Þjóðviljinn - 19.01.1975, Side 4
4 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1975.
MÚÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjúðviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan Ölafsson, Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Svavar Gestsson Prentun: Blaðaprent h.f.
Á JÁKVÆÐAN HÁTT
Þegar oliukreppan hófst haustið 1973 og
oliuafurðir margfölduðust i verði, urðu
viðbrögð vinstristjórnarinnar þau að láta
kanna hvernig islendingar gætu með sem
skjótustum hætti nýtt innlenda orkugjafa i
stað oliu til húshitunar og annarra þarfa.
Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thor-
oddsens var falið að vinna það verk i sam-
starfi við ýmsa opinbera aðila, og jafn-
framt var Seðlabankanum falið að semja
fjármögnunaráætlun um þessar fram-
kvæmdir. Áfangaskýrsla frá þessum
aðilum var lögð fyrir þing fyrir tæpu ári,
og sannaði hún að hér var um að ræða
framkvæmdir sem væru þjóðhagslega
mjög hagkvæmar; þær jafngiltu umfangs-
mikilli útflutningsframleiðslu og stuðluðu
jafnframt mjög að auknu efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarbúsins og öryggi
þegnanna. Skýrslan bar með sér að unnt
væri að ljúka hitaveituframkvæmdum á
árinu 1976 og tryggja landsmönnum
öllum næga raforku til húshitunar og
annarra þarfa i lok þessa áratugs. Skýrslu
þessari fylgdi vinstristjórnin eftir með
þingsályktunartillögu, þar sem ákveðið
var að gera endanlega og bindandi áætlun
- EÐA NEIKVÆÐAN
um þessar framkvæmdir og árlega áfanga
að þvi er varðar verkþætti og f jármögnun.
Var ráðgert að þessar framkvæmdir
skýldu hafa algeran forgang á sviði
orkumála við útvegun fjármagns og
ráðstöfun á vinnuafli. Þingsályktunartil-
laga þessi var ekki afgreidd á þingi vorið
1974, en vinstristjórnin hélt áfram að
vinna að framkvæmd hennar.
Þegar núverandi rikisstjórn var
mynduð urðu alger umskipti á þessu
sviði. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð-
herra lét stöðva áætlunargerðina og hefur
ekkert verið að henni unnið undanfarna
fimm mánuði. Á þinginu i haust var meira
að segja reynt að koma i veg fyrir að
tillögu þingmanna Alþýðubandalagsins
um framhald þessa verks yrði visað til
nefndar með fáranlegu málþófi.
Framkvæmdir við stofnlinu milli Suður-
lands og Norðurlands sem áttu að hefjast
um miðjan september i haust voru
stöðvaðar, en þeirri linu er ætlað að
tryggja það að öll orka Sigölduvirkjunar
geti nýst til húshitunar þegar er sú stór-
virkjun tekur til starfa á næsta ári.
Nauðsynlegar fjárveitingar til Rafmagns-
veitna rikisins voru skornar stórlega niður
á fjárlögum þessa árs. Tillaga Alþýðu-
bandalagsins um heimild til allt að 1000
miljóna króna lántöku innan lands og utan
til þess að leggja stofnlinur og styrkja
dreifikerfi var felld af öllum þingmönnum
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks,
en þær framkvæmdir eru forsenda þess að
unnt sé að nýta raforku til húshitunar i
stað oliu, þar sem ekki er kostur á heitu
vatni.
A þetta er minnt vegna þess að Morgun-
blaðið hefur undanfarna daga klifað á þvi
hvert áfall oliuverðhækkanirnar hafi orðið
þjóðarbúinu. Við slikum áföllum er unnt
að bregðast með tvennu móti. Á jákvæðan
hátt eins og vinstristjórnin lagði áherslu
á; með þvi að hraða nýtingu orkulinda
okkar og snúa áföllunum þannig til góðs á
stuttu árabili. Eða á neikvæðan hátt eins
og ihaldsstjórnin gerir; með þvi að
hagnýta slik áföll sem rökdsemd fyrir
nauðsyn þess að skerða kjör láglauna-
fólks, aldraðs fólks og öryrkja, hækka
verðlag en binda tekjur. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur aðeins áhuga á siðari
viðbrögðunum, og Framsóknarflokkurinn
eltir, á sama hátt og hann elti stefnu
Alþýðubandalagsins i fyrri rikisstjórn.
—m.
Hin dapurlega
saga af
syni Gauguins
Paul Gauguin er einna
frægastur þeirra manna,
sem taldir eru höfundar
nútímalistar. Hann flúði á
sínum tíma borgaralegt
starf og f jölskyldu og nam
ekki staðar fyrr en á
Kyrrahafi, á Tahiti. Þang-
að kom hann árið 1891 og
lést þar tólf árum síðar. Á
Tahititímanum málaði
hann mörg þeirra verka
sem frægust hafa orðið.
En hvað varð eftir af Gauguin á
Tahiti? Skammt frá borginni
Papetee er glæsilegt safn sem
honum er helgað og ætlað til að
laða að túrista. En engin frum-
mynd eftir meistarann hefur
varðveist á Suðurhafseyjum.
Snilldarverk hans þaðan eru
dreifð um allan heim — fyrir
duttlunga örlaganna eru sum
þeirra bestu á Eremitage-safninu
i Leningrad.
Emile Gauguin meö barnabarni sfnu
En Paul Gauguin átti reyndar
fjögurra ára gamlan son þegar
hann lést, Emile. Það var ekki
fyrr en um 1950 að
menn uppgötvuðu að hann var til
— bandariskur hótelstjóri fann
hann á bisanum i Papetee og datt
i hug, að kannski væri hægt að
koma þessu fræga nafni i pen-
inga. Hann útvegaði Emile liti og
pensla og bjóst við þvi að likind-
um að eitthvað yrði til sem tiðind-
um mætti sæta I myndheimi. En
það kom fyrir ekki. Arið 1963
gerði franskur kvenmaður aðra
tilraun til að koma frægu nafni i
verð. Hún sendi Emile til Chicago
og lét hann búa i átján mánuði
þar meðal listamanna.
Þeir reyndu að kenna mér að
mála, sagði Emile. En það þýddi
ekkert. Ég get ekki málað. Og ég
fór aftur heim til Tahiti.
Og aftur selur Emile Gauguin
fiskagildrur og snikir sér fyrir
rauðvinspotti. Og það sem verra
er: nú hlæja allir eyjaskeggjar að
þessum aumingja manni, sem
var svo óheppinn að bera frægt
nafn.
Tré sem
veður-
spámenn
Breytingar á veðurfari viröast
ganga I sérkennilegum bylgjum
frá vestri til austurs og austri til
vesturs I samræmi viö breytingar
á aödráttarafli i umhvcrfi jaröar.
Þetta samhengi hefur komið i
ljós við rannsóknir á vegum skóg-
ræktardeildar Timirjazéf-
akademiu landbúnaðarins i
Moskvu. Þar voru árhringir i
trjám mældir, en þeir eru mis-
gildir eftir veðurfari eins og
kunnugt er. Ekki aðeins voru
mældir hringir i núlifandi trjám,
heldur einnig grafnir upp trjábol-
ir sem höfðu varðveist vel vegna
þess að ekki hafði loft komist aö
þeim. Dregin voru upp kort sem
sýndu breytingar á trjávexti i
meira en þúsund ár. Þessar
breytingar voru svo bornar sam-
an við geimvisindaupplýsingar,
veðurfræðiathuganir o.fl. Það
kom sem sagt i ljós, að stærö ár-
hringja er tengd breytingum á
aðdráttarafli i sólkerfinu, en þær
eru mjög háttbundnar. Menn
gera sér vonir um að á þessum
grundvelli sé unnt að gera veður-
spá fyrir öll Sovétrikin til 25 ára.
(Apn)
Arhringirnir geyma upplýsingar um veöurfarog vfsbendingar um framtföina.