Þjóðviljinn - 05.06.1974, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 5. júni. 1974
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
KENJAR
Mál: Guðbergur Bergsson
Sá skammarlegi
„Svo virðist sem hérna sitji eitthvert
háskólaráðið,” segir P-handritið.
„Hver veit nema páfagaukurinn sé að
halda fyrirlestur um læknavisindin?
Ekki er vert að trúa orðum hans. Mál
sumra lækna er gulls igildi, en lyf
þeirra eru eins og frá Heródesi. Þeim
ferst einkar vel að fjalla um sjúkdóm-
ana, en siður tekst lækningin. Þeir láta
sjúklingana standa á öndinni af aðdá-
un og fylla grafir kirkjugarðanna af
hauskúpum”.
Orð páfagauksins eru gullvæg, enda
hlusta hálærðu kirkjunnar þjónar og
háskólamennirnir á hann opinmynntir
og andvarpandi i einum kór, sam-
þykkir hverju orði, sem gengur út af
gullgoggnum, hálfpartinn i yfirliði af
andagiftinni og þeirri þungu áherslu,
sem páfagaukurinn leggur á orð sin,
þvi að hann bendir fram fingri að við-
stöddum að hætti ofstækis- og endur-
i. reisnarmannsins. Ekki virðast þó allir
vera öruggir um, hvort þeir séu sam-
stilltir i kórnum, eða hvernig eigi að
andvarpa af undirgefni, þvi að einn lit-
ur til félaga sinna, eins og hann gæti að
þvi, hvernig þeir bera sig að. Undir
ræöupúltinu stendur svo sigildi kenn-
arinn súri, sem aldrei lyftir brún á
fyrirlestrum eða i skólastofu. Ræða
páfagauksins virðist samt vera hin
léttasta. Hann er glettinn á svip undir
viðamiklum gleraugunum og lárviðar-
kransinum á höfðinu, þegar hann étur
upp orð annarra að hætti páfagauks-
ins. Tuggan gengur i tannleysingjana.
„Yfirleitt eru munkar hreinar eftir-
hermur, en með þvi að þeir hrósa stöð-
ugt hver öðrum, gapir aliur áheyr-
endaskarinn af aðdáun,” segir L-
handritið.
Samhengi
mengunar
°g
sjúkdóma
Porsgrunn. Noregi 31/5 —
Rannsóknir sem gerðar
hafa verið í Porsgrunn í
Noregi sýna fram á nær
því óbrigðult samhengi á
milli loftmengunar og
fjarvista barna úr skólum.
Rannsóknirnar ná yfir tvo
skóla. Heistad og Tveten. 1 ná-
grenni þess fyrrnefnda hefur
mælst mesta loftmengun i hérað-
inu, en hún kemur frá áburðar-
verksmiðjum miklum i Heröya.
Er einkum um að ræða köfnunar-
efnisoxiið og brennisteinsoxiið.
Hefur komið i ljós að þremur
dögum eftir að loftmengun hefur
náð hámarki eru fjarvistir úr
skólunum einnig i hámarki. Talið
er að loftmengunin dragi úr mót-
stöðu likamans gegn sjúkdómum
i öndunarfærunum.
5 þúsund
fyrir vor-
kópaskinn
Otlit er fyrir að bændur fái
greiddar 5.000 krónur fyrir fyrsta
flokks kópaskinn i ár. Er það um
20prósent hækkun frá þvi i fyrra.
í fréttabréfi frá SIS segir að
Búvörudeild SÍS geri ráð fyrir að
greiða selveiðibændum fimm
þúsund krónur fyrir kópaskinnið i
ár. Hefur deildin nú sent öllum
selveiðibændum ýtarlegar reglur
um það hvernig verka skuli sel-
skinn þannig, að þau lendi i hæsta
gæöaflokki.
Þá hefur deildin einnig sent út
verkunarreglur fyrir æðardún, en
i mörgum tilfellum eru það sömu
bændur sem fást viö þetta tvennt.
Við upphaf olympíumóts
A mánudaginn fór Olympiu-
sveit islendinga í skák utan.
Eins og komiö hefur fram i dag-
blööunum er sveitin sú sterk-
asta sem héöan hefur veriö
send. En hiö sama gildir um
sveitir margra annarra þjóöa.
Sveitir á mótinu veröa aö Ilk-
indum 76, og i undankeppninni
verður þeim skipt i 6 riðla. í
tveimur riðlum verða 12 sveitir,
en I fjórum verða þær 13. Sveit-
unum verður raðaö í riðla eftir
Elo-stigum, þannig aö þeir veröi
sem jafnastir.
Á siðasta Olympiuskákmóti
varö islenska sveitin i 24. sæti af
63 þjóðum. Telja má öruggt að
12 þjóðir a.m.k. hafi hærri stiga-
tölu en íslendingar og muni
þeim verða raðað tveimur og
tveimur i hvern riðil. Sveitin
mundi liklega verða þriðja eða
fjórða stigahæsta i sinum riðli
og ætti þvi að vera örugg um að
komast i B-riðiI úrslitanna.
Tvær efstu sveitirnar I undanúr-
Rólegra á
Eyjahafi
ANKARA 31/5 —Nokkuð slaknaði
á spennunni milli Tyrkja og
Grikkja eftir fund hershöfðingja
beggja aðila i Izmir i gær. Grikkir
slökuðu á viðbúnaði hers sins en
Tyrkir eru hins vegar enn i við-
bragðsstöðu.
Herskipið Candarli leitaði enn
að oliu I dag, annan daginn I röð. I
fylgd með þvi er öflugur floti her-
skipa og kafbáta og tyrkneski
loftherinn sveimar reglulega yfir
leitarsvæðinu.
slitawiðlunum munu fara I A-
flokk úrslitanna, tvær næstu i B-
flokk og svo koll af kolli.
Ég ætla hvorki að spá neinu
um úrslit I keppninni né um
árangur islensku sveitarinnar.
Ég yrði þó fyrir vonbrigðum ef
hún yrði ekki jafn ofarlega og
siðast. Þá var mótið haldið i
3. Rc3 . d5
4. cxd5 Rxd5
5. Da4 Bd7
6. Dd4 Rf6
7. Dh4 Bg7
8. e4?
Hér var betra að leika 8. d3
Umsjón: Jón G. Briem
Skopje. Þar stóðu Sviar sig með
ágætum og komust i A-flokk úr-
slitanna. Ég er viss um að
fyrstaborðsmanni þeirra, Ulf
Andersson, hefur létt er það
kom I ljós að Austur-Þjóðverjar
mundu ekki senda sveit til
keppninnar núna. Þá lenti hann
i klónum á Uhlmann og lá lag-
lega I þvi. Skákin, sem er sér-
lega vel tefld hjá Uhlmann,
kemur hér á eftir. Ég vona bara
að Friðrik Ólafsson verði búinn
að lesa Þjóðviljann aður en
hann teflir við Andersson,
þ.e.a.s. ef til þess kemur að Is-
lendingar og Sviar eigist við.
Hvitt: Ulf Andersson
Svart: W. Uhlmann
8. ...
9. e5
hfi
Svartur hótaði 9. ...g5 10. Dg3
Rh5
9. ... Rg4
10. Dg3
Ef 10. d4 þá c5 11. Bc4 Dc8
10. ...
11. d4
12. h3
13. Kdl
Rc6
Rb4
Rc2
Rxd4
1. Rf3
2. c4
Rf6
g6
Þessi leikur er mjög
skemmtilegur, og má segja að
hann geri út um skákina, þótt
Andersson verjist enn um sinn.
Auk leiðarinnar sem hann velur
má til gamans rekja eina: 14.
Rxd4 Be5 15. Bf4 BxB 16. DxB e5
17. Dd2 exd4 18. hxg4 dxc3 19. j
Dxc3 Ba4.
14. hxg4 Ba4
15. Rxa4 Rf5
Svartur vinnur nú drottning- I una fyrir 3 menn og hefur mun
betri stöðu.
16. Kc2 Rxg3
17. fxg3 Dd7
18. Rc3 0-0-0 I
19. Be3 g5
20. Be2 Dxg4
21. Rxg5 Dxg3
Nú getur hvitur ekki leikið 22. Hh3 vegna Dxe5 23. Rxf7 Df5 og
riddarinn fellur.
22. Rf3 Bxe5
23. Bxa7 Bxc3
24. bxc3 e5
tekur d4 reitinn af hvits. mönnum
25. Hafl
nú mátti hvitur ekki leika 25.
Be3 vegna Dg6 26. Kb3 De4, og
svartur vinnur mann.
25. ... Hd5
26. Bf2 Dg6
27. Kcl De4
28. Hel Da4
29. Hh4 e4
30. Rd4 f5?
Nú átti svartur að leika Da3
og þá er hvitur varnarlaus. Með
þessum leik gefur hann hvitum
færi á að tryggja kóngsstöðu
sina með 31. Kb2. Andersson sá
ekki þann möguleika, en lék:
Rc2 og þurfti ekki að binda um
skeinu eftir það.
Ulf Andersson
^==^19 -
W. Uhlmann
31. Rc2 Dxa2
32. Hehl Hhd8
33. Be3 Db3
34. Hxh6 Dxc3
gefiö.
JónG.Briem.