Þjóðviljinn - 21.05.1974, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. mal 1974.
Framarar þurfa að
lagfæra smáatriðin
en liö þeirra var þó mjög sannfærandi
í fyrsta leik íslandsmótsins í 1. deild
1. deildarkeppnin hófst á
laugardaginn i Keflavík,
en þangað sóttu Framarar
ÍBK heim og léku heima-
menn grátf á köflum, sem
þó sluppu með skrekkinn
og sigruðu fremur ósann-
gjarnt 2—1.
Framarar sýndu stór-
góða knattspyrnu á köfl-
um, voru mjög ákveðnir á
boltann og virtust í góðri
úthaldsþjálfun. En smáat-
riðin þarf að lagfæra
strax. Magnús Pétursson,
ágætur dómari þessa leiks,
dæmdi Frömurum hvað
eftir annað aukaspyrnur
rétt við vítateiginn. Menn
bjuggust við mikilli hættu
úr hverri spyrnu, en allt
rann út í sandinn, og þrátt
fyrir mikla tilburði tókst
ekki að útfæra eina einustu
aukaspyrnu, sem tekin var
við vítateiginn.
I marki Framara lék
Árni Stefánsson, sem hing-
að til hefur leikið með
Akureyringum, en hann
dvelst í Reykjavík um
þessar mundir og lék nú í
markinu í forföllum Þor-
bergs Atlasonar.
Hluti eins og aukaspyrn-
ur, innköst, hornspyrnur,
varnarveggsuppstillingar
o.fl. þarf að æfa aftur og
aftur og aftur. Það er
greinilegt, að íslensk lið
gefa sér ekki nægan tíma í
smáatriðin, og það sást
glögglega á Framliðinu í
þessum leik. En þessum
atriðum má kippa í liðinn á
skömmum tíma, og enginn
vafi er á að Framarar,
sem hafa eina íslenska 1.
Knacp
sleppti
ser
Hinn geðriki þjálfari KR,
Tony Knacp, var meira en litið
óhress yfir tapi liðs sins gegn
Akureyringum á sunnudaginn
og hélt þvílikan reiðilestur yfir
mönnum sinum eftir leikinn
að annað eins hefur vart
heyrst, og eru menn þó ýmsu
vanir frá hendi skapmikilla
þjálfara bæði innlendra og út-
lendra.
Hann fórnaði höndum fyrir
framan blaðamenn og spurði
— hvað eru þessir menn að
gera, þeir eru ekki að leika
knattspyrnu—.
Einhversstaðar stendur, að
aðgát skuli höfð I nærveru sál-
ar, speki sem Knacp virðist
ekki hafa lært, eða til hvers er
að ráðast með skömmum að
niðurbrotnum leikmönnum
eftir tapleik? — S.dór
deildarþjálfarann, eiga
eftir að gera góða hluti í
sumar, haldi þeir áfram á
þessari braut.
Með hóli mínu um lið
Fram vil ég alls ekki kasta
rýrð á hlut Keflvíkinga.
AAeð sóknina sem áberandi
betri helming í þessum leik
áttu þeir þokkalega kafla
inn á milli, en það var sam-
eiginlegt báðum liðunum,
hve stopulir góðu kaflarnir
voru.
Keflvíkingar fengu
óskabyrjun í (slandsmót-
inu og skoruðu fyrsta
markið strax á 1. mín.
Steinar Jóhannsson komst
þá inn f yrir og vippaði yf ir
Árna, sem e.t.v. kom ekki
út á móti á réttan hátt.
1—0 fyrir Keflvíkinga,
sem hertu enn á sér og léku
á miklum hraða. En næsta
hætta var þó framan við
hitt markið. Framarar
náðu mikilli pressu, Þor-
steinn varði vel, en boltinn
hrökk út. Annað skot kom,
og bjargað var á línu, og
enn kom skot, en rétt yfir.
Lánið var með Keflvíking-
um þarna og raunar oftar í
leiknum.
2—0 kom síðan á 37. mín.
Boltinn mun hafa hrokkið í
hönd varnarmanns Fram-
ara, og Steinar skoraði ör-
ugglega úr vítaspyrnunni.
Framarar voru nú f arnir
að sækja nokkuð stíft gegn
vindinum og uppskáru
mark á 41. mín. Boltinn
gekk 6 eða 7 sinnum á milli
manna inn í vítateig Kefl-
víkinga áður en Kristinn
Jörundsson fékk hann á
markteig og skoraði ör-
Framhald á 17. siðu.
GIsli Torfa fórnar sér hér með þvl að kasta sér fram og skalta frá.
Ljósm. GSP.
Siglfirðingurinn færði
Akurevringum bæði stigin
öigmroingurinn ungi,
Gunnar Blöndal, sem nú
leikur með Akureyringum í
1. deild,færði hinu nýja liði
sínu tvö dýrmæt stig, já,
mjög dýrmæt stig á sunnu-
daginn, þegarhann skoraði
eina markið í viðureign KR
og IBA í fyrsta leik liðanna
í 1. deildarkeppninni að
þessu sinni. Þessi tvö lið
sem fróðir menn segja að
berjast muni um fallið í
sumar börðust þarna hart
og oft grimmilega, og það
þarf engum blöðum um
það að fletta að þetta eiga
eftir að verða Akureyring-
unum dýrmæt stig sem
þeir fengu þarna.
Sé litið á leikinn i heild, þá sóttu
KR-ingar mun meira, bæði undan
og á móti allsterkum vindi, en það
Framhald á 17. siðu.
Svona auövelt var þaö fyrir Gunnar Blöndal aö skora sigurmark IBA. Takiö eftir, aö tveir KR-ingar standa þarna aögeröarlausir og aö manni
sýnist ráövilltir. — Ljósm. GSP.