Þjóðviljinn - 02.02.1975, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Qupperneq 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. febrúar 1975. BRÚ Selfyssingar hafa margir atvinnu af þjónustu við sveitirnar — þeir hyggja lika mikið hver fyrir annan — nú hafa þeir ráðist í fiskvinnslu, og brú yfir ósa Ölfusár mun enn styrkja byggðina atvinnulega ölfusúrósar, Loftmynd frá Landmælingum rikisins Þjónusta við sveitir Við hittum Kristján Guðmundsson á skrifstofu verkalýðsfélaganna á Sel- fossi og reyndum að veiða upp úr honum fróðleiks- korn um starfsemi skrif- stofunnar, verkalýðsmál og fleira milli þess sem Kristján talaði í síma. sinnti viðskiptamönnum sem á skrifstofuna komu, eða hann lýsti yfir hræðslu sinni við blaðamenn „Skrifstofa verkalýðsfélaganna starfar á vegum félaganna hér á Selfossi og nágrenni, en við rekum reyndar erindi fyrir menn sem búa fjarri okkur, jafnvel alla leið austur á Klaustri. Það fólk sem félagsbundið er i verkaiýðsfélagi er orðinn sá fjöldi, að við tvö hér á skrif- stofunni höfum meira en nóg aö starfa, sitja samningafundi, sinna ótal erindum i sambandi við lifeyrissjóðsmál, orlofsmál. Félögin sem hafa þessa sam- eiginlegu skrifstofu eru félög byggingamanna, verslunar- manna, ökuþór, sem er félag at- vinnubilstjóra. Verkalýösfélagið bór, félag járniðnaðarmanna og Alþýðusamband Suðurlands”. Þessa dagana stendur Kristján venju fremur i ströngu, þvi samn- ingafundir eru tiðir, mörg fyrr greindra verkalýðsfélaga hafa gefið 9 manna nefnd ASt samn- ingsumboö, og launamálin, at- vinnumálin eru þrautrædd á hverjum degi, oft á skrifstofunni hjá Kristjáni. í Verkalýðsfélaginu Þór á Sel- fossi eru um 200 félagsmenn. Uppistaðan i félaginu eru fyrr- verandi bændur, menn sem flust hafa i þéttbýlið úr sveitinni og starfa að ýmsu. „Þessir gömlu bændur”, sagði Kristján „standa afar höllum fæti þegar þeir svo loks hætta að vinna. Þeir hafa lengst af verið fyrir utan lifeyrissjóð og fá þvi engin éftirlaun af neinu tagi, þegar þeir hætta. Þó eru bændurnir ekki eins illa stæðir og þeir sem verið hafa vinnumenn I sveit alla tið. Slikir menn eru reyndar fáir, en þó eru þeir til. Þeir sem unnið hafa bú- störf hjá öðrum hafa raunar staðið utan við „lög og rétt” i kjaralegu tilliti”. Kristján hefur i svo mörgu að snúast þessa stund sem við stönsuðum á skrifstofu verka- lýðsfélaganna, að við urðum að láta okkur nægja þá fróðleiks- mola sem hannn gat hent reiður á að rétta okkur milli simtala og heimsókna.: „Skrifstofan tók til starfa 1970. Ég tel hana ómissandi. Hún léttir mikilli þjónustu af félögunum og af at- vinnurekendum lika. Þeir leita hingað eftir upplýsingum um kaupgjaldsmál og annað sem upp kemur á vinnustöðum. Hreppur og riki ættu að styrkja svona skrifstofu, þvi hún er dýr að reka”. Eru árekstrar við atvinnurek- endur tiðir? „Það eru engin vandræði lengur að fá greitt eftir samn- ingi”, sagði Kristján „en það er ýmislegt sem þarf að ræðast við um”. „Mikið framboð á vinnu- afli" Erna Laugdahl og Arni Valdimarsson framkvæmdastjóriá skrifstofu Straumnessh.f. Væntanlega er þarna starfaö f góðum anda og verkin af framsýni framin, þvf á einum vegg sknfstofunnar er innromm- uö eftirfarandi áletrun: „Guð gefi mér æöruleysi til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt....kjark tii þess að breyta þvi, sem ég get breytt.....og vittil þess aö greina þar á milli”. Það lá beint við að fara af skrif- stofu verkalýðsfélaganna og i næsta hús þar sem Prjónastofa Selfoss er. Reyndar er nafnið á fyrirtækinu villandi, þvi enginn „tekur i prjón” þar, heldur sitja þar á prjónastofunni 30 konur og sauma flikur, skjólflikur fyrir verslunina Hagkaup i Reykjavik. Það er Hagkaup og ýmsir ein- staklingar sem eiga Prjónastofu Selfoss, og verkstjórinn, Helga Þórðardóttir, sagði að mikið framboð væri á konum til starfa i prjónastofunni. „Þær vilja margar fá vinnu hálfan daginn. Og það gengur ágætlega. Þær sem eiga börn koma þeim yfirleitt á leikskólann hér”. Við spurðum um launin: „Þetta er Iðju-taxti. Konurnar vinna hér á 2. taxta, en þá fá þær 226 krónur á timann. Vinna stendur frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 17. Við sleppum kaffitimunum og fáum þannig lengri matartima. Konurnar voru illa nýtt vinnu- afl hér á Selfossi”, sagði Helga Þórðardóttir, ,,en nú sækja þær mikiö á vinnumarkaðinn. Þær eru

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.