Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. desember 1974. cTVtyndir « úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka Sæmundur Friftriksson fyrsti Sigurdór Sigurftsson fyrsti formaöur félagsins formaöur sjómannadeildar VERKALÝÐSFÉLAG AKRANESS SO ÁRA Blaðað í afmælisriti Verkalýösfélag Akraness var 50 ára 14. október sl. Af þvi til- efni gaf félagið út afmælisrit með margskonar efni þar sem rifjað er upp sitthvað úr sögu félagsins og vikið að þeim vandamálum sem verkalýðs- hreyfing samtimans á við að glima. Það var fimmtudaginn 9. október 1924 að allmargir sjó- menn og verkamenn — ein kona! — komu saman til fundar i Báruhúsinu á Akranesi i þeim tiigangi að vinna að undir- búningi að stofnun verkalýðs- félags á staðnum. Fundarstjóri var Sveinbjörn Oddsson og fundarritari Sæmundur Friö- riksson. Frummælandi á þessum undírbúningsfundi var Oddur Sveinsson, Akri. Hann flutti snjallt erindi um alþýöu- hreyfinguna i Evrópu og lýsti starfi hennar og stefnuog hversu miklu hún gæti komið til leiðar. Þá ræddi Sæmundur Friðriks- son um stofnun verkalýðsfélags, og tóku viðstaddir mjög undir nauðsyn þess. Var siðan kosin 9 manna nefnd til þess að undir- búa stofnfund félagsins, sem ákveðinn var 14. október. A stofnfundinum voru félaginu sett fyrstu lögin og þvi kosin fyrsta stjórnin. Formaður var kjörinn Sæmundur Friðriksson. Fyrsta lagagreinin hljóðaði svo: , „Tilgangur félagsins er að efla og styðja hag og menningu alþýöunnar á þvi svæði, sem félagið nær yfir, með þvi að vinna að sjálfsbjargarviðleitni almennings, ákveða vinnutima og kaupgjald, og með sjálf- stæðri þátttöku alþýöunnar i stjórnmálum lands og sveitar- félags, allt i samræmi við önnur verkalýösfélög og Alþýðusam- Fyrsta matreiftsluníf mskeift kvennadeildar 1932. Efri rftft fv: Guftmunda Jónsdóttir, Hulda Eiaarsdóttir, Steinunn Tómasdóttir, Halldóra Arnadóttir, Sesselja Jóhannsdóttir, Asdls Asmundsdóttir, Arnóra Oddsdóttir, Guöný Tómasdóttir. Neöri röö fv: Elisabet Hallgrimsdóttir, Ingileif Guöjónsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Soffla Skúladóttir, kennari, Jórunn Armannsdóttir, Elisabct Jónsdóttir, Guörún Siguröardóttir. Vaskfólk á Kampinum hjá Halldóri I Aöalbóli. Myndln mun vera frá árinu 1932. Frá vinstri: Arnóra Oddsdóttir, Guölaug Einarsdóttir, Margrét Helgadóttir, Valbjörg Kristmundsdóttir, Vilhjálmur Benediktsson, Fanney Gunnarsdóttir, Maria Guöjónsdóttir, Guölaug Jónsdóttir, Guörún Gunnarsdóttir, Guðrlöur Guðmundsdóttir, Asta Torfadóttir. bandið.” Félagið mætti andspyrnu atvinnurekenda þá sem siðar, en i upphafi neituðu þeir aö viðurkenna samningsrétt félagsins — á siðari árum hafa þeir notað lævisari aöferöir. Fljótlega eftir stofnun verka- lýðsfélagsins kom fram sú hug- mynd að heppilegt kynni aö vera að skipta félaginu i deildir. Var það siðan ákveðið. Fyrsta deildin var kvennadeildin og voru stofnendur deildarinnar 13. Fyrsti formaður var Arnóra Oddsdóttir. 1931 var sjómanna- deildin stofnuð. Fyrsti formaöur hennar var Sigurdór Sigurðs- son. Vélstjóradeild var stofnuð 1936 og var Hendrik Steinsson fyrsti formaðurinn. Bilstjóra- deild var stofnuð 1939. Fyrsti formaður var Leó Eyjólfsson. Deildirnar hafa starfað óslitið siðan, nema bilstjóradeildin, sem var lögð niður þegar Vöru- bilastöð Akraness var stofnuð. A 50 ára starfsferli hefur Verkalýðsfélag Akraness helgað sig fjölmörgum málum og eru þau að nokkru rakin i rit- gerð i afmælisritinu eftir Guðmund Kristin Ölafsson. Núverandi formaður Verka- lýðsfélags Akraness er Skúli Þóröarson Gömul mynd af Akranesi Stjórn verkalýösfélagsins 1973, Fremri röö fv: Garöar Halldórsson, Skúll Þóröarson, form., Guömundur Kr. ólafsson. Aftari röö fv. Jón Guöjónsson, Bjarnfrföur Leósdóttir, Arni Ingvarsson, Herdls ólafsdóttir, form. kvennadeildar, Steinþór Magnússon. Rpan er jafnhættuleg og sígarettan Það er nú komið á dag- inn, að pípureykingar eru nær alveg jafnhættulegar og sigarettureykingar, en það þótti sannast í rann- sókn á 50 þúsund svíum, sem f ylgst hef ur verið með reykingum hjá siðan 1962. Frá þessu segir i „Dagens Nyheter”, en það er læknir meö þvi slavneska nafni Dd. Zdeneg Hrubec, sem staðið hefur fyrir rannsóknunum. Dr. Hrubec bendir á i niður- stöðum sinum, að sönnun á skaö- semi pipureykinga sé nýjung i reykingarannsóknum, þvi hingaö til hafi fyrst og fremst veriö gerðar rannsóknir og saman- burður á ævilengd þeirra sem ekki reyktu og reykingamanna og rannsóknir þá fyrst og fremst beinst aö sigarettureykingum. Sviarnir sem fylgst var með voru bæði pipu- og sigarettu- reykingamenn og báðum hópum reyndist tiú sinnum hættara við að deyja úr lungnakrabba en þeim sem ekki reykja.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.