Þjóðviljinn - 19.01.1975, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1975.
________________________SVAVAR GESTSSON:
Sósíalísk úrræði á dagskrá
Visitala er mælikvarði, notaður
til þess að sýna breytingar til-
tekinna þátta frá degi til dags.
Vlsitala framfærslukostnaðar er
gerð samkvæmt könnun á neyslu
almennings á hinum ýmsu vöru-
tegundum og notkun þjónustu
hvers konar. Visitala framfærslu-
kostnaðar er „breið” visitala,
hún nær til nær allra neyslu-
þáttanna. Hún er einnig umdeild.
einkum hvort rétt sé að greiða
hækkanir sem verða kunna á
henni fjórum sinnum á ári hlut-
fallslega, þannig að þeir sem hafi
hæstu launin fái flestar krónurnar
I visitölubætur.
Með „vfsitölufjölskylda” er átt
við eins konar meðalfjölskyldu,
venjulega reykviska neyslufjöl-
skyldu. Þessi fjölskylda er fjög-
urra manna. Þegar vara hækkar
áætlar Hagstofa Islands eftir
föstum reglum hvaða áhrif
einstök hækkun hefur á fram-
færsluvisitöluna til hækkunar eða
lækkunar. Þegar hægristjórnin
tók við i sumar var visitala fram-
færslukostnaðar talin vera 296,8
stig. Nú er hún talin vera um 360
stig, hækkunin er 21% frá þvi að
hægristjórnin tók við.
En hvað sem liður reglum um
vísitöluna, útreikningi hennar og
fullyrðingum stjórnmálamanna á
vixl liggur sú meginstaðreynd
fyrir — sem allur almenningur
skilur af eigin raun — að kaup-
máttur launa hefur dregist
saman. Með kaupmáttur er átt
við það vörumagn sem unnt er að
kaupa fyrir greiðslu sem verka-
maður fær fyrir að selja vinnuafl
sitt i tiltekinn tima. Þegar vinstri
stjórnin sat við völd batnaði
kaupmáttur launa mjög
verulega. Um það eru til tölur, en
það vita menn einnig best með þvi
að lita á eiginn hag siðustu árin i
samanburði við það sem tiðkaðist
á atvinnuleysis- og landflótta-
árum viðreisnarflokkanna — og
með samanburði við það sem nú
er.
En við minntumst á vísitölu.
Það gerðum við vegna þess að
unnt er með þvi að nota einingar
visitölunnar til viðmiðunar að
sýna fram á það i beinhörðum
tölum hvernig kaupmáttur
launanna hefur skerst; aðeins
með þvi að athuga fáeinar
algengar vörutegundir.
Algengustu neysluvörur
almennings eru landbúnaðar-
vörurnar. Þær hafa hækkað mjög
verulega á siðustu mánuðum. Við
tökum til athugunar verðlag á
mjólk, smjöri, kartöflum og
súpukjöti. Þá tökum viö til
athugunar verðlag á nokkrum
innfluttum vörutegundum: Sykri,
sem hefur hækkað mest allra
vara, kaffi, þar sem nokkur
hækkun hefur átt sér stað siðustu
mánuði og epli, sem hafa hækkað
mjög litið. Siðan tökum við til
athugunar verðlag á þjónustu
opinbers aðila; athugum simann,
rafmagnið og hitaveituna i
Reykjavik. Og tökum loks
bensinið til þess að komast i
örlitla beina snertingu við það
sem sagt er upphaf allra hörm-
unganna: Oliuhækkanirnar.
Fjórar tegundir
landbúnaðarvara
1 sumar þegar hægristjórnin
tók viö kostaði eitt kiló af súpu-
kjöti 207,- kr., eitt kiló af kar-
töflum 15,80, eitt kiló af smjöri
200,-, og einn liter mjólkur i fernu
20,80.
Þegar hægristjórnin kom i
valdastólana var kaup eftir 5ta
taxta Dagsbrúnar eftir eins árs
vinnu 207,60 á timann. Nú er kaup
eftir sama taxta með „láglauna-
bótum” og kauphækkun 3% 1.
desember alls kr. 234,10 á timann.
t ágúst dugði timakaupiö til þess
að kaupa eitt kiló afsúpukjöti, eða
11,25 litra af mjólk eða eitt kiló af
smjöri eða 13 kfló af kartöflum.
Nú dugar sama timakaup til að
kaupa 0,7 kiló af súpukjöti, eða 7,1
litra af mjolk eða 0,5 kg af smjöri
eða 5,6 kg af kartöflum. Þetta má
lika orða þannig að i ágúst hafi
verkamaðurinn verið klukku-
stund að vinna fyrir
smjörkilóinu; nú er hann tvær
klukkustundir að vinna fyrir
sama vörumagni o.s.frv.
Nú kostar kilóið af súpukjötinu
nefnilega 329,-, liter mjólkur i
fernu 33 kr„ smjörkilóið 463 og
kiló af kartöflum 41,80.
Samkvæmt visitölu fram-
færslukostnaðar er gert ráð fyrir
aöfjögurra manna fjölskylda noti
30 kg af súpukjöti á ári. Þetta
kjötmagn kostaði samkvæmt
verðlaginu i ágúst 6.210,-, en
kostar nú 13.890,-. Hækkun
þessarar vöru er 7.680,-. 1
vfsitölugrundvellinum er gert ráð
fyrir að visitölufjölskyldan noti
940 litra mjólkur á ári.
Samkvæmt verðlaginu 1. ágúst
kostaði ársforði þessarar vöru-
tegúndar 19.552,- kr., — en sama
magn kostar nú 31.020,-.
Hækkunin á því mjólkurmagni,
sem talið er að meðalfjölskyldan
noti á ári, er i krónum talin
11.468,-
A sama hátt gerir visitálan ráö
fyrirað meðalfjölskyldan neyti 50
kflóa af kartöflum á ári. Þetta
magn kostaði 790 kr. á verðlaginu
i ágúst, en kostar nú 2.090,-.
Hækkun 1.300.-. 1 visitölunni er
gert ráð fyrir að meðalfjöl-
skyldan noti 22,72 kg. af smjöri á
ári. Þetta vfsitölusmjör kostaði
fjölskylduna 4.574 kr. á ári miðað
við verðlagið I ágúst. Miðað við
verðlagið i dag kostar ársforðinn
10.519,36. Hækkun 5.945,- kr.
Á móti þessum útreikningum
getur rikisstjórnin og málgögn
hennar sagt að niðurgreiðslur
hafi verið mjög háar þegar hún
tók við. Það er rétt, — en megin-
atriðið er þó að þessar hækkanir
hafa ekki verið bættar i hærra
kaupi nema að brotabroti. Þaö er
sá útreikningur, sem alþýðu-
heimilin spyrja um.
Eplin , sykurinn,
kaffið
t visitölunni er gert ráð fyrir að
fjölskyldan noti 50 kiló af eplum á
ári, 70,9 kiló af sykri og 26 kfló af
kaffi. 50 kg epla kostuðu á
verðlagi ágústmánaðar 7.850 kr.
en kosta á verðlagi dagsins i dag
8.750,-, hafa hækkað um 900 kr.
Arsforði visitölufjölskyldunnar af
strásykri kostaði 9.500 kr. á verð-
lagi ágústmánaðar — kostar nú
19.497.50. Hækkunin ein nemur
9.997.50. Kaffið ofan f visitölufjöl-
skylduna kostaði um stjórnar-
skipti 9.724,- kostar hins vegar á
verðlagi dagsins I dag 12.532,-.
Hækkunin á blessuðu kaffinu:
2.808,-.
Þessar vörur skulum við einnig
taka til athugunar miðað við kaup
verkamanns sem i eitt ár hefur
unniö eftir 5ta taxta Dagsbrúnar.
A einni klukkustund vann hann I
sumar fyrir 1,5 kilóum af
strásykri á tlmann eða fyrir 1,3
kilóum af eplum eða 0,6 kg af
kaffi. Nú vinnur hann á
klukkustund fyrir 0,8 kg af
strásykri, 1,3 kg af eplum og 0,5
kg af kaffi.
Samkvæmt framf ærsluvisi-
tölunni ergert ráð fyrir að meðal-
fjölskyldan borði hvorki meira né
minna en 110,65 franskbrauð á
áFÍ, — 500 gramma brauð. Þetta
þykja náttúrulækningamönnum
vafalaust mikil tiðindi og ill. öll
þessi brauð kostuðu miðað við
verðlagið i ágúst 5.311,20 kr., en
sama magn kostar nú 6.639,00 kr.
Hækkunin nemur 1.327.80.
Átta vörutegundir
Við höfum nú skoðað átta
vörutegundir og verðbreytingar á
þeim. Við höfum til þess að vera
sanngirnin uppmáluð eins og
venjulega tekið vörutegundir sem
hafa hækkað mjög lftið — epli og
franskbrauð — vörutegundir sem
hafa hækkað I meðallagi — kaffi
— og svo innlendar landbúnaðar-
vörutegundir. Miðað við það
verðlag sem var I gildi I ágúst-
mánuöi kostaöi ársforöi þessara
vörutegunda alls 65.511,20 kr.
Sama vörumagn kostar nú
104.937.86 kr. Hækkunin á þessum
vörutegundum einum er 41.426.66
kr.
Miðað viö verðlagið og tlma-
kaupið i ágúst var verkamaður á
5ta taxta verkamannalauna um
316 klst. að vinna fyrir neyslu
sinni af áðurnefndum átta vöru-
flokkum. Samkvæmt verðlagi og
kaupi I dag er sami verkamaður
um 448 klukkustundir að vinna
fyrir þessu vörumagni; 132
klukkustundum lengur e'n I
sumar. Nú á vinnuvikan að vera
40 stundir, verkamaðurinn er 16
dögum og fjórum klukkustundum
lengur aö vinna fyrir sama vöru-
magni: sem sagt nokkuö á fjórðu
viku.
Kaupiðhans hefur frá 1. ágúst
hækkað um 12,87%, en ársmagn
ofantalinna vörutegunda handa
fjölskyldu hans hefur hækkað I
verði um 63,24%. Nú er kaup hans
234,10 á klukkustund, en þyrfti aö
vera 338,80 kr. á klukkustund ef
þaö ætti að hatda sama kaup-
mætti gagnvart áðurgreindum
vöruflokkum. Að sjálfsögðu skal
tekið fram að þar er aðeins um
injög takmarkaðan vöruflokk að
ræða, sem engu að siður segir
mikla sögu um ástand verðlags-
■nála og kaupgjalds undir liægri-.
stjórn.
Hækkanir
ríkisstjórnarinnar
Gagnstætt þvi sem var á valda-
tima vinstristjórnarinnar er nú
minnihluti hækkananna af
erlendum toga spunninn. Þær
hækkanir sem hafa átt sér stað
frá þvi að núverandi rikisstjórn
tók við völdum eru flestar á
ábyrgð rikisstjórnarinnar,
Visitala framfærslukostnaðar
var 296,8 stig 1. ágúst sl. Nú er
talið að þessi sama visitala sé um
360 stig. Gerum þvi ráð fvrir þvi
að hækkunin sé 63,2 stig. Það
gerir liðlega 21%. Þessi hækkun
f-visitölu skiptisti meginatriðum
þannig eftir verðhækkunar-
tilefnum:
Landbúnaðarvörur 19,8 stig,
þar af 4 stig vegna minni
niðurgreiðslna.
Tóbak og áfengi 1,9 stig
Póstur og slmi 2,3 stig.
Rafmagn, hitaveita, strætis-
vagnar 6,5 stig
Bensin 3,7 stig.
Hér er um að ræða samtals 34,2
stig eða riflega helming þeirrar
hækkunar, sem orðið hefur á
framfærsluvisitölunni frá 1.
ágúst. Ber að geta þess að inni i
þessum hækkunum, sem nefndar
hafa verið, eru að sjálfsögðu
einhver erlend verðhækkunartil-
efni — en það hefur heldur ekki
allt verið nefnt, sem rikisstjórnin
ber ábyrgð á til hækkana á öllu
verðlagi. Skal þar fyrst framtalin
gengislækkunin sem llklega hefur
I för með sér um 18 stiga hækkun f
-visitölunnar og söluskatts-
hækkunin um 2 prósentustig, sem
hefur í för með sér um 2,5 stiga
hækkun f-visitölunnar. Hefur þvi
verið sýnt fram á að ekki minna
en 50 stig af þeim liölega 60 sem
orðið hafa I hækkun f-visitölunnar
skrifast einhliða á reikning rikis-
stjórnarinnar — hægristjórnar-
innar.
Samkvæmt visitölu fram-
færslukostnaðar þarf visitölufjöl-
skyldan, sem við töluðum um i
upphafi, 870-880 þúsund króna
árstekjur fyrir utan húsnæðis-
kostnað. 1. ágúst þurfti sama
fjölskylda 710-720 þúsund króna
árstekjur til þess að greiða neyslu
sina samkvæmt visitölunni.
Hækkunin er 170 þúsund krónur á
ári, sem visitölufjölskyldan þarl
meira nú fyrir ársforða sinum en
skv. verðlaginu 1. ágúst. Lægstu
laun hafa hækkað — á ársgrund-
velli —um 53.600 kr., en 80.000 kr.
mánaðarlaun hafa hækkað miðað
við heilt ár um 16.800 kr.
170 þús. kr. á ári greiðir visi-
tölufjölskyldan — og þær eru
taldar i tugum þúsunda — I gjald
fyrir kosningasigur ihaldsins sl.
vor.
Sósíalísk úrræði
Enda þótt það sé að sjálfsögðu
viðurkennt að aðsteðjandi
erlendur vandi er gifurlegur, ber
að hafa i huga jafnframt fyrst og
fremst hvernig er unnt að mæta
þessum vanda án þess að koma
viö hag þess fólks, sem hefur
aðeins af almennum launatekjum
að lifa. Lausnin á þeim vanda er
vissulega engin önnur en sósialisk
úrræði — en verkalýðssamtökin
og forusta þeirra mega heldur
ekki skirrast við að krefjast
þeirra áður en þau samþykkja
skerðingu á kaupmætti launa
þess fólks sem þarf að lifa af
almennum verkalaunum.
Til þessa hefur rikis. tjórn
Islands hins vegar l^itast við að
velta öllum vandanum yfir á
launafólk og hún hefur raunar
gert meira og gengið lengra: Hún
hefur tekið meira af launafólki,
miklu meira, en hinum aðsteðj-
andi vanda nemur. Rikisstjórn
hægriflokkanna notar sér bein-
linis verðbólguna og erlendu
kreppuna i krafti fjölmiðla-
aðstöðu og stéttaraðstöðu sinnar
til þess að skerða hag launafólks
og til þess að færa fjármagn frá
launafólkinu til auðstéttanna og
milliliðanna. Kakan minnkar er
sagt, en skerðing margfrægrar
köku er öll látin bitna á almenn-
ingi. Þaðsýna dæmin hér á undan
— það er öllum kunnugt.
Hvaö á að gera?
Þegar batnandi viðskiptakjör
hafa i bili hætt að færa þjóðar-
búinu stórbætta afkomu ber að
gera marghliða ráðstafanir.
Þjóðviljinn telur að þær ráðstaf-
anir sem beinlinis er frumskylda
að efna til séu eftirfarandi:
1. Gera berýtarlega úttekt á öllu
þjóðarbúinu, þar með talin
eigna- og skuldakönnun. Verka-
lýðshréyfingin og stjórnarand-
staðan verða að hafa hönd i
bagga með þessari könnun. Hún
ætti ekki að taka nema fáeinar
vikur.
2. Þegar niðurstöður hennar
lægju fyrir ber að taka
ákvörðun um þaö hvernig unnt
er að koma I veg fyrir þá sóun
sem á sér stað I þjóðfélaginu og
vitað er um, og könnun myndi
leiöa í Ijós.
Jafnframt er nauðsynlegt að
bæta r eks tr ar hagk v æ mn i
atvinnufyrirtækja, draga ber úr
rekstrarkostnaöi i versluninni
innanlands, bæði smásölu-
verslun og heildverslun. t grein
sem birtist I blaðinu fyrir
áramót um verslunina var sýnt
fram á hve gifurlegt fjármagn
— miljörðum saman —
verslunin tekur til sin. Sérstak-
lega ber að taka innflutnings-
verslunina og skipulag hennar
til athugunar.
3. Gera verður ráðstafanir til
þe ss að efla enn islenska
atvinnuvcgi og þá sérstaklega
iðnað innlendra hráefna land-
búnaðar og sjávarútvegs, og að
gæta þess við fjárfestingu að
fylgt sé ítrustu hagkvæmni.
Vissulega er Þjóðviljanum ljóst
að slikar ráðstafanir myndu
mæta mótspyrnu af hálfu hægri-
aflanna og fjármagnsaðila i þjóð-
félaginu. En að sjálfsögðu mun
verkalýöshreyfingin og forusta
hennar engu að siður halda fram
slikum kröfum. Neiti rikisstjórn
auöstéttanna að verða við þeim,
er sjálfsagt að bjóða henni
aflausn; launafólk getur mætavel
stjórnaö þjóðfélaginu i sina þágu.
t sumar þegar hægri stjórnin tók við, kostaöi einn liter mjólkur I
fernu kr. 20.80. Nú kostar sama magn kr. 33.00.