Þjóðviljinn - 23.02.1975, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. febrúar 1975
MOÐVIUINN
MÁLGAGN sósíalisma
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÖÐFRELSIS
(Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjdbviljans Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Vilborg Haröardóttir
Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar:
Svavar Gestsson Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Prentun: Blaöaprent h.f.
HÖFT ÍHALDSINS STÖÐVA HITAVEITUFRAMKVÆMDIR
Morgunblaðið reynir ósjaldan að halda
þvi fram að Alþýðubandalagið beiti sér
fyrir höftum en Sjálfstæðisflokkurinn að-
hyllist frelsi. Ekki er unnt að hugsa sér
öllu fráleitara öfugmæli. Ihaldsstjórnin
hefur framkvæmt tvær gengislækkanir á
fimm mánuðum, hækkað verð á öllum
innfluttum varningi um 50%, framkvæmt
hrikalegar hækkanir á öllum innlendum
þjónustugjöldum, en jafnframt bannað
með lögum að tekjur láglaunafólks,
aldraðs fólks og öryrkja breytist i sam-
ræmi við óðaverðbólguna. Með þessari
stefnu er verið að gera skortinn að
skömmtunarstjóra, en ranglátari og and-
félagslegri höft er ekki hægt að fram-
kvæma. Þessi höft hrökkva þó engan veg-
inn til. íhaldsmeirihlutinn i Reykjavik
hefur nú til að mynda ákveðið að engar
nýjar framkvæmdir megi hefja nema með
sérstöku leyfi borgarstjórans.
Þessi höft hafa nú þegar stöðvað allar
nýjar framkvæmdir Hitaveitu Reykjavik-
ur i nágrannabyggðunum, Kópavogi,
Hafnarfirði og Garðahreppi. Þar biða nú
8.500 manns eftir hitaveitu i hús sin, en
þetta fólk verður að greiða um það bil fer
falt hærra verð en það þyrfti ella að borga,
auk þess sem þjóðarheildin verður að
eyða dýrmætum gjaldeyri i oliukaup á
sama tima og nægilegt heitt vatn er til-
tækt. Rafmagnveita Reykjavikur hefur
einnig stöðvað nýjar framkvæmdir og hót-
ar þvi nú að ekki verði lagt rafmagn i 600
ný hús á veitusvæðinu! Trúlega er leitun á
nokkru landi á jarðriki þar sem jafn fárán
leg höft hafa verið sett af stjórnarvöldum.
Ljóst er að fyrirtæki Reykjavikurborgar
eru nú að koma á neyðarástandi til þess að
knýja stjórnarvöld> og þá sérstaklega Ólaf
Jóhannesson viðskiptamálaráðherra — til
þess að heimila hrikalegar nýjar verð-
hækkanir á rafmagni og heitu vatni. Báð-
ar þessar lifsnauðsynjar hafa þó hækkað
meira i tið núverandi rikisstjórnar en
nokkru sinni fyrr; verði orðið við kröfum
Hitaveitu Reykjavikur mun láta nærri að
gjald fyrir heitt vatn hafi tvöfaldast i tið
núverandi rikisstjórnar! Kröfur Hitaveit-
unnar eru miðaðar við það að fyrirtækið
hirði stórfelldan gróða af viðskiptavinum
sinum og geti fjármagnað hinar nýju stór-
framkvæmdir að meirihluta til með gróð-
anum einum. Slik fjármögnun er eins-
dæmi i islensku þjóðfélagi og krafan um
hana siðlaus árás á afkomu almennings i
höfuðborginni. Lengi vel reyndu ráða-
menn Hitaveitunnar að halda þvi fram, að
þessi gróðasöfnun væri skilyrði i sam-
bandi við lán frá Alþjóðabankanum, en i
tið vinstristjórnarinnar var farið ofan i
þau mál og sannað að þessar staðhæfingar
voru visvitandi ósannindi.
Þvi er haldið fram af stjórnarvöldunum
að lánsfjáröflun til slikra framkvæmda sé
mjög erfið nú; launstraust rikisins sé
fullkomlega þrotið erlendis eftir að ihalds-
stjórnin lét þurrausa gjaldeyrissjóðina og
tók að lifa á neyslulánum frá Bandarikja-
mönnum og Rússum. Á sama tima og
þessu er haldið fram flytur rikisstjórnin á
þingi frumvarp um járnblendiverksmiðju
i Hvalfirði. Samkvæmt þvi eiga
íslendingar að taka 7.000 miljón króna er
lent lán til þeirra framkvæmda. Sé slikt
lánsfé tiltækt er það örugglega ekki siður
fáanlegt i jafn þjóðhagslega arðbærar
framkvæmdir og hitaveita i nágranna-
byggðum Reykjavikur, á Suðurnesjum, á
Suðurlandi og i Borgarfirði, á Akureyri,
Siglufirði og viðar. Af þvi fjármagni veitir
ekki heldur til þess að hraða rafhitun
húsa, en áætlanagerð og framkvæmdir á
þvi sviði hafa verið stöðvaðar af ihalds-
stjórninni ekki siður en hitaveitufram-
kvæmdirnar i nágrenni Reykjavikur. Hér
er um það að ræða að raða verkefnum,
velja og hafna. íhaldsstjórnin virðist hafa /
gert upp hug sinn um það að stöðva nýt-
ingu innlendra orkugjafa i stað innfluttrar
oliu. Til þess beitir hún blygðunarlausum
höftum sem bitna i senn á afkomu al-
mennings og stöðu þjóðarbúsins. Hinar
þjóðnýtustu framkvæmdir eru heftar með
beinum bönnum og fyrirmælum á sama
tima og allt er gert til þess að tryggja
frelsi heildsala og fjárplógsmanna.
—m
Guðný Sigurðardóttir:
Um hvaö er kosið í Sókn?
í þeim kosningum er nú standa
yfir í Starfsstúlknafélaginu Sókn
er kosið um tvo lista, A-lista, sem
borinn er fram af stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins og
B-lista borinn fram af Guðrúnu
Bergsdóttur og fleirum.
Að öllum jafnaði er það svo að
komi fram fleiri en einn listi i
félagi, þá er tekist á um einhvern
ágreining annað hvort pólitiskan
eða félagslegan. En svo virðist þó
ekki vera i Sókn aö þessu sinni.
Það er öllum ljóst, sem til
þekkja, aö tilkoma B-listans er
eingöngu verk Margrétar
Auðunsdóttur, sem af einhverjum
ástæðum virðist eiga það áhuga-
mál eitt, að vera á móti öllu, sem
núverandi félagsstjórn beitir sér
fyrir. Þessi afstaða er þvi næsta
undarleg þegar haft er I huga aö
núverandi formaður félagsins er
valin af þessari sömu Margrétu
þegar hún lét af formensku I
Sókn, og engrar stefnubreytingar
hefir oröið vart i félaginu siöan.
Margrét hefir þó reynt að láta
svo lita út, sem um skoðana-
ágreining væri aö ræöa, má þar
til nefna afstöðu hennar til
umboðsins til handa samninga-
nefnd Alþýðusambandsins, sem
henni tókst aö fá fellt á félags-
fundi. En hve mikil alvara henni
var I þvi máli má marka af þvi,
að hún gerði enga tilraun, þegar
búið var aö fella umboðið, aö
undirbúa neinar aögeröir til þess
aö Sókn gæti aflað sér kjarabóta á
eigin spýtur eða með öðrum
hætti. Fyrir henni vakti það eitt
að fella málið fyrir stjórninni, án
minnsta tillits til hagsmuna
félagsins.
Þessi úrslit töldum við nokkrar
konur, óviöunandi ogsöfnuðumþvi
undirskriftum undir kröfu um
annan fund, þar sem málið var
tekiö til afgreiðslu á ný. Þar var
borin fram tillaga um' að veita
samninganefnd ASÍ umboð til að
fara með samninga fyrir hönd
Sóknar svo hún gæti haft
samstöðu með öðrum félögum.
Þá reis Margrét Auðunsdóttir upp
og taldi upp alla þá menn sem
sæti eiga I 9 manna nefnd ASt
taldi hún þá alla upp með nöfnum,
hver atvinna þeirra væri og gaf
þeim hverjum fyrir sig miður
góða einkunn og lýsti þvl yfir að
slikum mönnum treysti hún ekki
til að fara með samninga fyrir
hönd Sóknar. Hinsvegar hafði hún
ekki, frekar en áður, neinar
tillögur um hvernig bæri að
standa að væntanlegum
samningum. Nú er það svo að
flestir meðlimir samninganefnd-
arinnar eiga sæti i miðstjórn
Alþýðusambandsins ásamt
Margréti Auðunsdóttur, og geta
menn þvi getiö sér þess til hvilik
raun þaö hlýtur að vera sllkum
kvenskörungi að eiga sæti viö hlið
slikra aukvisa.
Flestar Sóknarkonur hafa vist
orðið varar viö hamfarir
Margrétar gegn „dönsku
samningunum”, svo nefndu, sem
hún hefir talið meö öllu óalandi og
stórhættulega fyrir félagið. En
svo einkennilega bregður viö, að
þegar félagsstjórnin á siðasta
fundi leggur til að þessum hættu-
lega samningi verði sagt upp. Þá
stendur upp Margrét Auöuns-
dóttir og lýsir þvi yfir að hún sé
algerlega á móti tillögunni og má
nú ekki heyra það nefnt aö losa
félagið undan þessum háskalega
samningi. Þessi afstaða hennar
lýsir vinnubrögöum hennar i
félaginu betur en hægt væri að
gera i löngu máli. Fyrir henni
virðist ekki vaka neitt annað en
að vera á móti öllu, sem stjórn
félagsins ber fram, hvað sem
hagsmunum félagsins liður. Af
framkomu hennar verður
naumast dregin önnur ályktun en
sú að hún liti á sjálfa sig sem
félagiö, að allar félagskonur eigi
að lúta boði hennar og banni og
hún ein eigi að ráða málum
félagsins, þar þurfi ekki fleiri að
koma til.
Þess vegna, góðar Sóknar-
konur, valið ætti að vera okkur
auðvelt, við höfum myndað þetta
félag sem vopn okkar I
hagsmunabaráttunni og hljótum
þvi að treysta meira á samtök
okkar en á Margrétu Auðuns-
dóttur eina hvaö sem liður áliti
hennar á sjálfri sér.
Við munum þvi fjölmenna á
kjörstað I dag og kjósa A-listann,
þannig stöndum við bestan vörð
um hagsmuni okkar.
Guðný Siguröardóttir
Kosningaskrifstofan
í Miöbæ
viö Háaleitisbraut
í dag er siðari dagur allsherjaratkvæða-
greiðslu um stjórn og trúnaðarmannaráð
Starfsstúlknafélagsins Sóknar. Kosningaskrif-
stofa A-listans er i Miðbæ við Háaleitisbraut.
Siminn er 85715 og 85046.
ALÞÝÐUBANDALAG
SUÐURNESJA
Aðalfundur Alþýðubanda lags
Suðurnesja verður haldinn í
Keflavík sunnudaginn 23. febr.
Fundurinn verður i fundarsal
verkalýðsfélaganna að Hafnar-
götu 80 og hefst kl. 14 — Auk
venjulegra aða If undarstarfa
verður rætt um stjórnmála-
ástandið.
Lúðvík Jósepsson og Geir
Gunnarsson mæta á fundinum.
Félagar og annað áhugafólk er
hvatt til að mæta vel og stundvis-
lega.
STJÓRNIN
Ibúö óskast
8—4 herbergja ibúð óskast á leigu sem
fyrst. Erum 3 i heimili
Stefánia Traustadóttir,
simi 22345.
Lúðvik