgnæf-
andi fylgi meðal fólks yngra en 35
árg.
Giscard
í ávarpi til kjósenda seint i gær
sagði hinn nýi forseti, að hafið
væri nýtt skeið i frönskum stjórn
málum. Hann sendi Mitterand
kveðjur og sagði að hann heföi
áfram hlutverki að gegna i
frönskum stjórnmálum.
Giscard d’Estaing er 48 ára og
næstyngsti forseti I sögu Frakk-
lands. Hann er og langyngstur af
leiðtogum stórvelda. Hann er af
yfirstéttarfjölskyldu, vel
menntaður og mælskur
teknókrati. Hann var kosinn á
þing 1956, og 1962 gerði de Gaulle
hann að fjármálaráðherra. Siðan
1966 hefur hann haft um sig flokk
sem hann kallar Óháða lýðveldis-
sinna og hefur haft náið samband
við Gaullista. Arin 1967-69 var
Giscard
Giscard utan stjórnar og átti sinn
þátt i að fella de Gaulle i þjóða.r-
atkvæðagreiðslu 1969. En
Pompidou tók hann aftur I
embætti fjármálaráðherra, og
þar hefur hann verið siðan.
Viðbröeð
Hægriblöðin i Paris játa I
morgun, að hinn naumi meirihluti
Giscards bendi til þess, að það
verði honum erfitt verk að stjórna
landinu. Kommúnistablaðið
l’Humanité segir að það sem
rftestu skipti sé ekki sigur
Giscards, heldur hið mikla fylgi
vinstrifylkingarinnar og að
bandalagið innan einstakra hópa
hennar hafi eflst svo mjög að ekki
verði aftur snúið. Vinstrablaðið
Combat skrifar, að Frakkland
hafi stigið stórt skref til vinstri
með þessum kosningum.
Viðbrögð i Austur-Evrópu eru
fremur varfærnisleg, en þar mun
ekki búist við neinni meiriháttar
breytingu á utanrikisstefnu með
Giscard. Sagt er að Kínverjar
hafi heldur kosið að Giscard sett-
isti forsetastól en Mitterand, með
þvi að hægrimenn séu liklegri til
að byggja upp öfluga
Vestur-Evrópu gegn Sovét-
mönnum. Engin opinber viðbrögð
höfðu borist frá Kina þegar þetta
er skrifað.
Mótmœlendur í verk-
falli á N-trlandi
BELFAST 20/5 —
Verkalýðssamtök mót-
mælenda á Norður-ir-
landi hættu í dag við
yfirlýst allsherjarverk-
fall. Bresk yfirvöld hafa
svarað verkfalls-
boðuninni með hótun um
að láta breska hermenn
taka að sér ýmis störf.
Mótmælendur, sem hafa
mest hlerað eftir pólitiskum
ráðum öfgasinna eins og séra
Paislys hafa lamað atvinnulif
Norður-lrlands stórlega með
verkföllum sl. fimm dagana.
En verkalýðssamtök þeirra,
sem i eru 300 þúsund manns,
féllust á að starfrækja a.m.k.
eitt arforkuver áfram með þvi
skilyrði að Bretar aflýstu
neyðarástandinu.
Verkalýðssamtökin eru að
reyna að gera óstarfhæfa þá
samsteypustjórn hófsamari
mótmælenda og kaþólskra,
sem komið var á fót i fyrra. 1
dag héldu þau áfram ýmsum
mótmælaaðgerðum. Vopnaðir
mötmælendur reistu götuvigi
á nokkrum stöðum i Belfast og
stolið var um 25 strætisvögn-
um og bifreiðum öðrum og
þær hafðar i vegatálma.
tRA hefur haldið áfram
sprengjutilræðum i London
um helgina. 1 gær sprakk
sprengja i bilageymslu
skammt frá bilageymslu við
Heathrow-flugvöll, og i dag
var sprengja gerð óskaðleg,
sem komið hafði verið fyrir
skammt frá góðgerðastofnun
á vegum hersins breska.
Samningar eru nú að
takast um Golanhæðir
DAMASKU S/TEL AVIV
20/5 — Kissinger hélt enn á
ný til Damaskus i morgun
eftir að hafa rætt við ísra-
elska forystumenn um síð-
ustu tillögur Sýrlendinga.
Er búist við að samningar
um aðskilnað herja land-
anna i Golanhæðum takist
alveg á næstu dögum.
Samkvæmt skrifum blaða i
tsrael og Libanon féllst Assad
forseti Sýrlands á allmiklar til-
slakanir á fundum með Kissinger
á laugardag. Þau drög, sem báðir
aðilar virðast að mestu hafa sam-
þykkt, eru á þessa leið:
Israelsmenn afhenda Sýrlandi
þau svæði sem þeir hertóku i
fyrra og einnig hluta af þvi landi
sem þeir tóku árið 1967. Þar á
meðal er borgin Kuneitra, en
þrjár mikilvægar hæðir vestan
borgarinnar verða i vörslú
Israelshers og gæsluliðs SÞ.
Þrjár stöðvar á Hermonfjalli
verða og i vörslu SÞ. A milli herja
landanna verður komið upp hlut-
lausu belti sem gætt verður af
hersveitum Sameinuðu þjóðanna.
Þá hefur verið samið um að
skipst verði á striðsföngum.
Ekki er að sjá að hermdarverk
skæruliða i bænum Maalot i Isra-
el á dögunum hafi tafið fyrir sam-
komulagi, né heldur hefndarað-
gerðir tsraelsmanna i Libanon.
Nú um helgina gerðu þrir isra-
elskir fallbyssubátar og fylgdar-
skip þeirra stórskotahrið á flótta-
mannabúðir Palestinuaraba
skammt fyrir sunnan borgina
Tyrus i Libanon. A.m.k. fimm
manns létu lifið og tólf særðust.
Verkamannaflokkur tsraels
hefur samþykkt að mynda stjórn
með Frjálslynda flokknum og
Mannréttindaflokknum, en
samanlagt njóta þessir flokkar
stuðnings 61 af 120 þingmönnum.
Verður þá fyrri samstarfsflokk-
ur, Þjóðlegi trúarflokkurinn, úti-
lokaður frá stjórn i fyrsta sinn i
næstum þvi 20 ár.
Patricia Hearst er ófundin
WASHINGTON 20/.5 — Aðfara-
nótt laugardags felldi lögregla i
skotbardaga fimm af meðlimum
SLA, svonefnds Samlifisfrelsis-
hers, i Los Angeles. SLA rændi
fyrir rúmum tveim mánuöum
Patriciu, dóttur auðugs blaða-
kóngs, Williams Hearst yngri.
Fyrir nokkru bárust skilaboð frá
henni, um að hún hefði gengið i lið
með SLA, og sannað er að hún var
með i bankaráni sem þessi undar-
legu samtök frömdu. En Patricia
var ekki meðal þeirra sem féllu
um helgina, og er ekki vitaö hvort
hún er lifs eða liðin. Meðal þeirra
sem féllu var foringi hópsins,
strokufanginn Donald de Freeze.