Þjóðviljinn - 18.10.1974, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. október 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Guðmundur
Sæmundsson
skrifar
frá
Osló
Fyrri grein
A CEASE FIRE IN VIETNAM
BUT MORE THAN ZOO.OOO POLITICAL PRISONERS LAOIG
f
'sJm
Vopnahlé I Vietnam, en idýflissum bandarikjaleppsins Thiue sitja yfir 200.000 pólitfskir fangar.
Votergeit og Víetnam
Föstudaginn 27. sept. s.l. var ég
beðinn að mæta á blaðamanna-
fundi á sendiskrifstofu útlaga-
stjórnar Suður-VIetnam i Osló.
Ég átti ekki von á, að margt nýtt
kæmi fram á þessum fundi, en
þar skjátlaðist mér. I tveim
greinum ætla ég að reyna að
skýra frá þvi sem mér þótti
mestu varða af þvi, sem þarna
kom fram, ef það mætti verða til
að opna augu einhverra fyrir þvi,
sem þarna er raunverulega að
gerast. Að sjálfsögðu verð ég að
stikla á stóru, þvi að þarna voru
veittar margvislegar upplýsing-
ar, er varða ástandið i S-VIetnam
nú, u.þ.b. ári eftir friðarsamning-
ana i Paris, s.s. um óstjórn og
pólitiskt misferli Thieus forseta,
um meðferð og fjölda pólitiskra
fanga I landinu, um ástandið i
efnahagsmálum þess o.s.frv. Og
e.t.v. gæti það opnað augu ein-
hverra fyrir þvi, hvers eðlis sú
stjórn er, sem við völd er á is-
landi,— þvi að fyrir aðeins örfá-
um dögum litillækkaði Einar
Ágústsson þjóð sina með þvi að
viðurkenna formlega — skv.
beiðni USA — stjórn Thieus. Þetta
gerði hann i sömu ferð og hann
sveik islensku þjóðina i hermál-
inu. Virðast engin takmörk fyrir
þvi, hversu lágt forráðamenn Is-
lands geta lotið i utanrikismálum.
Pólitískt misferli
Thieus
Á blaðamannafundinum skýrði
Le Van Ky, forráðamaður sendi-
skrifstofunnar i Osló allnáið frá
misferli Thieus við stjórn lands-
ins og frá þeirri baráttu, sem nú
er háð i S-Vietnam gegn honum.
Á fyrri hluta árs 1971 voru
haldnar u.þ.b. 300 mótmælaað-
gerðir gegn Thieu og aðgerðir til
að krefjast bættra lifskjara. Hin
fasistiska kúgun Sagion-stjórn-
arinnar ræður hvarvetna rikjum,
m.a. á vinnustöðunum. Ýmiskon-
ar barátta fyrir friði og atvinnu-
öryggi hefur haldið áfram, og nú
upp á siðkastið hefur þjóðar-
hreyfingu gegn einræði Thieus og
spillingunni I stjorn hans vaxið
mjög ásmegin. t borgunum Húe,
Da Nang, Saigon, Can Tho o.fl.
hafa verkamenn, menntamenn,
Mótmælaaðgerðir i Saigon
kaþólikkar og búddhistar sam-
einast i miklum aðgerðum og
mótmælum.
Hinn 9. sept. 1974 hélt Þjóðar-
hreyfingin gegn spillingunní
blaðamannafund i Saigon, þar
sem hún formlega ákærði Thieu
fyrir misferli og misbeitingu
valds. Daginn eftir lagði formað-
ur hreyfingarinnar, kaþólski
presturinn Tran Huu Thanh, fram
6 ákæruatriði á hendur Thieus,
fjölskyldu hans og embættis-
mannahirð. Akæruatriðin eru:
1) Thieu og fjölskylda hans notar
fé rikisins til kaupa og við-
gerða á lúxusibúðum handa
sjálfum sér.
2) Thieu beitir opinberum stofn-
unum til að sölsa undir eign
sina stór landsvæði. Land-
svæði þessi eru óræktuð, en
frjósöm, og gætu veitt fjölda
manns fæði og atvinnu.
3) Thieu-fjölskyldan hefur
hamstrað áburð, og selur
hann nú á uppsprengdu verði
til bændanna. Þetta hefur
valdið áburðarskorti i mörg-
um héruðum. Þá staðreynd
notar Thieu sér með þvi að
biðja USA að senda S-Vietnam
mikíð af áburði ókeypis, en
siðan selur hann þennan gefna
áburð á sama uppsprengda
verðinu.
4) Sjúkrahús Alþýðunnar i
Sagion er rekið af eiginkonu
Thieus. Fé til rekstursins er
fengið úr opinberum sjóðum,
en frú Thieu hefur sett þær
reglur fyrir sjúkrahúsið, að
þar skuli aðeins fá að dvelja
þeir, sem greitt geti okurverð
fyrir dvölina, svo og ættingjar
og vinir Thieus.
5) Thieu forseti og Khiem forsæt-
isráðherra standa fyrir
smygli á eiturlyfinu heróin.
Þetta smygl var uppgötvað af
bandariskum blaðamanni i
Saigon, en staðreyndir
málsins hafa verið þagðar i
hel bæði i ySA og annars stað-
ar i hinum vestrænu löndum.
6) Frænka Thieus og móðir eins
ráðherranna hefur i samstarfi
við forstjóra Nam Viet Bank-
ans hamstrað hris i landinu og
sprengt upp hrisverðið. Þén-
usta þeirra á þessu er u.þ.b.
50—60 miljónir pjastar (ca.
100 þúsund dollarar).
Svar Thieus
Svar Thieus við þessum ákær-
um hefur verið valdbeiting. Hann
hefur sent lögreglusveitir á allar
mótmælaaðgerðir, og hann hefur
með lögregluvaldi látið loka þeim
dagblöðum, sem frá þessu hafa
skýrt. En þessar ráðstafanir hafa
aðeins skerpt baráttuna gegn
honum, og aukið Þjóðarhreyfing-
unni fylgi. Nú undirbýr hreyfing-
in birtingu á nýjum ákæruatrið-
um gegn Thieu, og að sögn tals-
manna hreyfingarinnar má
vænta þess, að þau verði enn al-
varlegri en þau, sem komin eru.
Allar þessar uppljóstranir hafa i
munni suðurvietnamsks fólks
fengið nafnið „Votergeit Thieus”.
Embættismannahirð Thieus
hefur átt i miklum erfiðleikum
með stjórn efnahgsmála. Gjald-
miðill landsins hefur verið felldur
æ ofan i æ. 1 lok ársins 1973 kost-
aði dollarinn t.d. 460 pjasta, en nú
eftir siðustu gengisfellingu 1.
sept. kostar hann 640 pjasta.
Verðlagsþróunin hefur og verið i-
skyggileg, og skv. tölum Saigon-
stjórnarinnar sjálfrar hafa allar
vörur i landinu á 18 mánaða tima-
bili til júliloka 1974 hækkað um
minnst 50% og allt upp i 300%.
Það eru einnig opinberar
Saigon-tölur, sem segja, að meira
en helmingur Saigon-búa lifi und-
ir mörkum þess, sem þarf til að
komast af. Ástandið er betra i
sveitunum, en þó eru samsvar-
andi tölur þaðan háar, um 20%. 1
Saigon eru u.þ.b. 2 miljónir at-
vinnulausra.
Það er þvi ljóstað Thieu vantar
peninga. Ýmislegt hefur hann
gert til að ráða bót á þvi. M.a.
hefur hann reynt að fá erlend
auðfyrirtæki til að f járfesta i oliu-
lindum, sem eru úti fyrir strönd-
um S-VIetnams. Þá hefur hann
einnig reynt að fá f járhagsaðstoð
frá USA, en gengið heldur illa upp
á siðkastið. Ford forseti hefur af
ýmsum innanlandsástæðum ekki
haft tök á þvi að dæla eins miklu i
hann og Nixon gerði. En Banda-
rikin gera þó allt, sem i þeirra
valdi stendur til að fá alþjóðlega
aðila til að styrkja Thieu, bæði
pólitiskt (sbr. tsland) og efna-
hagslega. Þetta hefur þó ekki
gengið sem skyldi, vegna þess
hve vel er orðið kunnugt viða um
heim, að Thieu stjórnar i blóra
við allar lýðræðisreglur.
Meðalþeirra aðila, sem USA og
Thieu reyna að fá peninga frá til
„endurreisnarstarfs” i S-Viet-
nam, er Alþjóðabankinn. Fjár-
beiðnir þessar hafa einu sinni
verið teknar til umræðu þar, en
þá fékkst engin niðurstaða. Hinn
17. okt. verður haldinn annar
fundur bankans um þetta mál, og
er þá búist við að USA takist að
þrýsta „vinaþjóðum” sinum til að
samþykkja fjárhagslegan stuðn-
ing við stjórn Thieus. Meðal
þeirra landa, sem nú má búast
við að styðji þessa kröfu, er ís-
land, sem nú hefur fengið nýja
„frjálshuga”, „samvinnuþýða”
rikisstjórn.
(Framhald).
Ekkert
vegabréf
Samkvæmt upplýsingum frá
aðalræðismanninum i Beirut,
þurfa ferðamenn nú eigi vega-
bréfsáritun áður en þeir koma til
Lebanon ef um stutta dvöl er að
ræða. Á flugvellinum i Beirut
geta ferðamenn fengið annað-
hvort 72 stunda transit-áritun eða
áritun er gildir i 15 daga gegn þvi
að inna af hendi 5 lebanon punda
greiðslu.
Gunnar G.
Schram fær
leyfi til
kennslu í Hí
Dr. Gunnari G. Schram hefur
verið veitt leyfi frá störfum sem
deildarstjóra i utanrikisþjónust-
unni um óákveðinn tima frá 1.
október 1974 að telja til þess að
gegna störfum sem settur
prófessor við Háskóla Islands.