Þjóðviljinn - 02.02.1975, Side 15

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Side 15
Sunnudagur 2. febrúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 SELFOSS Gamli 1896 á ár. bærinn aö Selfossi — sem reyndar nefnist aðeins Foss í daglegu tali. Húsið á myndinni var byggt grunni gamla torfbæjarins sem hrundi til grunna i jarðskjálftanum sem gekk yfir Suðurland það ,,Við höfum uppgötvað nýjan vinnukraft — húsmæðurnar”, sagði Helga á Prjónastofunni. Konurnar sauma föt fyrir Hagkaup,og saumastofustarfið er eftirsóknarvert á Selfossi, amk. eru margar konur á biðlista eftir að fá vinnu. i 'f á mmÁ / \ ^ / Fjölskyldan á Fossi — Bjarni, Guðrún, Sigurgeir, Höskuldur og Arnbjörn. öil eru þau Sigurgeirsbörn, en Sigurgeir er sonur Höskulds Sigurgeirssonar. Arnbjörn er þekktur af búð sinni Addabúð, sem stendur við ölfusárbrú. á biðlista eftir að fá vinnu á Prjónastofunni”. ,/Munar litiö um launa- greiðslurnnar". Við komum i saltfiskverkunina Straumnes h.f. og hittum fram- kvæmdastjórann þar, Árna Valdimarsson: „Þetta gengur reyndar ágæt- lega. Það væri lika eitthvað skritið, ef ekki væri hægt að reka salt'fiskverkunarstöð á tslandi þegar svo góður markaður er til fyrir varninginn. Og þegar vel gengur, þá skipta vinnulaunin engu, þau valda amk. engum erfiðleikum. Við borgum engan bónus, hér, aðeins timakaup, en yfirborgum alla, og allir starfs- menn hafa hér sama kaup, 240 krónur á timann”. í fyrra voru hátt á 3. hundruð manns á launaskrá hjá Straum- nesi,og vinnulaunin voru samtals i kringum 22 miljónir króna. Ot- flutningsverðmæti saltfisksins var hinsvegar um 50 miljónir”. Straumnes h.f. er að 40 hundraðshlutum i eigu Selfoss- hrepps, en að öðru leyti i eigu ein- staklinga sem flestir eru búsettir á Selfossi. Ef sjómenn á þremur bátum, sem leggja afla inn hjá Straum- nesi eru taldir með, þá eru fastir starfsmenn tuttugu talsins, en margir stunda þó igripavinnu hjá fyrirtækinu. ,,Við erum t.d. stoltir af „elli- heimilinu” hérna”. sagði Árni framkvæmdastjóri, „hingað á loftið til okkar geta aldraðir menn komið nokkuð að vild og unnið i netum hjá okkur yfir veturinn, þeir fá greitt fyrir hvert net sem þeir lagfæra, og ráða sinum tima þannig sjálfir. Þeir eru þónokkrir sem vinna þannig fyrir okkur”. Brú yfir Ölfusárós lífs- nauðsyn Straumnes h.f. á tvo báta. Flugunes (75 tonn) og Árnesing (100 tonn) og sá þriðji, Skálafellið, er i viðskiptum hjá fyrirtækinu. Þessir bátar landa allir i Þor- lákshöfn og siðan verður að aka fiskinum nær 40 kilómetra vega- lengd til Selfoss. Það virðist liggja i augum uppi að brú yfir ölfusárósa sé brýnt hagsmuna- mál fyrir Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka. Vegalengdin sem aka verður fiskinum er nærri 100 kilómetrar fram og til haka, ef miðað er við Stokkseyri og Eyrarbakka. Nú hefur sterklega komið til greina að Selfosshreppur, Stokks- eyriog Eyrarbakki keyptu saman 450tonna skuttogara frá Póllandi. Sá togari mun ennfrekar skjóta stoðum undir Straumnes h.f., jafna fiskvinnsluna þannig að vinnsla i húsinu verði stöðug, en ekki vertiðarbundin eins og nú er. Allar likur er á að togari þessi verði keyptur, og þá verður brúin margrædda enn meira hags- munamál en nú er. Mikið byggt en fjárveit ingarvaldið byrjað að svelta skóla- byggingarnar Sigurjón Erlingsson, múrarameistari/ er full- trúi Alþýðubandalagsins í sveitarstjórn Selfoss. Við hittum hann að máli/ og báðum~hann að skýra nokkuð frá ástand- inu i atvinnumálum þorpsins. „Það hefur verið ágæt at- vinna hér undanfarin ár”, sagði Sigurjón, „einkum hefur bygg- ingariðnaðurinn blómstrað. Nú eru tvær stórbyggingar i gangi. Það er Sjúkrahús Suðurlands, áætlað að það komist undir þak i febrúar eða mars, veðrið hefur hinsvegar tafið þá byggingu núna, ekki hefur verið hægt að ljúka við steypuvinnu. Verktakinn á að skila af sér þeim áfanga sem síðast var boðinn út næsta sumar — fokheldum. Nú, áframhald verður á byggingu barnaskólans og iþróttahúsi, og það hús verður þónokkuð mikil bygging. Nú stendur lika yfir framhald á byggingu gagnfræðaskólans, þar verður lika byggt iþrótta- hús, stórt hús af alþjóðlegri keppnisstærð. Við vonum að framkvæmdir verði áfram við iðnskólann, en Sigurjón Erlingsson hinsvegar horfum við nú fram- an i þá dapurlegu staðreynd, að rikið leggur aðeins fjórar mil- jónir til þeirrar byggingar á þessu ári. Þá má lika nefna byggingu kaupfélagsins. Það hefur hafið iðnrekstur i nýju húsi, og verður áframhald á byggingu þess”. Greinirðu samdrátt i byggingum núna? „Ætli það komi almennilega i ljós fyrr en þá i vor. Á þessum árstima dragast byggingafram- kvæmdir jafnan saman, og núna hefur verð sérlega vond tið — kannski greinir maður sam- dráttar einkenni, en það er varla rétt að segja neitt um það fyrr en einkennin verða auð- særri.”

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.