Þjóðviljinn - 02.02.1975, Side 3

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Side 3
Sunnudagur 2. febrúar 1975. þjöÐVILJINN — SÍÐA 3 „Strengir” heitir þessi mynd Eyborgar Gubmundsdóttur. „Stöðviö heiminn" kallar Ragnheiöur Jónsdóttir teikningu sina, sem þvi miöur nýtur sln ekki fullkomlega I smækkun. Viö Þingvallavatn — mynd eftir Barböru Arnason Þrjár „Teikningar” Bjargar Þorsteinsdóttur. í»aö skai tekiö fram, aö þær eru I litum. Ein af myndum Sigrföar Björnsdóttur. Forskot á kvenna- sýninguna Myndir sem Margrét Jóelsdóttir og Stephen Fairbairn gera saman eru úr tré og mjög nýstárlegar. Eiginlega er ekki hægt aö sýna þær á ljósmynd, þvl þaö þarf aö ganga fram og til baka til aö sjá hvernig þær breytast að dýpt og lit. Þessi mynd heitir „Tork”. Þorbjörg Pálsdóttir á þennan skemmtilega strák Litast um ganga Borgarspítalans Hvort sem þaö stafar nú af því aö nú er kvennaárið eða af því að athyglisgáfan varðandi hlut kvenna á ýmsum sviðum hafi al- mennt skerpst við umræð- ur undanfarinna ára, þá tók ég sérstaklega eftir því þegar , ég skoðaði einu samsýninguna sem nú er í gangi í borginni, að þar er hlutur kvenna óvenju stór. Þá skoðun fékk ég lika staö- festa hiá einni listakonunni, sem ég hitti á sýningunni, Eyborgu Guðmundsdóttur, og þar kom i rabbi okkar, að gaman væri að raða myndum af sem flestum þessara listaverka kvennanna saman á Þjóðviljasiðu og gefa þannig einskonar forskot á sæl- una áður en kvennasýningin, sem sett verður upp i tilefni ársins f 'Norræna húsinu hleypur af stokkunum. Hún á að vera i fyrri hluta marsmánaðar, og er undir- búningur þegar i fullum gangi. Auk þess fáum við á næstunni að sjá þrjár einkasýningar kvenna: Ragnheiður Jónsdóttir setur upp grafiksýningu, Steinunn Mar- steinsdóttir heldur keramiksýn- ingu eftir langt hlé og Eyborg sjálf verður með málverkasýn- ingu shl. mars. Það kom lika fram hjá Ey- borgu, að konur eru siður en svo afskiptar i samtökum myndlist- armanna.og sagðist hún reyndar ekki sjálf hafa orðið vör við manngreinarálit málara eftir kynjum, en ekki er ég viss um að allir myndlistarmenn af kvenkyni skrifi undir það. En nú er þó kom- in kona i sýningarnefnd Félags is- lenskra myndlistarmanna, sem ekki hefur verið fyrr, og ekki færri en þrjár konur eiga sæti i stjórninni. En snúum okkur aftur að sýningunni, sem við hittumst á. Hún er nefnilega fyrir fleira óvenjuleg en stóran hlut kvenna. Ekki sist staðinn, þvi þessi sýning er á göngum Borgarspitalans á nokkrum hæðum, þar sem bæði starfsfólk, gestir og ekki sist sjúklingar geta notið hennar. Nokkrir sjúklingar með fótavist, sem ég hitti að máli, lofuðu þessa tilraun sem stórkostlegt framtak og einn fullorðinn maður utan af landi sagði mér i trúnaði, að þetta væri fyrsta myndlistarsýningin sem hann hefði séð. Þetta fólk benti lika á, að hér hefði það miklu betri tima en venjulega til að skoða myndirnar um leið og þetta væri tómstundagaman sem ekki þreytti sjúklingana. Það munu vera læknar sjúkra- hússins sem áttu frumkvæðið að þessari sýningu.og þökk sé þeim. En undirtektirnar minna á, að mun meira þyrfti að gera af þvi en nú er að færa listaverk út á meðal fólks, á vinnustaðina og fleiri staði þar sem margt fólk kemúr saman, og þá ekki sist að gefa fólki i dreifbýlinu fleiri tæki- færi til að njóa myndlistar heima i sinum byggðarlögum. Tilraunir til slikrar listkynningar hafa yfir- leitt verið afar vel þegnar, og er i þvi sambandi skemmst að minn ast myndlistarsýningar á vegum nokkurra kvenfélagasambanda úti á landi i samvinnu við menntamálaráð fyrir tveim ár- um. Ari ljósmyndari labbaði með okkur Eyborgu um hæðir og ganga spitalans og hér kemur ár- angurinn: Þjóðviljasiða af lista- verkum kvenna. —vh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.