Þjóðviljinn - 19.01.1975, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1975.
Þingiö var haldiö íhúsi kúbanska alþýöusambandsins, Lázaro Pena leikhúsinu.
Ingibjörg
Haraldsdóttir
skrifar
frá Kúbu
Vilma Espin, Fidei Castro og Dorticós viöopnun kvennaþingsins.
KVENNAÞING Á KÚBU
Þrátt fyrir
góðan vilja
reyndist þar
einnig erfitt
að sigrast á
gömlum
fordómum
Dagana 25.—29. nóvember sl.
var haldiö i Havana 2. þing kúb-
önsku kvennasamtakanna
(FMC). Þingið sóttu rúmlega 2000
konur, þaraf 1916 fulltrúar FMC
úr öllum héruðum Kúbu, og full-
trúar 55 kvennasamtaka i ýmsum
löndum. Heiöursgestir þingsins
voru m.a. Angela Davis, Valent-
ina geimfari Tereskova, Horten-
sia Bussi, ekkja Allende Chilefor-
seta og Fanny Edelman, aöalrit-
ari Alþjóðasambands iýöræöis-
sinnaöra kvenna.
Lögboðin þátttaka
eiginmanna i hús-
verkum
Konur á Kúbu ganga nú I hin margvisiegustu störf, einnig þau, sem áöur voru talin „karlmannsverk
Löngu áður en þingið hófst voru
allir fjölmiðlar önnum kafnir við
að undirbúa landslýðinn, og það
gat ekki farið framhjá neinum að
þetta yrði meiriháttar viðburður.
Kvikmyndir voru gerðar um kon-
ur og hlutverk þeirra i þjóðfélag-
inu, sérstakur ballett var saminn
og æfður, áróðursspjöld voru sett
upp við fjölfarnar götur, i blöðum
og timaritum birtust viðtöl við
karlmenn úr ýmsum starfsgrein-
um, sem fullyrtu að konur væru
þeim ekki siðri, o.s.frv. Allur
þessi áróður var mjög i tengslum
við umræöur um nýja fjölskyldu-
löggjöf, þar sem skýrt er tekið
fram að konur skuli njóta fulls
jafnréttis, og m.a.s. gengið svo
langt að lögbjóða þátttöku eigin-
manna i húsverkum.
Það má þvi segja að kúbanir
hafi byrjað sitt kvennaár fyrr en
aðrar þjóðir. Ég efast um að
nokkur rikisstjórn hafi sýnt
vandamálum kvenna jafnmikla
athygli og sú kúbanska gerir um
þessar mundir. Dagana sem
þingið stóð yfir voru dagbiöð,
sjónvarp og hljóðvarp bókstaf-
lega undirlögð undir fréttir það-
an. Fidel Castro tók persónulega
þátt i þinginu. Hann mætti þar á
hverjum degi til að hlusta á ræður
fulltrúa, tala við þá, og við þing-
slit hélt hann 2 1/2 klukkutima
lokaræðu. Og hann var ekki eini
fulltrúi rikisstjórnarinnar sem á-
varpaði þingið; ráðherrar og mið-
stjórnarmeðlimir gerðu slikt hið
sama og fjölluðu um hin fjöl-
breyttustu efni, sem öll voru
tengd hagsmunum og áhugamál-
um kvenna.
Umræðuefni þingsins vörðuðu
flest starf FMC i sambandi við á-
kveðna hópa kvenna: sveitakon-
ur, verkakonur, húsmæður, ung-
ar konur, o.s.frv. Einnig tók þing-
ið fyrir málefni tengd barnaupp-
eldi, skólamálum og hlutverki
fjölskyldunnar i sósialisku þjóð-
félagi. Ein starfsnefndin fjallaði
um alþjóðlega samstöðu, önnur
um lög og reglur FMC. En rauði
þráðurinn i öllum þessum um-
ræðum, bæði i einstökum nefnd-
um og á þinginu i heild, voru jafn-
réttismálin. Rætt var fram og aft-
ur um rétt kvenna til starfs og
mennta, og um það sem gera
þyrfti til þess að konur gætu notið
þessa réttar, um skyldur karl-
manna og þjóðfélagsins i heild til
að létta heimilisstörfin og gera
konum auðveldara að helga sig á-
hugamálum sinum.
Helmingur aðeins með
barnaskólamenntun
Konurnar sem sóttu þingið i
Havana voru dæmigerðir fulltrú-
ar kúbanskra kvenna, enda
kjörnar lýðræðislegri kosningu til
fararinnar, hver i sinu heimahér-
aði. U.þ.b. helmingur þeirra hafði
aðeins barnaskólamenntun, og
einungis 92 fulltrúar höfðu há-
skólamenntun. Ein kúbönsk vin-
kona min (háskólagengin) hafði
allt á hornum sér af þessu tilefni,
og sagði að menntaðar konur
væru viðsýnni og róttækari en ó-
menntaðar, og þessvegna hefðu
þær átt að vera i meirihluta. En
ég var ekki á sama máli. Að minu
áliti er lýðræðislegt val fulltrúa
trygging fyrir þvi að ályktanir
þingsins nái til alls almennings,
og að þær séu i samræmi við þann
daglega veruleika sem kúbansk-
ar konur búa við. Þegar á allt er
litið eru meðlimir FMC h.u.b.
tvær miljónir talsins (af 9 miljón
ibúum Kúbu) og af þeim hefur
mikill minnihluti æðri menntun,
enn sem komið er. Satt er það að
visu, að stundum saknar maður
róttækra tillagna, finnst ekki
nógu langt gengið. En hafa ber i
huga að hér er miðað við ástandið
einsog það er i dag, og gerðar til-
lögur til að bæta úr þvi. Og það
sem mest er um vert er að það