Þjóðviljinn - 19.01.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 19. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Hún langamma
er kommakerling
Eftir Halldóru 0. Guðmundsdóttur
Kolbrún er þriggja ára. Hún er bara kölluð
Kolla. Stundum er hún hjá langömmu sinni á
daginn. Langamma hennar heitir Halldóra Ólöf
Guðmundsdóttir og vann i netagerð og tók virkan
þátt i verkalýðsbáráttunni hérna áður fyrr. Nú er
hún Halldóra sem sé orðin langamma og passar
Kollu litlu þegar á þarf að halda. Kollu finnst
gaman að syngja og dansa. Hún er i dansskóla og
lærir marga dansa sem hún kennir langömmu
sinni svo syngja þær saman, en langamma vill
ekki alltaf syngja sömu visurnar, þess vegna
gerði hún sjálf visu handa þeim til að dansa eftir.
Hún langamma er kommakerling
við Kollu segir hún:
Komdu i kröfugöngu
i kringum Miklatún.
Við skulum kyrja af krafti
kanar fariði burt,
allir ótætis dátar
ísland látið kjurt.
Og burt og burt og svei ykkur öllum burt.
ÞÖKK FYRIR BÓKINA
Eydis Katla þakkar okkur fyrir bókina, Ævin-
týraleg útilega eftir Sven Wernström. Henni
fannst hún svo skemmtileg að hún las hana tvis-
var.
Þessa mynd sendi Katrin Gisladóttir 12 ára.
Kristin Gisladóttir, 9 ára, sendi þessa mynd.
Eftir Klas Gustafson
1. Það var um 1500 sem farið var að
smiða klukkur svipaðar þeim sem við
enn notum. Fyrir þann tíma notaði fólk-
ið önnur tæki til þess að mæla tímann.
Þá voru notuð sólúr og stundaglas.
2. „Tíminner peningar," er stundum
sagt. Þá er tíminn metinn með það í
huga hve mikil laun fást fyrir vinnuna.
Fyrr á timum voru menn ekki svo ná-
kvæmir í tímareikningi sínum. Land-
búnaðarverkamaður í sveitinni vann
frá því eldsnemma um morguninn þar
til seint að kvöldi og f ékk laun f yrir eins
dags vinnu. Hann hafði lokið dagsverki.
Myndir og texti er tekið úr sænska dag-
blaðinu Dagens Nyheter og eru þetta
tvær af sex; hinar verða svo í næstu
tveim blöðum.
PENNAVINIR
Ég er 11 ára og óska eftir pennavini á
aldrinum 11-12 ára, dreng eða stúlku.
Ég svara öllum bréfum.
Sigriður G. Gisiadóttir, Heiðmörk 2 a,
Selfossi.
Ég er 9 ára og óska eftir pennavini á
aldrinum 9-10 ára, dreng eða stúlku.
Kristin Gísladóttir, Heiðmörk 2a,
Selfossi.
Ég er 12 ára og óska eftir pennavini,
dreng eða stúlku, á aldrinum 12-13 ára.
Katrin Gisladóttir, Heiðmörk 2 a,
Selfossi.
Ég óska eftir pennavini, dreng eða
stúlku, á aldrinum 12-13 ára. Svara öll-
um bréfum.
Eydís Katla Guðmundsdóttir, Austur-
vegi 60, Selfossi.