Þjóðviljinn - 21.05.1974, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 21. mai 1974.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------■----------------------------------------------------------------------------------,----------------------------------------
ÞAU ERU í ELDLÍNUNNI
#11
Við stefnum á að fá
hreinan meirihluta
Frá Ólafsfirði
Barist fyrir
meirihluta
Rœtt við Braga Halldórsson,
verkamann, sem skipar 2. sœtið
á lista vinstri manna á Olafsfirði
Heimir Ingimarssons, sveit-
arstjóri Raufarhöfn,
skipar efsta sæti G-listans á
staðnum. i öðru sæti listans er
Angantýr Einarsson, skólastjóri,
en i þriðja sæti er Guðmundur
Lúðviksson, sjómaöur. Þriðja
sætið er baráttusæti G-listans;
þar stefnir Alþýðubandaiagið á
að fá hreinan meirihluta i hrepps-
nefndinni, þrjá menn af fimm.
Þegar Þjóðviljinn ræddi við
Heimi á dögunum kvaðst hann
bjartsýnn, en þó engan veginn
viss, en Alþýðubandalagsmenn á
staðnum störfuðu einbeittir aö
settu marki.
— Hver eru aðalkosningamál-
in?
— Eins og allir vita var hér
mikil sildarvinna á fyrri árum, en
peningafurstar hirtu arðinn af
staðnum. Eftir standa nú lokuð
ónýt hús og fyrirtæki. Sveitarfé-
lagið varð þvi að hafa forustuna i
atvinnumálunum; hreinlega að
bjarga ibúunum frá atvinnuleysi
og eymd. Sú björgun hefur orðið
sveitarfélaginu dýr, en atvinnu-
ástandið er lika allt annað og
betra, hér er feikn að gera allan
ársins hring. En vegna þess að
mikið fé hefur farið i atvinnuupp-
bygginguna hefur litið verið til fé-
lagslegra verkefna og þess vegna
er það sem við munum nú ein-
beita okkur að ýmsum verkefnum
á vegum sveitarfélagsins. í vetur
Heimir Ingimarsson
Rœtt við Heimi
Ingimarsson er
skipar efsta sœti
G-listans
á Raufarhöfn
unnum við að þvi að fá opinbera
aðstoð til reksturs frystihúss og
togara og við fengum fyrir-
greiðslu og þó hún væri ekki mik-
il, varð hún nægjanleg til þess að
nokkurt svigrúm skapast.
Meðal verkefna sem'hér veröur
að vinna að er bygging iþrótta-
húss og gerð sundlaugar. Þessi
verkefni eru nú á fjárlögum rikis-
ins. Þá er knýjandi nauðsyn að
bæta vatnsveituna, og ennfremur
þarf að bæta hafnarskilyrðin,
sem á sinum tima voru miðuð við
sildarflotann. Þá munum við
beita okkur fyrir þvi, að Eaufar-
höfn verði fullgildur þátttakandi i
samstarfi sveitarfélaga i fjórð-
ungnum um varanlega gatna-
gerð. Við leggjum ennfremur
áherslu á að bæta verði aðstöðu til
heilbrigðisþjónustu á staðnum,
ennfremur hverskonar menning-
arstarfsemi. Þá teljum við að
sveitarfélagið og frumkvæði þess
verði að koma til i sambandi við
breytingar sem verða að eiga sér
stað i verslunarháttum og við-
skiptum almennings.
— Það er i mörg horn að lita.
— Já, það er i mörg horn að
lita, og verkefnin mörg. Staður-
inn hefur risið úr ösku sildarár-
anna fyrir tilstilli vinstristjórnar-
innar, afkoma fólksins er góð, at-
vinna mikil, en þessar breytingar
1 atvinnumálum og afkomu kalla
svo aftur á mannsæmandi um-
hverfi. Ég vil skjóta þvi hér inn i
að Haukur Hafstað frá Land-
vernd er væntanlegur um helgina
til þess að athuga umhverfismál-
in með okkur; slikt hefur aldrei
gerst áður.
— Hvað eru margir listar i
framboði?
— Það eru fjórir listar. Þrir
flokkslistar; Alþýðubandalags-
ins, Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarfiokksins. Þá er
fjórði listinn J-listi borinn fram af
tveimur einstaklingum.
1 siðustu kosningum voru hér
tveir listar. Listi Sjálfstæðis-
flokksins, Framsóknarflokksins
og hannibalista fékk 112 atkvæði
og 3 menn kjörna; G-listi Alþýðu-
bandalagsins hafði 88 atkvæði og
2 menn kjörna. Nú berst Alþýðu-
bandalagið fyrir meirihluta i
hreppsnefnd — og ég ersannfærð-
ur um að hreppsbúar kunna að
meta það mikla starf sem Al-
þýðubandalagsmenn hafa unnið
hér, og Alþýðubandalagið nýtur
þess trausts á staðnum að herslu-
munurinn ætti að nást.
Vinstrimenn berjast fyrir þvi
að fá meirihiuta á ólafsfirði. Þeir
hafa komiö sér saman um lista og
á honum eru ekki einasta flokks-
bundnir vinstrimenn, heldur
einnig óflokksbundnir menn utan
fiokka, og Bragi Haildórsson,
sem er fyrsti fulltrúi Alþýöu-
bandalagsins á listanum, og
skipar 2. sætið, sagði i viðtali við
Þjóöviljann að þeir vinstri menn
væru bjartsýnir á að unnt væri að
ná meirihiuta I bæjarstjórninni 4
af 7 bæjarfulltrúum.
— Hvernig skiptust atkvæðin i
siðustu kosningum til bæjar-
stjórnar?
— Sjálfstæðisflokkurinn fékk
251 atkvæði og út á það fjóra
menn og meirihluta. Alþýðu-
fokkur fékk 108 atkvæði, Fram-
sóknarflokkur 123 atkvæði og Al-
þýðubandalagið 86 atkvæði, eða
vinstrimenn samtals 319 atkvæði.
Vinstrimenn hafa nú komið sér
saman um sameiginlega áætlun
um bæjarmálin.
— Hver eru aðal-
kosningamálin?
— Þau mál sem vinstrimenn
setja helst á oddinn eru hafnar-
mál og bygging elli- og sjúkra-
skýlis.
— Eru það jafnframt helstu
ágreiningsmálin?
— Aðalágreiningurinn er um
tilhögun framkvæmdanna. En
það má segja að við leggjum
aðaláhersluna á að bæjarstjóri
verði ráðinn eftir auglýsingu. Við
viljum koma betri reglu á skipu-
lagsmál og stjórn bæjarins, en nú
er bæjarstjórinn jafnframt aðal-
talsmaður Sjálfstæðisflokksins á
staðnum.
— Sjálfstæðisflokkurinn hefur'
haft meirihluta á ólafsfirði í ára-
tugi. Reyna talsmenn hans að
nota „glundroðakenninguna”
sem svo er kölluð hér i Reykja-
vik?
— Það má segja það. Klifað er á
þvi,að allt verði i óvissu ef vinstri-
menn komistað. En slikt tal er að
sjálfsögðu mikil endemis-
fjarstæða.
— Hefur þú verið áður i bæjar-
stjórn, Bragi?
— Já, Ég var i bæjarstjórn
1962—1970 og hef á þvi kjörtima-
bili sem nú er á enda setið i
bæjarstjórn sem varamaður,
einkum siðari hluta timabilsins.
Frá Raufarhöfn
SAUÐÁRKRÓKUR:
Vinstri menn
stefna á
meirihluta
Hulda Sigurbjörnsdóttir
er í f jóröa sæti H-listans á
Sauðárkróki, en að er sam-
eiginlegur listi Alþýðu-
bandalagsins og Fram-
sóknarf lokksins. Þessir
f lokkar stefna að því að fá
hreinan meirihluta í
bæjarstjórn Sauðárkróks,
og er Hulda því í baráttu-
sætinu. Hún hefur áður
barist til sigurs í slikri bar-
áttu, því að í kosningunum
1966 vann hún sæti f yrir Al-
þýðubandalagið af Sjálf-
stæðisf lokknum.
— Þjóðviljinn náði tali af Huldu
og við spurðum hana um atvinnu-
ástandið i kaupstaðnum. Hún
sagði;
Hulda Sigurbjörnsdóttlr
— A timabilinu 1966-1970 höfðu
vinstri menn meirihluta i bæjar-
stjórn, og þá var lagður grunnur
að alhliða atvinnuuppbyggingu
hér á Sauðárkróki. Siðan vínstri
rikisstjórnin tók við, hefur at-
vinnulif blómgast hér til muna
eins og annars staðar á lands-
byggðinni. Ibúum bæjarins hefur
fjölgað, og fleiri hafa viljað setj-
ast hér að en húsrými er fyrir.
Sauðárkrókur
Hér er tvimælalaust skilyrði til
áframhaldandi uppbyggingar og
vaxandi velmegunar, en fram-
gangur málanna er auðvitað
kominn undir úrslitum bæjar-
stjórnarkosninganna og alþingis-
kosninganna.
— Hvað boðar þetta samstarf
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins I kosningunum á
Sauðárkróki?
— Það er að sjálfsögðu stefnu-
yfirlýsing um vilja til vinstra
samstarfs i bæjarmálum hér. En
það er lika visbending um að Al-
þýðubandalagsmenn og Fram-
sóknarmenn hér vilja áframhald-
andi vinstra samstarf i þjóðmál-
um. Við teljum að með þvi móti
verði best tryggð farsæl stefna
fyrir landsbyggðina. Vinstri
stjórnin hefur veitt nýjum þrótti i
bæjarfélögin vitt um landið, og
þeirri stefnu viljum við veita
brautargengi með vinstri meiri-
hluta hér á Sauðárkróki.
Rœtt við Huldu Sigurbjörnsdóttur sem er í baráttusœti H-listans