Þjóðviljinn - 21.05.1974, Síða 17
Þriöjudagur 21. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Siglfirðingar
Tramiiald af 14. siðu.
voru Akureyringarnir sem áttu
bestu marktækifærin, m.a. stang-
arskot i fyrri hálfleik, en KR-ing-
ar áttu mjög fá marktækifæri og
varla neitt sem hægt er að kalla
upplagt.
Mjög lélegur dómari þessa
leiks, Einar Hjartarson, sleppti
augljósum þremur vitaspyrnum i
leiknum, tveimur á KR og einni
og þeirri augljósustu á ÍBA. Það
var um miðjan siðari hálfleik,
þegar einum sóknarmanna KR
var brugðið gróflega inni vítateig
þar sem hann var að komast i
færi. Það er alveg óskiljanlegt að
Einar skyldi sleppa þessu aug-
ljósa broti. Eins var mjög augljós
vitaspyrna á KR skömmu áður er
varnarmaður KR hreinlega varði
fyrirgjöf fyrir markið með hönd-
um. Þá voru menn á þvi, að
dæma hefði átt vitaspyrna i fyrri
hálfleik þegar varnarmaður KR
fékk boltann i höndina innan vita-
teigs, en það var miklu umdeilan-
legra atriði.
Þessi leikur var mjög leiðinleg-
ur á að horfa. Öll aðstaða til að
leika knattspyrnu var slæm. Mjög
hvasst var meðan á leiknum stóð,
Melavöllurinn harður og boltinn
léttur, auk þess sem rykmökkur
huldi hluta vallarins alltaf öðru
hvoru.
Þvi var það að leikur liðanna
var lengst af meira strit en vit.
KR-ingar léku undan vindinum i
fyrri hálfleik og sóttu þá heldur
meira án þess að fá eitt einasta
umtalsvert marktækifæri. En
þeir sóttu einnig meira á móti
rokinu, einkum eftir að Akureyr-
ingarnir höfðu náð forystunni.
Það var á 54. minútu leiksins að
dæmd var hornspyrna á KR. Gef-
ið var vel fyrir markið, KR-vörn-
in stóð „frosin”, og það nýtti Sigl-
firðingurinn Gunnar Blöndal sér
vel, og hann skallaði boltann i
netið algerlega ótruflaður, 1:0.
Eftir þetta lögðu Akureyringar
alla áherslu á vörnina og KR-ing-
ar sóttu þvi meira, en varð ekkert
ágengt. Það er varla hægt að tala
um að þeir hafi átt umtalsverð
marktækifæri ef undan er skilið,
þegar dæma átti vitaspyrnu á
IBA.
Besti maður Akureyringa var
tvimælalaust Gunnar Austfjörð,
en þeir Viðar Þorsteinsson, Kári
Arnason og Þormóður Einarsson
komu allir heldur vel frá leiknum
miðað við hinar slæmu aðstæður
til að leika knattspyrnu, og liðið
verður varla dæmt eftir þessum
leik.
Hjá KR var það Gunnar
Gunnarsson og Ólafur Ólafsson
sem mest bar á, en mikið vantar
á að KR-liðið sé liklegt til stór-
ræða i sumar, og það er ekki leng-
ur hægt að tala um þetta lið sem
ungt og efnilegt; til þess er það
búið að leika of lengi saman.
—S.dór
Jörundur
Framhald af bls. 6.
helst af þeim samtökum að
frétta?
— Samtök þessi, sem leikhús
og leikfélög um allan heim eru
aðilar að, hafa aðalbækistöðvar i
Hollandi. Ég var kosinn fulltrúi
Norðurlanda i ráðið á siðasta
aðalfundi þess ásamt með Svian-
um Lennart Engström, en sá
fundur var haldinn i Mónakó.
— Eru eingöngu áhugaleikhús
og — leikfélög aðilar að þessum
samtökum?
— Nei, atvinnuleikhús eru
þarna lika með, vegna þess að i
mörgum löndum eru þau i sömu
samtökum og áhugaleikhúsin.
Bandalag islenskra leikfélaga er
ennþá ekki formlega aðili að
AITA/IATA, en væntanlega verð-
ur skorið úr um það á aðalfundi
þess áttunda júni næstkomandi.
Þátttaka okkar i þessum alþjóða-
samtökum getur haft geysilega
þýðingu, þvi að þau annast útgafu
— og útbreiðslustarfsemi margs-
konar og myndu með þátttökunni
stóraukast möguleikarnir á að
koma islenskum leikritum á
framfæri erlendis. Samtökin hafa
einnig námskeið i leiklist, og auk
þess gætum við fengið hjá þeim
margskonar aðstoð við leikhús-
starfið hér heima, sem hefur svo,
eins og allir skilja, ómetanlega
þýðingu fyrir menningu okkar.
Engin þjóð hefur einlægari og
óspilltari áhuga á leiklist en ís-
lendingar, eins og best sést á
starfsemi áhugaleikfélaga út um
allar þorpagrundir. Það er eins-
dæmi hve leiklistarlifið er hér lif-
andi og hve leikhúsin eru vel sótt.
— Hvernig þótti þér Skaga-
mönnum takast til með Járn-
hausinn?
— Frábærlega. Leikstjórinn
Gisli Alfreðsson kunni sannarlega
lagið á þessu. Þar komu skýrt i
ljós höfuðkostir hins sanna
áhugaleikhúss: llfsþróttur og
leikgleði.
— Og hvernig var túlkunin frá
listrænu sjónarmiði?
— Ég hef þegár svarað þvi.
Listin er lifsþróttur.
dþ.
Vafasöm
Framhald af 15. siðu. '
án þess að varnarmaður-
inn kæmi nema mjög laust
við hann. Úr þessari
vítaspyrnu jafnaði Hafliði
Pétursson fyrir Víking,
1:1.
Sumir vildu halda þvi fram, að
þarna hafi Guðjón verið að bæta
fyrir mistök sem honum urðu á
skömmu áður er hann sleppti að
manni fannst augljósri vita-
spyrnu á IBV þegar Jóhannesi
Bárðarsyni var brugðið gróflega
innan vitateigs. Kannski að svo
hafi verið, en það réttlætir eigi að
siður ekki þessa vitaspyrnu sem
ekki átti sér neina stoð.
Annars hefði það ekki verið
sanngjarnt að Vikingar hefðu
ekki I það minnsta annað stigið
útúr þessari viðureign. Þeir áttu
mun meira i leinum, voru harðari
og ákveðnari allan timann.
Mark IBV skoraði örn Óskars-
son eftir nokkuð gróf varnarmis-
tök hjá Vikingum. örn er það
harður og fljótur leikmaður, að
hans verður að gæta alveg sér-
staklega vel, en það var ekki
gert, og örn komst innfyrir
Vikingsvörnina ogskoraði l:0á 9.
minútu leiksins.
Siðan gerðist fátt markvert
fyrr en á 75. minútu, að
vitaspyrnan var dæmd og áður
hefur verið sagt frá.
Eins og áður segir áttu
Vikingarnir meira i þessum leik,
en þeir náðu ekki að skapa sér
mörg marktækifæri og áttu þau
varla fleiri en Eyjamenn. Mikil
barátta var i báðum liðum og
aldrei neitt gefið eftir. Harka
nokkur færðist i leikinn er á leið,
en aldrei þó svo, að upp úr syði.
Það er greinilegt að bæði þessi
lið verða hörð af sér i sumar.
Bæði hafa yfir miklum baráttu-
vilja að ráða, og það eitt gefur
fleytt liðum langt i islenskri
knattspyrnu.
Hjá Vikingum bar mest á þeim
Gunnari Gunnarssyni, Gunnari
Erni og svo klettinum i Vikings-
vörninni, Jóni Ólafssyni.
öskar Valtýsson var sá sem
mest og best barðist hjá IBV, en
þeir Valur Andersen, Friðfinnur,
Haraldur JúliusSon og örn
Óskarsson stóðu sig vel i þessum
leik, sem og Ársæll Sveinsson
markvörður.
—S.dór
Jafntefli
Framhald af 15. siðu.
Það var með Valsmenn eins og
Skagamenn, þeir áttu tvö mjög
góð marktækifæri undan rokinu.
Það fyrra var þegar mikil þvaga
myndaðist fyrir framan IA
markið, en það siðara þegar Ingi
Björn Albertsson stóð á mark-
teigshorni, en hitti ekki markið.
Skagamenn áttu eitt gott mark-
tækifæri i síðari hálfleik, það var
þegar Matthias Hallgrimsson
komst innan endamarka mjög
nærri markinu, en i stað þess að
gefa út i teiginn reyndi hann
markskot sem Sigurður Haralds-
son varði meistaralega.
Sem sagt sanngjarnt jafntefli,
þar sem miðverðir liðanna báru
af, þeir Jóhannes og Jón Gunn-
alugsson. Eyleifur Hafsteinsson,
sem átt hefur við meiðsli að striða
undanfarið, kom inná um miðjan
siðari hálfleik, og breytti hann ÍA-
liðinu mikið til hins betra. Um
leið og hann kom inná kom miklu
meiri samleikur i leik liðsins en
veriðhafði, auk þess sem hann er
alltaf hættulegur uppi við markið.
Hörður Hilmarsson lék nú loks
með Vals-liðinu og styrkti liðið
mjög, enda er hann einn okkar
besti miðvallarleikmaður.
Hermann Gunnarsson meiddist
um miðjan fyrri hálfleik og varð
að yfirgefa völlinn.
Þeir Sigurður Jónsson og
Hörður Hilmarsson hjá Val og
Haraldur Sturlaugsson hjá ÍA
fengu gult spjald hjá ágætum
dómara leiksins Guðmundi
Haraldssyni.
S.dór
Framarar
Framhald af 14. siðu.
ugglega í hálftómt markið.
Þannig var staðan eftir
fyrri hálfleik, sem var
mun betri helmingur leiks-
ins. Eftir frammistöðu lið-
anna var Keflvíkingum
ekki reiknaður stór hlutur
eftir hlé, ekki hvað síst
TILKYNNING
frá yfirkjörstjórn Vestmannaeyjum
Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að
framboðslistar við bæjarstjórnarkosning-
ar i Vesmannaeyjum, sunnudaginn 26.
mai n.k.,eru sem hér segir:
A-LISTINN D-LISTINN K-LISTINN
Borinn fram af Borinn fram af Borinn fram af
Alþýðuflokknum Sjálfstæðisflokknum Framsóknar-
flokknum og Samtökum frjálslyndra og Alþýðubandalag-
inu og vinstrimanna.
Yfirkjörstjórn
með hliðsjón af því, að nú
léku Framarar undan
vindi, sem var allsterkur.
En margt fer öðruvísi en
ætlað er. Þeir sóttu að vísu
mun meira en heimamenn,
en sóknin var bitlaus og
ráðvillt og náði aldrei að
skapa sér umtalsverð tæki-
færi. Keflvíkingar komust
hins vegar upp inn á milli
og skapaðist þá oft mikil
hætta við mark Fram.
Staðan í leikhléi, 2—1,
átti því ef ttr að verða loka-
tölur leiksins. Það var lán
heimamanna hve klaufa-
legir Framarar voru í
sókninni, ekki hvað síst í
töku aukaspyrna og annars
þess háttar. Það eru hlutir
sem þeir þurfa að æfa mun
betur.
—aso
Þorbjörn
Framhald af bls. 1
veldi Sjálfstæðisflokksins og
minnti á að flokkurinn hlaut i
kosningunum 1970 um 48%. Sjálf-
stæðisflokkurinn hélt meirihluta
sinum vegna óhagstæðrar dreif-
ingar atkvæða vinstriflokkanna.
Sagði Þorbjörn að hver áttmenn-
inga Sjálfstæðisflokksins i
borgarstjórn hefði á bak við sig
um 2.600 atkvæði, en hvor tveggja
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins hefði haft að bak sér 3.600
kjósendur!
Þorbjörn minnti á að Sjálf-
stæðisflokkurinn gerði sér full-
ljóst að hann nýtur ekki trausts
meirihluta Reykvikinga. Jafnvel
hefði höfuömálgagn flokksins
viðurkennt að atkvæði Sjálf-
stæðismanna dugi alls ekki til að
verja áttmenningana falli. Samt
krefjast þeir að fá að halda valda-
einokun sinni áfram og biðla
opinskátt um fylgi til kjósenda
annarra flokka.
Að lokum sagði Þorbjörn:
,,Ég gat þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðubandalagið
mynduðu höfuðandstæðurnar i is-
lenskum stjórnmálum. A Alþingi
og i rikisstjórn hefur Alþýðu-
bandalagið haft forustu I mikil-
vægum málum og þannig haft
tækifæri til að sýna i verki hvað
felst i þessum andstæðum. I
borgarstjórn Reykjavikur hefur
fámennisvald Sjálfstæðismanna
setið yfir hlut annarra flokka og
annarra hugsjóna i hálfa öld. Er
ekki mál að linni?”
FÉLAGSLÍF
Sjálfsbjörg,
Reykjavík
Farið verður i eins dags ferð
25. mai nk. Félagar, látið vita
um þátttöku i sima 25388 fyrir
21. mai.
Ferðanefndin
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Bronco, jeppa og
ógangfærar fólksbifreiðar, er verða sýnd-
ar að Grensásvegi 9 i dag, 21. mai kl.
12—3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sala Varnarliðseigna.
Aðalfundur
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins1 öld-
unnar verður haldinn fimmtudaginn 23.
mai að Bárugötu 11 kl. 20.30.
Fundarefni:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Lagabreytingar.
III. Önnur mál.
Stjórnin
Otför föður okkar
ARA FINNSSONAR
frá isafiröi
fer fram frá Fossvogskapellu miövikudaginn 22. mai kl.
10.30.
Pálmi og Sigurfinnur Arasynir.
Atvinna
Atvinna
Mosfellshreppur óskar að ráða 2 menn til
ýmiss konar starfa. Æskilegt er að menn-
irnir séu eitthvað vanir pipulögnum og
þ.u.l.
Enn fremur vantar okkur mann til að aka
vörubil.
Upplýsingar i sima 66218 og 66219.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps.