Þjóðviljinn - 02.02.1975, Síða 28

Þjóðviljinn - 02.02.1975, Síða 28
UOÐVIUINN Sunnudagur 2. febrúar 1975. „Vinstripólitík á vaxandi fylgi aö fagna — en framkoma framsóknar manna hefur drepið von manna um vinstra samstarf’ Iðunn Gisladóttir heldur öllum sex ára börnum á Selfossi við nýta iðju. ,Vaxandifylgi vinstristefnu” Sæmdarhjónin Snorri Sigfússon og Iðunn Gísla- dóttir hafa um árabil verið umboðsmenn Þjóðviljans á Selfossi. Snorri er frá Norðfirði, en Iðunn er frá Stóru- Reykjum i Hraungerðis- hreppi í Flóa. „Hún fór austur i Noröfjörð og var þar eitt sumar að leita að manni”, sagði Snorri, „og kom svo með mig hingað suður”. Snorri og Iðunn bjuggu lengi i Kópavogi, en fluttust siðan á Sel- foss og hafa búið þar i mörg ár; siöustu sex árin hafa þau verið umboðsmenn Þjóðviljans, en vilja nú losna undan þeim starfa. „Þjóðviljinn er orðinn mun út- breiddari hér en áður var”, sagði Iðunn, „áskrifendum hefur fjölg- að nokkuð og hann selst jafnan i þónokkrum mæli i lausasölu”. Við spurðum Snorra um við- gang vinstri pólitikur á Suður- landi. „Pólitiskt starf Alþýðubanda- lagsins hér hefur breyst mjög siöustu fimm árin eða svo. Flokksstarf Alþýðubandalags- ins er orðið kröftugt. Ég held að róttæk stefna Alþýðubandalags- ins eigi vaxandi fylgi að fagna, t.d. hér á Suðurlandi — bændafólk er nú mjög að átta sig. Andinn meðal fólksins er breyttur nú. Reyndar bendir út- koman úr hreppsnefndarkosning- unum hér á Selfossi ekki til stór- sóknar Alþýðubandalagsins , þar sem samstarf samvinnumanna rofnaði, samstarf Alþýðubanda- Snorri Sigfússon og Iðunn Gisladóttir, umboðsmenn Þjóðviljans á Seifossi um árabil. Á veggnum aftan við þau er málverk eftir Balthasar — hestar eru stór þáttur Ilifi þeirra beggja. lagsins og Framsóknar,og svo féll okkar maður á hlutkesti, krati komst að, svo undarlegt sem þaö nú er, og sá hljóp vitanlega strax upp um hálsinn á ihaldinu. Róttæk stefna á vaxandi fylgi að fagna — en menn eru orönir vonlitlir um árangursrikt vinstra samstarf. Framkoma fram- sóknarmanna hefur orðið til þess að æ fleiri efast um að það sé raunhæft að tala um samvinnu við þann flokk”. Snorri er bifvélavirki, starfar á verkstæði Kaupfélags Arnesinga, en fristundum eyöir hann tiðum i félagsskap hrossa sinna, og er raunar greinilegt aö um hesta tal- ar hann löngum, kannski jafnoft og um pólitik. Bifreiðaverkstæði kaupfélags- ins er sennilega eitt hið stærsta á landinu I fermetrum talið, en þar vinna þó ekki mjög margir menn. Mikil hávaðamengun — en nægt rými „Þetta er gott hús”, sagði Snorri þegar við höfðum fylgt honum á vinnustað, „það er bjart og hlýtt, en hávaði er hinsvegar mikill. Það hefur ekkert verið gert til að draga úr honum, og loftræstingin er ónóg. Það er oft fúlt loftið hér inni.” Yngstu skólabörnin í húsi hjá íhaldinu Við fylgdum Iðunni lika á vinnustað. Iðunn er fóstra, en hefur, ásamt Helgu systur sinni, tekið aö sér kennslu sex ára barn- anna á Selfossi. Forskólinn er til húsa I félagsheimili Sjálfstæðis- flokksins i þorpinu, og bar ekki á öðru en að prýðilega færi um börnin i þvi húsi — en kannski það hafi fremur verið heillavænleg áhrif þeirra Helgu og Iðunnar sem ollu hinum góða anda sem rikti i kennslustofunni, þegar blaðamenn litu þar inn. Börnin voru þá að föndra við ýmislegt, bjuggu til undirskálar úr dagblöðum, limi og fleiru, saumuðu út myndir eftir lfnum á blaði, myndskreyttu ævintýri, og upp um alla veggi voru langar sögur i myndum, sögur af dýrum, fólki, tröllum og mörgu öðru. „Það er voða gaman hérna”, sagði Finnbjörn Pétur Helgason, sem á heima i Vallholti, „ég er að sauma út indiánatjald. Viltu þræða nálina fyrir mig”, spurði hann blaöamanninn, og i þakk- lætisskyni fyrir hjálpina, fengum við að taka af honum mynd. Fundur um brúarmáliö í Gimli Lúövík Jósepsson og Garöar Sigurösson frummælendur á fundi á Stokkseyri í dag Brú yfir ósa ölfusár er afar brýnt hagsmunamál fyrir byggöarlögin austan árinnar. Eins og allir vita, er hafnar- aðstaða fyrir báta stokkseyr- inga og eyrbekkinga langt frá þvi að geta talist sæmileg, og þess vegna landa öll fiskiskip af meöalstærö og þar yfir i Þor- lákshöfn. Eigi eyrbekkingar, stokks- eyringar eða selfyssingar að fá fisk sem landað hefur verið i Þorlákshöfn, þarf að aka aflan- um nær 50 km vegalengd — þannig samanlagt uppundir 100 km akstur fram og til baka fyrir hvern fiskbil. Brú yfir ósa ölfusár myndi gerbreyta afkomumöguleikum og atvinnuhorfum á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri. Slik brú myndi spara stórfé og skjóta fótum undir atvinnuupp- byggingu byggðarlaganna. í dag, sunnudag, verður al- mennur fundur á vegum Al- þýðubandalagsins um þetta mál. Fundurinn verður i Gimli á Stokkseyri og hefst klukkan 14. Frummælendur verða alþingis- mennirnir Lúðvik Jósepsson og Garðar Sigurðsson. Auk brúar- málsins verður fjallað um stjórnmálaviðhrofið. Garöar Lúövik

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.