Þjóðviljinn - 15.12.1974, Page 5
Sunntidagur 15. desember 1974. ÞJÓDVILJINN — SÉDA S
af erlendum vettvangl
Auðhringar og þjóðsaga
um frjálsa samkeppni
Auöhringar hins kapitaliska
heims hafa reynt að fylgja þeirri
reglu aö „rikja án þess að sjást”.
Þeim er enginn akkur i þvi, aö
menn geri sér vel grein fyrir þvi,
að framleiðsla og dreifing á
helstu vörutegundum hefur safn-
ast á örfáar hendur risafyrir-
tækja, sem eiga fyrirtæki um all-
ar jaröir og hagræða sin á milli
framboöi og verðlagi. Þeim er
þaö einkar hagkvæmt þegar
menn rekja hækkandi orkuverö
og þá almenna kreppu til „græögi
araba” eins og Guömundur H.
Garöarsson gerði i Morgunblaö-
inu i vikunni, og „gleyma” þvl, aö
enginn hefur hagnast eins mikiö á
oliukreppu og þeir hjá Exxon og
BP og aðrir þeir risar sem ráða
obbanum af oliuhreinsun og sölu.
Svo aö dæmi sé nefnt. Séu tals-
menn auðhringa spurðir, þá telja
þeir hlutverk sitt að miðla kunn-
áttu i tækni og stjórnsýslu, eins-
konar velgjörðastarfsemi i heimi
sem sýktur sé af pólitiskri
heimsku.
Niu bræður i
gróðanum
En ööru hvoru koma fram i
dagsljósið mál sem festa athygli
við þau úlfalög sem ráða starf-
semi alþjóðlegra auðhringa.
Stofnanir þjóðrikja — skattayfir-
völd og dómstólar — leggja öðru
hvoru til atlögu við þá (ekki oft
reyndar). Vegna þess að hring
arnir koma i veg fyrir að þjóðrik-
ið geti gegnt hlutverki sinu, fela
fyrir þvi skatta af gróöa sem til
verður i viðkomandi landi, eða þá
kála innlendum iðnfyrirtækjum
með ýmislegum bolabrögðum.
Eitt slikt mál hefur nýlega
komið upp i Brasiliu. Þar eru
fyrir rétti fulltrúar niu alþjóð-
legra risafyrirtækja á sviöi raf-
tækjaiðnaðar. Risarnir eru BBC,
svissneskur hringur, þýsku
hringirnir Siemens og AEG,
Hitachiog Toshiba frá Japan, Er-
cole Marelli frá Italfu, sænski
hringurinn Asea, General Elec-
tric frá Bandarikjunum og Acec
Charleroi frá Belgiu, en það er
eitt dótturfyrirtæki Westing-
house.
Samningurinn
Samkvæmt skjölum sem á-
kæruvaldið hefur komist yfir hafa
þessir niu risar gert með sér
samning, sem fyrst af öllu skuld-
bindur aðila hans til að koma með
sameiginlegum aðgerðum utan-
aðkomandi keppinautum fyrir
kattarnef. Samningur þessi kveð-
ur einnig á um, að enginn aðila
megi leggja fram sölutilboð eða
verktilboð án þess að verðið hafi
verið samþykkt af yfirstjórn
þessarar einokunarsamsteypu. I
samningunum segir, að ef ein-
hver reyni að fara i kringum
þetta ákvæði megi leggja á það
fyrirtæki sektir sem samsvara
um 20% af andvirði gerðs sölu-
'samnings.
Sektir af þessu tagi ganga i sér-
stakan sjóð sem notaöur er til að
viðhalda einokunaraðstöðu ris-
anna — i þessu tilviki innan
Brasiliu. Auk þess veröur sá raf-
tækjarisi sem samning fær að
leggja til hliðar tvö prósent af
söluverði vörunnar og er þvi fé
dreift sem jöfnunargjaldi milli
þeirra aðila i samsteypunni, sem
hjá verða að sitja i hvert skipti.
Skæruhernaðaraðferðir
Ýmsum ráðum er beitt til að
koma utanaðkomandi keppinaut-
um fyrir kattarnef. Einna algeng-
ast er að koma þeim fyrir kattar-
nef með undirboðum, og hika
hringarnir ekki við að leggja i
mikinn herkostnað ef svo ber
undir. Til dæmis er talið að ein
undirboðaherferö svissneska
hringsins BBC i Brasiliu hafi
kostað dótturfyrirtæki hans þar
upphæð sem svarar fjórum
miljörðum króna.
En mörgum aðferðum öðrum
er lika beitt óspart. Meðlimir ein-
okunarsamsteypunnar heyja ein-
att flókinn og lævislegan skæru-
hernað gegn smærri aðilum.
Beint eða um viðskiptavini sina
tefja þeir hráefnasendingar til
þeirra, láta endurskoöa gerða
samninga við þá eða setja þeim
stólínn fyrir dyrnar i lánavið-
skiptum. Til dæmis fékk gufutúr-
binuverksmiðjan Mescli 1966 all-
miklar pantanir hjá nokkrum
aðilum samsteypunnar. Þegar
verksmiðjan hafði sankað að sér
hráefni og var vel á veg komin
með framleiðsluna riftu risarnir
gerðum samningum skyndilega.
Fyrirtækið var farið á höfuðið áð-
ur en það gæti leitað réttar sins
fyrir dómstólum.
Annað dæmi segir frá þvi
hvernig smærri verksmiðjum sem
framleiddu heimilistæki var
komið á hausinn. Undir allskonar
yfirskyni komu viðskiptaaðilar
þeirra sér undan þvi að senda til
þeirra hráefni og rekstrarvörur I
svo sem tvo eða þrjá mánuöi. Að
þeim tima liðnum sitja fyrirtækin
uppi með allmikið af hálftilbúinni
vöru, hafa ekkert getað selt og
hafa þvi ekkert fé handbært. Þá
er þvi svo til hagað, að verk-
smiðjurnar fá allt i einu sent allt
sem þær höfðu pantað, lagerar
þeirra fyllast. Þau eru félitil sem
fyrr segir, og verða þvi að borga
með vixlum, sem látnir eru falla
við fyrsta tækifæri og gengið sem
harðast eftir með innheimtu. Með
þessum hætti var þrem fyrirtækj-
um, Citylux, Lustrene og Walita
komið á vonarvöl eða þau keypt
upp af einhverjum risanum. Nú
siðast á þessu ári hefur sænski
hringurinn Asea orðið uppvis af
þvi að tefja afgreiðslu á vissum
hlutum sem rafalar verða ekki
framleiddir án, til þess að koma
brasiliskum keppinaut risanna
fyrir kattarnef.
Með þessum og hliðstæöum að-
ferðum hefur 85% af raftækja-
framleiðslu og vélsmiðum I
Brasiliu komist i hendur erlendra
auðhringa, enda þótt innlend
fyrirtæki hafi starfað þar og safn-
aði reynslu áratugum saman.
Hálfrar aldar reynsla
Þegar Bandarikjamenn her-
námu Þýskaland með öðrum i
striðslok fundu þeir i skjalasöfn-
um afar merkar upplýsingar um
kærleiksrikt samstarf alþjóð-
legra risafyrirtækja, sem fóru
sinu fram hvað sem styrjöldum
leið. Bandariska verslunarmála-
nefndin birti árið 1948 þær upplýs-
ingar um rafmagnsrisana sem
þannig voru teknir herfangi. Þar
kom á daginn að hringarnir
höfðu þegar árið 1919 komið sér I
stórum dráttum saman um að
skipta með sér áhrifasvæðum I
heiminum og verkefnum, og var
þessi einokun<_rsamsteypa fest I
sessi og skipulag hennar full-
komnað með viðbótarsamningum
1930 og 1936 undir hatti IEA,
International Electrical Asso-
ciation. Þetta kerfi stóð af sér að
mestu stormsveipi styrjaldarinn-
ar, þótt þýskir aðilar hyrfu af
skrá um tima eftir strið.
Birting þessara upplýsinga
varð til þess, að rafmagnsrisarnir
(en hliðstætt kerfi er auðvitað til i
öðrum greinum einnig, samanber
verðmyndunarkerfi olíurisanna)
fóru sér um hrið varlega, reyndu
sem best að fara með veggjum.
Þó hefur upp úr soðið öðru hvoru I
samskiptum þeirra við lögin. All-
fræg urðu til dæmis málaferli
gegn 29 fyrirtækjum og 46 for-
stjórum raftækjaiðnaðarins, sem
rekin voru i Philadelphiu i
Bandaríkjunum árið 1960. 30 for-
stjórar fengu fangelsisdóma og
gerðust þá þau sjaldgæfu tiðindi
að málsaðili frá hinu almáttuga
General Electric varð að sitja
inni i hálft ár. 1971 voru svo háð
málaferli I Bandarikjunum gegn
erlendum aðilum eins og BBC,
Toshiba og Hitachi, fyrir undir-
boð.
En auðhringasamsteypurnar
eru eins og sá frægi þurs úr al-
þjóðlegum ævintýrum: þegar
einn haus er af höggvinn vaxa
þrir i staðinn — á sama hálsi.
Smærri fyrirtæki halda áfram að
fara á höfuðið eða hverfa inn I
einhvern risann um öll vestur-
lönd. Þvi er spáð, aö um 1980
muni öll framleiðsla hins kapit-
alska heims komin á hendur sjö
eða átta aðila.
Luterbacher, forstjóri BBC: æru-
meiðingarkæran snerist gegn
þeim æruineiddu.
Af hverju Brasilia?
Málaferlin i Brasiliu hófust á
þann veg, að brasilskur eigandi
fyrirtækisins Codima sleit tengsli
sin við einokunarsamsteypuna og
sakaði BBC um ólögmæt undir-
boð. BBC svaraði með
gagnákæru um ærumeið"
ingar og þar með var fjandinn
laus, þvi eigandi Codima hafði i
fórum sinum öll gögn samsteyp-
unnar um skiptingu Brasiliu. Það
er ef til vill engin tilviljun, að slikt
mál sé rekið af nokkurri hörku i
Brasiliu. Það land er auðugt
mjög, og brasilsk borgarastétt
þykist nú hafa þann vöðvastyrk
að hún geti heimtað stærri hluta
af gróða þeim sem til veröur i
landinu i sinn hlut. Valdhafar i
smærri og snauöari löndum
þriöja heimsins, ekki sist þeirra
sem búa við einhæft atvinnulif,
hafa hinsvegar reynst varnarlitl-
ir gegn vélabrögðum hinna al-
þjóðlegu auðhringa og hafa orðið
að sitja og standa eins og þeim
þóknast. Umsvif þessara hringa
eru það, sem mest hefur komið I
veg fyrir það, að þjóðir fyrrver-
andi nýlendna eða hálfnýlendna
hafi hlotið fullgilt sjálfstæði. Vald
þeirra ræður mestu um þau við
heims hefur mátt átti sæta og
hafa til þessa stuðlað að þvi að
auka jafnt og þétt bilið á milli
iðnrikja og þróunarlanda.
A.B. tók saman.
Svona var nmhorfs hjá Lusterne eftir árangnrsrlkan skeruhernaft raf-
magnsrisanna.
Sýndu mér ást þína
Ný, spennandi ástarsaga eftir
Bodil Forsberg.
m
Eftirlýstur af gestapo
Sönn frásögn af Norömanninum
Jan Baalsrud. Margföld
metsölubók.
Guómundur Böövarsson
Ljóðasafn —
Ljóöæska
Guömundar Böðvarsson
áöur óprentuð ljóð hans.
Njósnari í netinu
eftir Francis Clifford. Spennandi
njósnasaga, sem tekur mann
heljartökum.
Til landsins
Ljóð sautján höfunda. Jóhan
Hjálmarsson valdi myndir efti
Sverri Haraldsson.
HÖRPUÚTGÁFAN