Þjóðviljinn - 02.02.1975, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. febrúar 1975. Umsjón: Vilborg Haröardóttir Eintómir karlar endurskoðuðu fóstureyðingafrumvarpið Konur sviptar Þá er komin fram og farið að ræða á þingi end- urskoðun endurskoðunar á fóstureyðingalöggjöf inni. Einsog við var að búast af afturhaldssamri ríkis- stjórn voru settir í nýju endurskoðuni na þrír KARLAR, engin kona. Enginn þessara karla hafði kynnt sér sérstak- lega né komið nálægt slíku málefni áður, svo vitað sé, — nema þá til að geta börn. Enginn þeirra hefur þá sérmenntun, sem helst skiptir máli í þessu sam- bandi, læknis- eða félags f ræðimenntun. Og um- fram allt hefur enginn nefndarmanna líkamlegar forsendur til að setja sig í spor konu. sjálfsforræöi sem átti að veita þeim samkvæmt fyrra frumvarpi Meginbreyting frumvarpsins i meðferð þremenninganna Ellerts Schram og Halldór Asgrimssonar alþingismanna og Ingimars Sig- urðssonar fulltrúa er að svipta konur þvi sjálfsforræði um barn- eignir, sem gert var ráð fyrir i fyrra frumvarpinu. I eldri gerð- inni er gert ráð fyrir, að ákvörð- unarvald um fóstureyðingu liggi hjá konunni sjálfri fram að 12. viku meðgöngu, ef engar læknis- fræðilegar ástæður mæla gegn aðgerð, og að því tilskildu að kon- an hafi verið frædd um áhættu samfara aðgerð og um hvaða fé- lagsleg aðstoð henni stendur til boða ef hún gengur með barn og fæðir það. í stað þessa ákvæðis eru nú komnar nokkrar félagslegar ástæður með mjög almennu orða- lagi og hætt við, að þær verði túlkunaratriði viðkomandi lækna. Engu skal spáð um, hvernig slik löggjöf kæmi út i framkvæmd — það fer einsog áður er sagt eftir viðkomandi læknum — en það er vægast sagt raunalegt, að dóin- greind og ábyrgðartilfinningu kvenna skuli vantreyst á þennan hátt. t greinargerð nefndar, sem vann eldra frumvarpið kemur fram, að hún litur á fóstureyðingu sem neyðarúrræði og áreiðanlegt er, að kona sem æskir slikrar að- gerðar gerir það af neyð. Hitt kann svo að vera persónulegt matsatriði hvað er neyð. Það sem einum er óbærilegt kann að vera þolanlegt öðrum, en alltaf hlýtur þetta að verða mat, sem hver og einn verður að gera upp við sig sjálfur og enginn annar getur dæmt um — hversu sérmenntaður sem hann er. Sjúkrahús fá neitunarvald Aðrar breytingar frumvarpsins kunna i fljótu bragði að virðast Framsöguræðurnar verða birtar Einsog fram hefur komið í fréttum var ráðstefna um kjör láglaunakvenna, sem nokkur verklýðsfélög stóðu fyrir ásamt rauösokkum, mjög vei heppnuð ORÐ og þar rfkjandi einhugur og ein- lægni. Alit ráðstefnunnar og ályktanir hafa þegar birst í Þjóðviljanum, en bent skai á, aö eftir helgina koma i blaðinu allar framsögu- ræðurnar, sem konurnar hafa góðfúslega gefið leyfi til að birta. Hér eru svipmyndir frá ráð- stefnunni. A þeirri efri sjást frá vinstri Hildur Hákonardóttir fundarritari, Vilborg Dagbjarts- dóttir fundarstjóri og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir að flytja fram- söguræöu sina. (Ljósm. GSt.) sakleysislegar, en skipta þó tals- verðu máli þegar betur er að gætt. Þannig er nú komið inn, að sjúkrahús getur að þvi er virðist haft neitunarvald i fóstureyðing- amáli og má þá ekki heldur fram- kvæma aðgerðina á öðru sjúkra- húsi nema leyfi sérstakrar nefnd- ar komi til. Augljóst er, hve mik- inn tima slíkt hringl getur kostað, en eigi á annað borð að fram- kvæma fóstureyðingu skiptir miklu máli, að það sé gert sem fyrst, — og má raunar alls ekki eftir 12. viku samkvæmt laga- frumvarpinu, nema til koini mjög þungvægar læknisfræðilegar ástæður. Þegar um félagslegar ástæður eingöngu er að ræða er gert ráð fyrir að með umsókn fylgi skrif- ieg, rökstudd greinargerð læknis og félagsráðgjafa. Félagsráð- gjafar eru hinsvegar ekki starf- andi I öðrum heislugæsluumdæm- um nú en i Reykjavfk og á Akur- eyri og verður það þá enn eitt túlkunaratriðið hvort annarsstað- ar megi nægja greinargerð tveggja lækna einsog þegar um læknisfræðilegar ástæður er að ræða. ófrjósemisaðgerðir gera bæði yngri og eldri gerð frumvarpsins ráð fyrir að fólk geti fengið fram- kvæmdar að eigin ósk, en þar sem eldri gerðin miðaði við giftingar- aldurinn 18 ára miðar sú nýrri við 25 ára aldur i þessum tilfellum. Or höndum kennara Mjög varhugaverð breyting á frumvarpinu er I kaflanuin um ráðgjöf og fræðslu, svo saminála sem allir eru nú samt um nauösyn þeirra hluta. Þar stendur enn greinin um að veitt verði fræðsla um kynlif og siðfræði kynlifsins á skyldunámsstigi i skólum lands- ins, en bætt er við, að skólayfir- læknir skuli sjá um framkvæmd og uppbyggingu fræðsiustarfs skv. þessari grein. Nú má sWlayfirlæknir ekki taka-,-þ.að ,semK-persónulegt van- íta^é talið ' ^ ;;þessi Eiginkonur húsasmíðameistara Munið fundinn í Skipholti 70 í kvöld kl. 8.30. Kynningarklúbburinn Björk. Hver fær meðlagið? G.H. var fráskilin og hafði um árbil búið ein með börnum sinum áður en hún giftist aftur fyrir uþb. ári. Að sjálfsögðu hafði hún fengið meölag meö börnunum gegnum Tryggingastofnunina. Og einsog vera ber taliö meölagið fram til skatts. En viti menn. Þegar launaseðlarnir tóku að berast i janúar þess árs kom frá Tryggingastofnuninni miði um meðlagstekjur, ekki til hennar, heldur núverandi eiginmanns. Þetta töldust þá allt I einu hans tekjur. Hvaða sameiginlegu hagsmunir ? Enn eitt eiginkvennafélagiö, skrifar E.G.og undrast hvaða sameiginlegu hagsinunir geti legið þarna að baki burtséö frá hinu, hve ákveðið er reiknað með að ekki komi til mála, að konur geti verið húsasmiðameistarar. Hvenær megum við eiga von á eiginmannafélagi flug- freyja, hjúkrunarkvenna eða starfsstúlkna úr Sókn, svo eitthvað sé nefnt af enn dæmi- gerðum kvennastörfum (þótt þegar séu starfandi bæði örfáir^ flugþjónar og hjúkrunarmenn)'? Hafa þeir engra sameiginlegra hags- muna að gæta? Auðvitað er ölluin frjálst aö stofna til félaga og klúbba og eiginkonum ákveðinna iðn- meistara ekki siður en öðrum. En gaman væri að frétta, hvort þær telja sig virkilega allar fremur eiga samleið i tómstundum sinum með konum, sem giftar eru mönnum i sömu atvinnustétt en öðru fólki, td. úr þeirra eigin atvinnustétt, þvi að áreiðanlega taka einhverjar þeirra þátt i atvinnulifinu sjálfar. 1 fljótu bragöi man ég aðeins eftir einni tegund slikra makafélaga, þar sem virki- lega er um saineiginlega hagsmuni og aðstöðu aö ræða og það eru samtök sem konursjómanna hafa bundist, enda voru þau félög upphaf- lega stofnuð til gagnkvæms stuðnings. Þessar konur eru oft einar með börnum sinum langtimum saman meðan eiginmennirnir stunda störf á hafi úti og ekki sist þegar hættu eða slys ber að höndum hefur konunum verið mikill styrkur hver af annarri. Allir tryggðir nema hús- bóndinn Arni sagðist vera nýbúinn að kaupa heimilistryggingu, sein ekki er i frásögur færandi, en þegar hann fór að lesa bæklinginn um það sem tryggingunni tilheyröi kom i ljós, að ásamt öðru á heimilinu eru þarmeð tryggð húsinóðir og börn innan tvitugs, en húsbóndinn hins- vegar ekki. Það virðist þannig litið á börn og eiginkonu sein eign karlkyns-tryggingartaka. Skyldi litið samsvarandi auguin á málið ef eiginkonan væri tryggingartaki — hús- bóndi þá eign hennar og Í__________ l_- t Einblínið ekki á smámál Jón Þórðarson hringdi og rabbaði um kvenfrelsis- baráttuna, sem hann sagðist styðja heilshugar. Hinsvegar fyndist honum stundum um of einblint á sinámálin. Launa- misinunun kynjanna á íslandi er hinsvegar staðreynd og stórmál, og gegn aðferðum at- vinnurekenda til að viðhalda þeirri mismunuin verður að berjast miskunnarlaust, sagði hann. Annað sein hann vildi sér- staklega minna á i sambandi við kvennaárið á alþjóðavett- vangi er aöbúnaður og staða þeirra kvenna sem orðið hafa fórnarlöinb striðs i löndum sinum. Mjög algengt er þvi miður þar sem óvinahermenn fara yfir, að konum sé nauðgað og þær svivirtar, en ekki nóg með það, heldur er þessum konum siðan iðulega útskúfað úr eigin samfélagi, einsog gerst hefur t.d. I Bangladesh, þar sem um 400 þúsund konur hafa veriö flæindar úr samfélagi annarra og lifa einangraðar með börn- um sinum i sárustu fátækt. f I ■ ■ I ■

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.