Þjóðviljinn - 23.02.1975, Side 15
Sunnudagur 23. febrúar 1975 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 15
SITT
ÚR
HVERRI
ÁTTINNI
Hann var svo seinn til, aö hún
stóö aö lokum upp úr sófanum og
sagði:
— Annað hvort fer ég fram i
eldhús og laga kaffi, eða viö för-
um strax i rúmiö... þvi ég verö
bókstaflega aö fá eitthvað heitt i
mig.
•
Þaö var veriö að ræða kyn-
feröisfræðslu i kennarastofunni.
Ein kennslukonan hélt þvi fram,
að það hlyti að vera erfitt að
kenna svona hluti. En einn starfs-
félagi hennar var á öndverðuro
meiði.
— Það er miklu erfiðara að
kenna landafræði, sagði hann. — 1
þeirri grein þarf maður alltaf að
vera aö kenna um staði, sem
maður hefur aldrei komið til.
•
Nýbakaði lögregluþjónninn var
I sinni fyrstu eftirlitsferð, þegar
hann sá sjaldgæfa sjón: A móti
honum gekk rösklegum skrefum
ung falleg stúlka — með vinstra
brjóstið hangandi út fyrir blúss-
una.
Hann rétti úr sér og snéri sér
að henni:
— Afsakið ungfrú, hafið þér
ekki gleymt einhverju?
Stúlkan horfði á hann — og leit
svo niður á sjálfan sig.
— Jesús minn! hrópaði hún. —
Ég hef gleymt barninu i strætó!
Aættun um uinferðamál
Tveir farmenn komu til
Lundúna og fóru á matsölustað að
seðja hungrið. Annar pantaði sér
kjötbollur en hinn medistapylsu,
en þegar þjónninn kom með
pöntunjna vixlaði hann
skömmtunum.
Tvimenningarnir voru ekki
vanir að borða á veitingarstöðum
og vildu þvi ekki gera ónæði með
kvörtunum, svo þeir ákváðu að
borða það sem fyrir þá var lagt.
A eftir sagði annar: — Heyrðu,
helvitis asnar getum viö verið!
Við hefðum getaö skipt um sæti...
•
Andrés og Bergur hittust einu
sinni sem oftar, og töluðu að
sjálfsögðu ekki um annað en upp-
' áhalds tómstundagamanið sitt:
Siglingar og flug. Bergur hélt að
sjálfsögðu fram ágæti flugsins
langtumfram siglingarnar, og lét
þess jafnframt getið, að hann
hefði i hyggju að smiða sina eigin
flugvél.
— Smiða þér flugvél sjálfur!
hrópaði Andrés vantrúaöur.
— Já, það hafa rriargir gert,
sagði Bergur og geislaði af sjálfs-
öryggi. — Þú hefur sjálfur byggt
bátinn þinn, er það ekki?
— Jú, vissulega, samsinnti
Andrés. — En ég kann þó að
synda!
•
Sumar konur hafa alveg hræöi-
legt minni. Þær gleyma bókstaf-
lega engu...
Fljótleg
auðgunarleið
Við næturhólfið á banka
nokkrum i Harrisburg, Penn-
sylvaniu, hékk eitt kvöldið
skilti, sem á stóð: „Ekki I notk-
un vegna bilunar. Dyravörður
tekur við i staðinn.” „Sex
viðskiptavinir létu þessvegna
fjármuni sina i hendur dyra-
verðinum, sem siðan hefur
verið leitað um allt land.
Endurmat
A þeim þrem árum sem liðin
eru siðan lokið var við vindu-
brúna yfir ána Cart i Skotlandi
hefur það kostað á þriðju miljón
króna að hafa vaktmann á
staðnum. A þessu timabili hefur
fjórum sinnum þurft að -vinda
brúna upp svo skip kæmust leið-
ar sinnar. Stendur nú til að meta
það á ný, hvort þörf sé á stöð-
ugri vakt.
Astarenglar
Körfuboltalið lögfræðistúd-
enta i Amsterdam kemur fram
undir þvi óvenjulega nafni
„Astarenglar”. Astæðan: Jú,
það er klámútgáfufyrirtæki,
sem styrkir liðið fjárhagslega.
Heyrt á balli
Jesús minn. Þau eru svo hjól-
beinótt, að þegar þau dansa
saman er einsog það sé hand-
snúinn rjómaþeytari.
Húsmóður-
hæfileikar
blómgast
t umræðum i franska sjón-
varpinu sagði einn fréttamann-
anna um húsmóðurhæfileika
samstarfskonu sinnar: Ja, þeir
eru þá helst i þvi fólgnir að hún
kemur öllum upptökusalnum i
suðupunkt á 20 minútum.
VISNA-
ÞÁTTUR
S.dór.
RÓMA ÞJÓÐ OG
ÆTTARLAND
Það stóö ekki á þvi að okkur
bærist linur i visuna sem kunn-
ingi hans Valdimars Lárusson-
ar orti fyrir 15 til 20 árum og við
birtum i siðasta þætti. Hall-
grimur Jónasson, sá kunni hag-
yrðingur kom með linuna sem
vantaöi og ég trúi ekki öðru en
Valdimar og kunningi hans
verði ánægðir með hana svona:
Nú skal óðar brýna brand,
beisla ljóða dýran gand,
eins frá sjóði rekja band,
róma þjóð og ættarland.
Það er sem sagt siðasta ljóð-
linan sem er frá Hallgrimi og ég
fæ ekki betur séð en að hún sé
svo vel felld að þvi sem á undan
kemur að ekki verði á betra kos-
ið.
Hér kemur svo staka eftir
Hallgrim sem hann lét fýlgja
með linunni:
Leigur bjóða kana klóm
klækja gróða hlaða.
Eigur þjóðar skitnum skóm
skattaóðir vaða.
Visan hans Adolf Petersen
vegna kvennaársins sem við
birtum fyrir þremur vikum
varð til þess, að kona ein i
Reykjavik svaraði „i samúðar-
skyni” eins og hún sagði,en svar-
visa hennar er svona:
Fjöri sviptur fellir tár
fornum siðum tryggur.
Hjálparvana og vina fár
verður sá er liggur.
Þessi var kveðin norður i
landi þegar Ólafur Jóhannesson
skipaöi Halldóri E. að leggja fé i
Gjábakkaveginn:
„Fjármála er voðinn vis,
vill þó stjórnin tóra,
eins og bústinn auragris
ÓIi kreistir Dóra”.
Fyrir nokkru var haldin árs-
hátlð Kvæðamannafélagsins
Iðunnar Nokkru áður var ákveð
ið að efna til verðlaunavisna-
samkeppni og voru verðlaunin
afhent á árshátiðinni. Sá háttur
var hafður á að mönnum var
gefið eitt orð sem miðrimis-
stofn. Svo fóru leikar að Andrés
Valberg fékk bæði 1. og 2. verð-
laun og eru visur hans svona:
1. verðlaun
Konum fyrst ég kanna hjá
kærleiks ystu merkin,
dýpra risti og dái þá
Drottins listaverkin.
Jón M. Pétursson frá Hafnar-
dal sendir okkur þessa stöku:
Reynist þiðleg rúmferðin
hjá ræfils landstjórninni
af henni skrlða óþrifin
útúr flatsænginni.
Hér koma svo þrjár visur eftir
Y.
Fegurð Austurstrætis
Hér finnst eitt og annað dót,
ýmsu er hægt að tjalda.
Götuskáldið gnæfir mót
gluggum Silla og Valda.
Þegar kosið var inná lista
heiðurslaun i stað Þórbergs,
Guðmundar Böðvarssonar og
Páls Isólfssonar:
Þótt þeir leggi lambaspörð
létt I bólið svana,
áfram standa opin skörð
eftir snillingana.
Við seinustu stefnu
VL-manna
Þeir stefna fyrir alltog ekki
neitt
Islenskan þeim veldur böli
þungu,
og skrifa kannski kanamálið
eitt
en kunna slður mæðra sinna
tungu.
Þá koma hér nokkrar visur
sitt úr hverri áttinni:
Þegar ég tók I hrundar hönd
með hægu glingri,
fannst mér, þegar eg var
yngri,
eldur loga á hverjum fingri.
Sigurður Breiðfjörð.
Netta fingur venur við
veifir slyngur korða,
hjartað stingur, fær ei friö,
fallega syngur langspiliö.
Vatnsenda-Rósa.
Þá fyrsta æsku-ástin hrein
var I mitt hjarta send,
ég þóttist standa á grænni
grein
— en guð veit hvar ég stend.
A skemmtifund með léttri lund
lifsins bundinn hætti
folinn skundar greitt um
grund
gæddur undra mætti.
2. verðlaun
Breiskur glanni brúkar kjaft
bölvun kann að vinna.
Hefur mannorð margra haft
milli tanna sinna.
Þegar hlákuna loks gerði á
dögunum varð Andrési litið út-
um gluggann og kvað:
Kviknar glóð við klakadranga,
klökknar óðum gatan hál.
Geislaflóðið vermir vanga
vekur ljóð i kaldri sál.
Þessi er aftur á móti eftir
Björn L. Gestsson:
Svona er ástin meyju og
manns,
man ei nokkur slika.
Ef hún fer til andskotans
ætlar hann þangað lika.
Hjúskapsgiftu vermast viö
virðist klippt og skorið.
Er þá skipting út á við
aðal-lyftisporið.
Reynist flest I veröld valt,
veltur margt úr skorðum,
ég er sjálfur orðinn allt
öðruvisi en forðum.
Prédikaði presturinn
um pislir vltisglóða.
„Amen” sagði andskotinn,
aðra setti hljóða.
örn Arnarson.